Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
ÁS-TENGI
Allar gerðir
Tengið aldrei
stál - í - stál
Stoœteaogxur <JIfi)(rii©®®(ra & <S®
VESTURGOTU lh SlMAR I46BO ?1480
Raksápa og tannburstar.
Hagkvæm kaup.
Einkaumboð íslensk /////
Ameríska
F/////Í
0 a Electrolux
Storkök
Töfraofninn
sem getur allt
1 am
m
I i
I 1
8 4w
\
AR170S gj
fullkomnasti gufuofn sem völ er á.
Steikir, bakar, sýöur.
Hagstætt verö.
Gæði, Þekking,
Þjónusta
A. KARLSSOH HF.
HEILDVERSLUN, BRAUTARHOLTI28
SÍMI. 91 -27444
WÆÉ////
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ROBERTO SURO
Fomleifafundur frá því
Rómaborg- var stofnuð
Fomleifafræðingar sem vinna við uppgröft á Palatinhæð, einni
af sjö hæðum sem hin forna Rómaborg stóð á, hafa fundið leifar
af vegg sem talinn er vera frá því borgin var stofnuð. Upp-
götvunin er talin geta orðið til þess að breyta öllum hugmyndum
um sögu Rómaborgar. Fornleifafræðingarnir segja að þessi vegg-
ur ásamt öðrum nýlegum fundi við uppgröft á gömlu torgi í Róm
geri kleift að sýna fram á að þar hafi verið líflegt samfélag þegar
á sjöundu öld fyrir Krist, sem er töluvert fyrr en hingað til hef-
ur verið talið að borgin hafi verið stofnuð.
Deilur hafa vaknað vegna
þessa fomleifafundar. Áður
hefur því verið haldið fram að
Rómveijar hafi fylgt fordæmi
Grikkja og Etrúra í menningu.
Nýrri sjónarmið eru að Rómverjar
hafi verið fullt eins aðsópsmiklir
og hafi sjálfír þróað borgamenn-
inguna á Ítalíu og lagt sinn skerf
til vestrænnar menningar og hafí
ekki þurft að feta í fótspor ann-
arra.
Að auki segjast fomleifafræð-
ingar nú geta fært sönnur á að
stofnun Rómar hafi verið söguleg-
ur atburður sem hægt sé að stað-
setja í tíma og rúmi. Flestir sagrt-
fræðingar hafa til þessa hafnað
því sem sögulegri staðreynd og
talið það vera þjóðsögu að Rómúl-
us hafí stofnað borgina árið 753
fyrir Krist. Samkvæmt sögunni á
hann að hafa reist vegg þar sem
hann og tvíburabróðir hans, Rem-
us, vom aldir af úlfynju í fmm-
bemsku þeirra.
Deiluefnin um Rómaborg hafa
verið fleiri og hafa fomleifafræð-
ingar síðustu tuttugu árin velt því
fyrir sér frá hvaða tíma eigi að
tala um að Róm hafí orðið að
Rómaborg.
Niðurstöður og skýrslur um
nýju uppgreftina í Róm hafa ekki
verið birtar opinberlega og em
ekki kunnar nema einstaka sér-
fræðingum sem hafa átt hlut að
máli. Enn á eftir að rannsaka að
fullu þá muni sem fundist hafa
við uppgröftinn. Fomleifafræð-
ingar sem hafa staðið fyrir rann-
sóknunum telja að ótímabært sé
að koma með stóryrtar yfirlýsing-
ar áður en allt er að fullu kannað
um aldur og gerð þess sem fund-
ist hefur.
Sérfræðingar sem inntir hafa
verið álits á uppgötvununum í
Róm hafa verið varfæmir í svör-
um og hafa tekið því heldur fá-
lega að veggjarfundurinn í Róm
geti gefíð vísbendingar um stofn-
un Rómaborgar. Allir hafa þeir
þó fagnað því að loks hafí fundist
fomleifar frá tímabilinu 800 til
500 fyrir Krist en hingað til hefur
skort nokkuð á heillegar minjar
frá þessum tíma þegar Róm
breyttist úr kofaþyrpingu í borg
með reisulegum hofum.
„Þetta er stór og dýr uppgröft-
ur, sem mun krefjast mikils starfs
við úrvinnslu," sagði Richard
Brilliant prófessor í listasögu og
fomleifafræði við háskólann í
Kólumbíu í Suður-Karólínuríki í
Baudaríkjunum. Hann skoðaði
uppgröftinn í maímánuði síðast-
liðnum. „Ef kenningamar sem
komið hafa fram í tengslum við
uppgröftinn reynast réttar, sem
ég tel að þær séu í megindráttum,
þá veldur þessi uppgröftur bylt-
ingu í þekkingu manna á Róm
þann tíma sem borgin var að þró-
ast úr þorpi í borg,“ sagði Brill-
iant.
Russell T. Scott, einn þeirra
fomleifafræðinga sem unnið hafa
við uppgröftinn á foma torginu í
Róm, sagði um uppgötvanimar:
„Við gerum okkur nú grein fyrir
því að Rómveijar mynduðu flókið
borgar-samfélag á þeim tíma sem
margir sagnfræðingar hafa til
þessa gert ráð fyrir að þeir hafi
verið fjárbændur.“
Annar breskur fomleifafræð-
ingur, Colin Renfrew við háskól-
ann í Cambridge, varar við því
að tengja fundinn nú við stofnun
Rómaborgar. „Fornleifafundurinn
Frá uppgreftrinum á Palatín-
hæð.
getur verið mikilvægur og stór-
kostlegur, en það mátti gera ráð
fyrir því að veggjarbrot fyndust
víða í Róm þar sem borgin hefur
staðið þama öldum saman,“ sagði
Renfrew. „Þó veggurinn sé á Pal-
atínhæð og þetta gamall þarf
hann ekki að sanna tilvist Rómúl-
usar eða gefa vísbendingar um
stofnun Rómar," bætti hann við.
Uppgröfturinn á Palatínhæð
hefur staðið í fjögur sumur. Frá
upphafí var gert ráð fyrir að hann
yrði mikilvægur, þar sem hann
er á þeim stað sem nefndur hefur
verið „hjarta Rómar“ af Andrea
Carandini, sem stjómað hefur
uppgreftrinum fyrir háskólann í
Pisa. Rannsóknastaðurinn er í
norðaustur hlíð Palatínhæðar,
sem gefíð hefur höllum nafn sitt
í mörgum tungumálum ( s.s.
palace á ensku).
Fomleifafræðingamir hafa ver-
ið að grafa í hlíðarfætinum þar
sem Via Sacra, heilagi vegurinn,
er. Vegurinn heilagi liggur í aðra
áttina til sigurboga Títusar og
leikvangsins forna Colosseum. I
hina áttina liggur vegurinn fram-
hjá hofi Vestumeyja og að Kapí-
tólhæð, einni af hinum sjö hæðum
sem Rómaborg var reist á, þar
var torg til foma.
Við uppgröftinn hefur margt
fundist sem gefur til kynna á
hvern hátt borgin þróaðist frá því
að vera óbyggð til borgarsam-
félags, að sögn Carandini og fé-
laga hans. Eitt af því sem þeir
telja sig geta bætt við söguna er
tímasetning þess þegar Rómvetj-
ar sameinuðust fyrst um að
byggja varnarvirki fyrir borgina,
en sá atburður er talinn hafa
markað þáttaskil í þróun fornra
menningarsamfélaga.
Þremur metrum undir draum-
sóleyja- og fíflabreiðunum fannst
veggurinn sem Carandini segir
vera staðfestingu á þjóðsögunni
um Rómúlus sem skráð var af
rómverska sagnfræðingnum Láv-
íusi. Carandini segir að veggjar-
brotin og skurðimir, sem fundust
við uppgröftinn, myndi samskonar
einingu og venja var að reisa þeg-
ar stofnað var til nýrrar borgar
sem byggð var með blessun Guðs.
„Verði kenningar okkar ekki
viðurkenndar," sagði Carandini,
„hefur samt sem áður verið sann-
að með þessum uppgreftri að dag
nokkum á árunum milli 900 og
800 fyrir Krist varð þorpið, sem
hér stóð og var ekki á neinn hátt
frábrugðið öðrum þorpum á þess-
um slóðum, að einhvetju mjög
sérstöku. Rómaborg var stofnuð,
vegna þess að íbúarnir töldu að
þeim hefði verið falið sérstakt
hlutverk, annað og meira en
venjulegra þorpsbúa, sem veitti
þeim kraft og hvatti þá til að þróa
það samfélag sem síðar varð und-
irstaðan að Rómaveldi hinu
foma,“ sagði Carandini. „Það sem
við höfum fundið hér tengir sam-
an bókmenntaarf og sagnfræði."
Höfundur er blaðamaður hjá
New York Times.
Gönguskómir frá Scarpa eru
bæöi traustir og þægilegir.
Fyrir stuttar sem langar göngu-
ferðir, á jafnsléttu sem um fjöll
og firnindi. Hjá Skátabúöinni
færöu aðstoð viö val á þeim
skóm er henta þínum þörfum.
Ráöleggingar okkar eru byggð-
ar á reynslu.
Skátabúðin — skarar framúr.
SKÁTABÚÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045