Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
12
Páfinn
heimsækir
Þingvelli
JÓHANNES Páll II páfí er væntan-
legur til íslands 3. júní á næsta ári
og eru uppi hugmyndir um útisam-
komur í Reykjavík og á Þingvöllum
með páfa. Um 60 fjölmiðlamenn
verða í för með páfa og er fyrir-
hugað að koma upp fjölmiðlamið-
stöð í Hagaskóla á meðan á heim-
sókninni stendur. Páfi kemur til
landsins frá Noregi og héðan held-
ur hann 4. júni til Finnlands, Dan-
merkur og Svíþjóðar. Vatíkanið
mun væntanlega gefa út íslands-
frímerki árið 1990, en venja er að
gefa út frímerki helguð öllum þeim
löndum sem páfi heimsækir.
í frétt frá undirbúningsnefnd
vegna heimsóknarinnar segir að þetta
sé í fyrsta sinn í sögu kristinnar
kirkju sem páfi heimsæki Norðurlönd
en það er Ráðstefna kaþólskra bisk-
upa á Norðurlöndum sem býður páfa
í hirðisheimsóknina dagana 1. til 9.
júní 1989. Með komu sinni er páfí
fyrst og fremst að vitja kaþólskra
safnaða sem eru minnihlutahópar á
norðurslóðum, en réttir um leið fram
hönd til allra kristinna manna og allra
þeirra sem áhuga hafa í þessum lönd-
um. Einkunnarorð heimsóknarinnar
eru úr Markúsarguðspjalli 16,15:
„Farið út um allan heim og predikið
fagnaðarboðskapinn öllu mannkyni."
Dagskrá heimsóknarinnar hefur
verið undirbúin í Páfagarði í samráði
við kaþólska biskupa Norðurlanda og
stjómvöld ríkjanna. Samkvæmt henni
fer páfi frá Róm til Oslóar 1. júní
en hann mun einnig heimsækja
Þrándheim og Tromsö. Til íslands
kemur páfi 3. júní og heimsækir
Reykjavjk og Þingvelli. Héðan heldur
hann 4. júní til Finnlands og heim-
sækir þar Helsinki og Turuk. Þann
6. júní kemur páfí til Danmerkur og
kemur til Hróarskeldu, Ásebakken
og 0m á Jótlandi auk Kaupmanna-
hafnar. 8. júní fer páfi til Svíþjóðar
og dvelur einn dag í Stokkhólmi. Fer
þaðan til Uppsala og Vadstena og
að kvöldi 9. júní kveður hann Linköp-
ing og heldur til Rómar.
I dagskránni er gert ráð fyrir fund-
um páfa með þjóðhöfðingjum Norður-
landa og ráðherrum úr ríkisstjómum
þeirra. I Osló heldur hann enn frem-
ur fund með Ráðstefnu kaþólskra
Norðurlandabiskupa og í öllum lönd-
um sem páfí heimsækir hittir hann
fulltrúa frá lúthersku þjóðkirkjunum
og fulltrúum annarra kristinna safn-
aða. í Uppsölum hittir páfí prófessora
og stúdenta úr sænskum háskólum
og í Helsinki fer hann á fund hjá
„Paasikivi-félaginu". Páfaheimsókn-
inni til Norðurlanda lýkur í Svíþjóð,
þar sem páfí mun syngja messu með
fulltrúum æskufólks frá öllum Norð-
urlöndum.
Þá segir enn fremur í frétt frá
undirbúnigsnefndinni, að Ráðstefna
kaþólskra Norðurlandabiskupa vonist
til að heimsókn páfa styrki og auðgi
trúarlíf innan kirkjunnar á Norður-
löndum og að fýrirhugaðir fundir með
fulltrúum þjóðkirknanna og annarra
kristinna safnaða verði til að auka
gagnkvæman skilning og styrkja á
þann hátt samkirkjulegt starf.
Úr ýmsum áttum
Ef við stingum niður fæti hér og
þar, þá hefur veiðst vel í Haffjarð-
ará sem opnaði síðla í síðustu viku.
Munu komnir milli 50 og 60 laxar
á land, yfirleitt rokvænn fiskur,
allt að 16 pund. Þverá og Kjarrá
hafa gefið saman um það bil 330
laxa og hefur Kjarráin verið mun
betri. Göngur fóru fram Hvítá og
Þverá í vatnsveðrinu um helgina
og má reikna með að veiði glæðist
á næstunni. Veiði hefur verið góð
í Elliðaánum og byijunin þar sú
líflegasta (frá sjónarhóli veiði-
manna en ekki laxa) í mörg ár.
Hafa veiðst allt að 18 laxar á dag
og á sunnudaginn voru komnir 70
laxar á land. Meðalþunginn þó
fremur rýr. Þá hefur veiði glæðst
verulega í Norðurá síðustu. daga,
en mikill lax gekk þar fram í vatna-
vöxtunum og stóru straumunum í
kringum helgina. gg-