Morgunblaðið - 07.05.1988, Side 45

Morgunblaðið - 07.05.1988, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 45 Stutt pils afþökkuð Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Þegar bandarískir fata- hönnuðir sýndu hausttísku sína í New York nú fyrir stuttu, kom í ljós, að þeir höfðu alveg sleppt „míni“-pilsum í framleiðslu sinni. Ástæðan er sú að stuttu pilsin falla alls ekki í smekk hinnar venjulegu útivinnandi konu þar í landi. Pínu-pilsin sem framleidd voru fyrir nýliðinn vetur gengu ekki út, kaupendur sögðu einfald- lega: nei takk. Sala á stuttum pilsum fyrir sumarið hefur heldur ekki verið mikil. Því eru nú fullir rekkar af „míni“-pilsum á mikið niður- settu verði í góðum verslunum í New York, og öðrum borgum vestanhafs. Tap hönnuða og framleiðenda er þegar orðið mikið og ekki séð fyrir endann á því enn. Menn eru ekki sammála um hveiju sé um að kenna að svo af- drifaríkar ákvarðanir voru teknar á tískusviðinu. Talið var að konur Falleg svört buxnadragt frá Herrera. konur hafa greint frá því hversvegna þær vilji ekki stuttu pilsin. Ein kona sagðist ekki fara í vinnu sína að morgni klædd eins og Tina Tumer á leiksviðinu. Fréttarit- ari hjá NBC sagðist ekki geta staðið í því að taka viðtöl við ráðamenn og þurfa um leið að hafa áhyggjur af því að pilsfaldurinn færðist langt upp á læri sér. Ein önnur sagðist ekki geta séð Lee Iaeocca (þekktur maður í bandarísku viðskiptalífí) fyrir sér í stutt- buxum við samningagerð ir og aðra fundi viðskiptajöfra. Hún færi heldur ekki í „míni“- pilsi til slíkra funda. Þetta era allt góð og gild rök fyrir því að afþakka „míni“-pilsin, enda þurfa flestir að hugsa um meira en líðandi stund þegar fatakaup era annarsvegar, skyn- semin er látin ráða og tekið er mið af að þægilegt sé að klæðast flíkun- um. Áð öllum líkindum verða það því hæfilega stutt (eða síð) pils og síðbuxur, sem „blíva". Síðbuxur og jakki frá Ellis. Buxur „lilla" litar, jakki og hattur i dökkrauðu. Calvin Klein sýndi tvennskonar pilssíddir fyrir haustið. væra orðnar þreyttar á síðum pilsum en það hefði greinilega verið nóg að stytta þau dálítið en ekki þessi ósköp. Pilssídd við og um hné er það sem flestar konur kjósa, þ.e. þær sem komnar era til vits og ára. Ýmsar athugasemdir hafa birst á prenti í Bandaríkjunum þar sem SUBARU býður íslenskum fjallvegum og íslenskum aðstæðum óhræddur byrginn. SUBARU er sannarlega bíll þeirra manna sem starfa sinna vegna þurfa aö komast hvert á land sem er í hvernig færð sem er. Það er gott að vera SUBARU megin við stýrið þegar hraða, stöðugleika og ýtrasta öryggis er þörf. SUBARU - ÞEGAR MESTÁ REYNIR Ingvar Helgason hf. Sýningarsalurinn, Rauðagerði Sími: 91 -3 35 60

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.