Morgunblaðið - 21.06.1988, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1988
67
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Lítilsvirðing
Hallfríður Georgsdóttir
hringdi:
„Eg vil taka undir það sem Guð-
bjöm Jónsson segir í grein sinnií
Velvakanda 16. júní um vaentan-
legar forsetakosningar. Framboð
Sigrúnar Þorsteinsdóttur er
hneisa fyrir hana sjálfa, þá sem
styðja hana og lítilsvirðing gagn-
vart embætti forseta íslands. Ég
lýsi vonbrigðum mínum með yfír-
lýsingu Grænfriðunga um stuðn-
ingþeirra við framboð Sigrúnar.“
Neikvæð breyting
Kaffihúsamaður hringdi:
„Sem gamall og gróinn kaffi-
húsamaður vil ég lýsa megnri
óánægju með þær beytingar sem
gerðar hafa verið á götusal Hress-
ingarskálans en þar er allt ger-
breytt. Þar hefur verið komið fyr-
ir ljósum viðarborðum með hvítum
dúkum og er hin gamla og góða
kaffihúsastemming sem þama var
horfin. Ég tel að borðin séu ekki
í stfl við innréttinguna, öll þessi
breyting er til hins verra því þama
átti engu að breyta. Skora ég á
eigendur Skálans að breyta hon-
um í fyrra horf hið snarasta."
Svört læða
Svört læða tapaðist frá Laufás-
vegi 2a fyrir skömmu. Hún gegn-
ir nafninu Lotta og er eymamerkt
7515. Þeir sem hafa orðið varir
við hana em vinsamlegast beðnir
að hringja í síma 23611. Fundar-
laun.
Reiðhjól
Nýlegt hvítt telpureiðhjól var
skilið eftir fyrir utan hús hér í
borgdnni fyrir skömmu. Upplýs-
ingar í síma 31209.
Myndavél
Poki með Pentaxmyndavél,
tvennum gleraugum og snyrtivör-
um tapaðist á Siglufírði um hvíta-
sunnuhelgina. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 91-32665. Fundarlaun.
Orðtakið notað í
rangri merkingu
Til Velvakanda.
Oftlega má lesa eftirmælagrein-
ar, sem byrja með þessari tilvitnun:
„Þeir deyja ungir, sem guðirnir
elska.“ Ætíð er hér um greinar að
ræða um ungt fólk, allt frá bömum
og fram á þrítugsaldur. Þetta er sett
fram sem huggun til vandamanna.
Svo góður hafí sá framliðni verið,
að guð hafí talið sér nauðsynlegt að
taka hann til sín, þótt æviskeiðið
væri rétt að byija. Jafnframt er þetta
skýring á því, hvers vegna hinn ungi
hafði kvatt þennan heim. Hann var
svo góður og guði þóknanlegur að
hann þurfti strax á honum að halda.
Orðtak þetta mun vera komið úr
grísku og þýðir nánast:
Þeir deyja ungir, sem guðimir
elska, hversu mörg sem árin eru,
þ.e. þeir deyja sem ungir. Þetta á
við öldunginn, sem til æviloka heldur
andlegu og líkamlegu atgervi sínu
vegna þess að hann hefur hlotið í
vöggugjöf náð guðanna og hand-
leiðslu. Hann deyr sem ungur, hversu
mörg sem árin verða. Sjáum við ekki
mörg gamalmenni einmitt, sem dæmi
um þetta? Fólk sem ber aldurinn með
afbrigðum vel og heldur æskublóm-
anum fram á efstu ár.
Ömurlegt er að sjá hvemig orðtak
þetta er endurtekið sí og æ með
öfugri merkingu. Þar tekur einn upp
eftir öðrum. Hér er talað um marga
guði, en það vísar til grísku goða-
fræðinnar og þá mörgu guði, sem
þar voru tilbeðnir. Það nálgast því
guðlast, þegar orðtaki þessu er snúið
upp á hinn eina sanna guð og hann
gerður svo eigingjarn og grimmur
að geta ekki unnt ungu fólki að lifa
lífí sínu með eðlilegum hætti.
Sjónvarpsmyndir um
Kristján fjallaskáld
Sjónvarpið sýndi heimildarmynd
um Kristján Jonsson fjallaskáld
þann 16. febrúar 1987. Hún bar
nafnið: Nú er frost á Fróni. Myndin
var að mörgu leyti vel gerð og því
eftirminnileg. Hún sannaði að sitt
er hvað, gæfa eða gjörfuleiki. í lok
myndarinnar stendur eitt af skáld-
um þjóðarinnar — Þorsteinn frá
Hamri — við legstað Kristjáns að
Hofí í Vopnafirði og mælir til hans
nokkrum orðum. Hann segir m.a.
að það hafi sannast á Kristjáni:
„Þeir deyja ungir, sem guðirnir
elska." Á þetta hlustar hugfanginn
ungur sagnfræðingur og sögukenn-
ari við Háskóla íslands, sem stend-
ur við hlið hans. Hvers konar rugl
er þetta? Líf Kristjáns Jónssonar
hefði svo sannarlega orðið annað,
hefði hann hlotið náð og hand-
leiðslu guðanna. í vitund þjóðarinn-
ar er Kristján fjallaskáld snillingur,
sem varð brennivíninu að bráð, og
dó því langt um aldur fram.
Þótt margt fólk skrifi í hugsunar-
leysi eftirmæli og rangtúlki hið
foma gríska orðtak hefur það sína
afsökun. Þessir tveir dánumenn
eiga hana hins vegar ekki. Þeir eiga
að vita betur. Ekki virðist eiga að
leiðrétta ruglið, því myndin var
endursýnd þann 6. maí 1987 alveg
óbreytt. Vonandi sér sjónvarpið
sóma sinn í því að klippa vitleysu
Til Velvakanda.
Mig langar að koma á framfæri
þakklæti til forráðamanna Stöðvar
2. Dagskráin hjá þeim er þegar
orðin góð og fari fram sem horfir
þá verður þetta meiriháttar stöð í
náinni framtíð og reyndar er það
alveg storkostlegt hvað þeim hefur
tekist á ekki lengri tíma en raun
ber vitni. En það verður að gæta
þess af fremsta megni að reyna að
halda áskriftargjöldunum í algeru
lágmarki, þannig að allur almenn-
ingur eigi þess kost að fylgjast með
um ókomin ár. Ég óttast að þeir
sjónmvarpsmenn fari nokkuð geyst
þegar þeir eru að ráða fólk til starfa,
einkum fyrrum gamla starfsmenn
ríkissjónvarpsins, þá á ég vitanlega
við launamálin. Nýjasti liðsmaður
Stöðvar 2 er Ómar Ragnarsson, sá
ágæti fjölmiðlamaður. Menn geta
rétt ímyndað sér hvað hann muni
fá í laun, og þó, ætli hinn almenni
maður úti í bæ geti nokkuð gert sér
í hugarlund hvað svona kallar bera
úr býtum fyrir vinnu sína. Nóg um
það.
Það er sérstaklega fréttaþáttur-
inn 19:19. Hann finnst mér mjög
góður, einkum og sér í lagi þegar
Qallað er um erlend málefni, eins
og t.d. atburðina fyrir botni Mið-
jarðarhafsins, þar hafa menn á Stöð
2 algera yfirburði yfír ríkissjón-
varpið. Það virðist vera landlægt á
þeim bænum að fara afar varlega
að ekki sé meira sagt þegar fjallað
er um atburði og sýndar myndir
af þeim þar sem komið er við kaun-
in á Bandaríkjamönnum og nánustu
skjólstæðingum þeirra. Vonandi
láta þeir í 19:19 ekki deigan síga
þessa úr myndinni, áður en hún
verður sýnd i þriðja sinn.
Áskorun til Morgunblaðsins
Morgunblaðið birtir daglega
margar minningargreinar. Það hef-
ur sett ritsmíðum þessum nokkurn
ramma, sem er næsta eðlilegt. Fyr-
ir nokkrum árum tók blaðið þá
ákvörðun að birta ekki frumsamin
erfiljóð. Þetta var spor í menningar-
átt, því erfiljóðin reyndust oft leir-
burður á lægsta plani. Nú vildi ég
beina þeirri áskorun til blaðsins að
það birti aldrei hið gríska orðtak
með öfugum formerkjum.
Daníel Ágústínusson
og halda áfram að upplýsa fólk um
grimmdarverk ísraelsmanna á
Palestínufólkinu, sem ekkert lát er
á nema síður sé. Það sem er að
gerast þarna og hefur verið að ger-
ast seinustu áratugina er í einu
orði sagt hryllingur og það er ger-
samlega ofvaxið mínum skilningi
hvemig þjóðir heimsins geta setið
og horft á þetta án þess að gera
nokkum skapaðan hlut til hjálpar
þessu langhijáða fólki. Palestína er
að hverfa af landakortunum og þar
með verður Palestínufólkinu útrýmt
sem þjóð. Israelsmenn em nasistar
nútímans, sannkallaðir fulltrúar
djöfulsins.
Sem sagt, kærar þakkh, Stöð
2, og gangi ykkur allt í haginn.
Guðjón V. Guðmundsson
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
þvi ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski naftileyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Stöð 2 er til fyrirmyndar
Glæsileg karlmannaföt
margir litir.
Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxur kr. 1.395,-, 1.595,-, 1.795,- og
1.995,- Teryl./ull/strech.
Gallabuxur kr. 975,- og sandþvegnar kr. 875,-
Nýkomnar sumarbuxur, bíljakkar, bolir margar
gerðir, köflóttar skyrtur, peysuro.fi. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
sími 18250.
V
Tiö eigum 60 ára afmæli um þessar mundir, í
▼ tilefni af því bjóftum viö viöskiptavinum okkar
15% afslátt af öllum vörum verslunarinnar frá
13- til 25. júní.
V,
erölaunasamkeppni. Gullfallegt
Pierre Cardin úr í verölaun.
Iglugganum hjá okkur í Bankastræti
er sundurtekiö úr, keppnin felst í því
aö geta úr hve mörgum hlutum úriö er
samansett.
í húöinni færöu reglur keppninnar og þátttökuseöil.
Úr, skart og skrautgripir
GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON SF
BANKASTRÆTI 12
S. 1 40 07
Sérmerkjum ölglös
með skemmtilegum
teikningum eóa eftir
ykkartillögum!