Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 3

Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 Flugslysið í Mosfellsbæ: Fékkhnykká bakið en meidd- ist lygilega lítið - segir Níels Hauksson flugmaður „ÉG MEIDDIST í raun og veru lygilega lítið. Ég fékk snarpan hnykk þegar vélin lenti, er svolítið slæmur í bakinu og hef ekki farið til vinnu,“ sagði Níels Hauksson, flugmaðurinn sem brotlenti vél sinni við knattspyrnuvöllinn í Mosfellsbæ á laugardag. „En ég er óbrotinn og ætti að ná mér fljótlega." — Hvað fór úrskeiðis? „Það voru nokkrir búnir að fljúga henni fyrr um daginn og ég var nýkominn í loftið. Var búinn að taka smáhring og var í lokastefnu á brautina, ekki í nema um 150 feta hæð. Það var önnur vél skammt á eftir mér þegar ég sá vél fyrir á brautinni og ætlaði að beygja frá, taka annan hring og koma svo inn aftur. Ég beygði undan vindi en var ekki á nægum hraða. Þetta gekk yfir á fáeinum sekúndum, vindurinn var það mikill og ég flaug of hægt. Vélin „stollaði" út á hægri vænginn og niður. Hún lét ekkert að stjóm og þetta tók af á fáeinum andartök- um, miklu hraðar en maður átti von á.“ — Varstu vanur vélinni? „Já, ég var búinn að fljúga henni í 20-30 tíma. Er einn af rúmlega 20 manns í Flugklúbbi Mosfells- bæjar, sem átti hana. Við höfðum notað þessa vél sem hálfgert leik- fang.“ — Hvenær á að fara aftur í loft- ið? _ „Ég fór að fljúga áðan. Fór hring á fjögurra sæta Piper Warrior, sem ég á, til að taka úr mér skrekkinn. Ég gaf skýrslu um slysið í dag og eftir það má ég fljúga." — Verður gert við Piper Cub- vélina? „Ég reikna ekki með því. Hún er ónýt og ég býst ekki við að það verði gert við hana nema einhver áhugamaður vilji dunda sér við það í rólegheitunum. Það borgar sig ekki fyrir okkur að bjóða út vinn- una,“ sagði Níels Hauksson. Moldrokið í Mývatnssveit: Nauðsynlegt að friða við- kvæmustu gróðursvæðin - segir Sveinn Runólfsson Landgræðslustjóri MIKIÐ moldrok gekk yfir Mý- vatnssveit nú um helgina, en þurrkar hafa verið á þeim slóðum það sem af er sumri. Sveinn Run- ólfsson Landgræðslustjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta mold— og sandrok ætti líklega upptök sín á svokölluðum aust- ur—afrétti í Mývatnssveit og væri ástandið verst við þjóðveginn austan Námaskarðs. Þar eru mik- il sandfokssvæði og er gróður sem einkum er melgresi, mjög veik- burða. Mývatnssveit: Moldrok og mývargur Björk, Mývatnssveit. HÉR í Mývatnssveit er búin að vera suð—vestan átt að undnförnu, hlýtt, og stund- um bjart, og varla komið dropi úr lofti. Sendin tún, þar sem jarðvegur er mjög grunnur, voru farin að brenna, svo bændur hér í Vogum urðu að slá þau. Mik- ið hvassviðri hefur verið hér síðustu daga og moldrok, svo varla hefur sést til fjalla. Hætt er við, eftir þessa þurrka, að land hafí eyðst í hinum mikla sandbyl þegar skefur af auðnunum langt inn á öræfum og færir gróðurlendi í kaf, eins og nú má búast við að hafi átt sér stað. Mjög vondur mývargur hefur verið hér í sveitinni að undanf- örnu. Þó hefur hans lítið gætt í veðurofsanum síðustu daga. Hins vegar ber lítið á rykmý- inu, má segja að það hafí verið sveiflukennt síðustu ár. Sumir kenna um mengun í Mývatni. Aðrir telja að veðurfar eigi þar stóran þátt. Maímánuður var hér nú frekar kaldur og gerði frostnætur einmitt þegar mýið var að kvikna. Kristján Sveinn sagði að gróður á þessum slóðum hefði talsvert látið á sjá á undanfömum árum vegna mikillar beitar snemma vors og á haustin þegar fé hefði verið sleppt á þessi viðkvæmu svæði. Nú hefði sam- komulag hins vegar náðst við bænd- ur og upprekstri verið hætt eftir göngur og seinkað á vorin. Astandið myndi þá væntanlega lagast varð- andi beitarálag. „Það hefur verið til umræðu að girða þetta svæði af, friða fyrir beit og sá í það melgresi sem myndi þá binda og stöðva sand- fok. Þessi framkvæmd er dýr og ekki útséð um að'ráðist verði í slíkar framkvæmdir á næstunni. Heimalönd Reykjahlíðar eru einn- ig illa farin af uppblæstri og ástand í Skútustaðahreppi yfirleitt slæmt. Land er illa í stakk búið til að stand- ast slík veðraskilyrði og þurrka eins og nú hafa gengið yfir og er friðun alger forsenda þess að úr verði bætt“ sagði Sveinn. Þessi mynd er ekki tekin við Krossá heldur Steinholtsá sem alla jafna er það lítil vöxtum að menn taka ekki eftir henni er þeir aka yfir hana. Allt á floti í Þórsmörk Mesta vatnsveður í manna minnum herjaði á ferðafólk í Þórsmörk um helgina. Segja má að rignt hafi stanslaust í hálfan annan sólarhring og fór svo að flestir gáfust upp á bley- tunni á laugardaginn og héldu heim á leið. Heimleiðin reyndist þó mörgum þung í skauti því flestar smásp- rænur á leiðinni úr Þórsmörk og út á þjóðveg 1 voru orðnar að beljandi stórfljótum vegna veðurs- ins strax á laugardagsmorguninn. Myndirnar hér eru teknar við Steinholtsá sem flesta daga er það lítil vexti að enginn tekur eftir henni sem keyrir yfír hana. Er ljósmyndari Morgunblaðsins kom þar að uppúr hádeginu á laugar- dag var nýbúið að kippa Volvo- bifreið upp úr ánni en verið að stússa við að bjarga Lada-jeppa. Einn af hraustbyggðari áhorfend- unum brá sér út í iðuna og tókst að koma togi á jeppann sem síðan var kippt á land. Eigandi Subaru-bifreiðar fór næstur yfir og var brugðið á það ráð að festa hann við jeppa beggja meginn árinnar og draga hann þannig yfir. Gekk það að óskum sem og aðstoð sem veitt var við aðra fólksbíla. Þrátt fýrir vatnavextina í ánum við Þórsmörk um helgina mun enginn ferðamaður hafa lenti í teljandi vandræðum vegna þeirra. Morgunblaðið/Kjartan Blöndal Einn af hraustbyggðari áhorfendum bregður sér út í iðuna og kemur tógi í jeppann. Næstur yfir var þessi Subaru en brugðið var á það ráð að hafa hann fastan í tveimur jeppum báðum megin árinnar Hvalveiðar við ísland á þessari öld: Veiðamar hafa mimikað úr 1.300 dýrum í nokkra tugi Hvalveiðar hafa verið stundaðar við ísland allt frá því er land byggðist, þótt í litlum mæli væri. Hámarki náðu veiðamar í kring um síðustu aldamót þegar ný veiðitækni kom til sögunnar. Arið 1902 voru veidd flest stórhveli hér við land, 30 skip komu að landi með yfir 1.300 dýr. Þessi mikla veiði gekk nærri stofnunum og árið 1915 voru hvalveiðar frá íslandi bannaðar. Það bann stóð til ársins 1935. A meðan Heimsstyrjöldin síðari geisaði, lögðust hval- veiðar af og hófust ekki aftur fyrr en 1948, er Hvalur hf hóf rekstur hvalstöðvar í Hvalfirði. Þessar upplýsingar koma fram í grein, sem Jóhann Siguijónsson sjávarlíffræðingur ritaði í jóla- blað Víkings 1984 og er í eftirfarandi samantekt stuðst við upplýs- ingar, sem þar koma fram. Fyrstu árin eftir að Hvalur hf hóf hvalveiðar að nýju eftir stríð, voru veiddar fimm tegundir stór- hvela. Mest var veitt af langreyði, en þar næst komu búrhvalur og sandreyður. Lítið eitt var veitt af Steypireyði og sex hnúfubakar voru fangaðir. Hnúfubakurinn var alfriðaður hér við land árið 1955 og steypireyðurin árið 1960. Búr- hvalur var veiddur þar til 1982, að hann var einnig friðaður. Síðan þá hafa einungis langreyður og sandreyður verið veiddar af stór- hvölum. Alls veiddust árin 1948-1984 14.318 hvalir. Þar af voru lan- greyðar 8.727, eða að jafnaði 236 á ári, 61% veiddra dýra. Búrhvalir voru 2.886, 78 á ári, 20%. San- dreyðar voru 2.536, 69 á ári, 18%. Steypireyðar voru 163, 4 á ári, 1%. Hnúfubakar voru alls 6. í fyrra mátti veiða 100 dýr alls, 80 langreyðar og 20 sandreyðar. Ekki liggur endanlega fyrir hve mörg dýr verða veidd í ár, en þau verða ekki fleiri en 100. Hrefnuveiðar hófust hér við land árið 1914 og voru eingöngu til innanlandsneyslu fram á átt- unda áratuginn. Ársveiðin nam að meðaltali undir 50 dýrum fram til 1950. Upp úr 1960 hefja Norð- menn hrefnuveiðar hér við land og varð samanlögð ársveiði þeirra og Islendinga nálægt 200 dýrum á ári næstu 20-25 ár. Hrefnuveið- ar Norðmanna lögðust af með út- færslu fiskveiðilögsögunnar í 50 mílur. Hrefnuveiðar voru tak- markaðar með veiðikvóta frá 1977. Heildarkvótinn var fyrir hafsvæðið Austur-Grænland/ís- land/Jan Mayen og var samtals 320 dýr. Frá 1982 var kvótinn minnkaður árlega og með hval- veiðibanni 1986 lögðust hrefnu- veiðar hér við land af og hafa ekki verið stundaðar siðan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.