Morgunblaðið - 21.06.1988, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
Glaðbeittir nýstúdentar fagna hvítu kollunum.
MA brautskráði 112 stúdenta:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Umsóknir um skólavist
hafa aldrei verið fleiri
Barnauppeldið tók
tíma frá skólanum
- segir dúxinn Arna Ýrr Sigurðardóttir
SKÓLASLITIN í Menntaskólan-
um á Akureyri setja alltaf sinn
svip á hátíðahöldin á 17. júní, og
svo var einnig nú er honum var
slitið í 108. sinn. Að þessu sinni
voru brautskráðir 112 stúdentar
og er það svipaður fjöldi og und-
anfarin ár. Utskriftin fór fram
í íþróttahöllinni, og er það í ann-
að sinn sem athöfnin fer þar
fram, en venjan var að hún færi
fram í Akureyrarkirkju.
í ræðu sinni við útskriftina sagði
Jóhann Sigurjónsson, rektor, að
þrátt fyrir að framhaldsskólum á
landsbyggðinni hefði fjölgað mikið
á síðustu árum hefði það ekki haft
þau áhrif að þangað kæmu nemend-
ur víðs vegar að af landinu og gat
hann þess að fjöldi skráðra nýnema
við skólann hefði aldrei verið meiri
en nú. Hann sagði að umsóknir um
skólavist á 1. ári væru á bilinu
230-240, en fyrirsjáanlegt væri að
mörgum þeirra yrði að vísa frá
vegna þrengsla og skorts á kennur-
um.
Þá fjallaði Jóhann í ræðu sinni
Hestamannamót á Melgerðismelum:
Eitt hrossanna tagl-
skorið að næturþeli
ROK OG rigning setti svip sinn
á mót hestamanna á Melgerðis-
melum um helgina. Nokkur dag-
skráratriði fóru út um þúfur af
þessum sökum og slíta þurfti
mótinu fyrr en ella á sunnudag.
Rysjótt tíð aftraði þó ekki stiga-
mönnum frá því vinna spjöll á
einu kynbótahrossana að nætur-
þeli aðfaranótt laugardags.
Hrossið sem hér átti í hlut mætti
til keppni með skorið fax og tagl,
en náði engu að síður öðru sæti
í A-flokki gæðinga.
Mótið hófst á þriðjudag með for-
skoðun kynbótahrossa í Svarfaðar-
dal. Á miðvikudag fór fram for-
keppni í B-flokki gæðinga og á
föstudag forkeppni í A-flokki. Þeg-
ar kom fram á laugardag var veðr-
ið farið að setja strik í reikninginn
og þurfti að aflýsa öllum dagskrár-
atriðum. Úrslit réðust fyrir hádegi
á sunnudag en þá varð að slíta
mótinu. „Það má segja að stanslaus
vindbelgingur hafi staðið fram í
mótslok," sagði Jón Ólafur Sigfús-
son, formaður hestamannafélagsins
Leifturs, sem skipulagði mótið
ásamt Funa, Þráni og hrossarækt-
arsamböndum Eyfirðinga og Þing-
eyinga. „Þetta átti að vera veglegt
mót, enda lá mikil skipuiagning og
tilkostnaður að baki. Við höfum
ekki gert reikinga upp, en sjálfsagt
verður útkoman ekki ýkja góð.“
Hátt í 240 kynbótahross voru
sýnd á mótinu. Sextíu prósent allra
hryssa náðu því marki að verða
skráðar í ættbók. Meðal fjögurra
og fimm vetra hryssa var hlutfallið
þó enn betra, eða 80%. Ein hryssa,
Hreyfing frá Árgerði, vann til
fyrstu verðlauna með einkunnina
8,05.
Á laugardagsmorgun uppgötvað-
ist að tagl og fax hestsins Vinar
hafði verið klippt. Leiddu menn að
því getum að það hefði verið gert
til að lýta hrossið og rýra mögu-
leika þess í keppni. Vinur var
geymdur utan girðingar mótshald-
ara og urðu vaktmenn ekki varir
mannaferða, en fáir gistu Melgerð-
ismela þessa nótt. Hesturinn var
sæmilega fextur og sá ekki mjög á
honum. Fór svo að Vinur hafnaði
í 2. sæti í forkeppni og úrslitum.
Eigendurnir kærðu atburðinn ekki
og virðist lítil von til þess að málið
upplýsist, að sögn Jóns Ólafs.
HÆSTU einkunn á stúdents-
prófi 8,81, hlaut Arna Ýrr Sig-
urðardóttir á málabraut, en
jafnframt hlaut hún næst hæstu
einkunn á fjórðabekkjarprófi,
9,06, en hæst var Inga María
Jóhannsdóttir, nemandi á nátt-
úrufræðibraut, með einkunnina
9,13.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Ama Ýrr að eftir fyrsta
veturinn sinn í menntaskólanum
hefði vart mátt búast við þessum
árangri hennar því það hefði verið
einhver lakasti veturinn hennar í
skólapum, enda hefði hún verið
haldin gífurlegum námsleiða. „En
sem betur fer þá tók ég mér frí
ásamt eiginmanni mínum, Gunn-
ari Árnasyni, og við fórum til
Englands í enskunám, og þaðan
kom ég alveg endurnærð,“ sagði
Arna Ýrr, og það má til sanns
vegar færa því í fyrra lék hún
þann leik að fá 10 í öllum þeim
fögum sem hún tók próf í á vor-
misserinu.
„Skólinn hefur samt setið á
hakanum hjá mér í vetur því ég
eignaðist barn á síðasta ári. En
við hjónin höfum átt góða að; sem
hafa verið mjög hjálplegir. Öðru-
vísi hefði þetta ekki verið hægt,
því auðvitað hefur bamauppeldið
tekið dijúgan tírna."
Hún var spurð að því hvað hún
hyggðist taka sér fyrir hendur
næsta vetur, og sagðist hún ætla
að vinna. „Eiginmaður minn á
eftir einn vetur í menntaskólanum
og ég ætla að bíða eftir honum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ama Ýrr Sigurðardóttir, dúx á
stúdentsprófi.
Ég er búin að sækja um sem
blaðamaður hjá Degi næsta vetur,
og ég gæti vel hugsað mér að
fara í framtíðinni út í einhvers-
konar íjölmiðlanám. Það á hins
vegar eftir að koma í ljós hvort
ég fæ vinnu á Degi eða ekki, og
þá einnig hvemig mér líkar við
fjölmiðlastarfið. Þá hef ég einnig
mikinn áhuga á tungumálanámi,
því tungumálin eru mitt fag, og
best þætti mér að geta sameinað
nám í hvorutveggja, og fara t.d.
til Þýskalands eða Frakklands að
læra,“ sagði Arna Ýrr Sigurðar-
dóttir að lokum.
___kjótax 7
STEFAHIA
96-26366 AKUREYRI 96-26366
um kynslóðatengslin sem hann
sagði vera einkennandi fyrir
Menntaskólann á Akureyri. Benti
hann á að Guðrún Tómasdóttir,
söngkona, sem söng við skólaslitin
væri þarna komin til að halda upp
á 40 ára stúdentsafmæli sitt, en
hjá henni hefði sr. Jón Aðalsteinn
Baldvinsson fengið tilsögn í söng
þá er hann var í guðfræðinámi á
sínum tíma, en hann væri einmitt
20 ára stúdent í dag. Þá lék dóttir
sr. Jóns, Sigrún, undir við söng
Guðrúnar, en Sigrún brautskráðist
frá skólanum þennan dag, og svona
sagði rektor að kynslóðir nemenda
menntaskólans tengdust hver ann-
arri.
„En kynslóðatengslin lýsa sér í
fleiru," sagði Jóhann Sigurjóns-
son.„Þau lýsa sér í þeim mikla flölda
fólks sem vill vera viðstaddur skóla-
slit Mennataskólans á Akureyri, en
hér inni eru nú á annað þúsund
gesta. Hingað flykkjast gamlir
nemendur skólans af öllum ár-
göngum þó svo að hinir hefðbundnu
júbílantaárgangar séu hér fjöl-
mennastir. Allt þetta fólk er hér
komið til að votta sínum gamla
skóla tryggð, vináttu og virðingu."
Þeir sem sigruðu í eldri flokki unglinga. Taldir frá vinstri Eiður
Matthiasson á Geisla, Sigfús Jónsson á Rispu og Sigrún Brynjars-
dóttir á Blæ.
Ágúst sig1-
urvegari í
þríþraut
FYRSTA keppnin í þríþraut á
íslandi fór fram 17. júní og var
sigurvegari Borgfirðingurinn og
hlauparinn Ágúst Þorsteinsson.
Tími hans var 1 klst. 10 mín og
1 sek. og var hann rúmum 6
mín. á undan næsta manni.
Byrjað var á að ræsa hina 12
þátttakendur við sundlaugina þar
sem þeir þreyttu 500 metra sund.
Þaðan snöruðu keppendur sér í
íþróttaföt og á bak reiðhjólum, því
næsta grein var 20 km. hjólreiðar.
Að síðustu var keppt í 5 km. hlaupi,
og það var ekki fyrr en á enda-
sprettinum sem ljóst var hvernig
niðurröðun í efstu sætin yrði.
Sem fyrr segir sigraði Ágúst
Þorsteinsson, en hann var eini kepp-
andinn sem áður hefur tekið þátt í
keppni af þessu tagi. í öðru sæti
var Páll Jónsson, frá Dalvík, og í
þriðja sæti var Ólafur Bjömsson,
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sigurvegarinn í þriþrautinni
snarast hér á bak reiðhjóli sínu
eftir 500 metra sundsprett í
sundlauginni.
frá Ólafsvík. Skildu einungis rúmar
23 sek. þá að.
Fyrirhugað er að halda keppni í
þríþraut árlega hér eftir og að sögn
Sigurðar P. Sigmundssonar, sem
ásamt öðrum hafði veg og vanda
að þessari keppni, er ekki ólíklegt
að þá verði keppt í helmingi lengri
vegalengdum en nú var gert.