Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 18

Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988 Málning sem gefur meira en ctóðan lit Peir sem kjósa að vernda hús sín fyrir framtiðina velja varla annað en góða málningu með eiginleika Steinvara 2000, Steinakrýl og Kópal Dýrótex. Málning hf. hefur valið að þjóna húseigendum með málningu sem gefur meira en góðan lit. Steinvari 2000, Steinakrýl og Kópal Dýrótex fæst í miklu litavali. Skoðaðu litakortin. Vandaðu valið og veldu útimálningu við hæfi. málning’f EB-markaðurinn: Frelsi í flutning- um á fjármagni 1. júlí 1990 Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins Fjármálaráðherrar Evrópubandalagsins samþykktu síðastliðinn mánudag- áætlun sem gerir ráð fyrir því að fullkomnu frelsi í flutningi á fjármagni innan bandalagsins verði komið á fyrir 1. júlí árið 1990. Þessi samþykkt er stórt skref í áttina að því mark- miði að gera bandalagið að einum markaði í árslok 1992. Átta aðildarríki standa að þessari samþykkt en hin fjögur, írland, Grikkland, Spánn og Portúgal hafa frest til ársins 1992 til að opna fjármagnsmarkaði sína. Samkvæmt samþykktinni verð- ur öllum hömlum á flutningi fjár- magns aflétt, gert er ráð fyrir að mestar breytingar verði hvað varð- ar flutning á ijármagni til skemmri tíma og með stuttum fyrirvara. Fyrirtækjum og einstaklingum verður kleift að opna bankareikn- inga hvar sem er innan EB. Ein- stökum aðildarríkjum verður heim- ilt að gera sérstakar ráðstafanir ef til stendur að flytja umtalsverð- ar upphæðir úr landi sem líklegt er að valdi óróa á peningamörkuð- um eða torveldi stjórn peninga- mála. Aðgerðir af þessu tagi munu ekki gilda lengur er í sex mánuði og þær ber að leggja fyrir fram- kvæmdastjómina sem getur sam- þykkt þær óbreyttar, gert á þeim breytingar eða hafnað þeim með öllu. Ráðherranefndinni er síðan ætlað að fara yfir úrskurð fram- kvæmdastjómarinnar og getur með einföldum meirihluta breytt honum. Stefnt er að því að ná samskon- ar samkomulagi við ríki utan bandalagsins um fijálsan flutning á fjármagni en um meiriháttar fjármagnsfærslur út úr bandalag- inu yrði fjallað af ráðherranefnd- inni. Þetta er talið merkilegt atriði vegna þess að í því felst viðurkenn- ing aðildarríkjanna á því að banda- lagið sé einn fjármagnsmarkaður gagnvart umhverfinu. Ljóst þykir að töluverð hætta muni vera á því að þetta nýja frelsi verði misnotað til að koma peningum undan skattheimtu með því að flytja þá til landa sem hafa mannúðlegar skattareglur. Ein- ungis Lúxemborg og Bretland telja aðgerðum til að koma í veg fyrir misnotkun af þessu tagi best borg- ið í höndum einstakra ríkisstjóma. Framkvæmdastjórnin hafi lagt til að fjármagnsmarkaðurinn yrði opnaður 1. júlí á næsta ári en til að herða á ráðstöfunum gegn skattsvikum og svindli var ákveðið að fresta gildistökunni um eitt ár. Ráherrarnir samþykktu að fram- kvæmdastjómin skyldi undirbúa °g leggja fram tillögur um sameig- inlegar aðgerðir í þessum efnum fyrir 31. desember nk. Ráðherra- nefndin skal síðan afgreiða þessar tillögur fyrir 30. júni á næsta ári. Samkvæmt samþykktum banda- lagsins verða allar samþykktir ráð- herranna sem varða skattamál að vera samhljóða. Að sögn Jacques Delors, framkvæmdastjóra, munu tillögumar fjalla um skattlagningu fyrirtækja og arðs af hlutabréfum, reglur um skatta af tekjum af höfuðstóli og vöxtum af banka- tryggingum og hvernig megi á árangursríkastan hátt skipuleggja samvinnu skattayfirvalda innan bandalagsins. Gjaldmiðlastarf Tillögur þær sem ráðherrarnir samþykktu voru fyrst lagðar fram í nóvember í fyrra. I viðauka sem þá fylgdi var tekinn af allur vafi um að aðild allra ríkja bandalags- ins að gjaldmiðilsamstarfinu (EMS, European Monetary Sy- stem) væri forsenda þessara að- gerða. Ljóst er að Bretar voru ekki tilbúnir til að samþykkja til- lögur framkvæmdastjóranrinnar óbreyttar og í endanlegri útgáfu samþykktarinnar er hvergi vikið að þátttöku í EMS. Bretar hafa hins vegar slakað á andstöðu sinni við samræmingu skattareglna inn- an bandalagsins, að öllum líkindum til að halda gjaldmiðlastarfinu utan við samþykktina. Delors gaf í skyn, eftir fundinn, að ekki hefði verið ástæða til að efna til ófriðar um þetta atriði á fundinum enda yrðu málefni EMS á dagskrá leiðtoga- fundar bandalagsins í Hannover i lok þessa mánaðar. Á það er bent að í kjölfar frjáls flutnings á fjár- magni sé umræða um gjaldmiðils- samstarfið óumflýjanleg og margir gera því skóna að sú staða komi upp að þeir gjaldmiðlar sem eru utan þess eigi ekki að vera í gjald- eyriskörfu bandalagsins heldur, vegna þess að þeir hafi áhrif á hana án þess að nokkru skikki verður yfir þá komið. Hindrun úr vegi Það er samdóma álit allra að með þessari samþykkt fjármála- ráðherra EB hafi umtalsverðum hindrunum verið rutt úr vegi og leiðin fram að 1992 sé nú greið- ari. Það hafi verið rétt að leggja áherslu á þá þætti sem líklegast var að samkomulag næðist um og láta deiluatriðin bíða betri tíma. Umfjöllun um þau væri að vísu óumflyjanleg en ljóst væri að and- staða einstakra þjóða yrði því erf- iðari sem fleiri samþykktir væru í höfn og markmiðið nær. Þáttaka í EMS hefur í hugum flestra verið forsenda þess að auka megi frelsi á peningamörkuðum en blaðinu hefur nú verið snúið við og allt þykir benda til þess að aðild að gjaldmiðilsamstarfinu verði óum- flýjanleg afleiðing fijáls peninga- markaðar. Það má a.m.k. fullyrða að án náinnar samvinnu og sæmi- lega heldra reglna gengi þessi samþykkt ráðherranna aldei upp. ...ímyndaðu þér mjúkt, ofboðslega gott kex. ...ímyndaðu þér bragðmikið appelsínuhlaup og ekta hnausþykka súkkulaðihúð. ...ímyndaðu þér PIMS frá LU, ólýsanlega gott kex. Ummm... að ímynda sér. E4 EGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 6-85-300 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.