Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 57

Morgunblaðið - 21.06.1988, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ1988 57 eiga pínulítið í þeim og saknaði þeirra eftir að þau fluttu suður og Nöfín varð tóm. Helga ömmusystir, en það var hún alltaf kölluð af okkur systkinunum, dvaldi síðustu árin á Hrafnistu í Reykjavík. Þegar ég heimsótti hana þangað spurði hún alltaf frétta frá Siglufirði enda var fjörðurinn og fólk.ð sem þar býr jafnan ofarlega í huga hennar. Systrabörn Helgu, Hanna og Hin- rik ásamt fjölskyldum, þakka henni ljúfar endurminningar, hlýhug og ánægjulegar samverustundir. Ast- vinum hennar öllum sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Megi Helga ömmusystir mín hvfla í friði. Ingibjörg Helga fæddist á Akureyri. Foreldr- ar hennar voru Jóhanna Gísladóttir og Jón Jonsson utanbúðarmaður hjá Höefnerverslun. Böm þeirra hjóna voru fjögur; Gunnlaugur Tryggvi, bóksali, Ingibjörg, gift Andrési Haf- liðasyni forstjóra á Siglufirði, Helga, sem hér er minnst, og Alfreð, lager- maður, giftur Báru Sigurjónsdóttur. Guðrún Jónsdóttir, sem bjó að Stór-Hamri í Öngulstaðahreppi í Eyjafirði, var hálfsystir þeirra. Helga sleit bamsskónum á Akureyri í faðmi foreldra og systkina. Skólagangan var bamaskólinn. Um 1920 fór Helga til Siglufjarðar í vist til Ingibjargar systur sinnar. Þann 6. mars 1924 giftist hún móðurbróður mínum, Skafta Stef- ánssyni útgerðarmanni. Þeim varð fímm bama auðið. Fjögur þroskuðust í faðmi þeirra en lítil stúlka, Dýrleif, á himnum. Börnin sem lifa eru: Jón yfirborgarfógeti, giftur Hólmfríði Gestsdóttur, Stefán yfirlæknir á Borgarspítalanum, giftur Maj Ivars- son, Gunnlaugur Tryggvi skrifstofu- maður hjá Afengis- og tóbaksverslun ríkisins, giftur Vigdísi Jónsdóttur, og Jóhanna Dýrleif bókasafnsfræð- ingur á Landspítala íslands, gift Bimi Gunnarssyni. Bamabömin em níu og bamabamabömin tíu. Heimili Helgu og Skafta stóð að Nöf alla tíð, þar til þau fluttu búferl- um til Reykjavíkur 1969. Heimili þeirra þar var í Jökulgrunni 12 til 1979, þá flutti Helga á Hrafnistu í Reykjavík. Helga var skarpgreind, fögur, hlý kona með bjargfasta trúar- vissu og höfðaði ávallt til hins góða í manninum. Ósérhlífni og dugnaður einkenndu öll hennar störf. Lífsbraut hennar mótaðist af því umhverfi sem hún bjó við. Utgerðarmaðurinn Skafti helgaði hafinu og auðlindum þess sína starfskrafta. Sólargeislinn Helga lagði hönd sína í hans og sam- an leiddust þau þar til ævigöngu hans lauk 27. júlí 1979. Bros hennar var blítt og hlýtt. Bömum sínum reyndist hún frábær móðir, sem taldi auð sinn mestan í þeirra gæfu. I Helgu eignuðust margir aðra móður, umhyggja hennar og alúð verður vart með betra orði lýst. Hún var ein þeirra sem kallaður er þögli meirihlutinn. Mikla hæfíleika hafði hún til að ganga menntaveginn og bókin reyndist alla tíð hennar vinur. Hlutverki sínu sem útvegsbóndakona að Nöf skilaði hún með slíkri prýði sem sá einn getur er gengst undir lögmál lífsins og hlýðir kalli hjarta síns. Siglufjörður var rammi þeirrar myndar sem geymdist í hug hennar og hjarta. Og þegar ferðum þangað sleppti bætti hún sér lífið og tilvemna með endurminningunum. Helga var alla tíð umvafin kær- leika barna sinna og fjölskyldna þeirra. Sérhver nýr íjölskyldmeðlim- ur var dýrmæt Guðsgjöf í hennar augum. Kynni mín af Helgu hafa gert mig ríkari af því sem mölur og ryð fá ei grandað. Eg fór ávallt ríkari af hennar fundi, því hún gaf meira en hún þáði. Helga bar virðingu fyrir sérhverju verki stóm og smáu. Hún var stolt af þjóð sinni og bar þjóðbúninginn meðan kraftar leyfðu. Æviganga þessarar mikilhæfu konu er á enda. Helga Jonsdóttir fór hávaðalaust gegnum lífið en skildi engu að síður eftir sig djúp spor í hjörtum samferðamanna sinna. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Jóhannsdóttir 0DEXION SÉRHANNAÐAR HILLUR FYRIR FRYSTIKLEFA OG SALTFISKVERKUN Hafið samband við sölumenn. Gerum verðsamanburð. LANDSSMIÐJAN HF. SOLVHOCSGOTU 13 - 101 REYKJAVlK SlMI (91) 20680 - TELEX 2207 GWORKS Metsölublað á hverjum degi! SAT/l TOPP ▼ GÆÐI SLÁTTUORF - HEKKKLIPPUR Garðsnyrtitæki frá Skil eru byggð samkvæmt ströngustu öryggis- og neytendakröfum, viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins. SPÁÐU í VERÐIÐ! ÞÓTT BJÓÐIST MÉR FESTING - MEÐ GULLGLANS OG GIRNILEGT TILBOÐ í LIFSDANS ÉG ÞESSU MUN NEITA OG ÞARF EKKI AÐ LEITA ÞVÍ ÉG ER Á FÖSTU - með 'DGmaaaicB (svo kvað verkfræt.ðingur einn hér um árið...) og orð að sönnu. - Hér eru nokkrir kostir THORSMANS Torgrip múrboítans: Hann hefur yfirburða álagsþol í steinsteypu • er öruggur fyrir álagi af titringi auk þess sem skaðlegra áhrifa steypugæða eða skemmda gætir mun síður • þess vegna er hægt að velja grennri stærðir af Torgrip múrboltanum og spara tíma og peninga • án þess þó að slaka á ÖRYGGISKRÖFUM. Ef þú átt eftir að festa glugga • setja upp bílskúrshurð • eða festa hringstiga • þá hugsaðu þig tvisvar um • vertu viss um að múrboltinn sé frá THORSMANS. „Vertu á föstu með THORSMANS” þá ert þú ÖRUGGUR UM HÍBÝLI ÞITT OG HÚSMUNI. Torgrip múrboltinn frá iTiHORSMRNS fæst í sérverslunum. Umboðsaðilar: Jtf RÖNNING Sundaborg • Sími 91-84000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.