Morgunblaðið - 05.07.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.07.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988 Vörumarkaði breytt í rannsóknastofu Rannsóknarstofa Háskólans í_ veirufræðum er nú flutt í Ármúla 1A þar sem áður var Vörumarkaðurinn. „Öll okkar viiinuaðstaða hefur gjörbreyst við að flytja í Veirumarkaðinn eins og við nefnum hann gjarn- an. Hér er helmingi rýmra en i gamla skúrnum á Landspítala- lóðinni, þar sem við höfum ver- ið frá því að deildin hóf starf- semi sína 1974. Það er því óneit- anlega gott að komast úr þrengslunum þar en aftur á móti er afar slæmt fyrir Lands- spítalann að rannsóknardeild- imar geti ekki verið á spítalan- um sökum húsnæðisskorts,“ segir Margrét Guðnadóttir, for- stöðumaður rannsóknarstof- unnar. Rannsóknarstofan er á tæplega 900 fermetrum, þar sem áður var matvöruverslun og hluti raftækja- verslunar en yfir helmingi hússins verður ráðstafað til annarrar starfsemi. Það var keypt um ára- mót ’85-’86 og afhent í ágúst 1986. Eyðnirannsóknir á vegum deildarinnar hófust í Ármúlanum í apríl síðastliðnum. Áður höfðu starfsmenn hennar um 300 fer- metra til afnota og sagði Margrét að þrengslin hefðu verið orðin hræðileg. „í upphafí var ætlunin að deildin yrði í skúmum á Lands- pítalalóðinni í 3 ár en svo gleymd- umst við eins og aðrar rannsókn- ardeildir og vorum þar alls í tæp 14 ár,“ segir Margrét. í nýja húsnæðinu er skrifstofa, bókaherbergi og 3 vinnuherbergi fyrir pappírsvinnu í stað einnar hillu í Landsspítalanum, að sögn Magrétar. Einnig bætist við mikið geymslurými en tækjabúnaðurinn var ekki endumýjaður við flutn- ingana. Hlífðarskápar til nota við veiruræktanir vom keyptir en ekkert slíkt var til í eldra hús- næðinu. „Aðalatriðið er að nú höfum*við nægilegt pláss og næði til að vinna að rannsóknum og því margfaldast afkastageta okk- ar.“ Eyðnirannsóknir aðeins lítill hluti starfsins Hlutverk rannsóknarstofunnar er fyrst og fremst greining veiru- sótta, þar á meðal eyðni, sem er aðeins lítið brot af allri greiningu. „Öll umræða um starfsemi okkar hverfur í skuggann af eyðninni," segir Margrét. Rannsóknarstof- unni berast sýni til rannsóknar frá öllum sjúkrahúsum, heilsugæslu- stöðvum og læknum, þar með töldum heilsugæslulæknum. Þá í húsnæðinu við Ármúla eru 4 herbergi þar sem frumur eru ræktaðar við 37° hita bæði áður og eftir að þær eru sýktar með sýnum. Margrét segir mikla vinnu fólgna í ræktuninni. Kristín Þorsteinsdóttir í bóka- og fundaherbergi rannsóknar- stofunnar en ekki var neitt rúm fyrir skrifstofur og bókaher- bergi í eldra húsnæðinu. um þátt veira í langvarandi tauga- sjúkdómum. „Verkefnin hafa hlaðist utan á okkur; árið 1975 gerðum við um 2000 rannsóknir á ári til að greina sjúkdóma og athuguðum 550 sjúklinga. Árið 1980 voru rann- sóknimar orðnar um rúmlega 6000 á ári og sjúklingamir 1100 og árið 1985 voru gerðar um 25.000 rannsóknir á 3000 sjúkl- ingum. Að meðaltali eru gerðar 8-9 rannsóknir á hveijum sjúkl- ingi nú en þær vom 3-4 árið 1975 og þá eru rannsóknir vegna rauðra hunda ekki meðtaldar. Enda hefur fjölgað veralega í starfsliði stofimnar; í upphafi störfuðu hér 6 líffræðinemar í Morgunblaðið/Ámi Sæberg Steinunn Thorlacius líffræðinemi athugar sýni. Til að hindra að dropar úr sýnunum slettist úr glösunum, eru þau athuguð í nýjum hlífðarskápum sem ekki voru til í gamla húsnæðinu. „Höfuðmáli skiptir, að hafa nægilegt pláss og næði til að vinna að rannsókn- um,“ segir Margrét Guðnadóttir. Rannsóknarstofnun Háskólans kjallara. í veirufræði er á jarðhæð og í er einnig unnið að grundvallar- rannsóknum á veirusýkingum og fylgst með árangri ónæmisað- gerða og mun það starf aukast, er deildin hefur nægilegt húsnæði til umráða. Rannsóknarstofan hefur einnig með höndum kennslu í veirafræði .fyrir nemendur í læknisfræði, hjúkran, líffræði og meinatækni. Að síðustu má nefna ráðgjöf um veirasýkingar og vam- ir gegn þeim. Margrét sagði stærsta verkefni rannskóknarstofunnar til þessa, vera mótefnamælingu alla kvenna á bameignaaldri gegn rauðum hundum. Nú væri mestu vinnunni við það lokið en allar 12 ára stúlk- ur væra mótefnamældar árlega og þær mótefnalausu væru bólu- settar og mældar aftur ári síðar. Sagðist Margrét veralega ánægð með árangurinn en náðst hefur til 95% kvenna á bameignaaldri. Rannsóknarstofan fylgist einnig með árangri bólusetninga gegn inflúensu, mislingum og mænu- sótt. Aðstaða til þess eftirlits batnar nú mikið. Þá era athugað- ar sýkingar í öndunarvegi og nokkur verkefni hafa verið unnin hlutastarfí, 1 meinatæknir og meinatækninemi auk mín. Nú era 24 starfsmenn og nemar hér og þeim mun fjölga í haust." Aðspurð segir Margrét, að hús- næðið rúmi vel starfsemi veira- rannsóknarinnar. „Þetta er gjör- breyting frá því sem var og mun duga okkur næstu árin. Hversu lengi þori ég ekki að spá.“ Sveitarstjórnir geri jafnréttisáætlanir Félagsmálaráðuneyti og jafnréttisráð hafa óskað eftir að fram- kvæmdaáætlanir um jafnrétti kynjanna, m.a. um stöðuveitingar og skipan í sljómir nefndir og ráð, verði unnar á vegum einstakra stærri sveitarstjóma á landinu. Fundur með fulltrúum sveitar- stjóma, félagsmálaráðuneytis og jafnréttisráðs var haldinn síðastlið- inn fímmtudag og rætt um gerð jafn- réttisáætlana sveitarstjóma. Fram kom á fundinum að vinna við slíka áætlun er þegar hafin í félagsmála- ráðuneytinu, en ríkisstjómin sam- þykkti í maí tillögu jafnréttisráðs um að hvert ráðuneyti og opinber stofnun gerði eigin áætlun um hvemig jafna skyldi rétt kvenna og karla. Þá hefur jafnréttisráð boðið stjómvöldum og sveitarstjómum aðstoð við áætlanagerðina sé þess óskað. Fram kom á fundinum í máli Ásdísar J. Rafnar, formanns jafn- réttisráðs, og Láru V. Júlíusdóttur, aðstoðarmanns félagsmálaráðherra, að reynslan allt frá setningu jafn- réttislaga 1976 og 1985 sýni að til- gangi laganna verði ekki náð með lagasetningu einni saman. Sérstakra aðgerða og opinbers frumkvæðis sé þörf eigi lagasetningin að hafa til- gang. Ásdís J. Rafnar sagði að viðbrögð fulltrúa sveitarstjórna á fundinum hefðu verið jákvæð. Á næstu mánuð- um myndi reynast athygli vert að fylgjast með hvaða sveitarstjómir yrðu fyrstar til að fullvinna sínar áætlanir, en samstarf yið launþega væri nauðsynlegt til árangurs. Morgunblaðið/Einar Falur Jafnréttisráð og félagsmálaráðuneyti boðuðu fulltrúa sveitarstjórna til fundar á fimmtudag og óskuðu eftir að jafnréttisáætlanir yrðu unnar hjá sveitarstjórnum líkt og hjá ráðuneytum og ríkisstofnunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.