Morgunblaðið - 07.05.1988, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 07.05.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 47 Afmæliskveðja: JÓNMUNDUR GUÐMUNDSSON Jónmundur Guðmundsson, móð- urbróðir okkar, frá Laugalandi, Fljótum, Skagafírði, er áttræður í dag 7. maí. Hann fæddist á Lang- húsum í Fljótum — sonur Guðmund- ar Ásmundssonar, Eiríkssonar bónda í Neskoti í Flókadal. Móðir Jónmundar var Lovísa Grímsdóttir — dóttir Gríms bónda og læknis á Minni-Reykjum i Fljótum. Grímur var fæddur á Möðrudal í Eyjafírði og foreldrar hans voru Magnús Grímsson, klausturhaldari Möðru- felli og kona hans Margrét Bene- diktsdóttir, sem var dótturdóttur séra Sigfúsar prófasts í Höfða á Grenivík. Jónmundur ólst upp á Laugalandi með systkinum sínum — Dúa, Eiríki og Eugeníu sem eru látin. Voru þau Laugalandssystkin orðlögð fyrir það hve samrýmd þau voru — glæsi- leg, greind og glöð í hóp. Að lýsa Jónmundi, frænda okkar, er mér Ijúft. Þar fer maður með mikla greind og kosti og fær um að standa þar sem straumar eru miklir. Hann er meðalmaður á hæð, grannvaxinn og snar í hreyfíngum — djarfur og hreinskilin á svip og hann talar sérstaklega fallegt mál. Hann er vel lesinn og hefur frábært minni og kann íslendingasögumar svo vel, að hann getur þulið orðrétt upp úr þeim. Jónmundur er hestamaður mikill og hefur yndi af góðum hest- um — er orðlagður tamningamaður og átti og á enn bestu hesta af Svaðastaðakyni. Sem unglingur vann Jónmundur venjulega sveitastörf heima fyrir og réri með föður sfnum. Hann var nemandi í Laugaskóla 1929 og 1930. 26. september 1931 giftist hann Valeyju Benediktsdóttur, Kristjánssonar frá Haganesi í Fljót- um. Valey er alkunn sæmdarkona, falleg, greind og fínleg og virt af öllum sem til hennar þekkja. Jónmundur og Valey tóku nú við búi á Laugalandi með dugnaði og orku. Þau byggðu nýbýli, steinhús lengra upp I fjallshlíðinni við þjóð- veginn nálægt Laugahólnum sem kallaður var. Þar var heit upp- spretta og rennandi laugavatnið sem var lagt inn í húsið til upphitun- ar og annarra þarfa. Þangað fluttu þau inn 1935 ásamt fyrsta bami þeirra, Unu, og foreldrum Jón- mundar, Guðmundi og Lovísu. Laugaland var talið með fyrstu húsum í landinu með innlagðan laugahita og vom þægindin á við það besta sem var í kaupstöðum á þeim tíma. Þar var til dæmis stórt og mikið baðherbergi með nýtísku hreinlætistækjum, stóm og miklu baðkeri á fótum með handsturtu og öðm sem tilheyrir. Það var oft margt í heimili á Laugalandi og mikill gestagangur og öllum vel tekið því þar var róm- uð gestristni, — þar var yfírleitt mikið af bömum yfír sumarmánuð- ina. Aldrei var slakað á vinnu og þar var unnið vel og með hyggju og búskapur allur til fyrirmyndar. Jónmundur kenndi einnig sund á sumrin og gegndi margvíslegum trúnaðarmálum fyrir sveit sína, þar á meðal var hann formaður Búnað- arfélagsins í Fljótum — einnig var hann formaður hreppsnefndar og skólanefndar. mm : RITVELAR REIKNIVÉLAR PRENTARAR TÖLVUHÚSGÖGN Jónmundur og Valey seldu Laugaland árið 1955 og fluttu til Akraness með böm sín þrjú. Þar vann Jónmundur við Sementsverk- smiðju ríkisins þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Böm þeirra hjóna em: Una, gift Guðjóni Hafliðasyni úr Fljótum, Guðmund- ur, giftur Emu Einarsdóttur, Hafn- arfírði og Benedikt, giftur Mattheu Sturlaugsdóttur, Akranesi. Auk þes ólu þau upp Sófanías Frímannsson sem nú býr á Syðra-Mói í Fljótum. Bamaböm Jónmundar og Valeyjar era nú 8 að tölu. Frændi okkar! Við þökkum þér og Valeyju fyrir óglejmianleg sumur á Laugavatni sem urðu sterkir þættir í uppeldi okkar systra. Þessar línur eiga að færa þér hinar bestu afmæliskveðjur frá okk- ur systram, Lillý, Diddu, Siggu, Lovísu og Katrínu og öllum í fjöl- skyldum okkar. Sigríður Bílddal Freymodsson BALTIMORE WASHINGTON 3 x í viku FLUGLEIDIR -fyrir þíg- HELSINKI lxíviku FLUGLEIDIR -fyrir þíg- Nýjta WANG PC2 iöivan sameinar alla helslu kosffi hinna WANG PC2 tölvan er full- komlega AT-samhæfö. Mikill vinnsluhraöi, þægi- legt lyklabord og skarpur skjár eru kostir sem VVang hefur sameinaö snillclar- lega. Armurinn gerir þér mögulegt aö stilla skjáinn eins og þér hentar. WANG PC2 hefur 80286 örgjörva og 6/8/10 MHZ klukkutíöni. WANG PC2 tölvan er fáan- leg meö 20 MB til 60 MB höröum disk, vinnslu- minni frá 640 KB, svart/ hvítum eöa litaskjá, Herkules, EGA eöa CGA grafík. WANG valmyndakerfiö og Mikrosoft teikni og ritvinnsluforrit fylgir meö í kaupunum. WANG PC2 er öflug ein- menningstölva fyrir ein- staklinga og atvinnurekst- »rt* Hfe. J . . . ■ WANG t»f. H, 1ÖÍ/ Bvil' Sirni:'ií-6915 00 Véfdu réf f, vefdu Wang
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.