Morgunblaðið - 21.06.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
02
59
enginn veit nær kallið kemur.
Skyndilegt dauðsfall kemur því
jafnan í opna skjöldu.
Stefanía fæddist á Hánefsstöðum
1. janúar 1912, yngst sjö systkina.
Foreldrar hennar voru Vilhjálmur
útvegsbóndi Árnason, Vilhjálms-
sonar bónda á Hofi í Mjóafirði, og
Björg húsfreyja Sigurðardóttir,
Stefánssonar bónda á Hánefsstöð-
um. Þórunn hét kona Árna á Hofi,
Einarsdóttir frá Firði í Mjóafirði.
En kona Sigurðar á Hánefsstöðum
var Sigríður Vilhjálmsdóttir frá
Brekku. Voru þau Björg og Vil-
hjálmur systkinabörn. Bæði voru
þau af austfírskum ættum og þó
með tengsl í fjarlægari byggðarlög.
Amma Vilhjálms var til dæmis
Guðrún Konráðsdóttir Salómons-
sonar á Bæ í Lóni, og amma Bjarg-
ar Þorbjörg Þórðardóttir frá Kjarna
í Eyjafirði.
Á æskuheimili Stefaníu voru
mikil umsvif til sjós og lands, en
einkum til sjávarins. Vilhjálmur
faðir hennar rakk útgerð af miklu
kappi, og Björg húsfreyja stýrði
hinu stóra heimili þeirra, sem á
sumrin varð með ólíkindum mann-
margt, með rausn og skörungsskap.
Barnaskóli starfaði um þessar
mundir og lengi síðan á Eyrunum,
fiskimannaþorpi í landi Hánefs-
staða og Þórarinsstaða. Eftir að
námi lauk þar fór Stefanía í hús-
mæðraskólann í Mjóanesi og á
Hallormsstað til Sigrúnar og Bene-
dikts Blöndals. En þau hjón voru
sannkallaðir skólafrömuðir.
Stefanía var ágætlega gefin og
átti létt með nám. En skólaganga
hennar varð ekki lengri en þetta.
En hún lærði og óx með starfi sínu
svo að eftirtekt vakti. Bókhalds-
og skrifstofustörf urðu megin verk-
svið hennar.
Skömmu eftir að Stefanía hafði
lokið námi sínu á Hallormsstað hóf
hún starfsferil sinn á þessu sviði
hjá Hjálmari bróður sínum. Hann
var þá bæjarstjóri á Seyðisfirði —
og hafði ekkert starfslið fyrir.
Hjálmar hefur aldrei farið dult
með að Stefanía systir hans hafi
verið einstaklega traustur starfs-
maður, frá byjjun bæði nákvæm
og örugg. Kunnugir geta þess til
að ekki hafi hann spillt þeim eðlis-
kostum yngri systur, sem slíkir
starfshættir byggjast á. En sann-
leikurinn er sá, að hér ber öllum
saman sem kynntust störfum og
starfsháttum Stefaníu, hvort heldur
er hjá Olíufélaginu þar sem hún
vann lengst, ellegar hjá Elíasi Þor-
steinssyni í Keflavík og Sambandi
íslenskra samvinnufélaga, þar sem
hún átti einnig mikið starf að baki.
Það var í samræmi við þennan
traustleika í starfi að Stefanía hafði
mótaðar skoðanir á mönnum og
málefnum og fór ekki í felur með
þær þegar því var að skipta.
Stefanía Vilhjálmsdóttir var ekki
mannblendin, en heldur engin
mannafæla. Tvisvar fór hún utan
til starfa um stundarsakir, í Svíþjóð
og Bandaríkjunum. Og oft fór hún
styttri ferðir til annarra landa sér
til fróðleiks og skemmtunar. En
þótt hún dveldi seinni hluta æfinnar
í höfuðstað Islands og önnur lönd
væru henni ekki með öllu ókunn,
þá urðu þær rætumar sterkastar
sem hún átti heima, í átthögunum.
Hef ég raunar fregnað að það hafi
hún staðfest á vissan hátt með
erfðaskrá.
Tengsl Stefaníu við fjölskylduna
frá Hánefsstöðum voru ætíð traust
og hygg ég að þar hafi allir átt
óskilið mál. Lengst varð samfylgdin
með yngsta bróðurnum, Hjálmari,
en heimili hans og Sigrúnar var sem
hennar eigið, alla tíð að mér virtist.
Við Stefanía Vilhjálmsdóttir
fæddumst og uxum úr grasi á
ströndum tveggja fjarða á Austur-
landi. Jarðirnar Hánefsstaðir og
Brekka liggja gegnt hvor annarri
og gönguleiðir á milli um ijallvegu,
Snjófellsskarð og Brekkugjá. Þótt
ferðir væru strjálar var frændsemi
rækt. — Lengi man til lítilla stunda,
og man ég enn stöku leiki okkar
barnanna. Á Brekku þvoðum við
brúðuþvott við lítinn orðstír. Og á
Hánefsstöðum var farið í mömmu-
leik þar sem litli frændi, Vilhjálmur
nokkur Árnason, var brúðan. Þetta
skeði ekki oft því vík var milli vina,
ijöll millum frænda má líka segja.
Seinna flutti Stefanía suður og þar
hef ég einnig dvalið langdvölum.
En borgin einangrar. Dagleg sam-
skipti verða einatt lítil. En þar vita
nú samt frændur og vinir hver af
öðrum og það er þó bót í máli.
Stefanía lét sig miklu varða mál-
efni vangefinna og tók þátt í störf-
um styrktarmanna þeirra. Hug sinn
til þessara mála mun hún hafa stað-
fest með áþreifanlegum hætti áður
en hún var öll, líkt og ræktarsemi
við átthaga.
Okkur setur hljóð við óvænt frá-
fall eins úr hópnum. Hlýjar hugsan-
ir fylgja þeim er kveður og beinast
einnig til þeirra er næstir standa.
Stundum nokkur fátækleg orð. Ef
til vill er lítið annað að gera fyrir
okkur hin nema halda áfram göngu
okkar á leiðarenda. Mundi það ekki
vera lögmál lífsins og hinna óhjá-
kvæmilegu umskipta?
Vilhjálmur Hjálmarsson
vann hún skrifstofustörf hjá Koop-
erativa förbundet í Stokkhólmi og
1955 dvaldi hún rúmt ár í Banda-
ríkjunum við nám og störf. í tóm-
stundum sínum fékkst hún við
hannyrðir, postulínsmálningu og
fleira og var afar smekkvís og list-
feng á því sviði. Hún ferðaðist ár-
lega sér til fróðleiks og skemmtun-
ar bæði innanlands og utan og hafði
mikla ánægju af því. Stefanía tók
virkan þátt í stofnun og uppbygg-
ingu Styrktarfélags vangefinna og
voru málefni þroskaheftra henni
mjög hugleikin alla tíð.
Eg man fyrst eftir Stefaníu eða
Stebbu frænku, eins og ég kallaði
hana alltaf, þegar hún bjó í
Drápuhlíð 7 hjá bróður sínum
Hjálmari og Sigrúnu, konu hans.
Björg langamma mín var líka á
þeirra heimili síðustu æviár sín.
Sem barn kom ég oft í Drápuhlíð-
ina, fékk dýrindis kökur hjá Sigrúnu
og þótti mikið til um að koma upp
á loft til langömmu og Stebbu.
Ekki get ég þó sagt að við Stebba
höfum kynnst mikið fyrr en leiðir
okkar lágu saman á Sikiley árið
1982. Við bjuggum þar á sama
hóteli og vorum saman öllum stund-
um í 3 vikur. Okkur samdi vel og
ég hafði mikla ánægju af að kynn-
ast betur þessari ágætu frænku
minni. Síðar minntumst við oft
þessara daga með gleði. Mikil hita-
bylgja gekk yfir Sikiley þann tíma,
sem Stebba dvaldi þar. Einhvern
tíma varð henni að orði í hita dags-
ins að þetta yrði sín síðasta utan-
landsferð. Það rættist ekki, því að
hún fór nokkrar ferðir eftir þetta,
þó flestar á mun norðlægari slóðir.
5. júní sl. lagði Stebba af stað í
ferðalag og var förinni heitið um
Sviss og Frakkland. Ferðin var rétt
hafin, þegar hún veiktist hastar-
lega, þá stödd í Interlaken í Sviss,
að morgni 8. júní og var öll að
kvöldi sama dags.
Þegar ég dreg upp augnabliks-
mynd í huganum af frænku minni
sé ég hana fyrir mér ljómandi af
gleði á 70 ára afmæli sínu 1982,
umkringda af fjölskyldu sinni, sem
var henni afar kær. Hér hefi ég
stiklað á stóru um eina mannsævi,
en með Stebbu er genginn einn af
síðustu fulltrúum aldamótakynslóð-
arinnar í minni fjölskyldu, þeirra,
sem sögðu mér svo ótal margt um
það Island sem var.
Hvíli Stefanía frænka mín í friði.
Guðrún Vilhjálmsdóttir
Frændkona mín, Stefanía Vil-
hjálmsdóttir frá Hánefsstöðum í
Seyðisfirði, er látin. Við vitum öll
að eitt sinn skal hver deyja. En
t-u
VI
aTTG
Milljónir á hverjum lauaardeqi! Upplvsinqasími: 685111
Vinningstölumar 18. júní 1988.
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.216.943,-
1. vinningur var kr. 2.109.676,- og skiptist hann á milli 2ja
vinningshafa, kr. 1.054.838,- á mann.
2. vinningur var kr. 632.367,- og skiptist hann á milli 211
vinningshafa, kr. 2.997,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.474.900,- og skiptist á milli 6.020 vinn-
ingshafa, sem fá 245 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til iaugardags og loka
ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingarsími: 685111
Sölustadirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
-
NYTT BRAGÐ.
JÓGÚRT MEÐ
KIWI
C-VITAMINAUÐUG
■ . ,
- v
|