Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
37
STEINGRÍMUR Lárusson, bóndi í Hörgs-
landskoti á Síðu, hóf slátt siðastliðinn þriðju-
dag, eins og- fram hefur komið. Steingrímur
er einn af þeim fyrstu sem hefur slátt á
þessu sumri og þegar Morgunblaðsmenn litu
við í Hörglandskoti á fimmtudag var hann
Heyskapur hafinn
önnum kafinn við hirðingu. Hann verkar
þessa fyrstu slægju sumarsins í vothey, enda
þarf lítinn fóðurbæti að gefa með því ef
vel er verkað og heyið gott. Kýrnar á bæn-
um virðast vera ánægðar með heyið hjá
Steingrími því hann hefur fengið viðurkenn-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ingu nokkur ár í röð frá Mjólkurbúi Flóa-
manna fyrir úrvalsmjólk. Þegar ekið er um
Suðurland má sjá að gras er víða vel sprot-
tið en þó sýnu mest á Síðunni og má vænta
þess að fleiri bændur þar hefji heyskap á
næstu dögum.
Skólamáladeild Evrópuráðsins:
Óhj ákvæmilegt að breyta náms-
efni og kennslu í grunnskóluniim
Niðurstöður athugana skóla-
máladeildar Evrópuráðsins á
Morgunblaðið/Ól.K.M.
rnarmaður í Skógræktarfélag-
únaðarráðherra, Jón Höskulds-
emdastjóri félagsins og Ólafur
ýrdal
"æktar
lagsmenn um 1.300 um þessar
mundir. Formaður Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur er Þorvaldur S.
Þorvaldsson, varaformaður Jón
Birgir Jónsson, gjaldkeri Björn
Ófeigsson og ritari Ólafur Sigurðs-
son. Meðstjómendur eru Bjami K.
Bjarnason, Kjartan Sveinsson,
Reynir Vilhjálmsson og Þórður Þ.
Þorbjamarson.
kennslu 6-12 ára barna í Vestur
Evrópu voru þær að óhjákvæmi-
legt væri að endurskoða mark-
mið og skipulag námsefnis og
kennslu. I framhaldi þessa var
haldin ráðstefna hér á landi og
ráðgert er að kynna niðurstöð-
ur og tillögur bæði í skólum og
á öðrum vettvangi. Lokaskýrsla
verkefnisins verður kynnt í að-
ildarríkjum Evrópuráðsins á
þessu ári.
Tilgangur þessa verkefnis var
að skoða og skilgreina hlutverk,
markmið, skipulag og inntak náms
á þessu aldursstigi með hliðsjón
af þeim breytingum sem orðið
hafa á undanförnum árum og fyr-
irsjáanlegar væru á næstu árum.
í tengslum við verkefnið var kom-
ið á „samstarfsskólakerfi" milli
12 skóla í Evrópu sem allir vinna
að tilrauna- og nýbreytniverkefn-
um. Auk þess að athuga starfsemi
„samstarfsskólanna“ var áhersla
lögð á rannsóknir á nýbreytni-
störfum í löndunum.
Öll aðildarlönd ráðsins áttu full-
trúa í starfshópi og átti Sigríður
Jónsdóttir, námsstjóri, þar sæti
fyrir íslands hönd. Helstu niður-
stöður verkefnisins og tillögur
voru kynntar hér á landi á ráð-
stefnu á vegum menntamálaráðu-
neytisins í maí, þar sem sátu full-
trúar skólayfirvalda, fulltrúar Há-
skóla Islands, Kennaraháskóla ís-
lands, Fósturskóla íslands, Náms-
gagnastofnunar, aðilar frá sam-
tökum kennara og námstjórar
menntamálaráðuneytisins, alls um
50 manns. Sérstakir gestir á ráð-
stefnunni voru þrír fulltrúar frá
Evrópuráði og m.a. var þar Guilia
Podesta, en hún hefur haft umsjón
með verkinu af hálfu ráðsins sl.
þrjú ár.
Hafeldi hf.:
400 þús-
und laxa-
seiði sett
í Straums-
víkurhöfn
Grindavík.
STARFSMENN Hafeldis hf. í
Grindavík eru þessa dagana
að fjölga sjóeldiskvíum í
Straumsvíkurhöfn úr átta í
tuttugu, því mæta á sölutregð-
unni á laxaseiðum til Noregs
með því að setja 400 þúsund
laxaseiði frá Pólarlaxi hf. í
Straumsvík og Fiskeldi hf. á
Húsavik í kvíarnar, auk þess
sem hafbeit frá þessum fyrir-
tækjum verður aukin veru-
lega.
Að sögn Finnboga Kjeld, eins
af eigendum þessara fyrirtækja,
var reiknað með sölu á miklu
magni laxaseiða til Noregs síðast-
liðinn vetur, en þegar tregðan
byrjaði varðandi söluna var strax
hætt við að búast við árangri og
snúið sér að því að gera aðrar
ráðstafanir. Nú er unnið að því
að korha 400 þúsund seiðum í
kvíeldi í Straumsvíkurhöfn og
svipuðu magni verður sleppt í haf-
beit.
I Straumsvíkurhöfn er unnið
undir stjórn Geirs Heiðarssonar,
stöðvarstjóra Hafeldis hf., að því
að losa eins árs fiskinn úr kvíun-
um, um 80 þúsund seiði, sem fara
í stóra Bridgestone-kví út með
ströndinni, en honum verður siðan
slátrað í haust. „Við erum í kapp-
hlaupi við tímann, því allt er orðið
yfirfullt í seiðaeldishúsum Pólar-
lax hf. og Fiskeldis hf. og horfir
til mikilla vandræða ef ekki verður
hægt að taka á móti seiðunum
næstu daga. Við erum búnir að
bæta við fimm kvíum við þær átta
sem voru hér fyrir en alls verða
hér 20 kvíar til þess að mæta
þessum seiðafjölda," sagði Geir í
samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins.
- Kr. Ben.
Ný taxtatímabil sím-
tala frá Bandarílq unimi
Washington, frá ívari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Langlínusímafélagið AT-T
auglýsir í bandarískum blöðum
þessa dagana, að félagið hafi
sótt um samþykkt viðkomandi
viðskiptayfirvalda á breyting-
um á daglegum símataxtatíma-
bilum félagsins frá þeim sem
Búvörudeild Sambandsins:
Arni Jóhannsson ráð-
inn framkvæmdastjóri
ARNI Jóhannsson, kaupfélags-
sljóri á Blönduósi, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri bú-
vörudeildar Sambandsins og
tekur hann við af því starfi
þann 1. ágúst næstkomandi af
Magnúsi Friðgeirssyni, sem hef-
ur verið ráðinn forstjóri Iceland
Seafood Corporation, sölufyrir-
tækis Sambandsins í Banda-
rikjunum. Nýr kaupfélagssljóri
á Blönduósi hefur enn ekki ver-
ið ráðinn.
Arni Jóhannson er fæddur árið
1939 og útskrifaðist úr Samvinnu-
skólanum á Bifröst 1961. Hann
var kaupfélagsstjóri á Hólmavík
1967-’68 og hefur verið kaupfé-
lagsstjóri á Blönduósi og fram-
kvæmdastjóri Sölufélags Austur-
Húnvetninga síðan 1968. Árni sat
í sveitarstjórn á Blönduósi í 12 ár.
Hann hefur átt sæti í Framleiðstu-
ráði Landbúnaðarins og í stjórn
Samvinnusjóðs og Vinnumálasam-
bands Samvinnufélaganna. Þá
hefur hann verið formaður Félags
sláturleyfishafa undanfarin tvö ár.
Ami er kvæntur Bryndísi Ár-
mannsdóttur og eiga þau fimm
börn.
Árni Jóhannsson
nú eru í gildi um simtöl milli
Islands og Bandarikjanna.
Símagjöldin sjálf verða hinsveg-
ar þau sömu og áður.
Deginum er sem fyrr skipt í
þijú taxtatímabil sem hér segir:
Grunngjald: Frá kl. 13.00-20.00
að bandarískum tíma. Þetta er
dýrasta tímabilið, 2,23 dollarar
fyrir fyrstu mínútuna og 1,25 fyr-
ir hverja næstu mínútu þar á eftir.
Afslattargjald: Frá kl. 07.00-
13.00. Verðið er 1,67 dollari fyrir
fyrstu mínútuna og 0,94 dollari
fyrir hveija næstu mínútu.
Sparnaðargjald: Frá kl. 20.00-
07.00. Þar kostar fyrsta mínútan
1,33 dollara og hver sú næsta 0,75
dollara. (Islenskan tíma má finna
með því að bæta ljórum klukku-
stundum við amerískan sumartíma
og fimm klukkustundum við vetr-
artímann.)
íslendingar í Bandaríkjunum og
aðrir, sem nota símann mikið milli
Bandaríkjanna og íslands, eru
yfirleitt óhressir með skiptingu
tímabilanna, sem símafélagið seg-
ist velja til að jafna álagið á firð-
samtölin milli þessara landa.
Verði tillögur AT-T samþykkt-
ar, sem ekki er talinn neinn vafi
á, þá koma nýju tímabilin til fram-
kvæmda þann 27. júní.