Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
69
Garður:
næst var gengið í skrúðgöngu í
skrúðgarðinn þar sem hátíðar-
höldunum var fram haldið. Fjall-
konan í ár var Guðbjörg Guð-
mundsdóttir og Hjálmar Arnason
skólameistari flutti ræðu dagsins.
Lúðrasveit Tónlistarskólans í
Keflavík lék undir stjórn Siguróla
Geirssonar, Sverrir Guðmundsson
og Jón Kristinsson sungu við undir-
leik Ragnheiðar Skúladóttur og
fleira var til skemmtunar. Einnig
voru skemmtiatriði inni í íþrótta-
húsinu við Sunnubraut, þar sem
bæjarstjórnin keppti í knattspyrnu
við íþróttaráð, keppt var í hand-
knattleik og sýndir voru fimleikar.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Frá 17. júní hátíðarhöldunum í skrúðg’arðinum í Keflavík. Þátttakan
var með minnsta móti í ár enda veður slæmt suðaustan rok og rigning.
Kef lavík:
Lítil þáttaka vegna veðurs
Keflavfk.
ÞÁTTTAKAN i 17. júní hátíðar-
höldunum i Keflavík var með
minnsta móti í ár og áttu veður-
g-uðirnir þar eflaust stærstan
hlut að máli. Veður var slæmt
til útihátíðarhalda, suðaustan
rok og rigning.
Hátíðarhöldin hófust með messu
í Keflavíkurkirkju þar sem Böðvar
Pálsson flutti hátíðarræðu. Því
það aðallega unglingar og að sögn
lögreglunnar bar mikið á ölvun.
Um nóttina var 17 ára piltur stung-
inn með hníf í bakið af 15 ára pilti
og var hann um tíma í lífshættu.
Pilturinn var fluttur í gjörgæslu-
deild Borgarspítalans og er á bata-
vegi.
- BB
„Enginn er verri
þótt hann vökni“
Garði.
ÞAÐ VAR í hávegum haft máltæk-
ið „Enginn er verri þótt hann
vökni“ á meðan skemmtiatriðin
voru keyrð í gegn utan við sam-
komuhúsið á þjóðhátíðardaginn.
Dagurinn var reyndar meira en
þjóðhátíðardagur í hugum Garða-
manna því haldið var upp á 80 ára
afmæli Gerðahrepps samtímis.
Það var hálfgerður hryssingur
í’onum — rok og rigning og urðu
samkomugestir að híma undir
vegg.
Skemmtiatriðin voru með svipuðu
sniði og undanfarin ár, oddviti Gerða-
hrepps, Finnbogi Björnsson, og
stúdínan ída Þórarinsdóttir fluttu
ávörp. Kirkjukór Útskálakirkju og
barnakór tónlistarskólans sungu. Þá
skemmti Litla leikfélagið yngstu
borgurunum með söng og tralli.
Hreppsnefnd Gerðahrepps var
með hátíðarfund á sviðinu að loknum
skemmtiatriðum. Var þar m.a. tekin
ákvörðun um að byggja upp stuttan
kafla af Skagagarðinum svonefnda
til að viðhalda og upphefja sögu
garðsins. Þá var tekin ákvörðun um
að gera styttu af Sigurði nokkrum
Sívertsen sem var klerkur í Útskála-
sókn í um 50 ár á síðustu öld og
mikill athafnamaður.
Að loknum skemmtiatriðum bauð
hreppsnefndin í kaffi og meðlæti sem
var ijómaterta af stærstu gerð. Var
áætlað að um 700 manns hefðu þeg-
ið boð hreppsnefndar sem þjónaði
gestum til borðs.
Ymsar fleiri uppákomur voru. Má
t.d. nefna að þegar söngurinn stóð
sem hæst hjá kirkjukórnum og böm-
unum flaug flugvél yfir svæðið og
dreifði karamellum. Þá kom norsk
lúðrasveit og spilaði nokkur lög og
Bjartmar Guðlaugsson mætti um
kvöldið og tók nokkur vel valin lög
og keyrði upp ■ fjörið fyrir dansleik
kvöidsins.
- Arnór
Um kvöldið var síðan úti-
skemmtun á Hafnargötu og voru
fáir sem tóku þátt í henni. Voru
Oddviti Gerðahrepps, Finnbogi Björnsson, sker afmælistertu Gerðahrepps. Morgunblaðið/Amór Ragnarsson
Neskaupstaður:
Hatíðarhöld í glamp-
andi sól og sumaryl
Neskaupstað.
Norðfirðingar héldu þjóðhátíð
í glampandi sólskini og 18—20
stiga hita. Þó kólnaði nokkuð er
leið á kvöldið. Hátíðahöldin fóru
fram með hefðbundnum hætti,
skrúðganga hófst kl. 13.30 og var
gengið að sundlauginni með við-
komu á sjúkrahúsinu þar sem
skólalúðrasveitin lék nokkur lög.
Við sundlaugina flutti Einar Már
Sigurðsson -kennari ávarp en síðan
hófst sundkeppni. A svæðinu austan
sundlaugarinnar höfðu skátar komið
upp tívolíi og skemmtu yngstu borg-
ararnir sé konunglega þar í góða
veðrinu. Á íþróttavöllinn var haldið
að aflokinni samkomunni við sund-
laugina. Þar var farið í ýmsa leiki
og allra yngsta knattspyrnufólkið lék
fótbolta þar sem leikgleðin sat í fyr-
irrúmi.
Um kvöldið var svo safnast saman
við Egilsbúð. Þar gátu menn reynt
sig við ýmiskonar þrautir, meðal
annars gafst mönnum kostur á að
láta leikmenn meistaraflokks Þróttar
í knattspyrnu ásamt stjórn knatt-
spymuráðs falla ofan í ker fullt af
ísköldu vatni. Galdurinn fólst í að
kasta bolta í mark og ef menn hittu
féllu fyrrnefndu í karið við mikinn
fögnuð viðstaddra. Mátti sjá marga
mæta borgara taka þátt í leiknum
og skemmta sér ekki síður en böm-
in. Að lokum lék hljómsveitin
Thorlazius fyrir dansi. Hátíðahöldin
voru fjölsótt.
17. júní-hátíðahöldin á Neskaupstað voru fjölsótt, enda sól og
blíðviðri.
ÞRÝSTIMÆLAR
Ryófrítt stál
KEfnifl
Skipholti 7, sími 91-27036
RAFSUÐUVÉLAR
/JJJJIi
HEILDVERSLUN, BRAUTARHOLTI 28
SlMI: 91 -27444
Djúpsteikingar
pottar
öruggur, snöggur steikirvel.
Fyrirliggjandi i mörgum stæröum.
Verö frá kr. 15.455,-
Gædi, Þekking,
Þjónusta
A. KARLSSON HF.