Morgunblaðið - 05.07.1988, Blaðsíða 31
Oí?
31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
Morgunblaðið/Bjami
Á þessum gatnamótum á Laugavegi hafa orðið mörg óhöpp, en talið er tiltölulega einfalt að gera úrbæt-
ur á þessum stað.
Lagfæringar á götubútum i Reykjavík í forgangsröð Fjöldi óhappa Borgarsig á 5 árum á mán. Aðgerð
1. Amtmannsstígur Lækjarg/Skólastr. 8 21/2 Grindverk
2. Hringbraut Tjamaig./Bjarkarg. 14 2>/2 Girt í miðeyju
3. Laugavegur Laugamesv./Bolh. 13 21/2 Girt í miðju
4. Hagamelur Reynim./Hofsvallag. 8 3 1 langalda
5. Hamrahlíð Bogahl./Stigahl. 8 31/2 SVR-Lalda
6. (Húsg.) Háaleitisbr. Ármúla/Fellsmúla 8 31/2 2 öldur
7. (Húsg.) Elliðavogur Sævs./.Póstútib. 9 31/2 2 SVR-L öldur
8. Breiðholtsbraut Ónefnd gata/norð. 5 31/2 Girt í miðeyju
9. Álfabakki við Mjódd 11 31/2 1 SVR-L. alda
10. Álfheimar Glaðheim./Sólheim. 15 3 Mjókka
11. Háteigsvegur Nóatún/Stakkahl. 7 31/2 1 SVR-L alda
Lagfæringar á gatnamótum í Reykjavík í forgangsröð
1. Laugarnesvegur-Laugavegur 18 9 d.
2. Lækjargata-Amtmannsstigur 32 1
3. Suðurlandsbraut-Hallarmúli 71 1
4. Rauðárstígur- Skúlagata 13 21/2
5. Austurberg-Hraunberg 11 21/2
6. Laugarás-Sundlaugavegur 17 21/2
7. Höfðabakki-Fálkabakki 22 21/2
8. Laugalækur-Rauðalækur 10 31/2
9. Grensásvegur-Álmgerði 21 31/2
10. Rauðarárstígur-Flókagata 51 6
Loka miðeyju
Loka miðeyju
Beygja bönnuð
SVR-L alda
Stop-skilti
SVR-L alda á gangbr.
Beygja bönnuð
Steinalda
Beygja bönnuð lok.miðey.
L-alda+lok. v. M.br.
Tillögur Gunnars um hvaða 20 lagfæringa skuli hafa forgang. Alls hefur hann gert tillögur um 55
úrbætur.
Tillögur um úrbætur á gatnakerfinu:
Einföld lagfæring
borgar sig á 9 dögum
GUNNAR Gunnarsson, verkfræð-
ingur hjá umferðardeild Borgar-
verkfræðings, hefur tekið saman
gögn um öll skráð umferðaróhöpp
í Reykjavík á síðustu 5 árum. Hann
hefur nú sett fram tillögur um
hvaða úrbætur á gatnakerfinu
skuli hafa forgang og er þeim
raðað eftir því hversu fljótt þær
borgi sig. Samvæmt tillögunum
getur einföld lagfæring borgað sig
upp á 9 dögum. Umferðarnefnd
Reykjavíkurborgar hefur falið
umferðardeild að að gera tillögur
um úrbætur sem hafa megi til hlið-
sjónar við gerð fjárhagsáætlunar
næsta ár. Tillögumar hafa einnig
verið kynntar í Borgarráði og var
þeim vel tekið að sögn Gunnars.
Gunnar fékk leyfi 1984 til að koma
gagnabankanum á fót og hefur á
þeim tíma sem liðinn er, tekið saman
upplýsingar um þau 15.000 óhöpp
sem lögreglan hefur skráð árin
1983-1987 en það eru um 40-45%
allra óhappa sem verða. Skráðar eru
allar fáanlegur upplýsingar um
óhappið og úr gagnabankanum má
fá upplýsingar á borð við skrá yfir
slasaða í umferðinni í Reykjavík,
umferðarbrot í Reykjavík á einu ári,
flokkuð eftir umferðarlagabrotum,
umferðaróhöpp sem verða við ákveð-
in skilyrði, t.d. á gulu blikkandi ljósi
og að síðustu svartblettaútskrift.
Svartblettir eru þeir staðir í gatna-
kerfinu, sem flest umferðarslys
verða, með tilliti til umferðarþunga.
Að sögn Gunnars er kostnaður við
uppsetningu gagnabankans 3-4 millj-
ónir en án tölvu þyrfti 3 til 4 menn
í fullu starfí sem gætu aldrei unnið
verkið jafnvel. „Spamaðurinn við
notkun gagnabankans er ótrúlegur,
ekki aðeins í beinhörðum peningum,
við spömm líf og limi og slíkt verður
aldrei metið til fjár. Bankinn borgar
sig upp á einu ári og leit okkar að
hættulegum stöðum í umferðinni
verður mun markvissari og öruggari
en áður. í Noregi hefur svipað kerfí
verið í notkun frá árinu 1970 og þar
tókst að fækka slysum um 30% á
fímm árum. Þó hafa þeir ekki aðgang
að eins góðum upplýsingum og við.
Hér voru 40-45% allra slysa skráð
hjá lögreglu en samkvæmt nýju um-
ferðarlögunum eiga ökumenn sjálfír
að skrá minni háttar óhöpp. Við
mótmæltum setningu laganna, því
nú fáum við nær einungis upplýsing-
ar um slys en ekki óhöpp frá lög-
reglu. Óhöpp á ákveðnum bletti eru
oft fyrirboði stærra slyss og með því
að fylgjast með þeim má koma í veg
fyrir alvarleg slys verði. Upplýsingar
ökumanna til tryggingafélaga um
óhöpp eru mun ónákvæmari og óað-
gengilegri."
Gunnar sagði margt ógert í á
gatnakerfínu. „í byijun verða lag-
færðir þeir blettir sem við teljum
versta og hægt er að laga með litlum
tilkostnaði en eftir nokkur ár verður
þróunin sú að lagfæringamar verða
dýrari og borga sig upp á lengri tíma.
Við reiknum með því að hvert um-
ferðaróhapp þar sem enginn slasast
kosti 200.000 kr. Einföld lagfæring
á bletti þar sem óhöpp eru tíð getur
borgað sig upp á rúmri viku. Dæmi
um það eru gatnamót Laugamesveg-
ar og Laugavegar, fyrir neðan Sjón-
varpshúsið. Þar hefur orðið 51 óhapp
á 5 ámm. Ef miðeyju yrði lokað og
sett upp skilti myndi slík lagfæring
borga sig upp á 9 dögum."
Gunnar bjóst ekki við að tillögur
hans kæmu til framkvæmda fyrr en
á næsta ári en sagði þó líklegt að
örfáar brýnustu framkvæmdimar
yrðu gerðar í ár. „Það má ekki bregð-
ast að nægum peningum verði varið
í lagfæringar, með öðru móti fækkar
slysum ekki. Nú þegar hefur miklu
fjármagni verið eytt í fjölmiðlaáróður
og auglýsingar. Ég álít að það sé
óraunhæf leið til að bæta ástandið,
til þess þarf framkvæmdir sem byggj-
ast á tölfræðilegum útreikningum.
Við stefnum að því að gera gatna-
kerfið þannig úr garði að ekki sé
hægt annað en að komast réttu leið-
ina á réttum hraða t.d. með því að
girða umferðareyjur, setja upp ljós
og hraðahindranir. Því hinn almenni
vegfarandi er enginn fyrirmyndar-
vegfarandi, hann á það til að gleyma
sér.“
Alls hefur Gunnar gert tillögur um
55 lagfæringar og er kostnaðurinn
um 40 milljónir við framkvæmd
þeirra. Ekki er reiknað með dýrum
framkvæmdum á borð við mislæg
gatnamót, heldur er um að ræða
ódýrar tillögur, þar sem þær koma
að notum. Tillögumar hafa hlotið
góðar undirtektir í Borgarráði að
sögn Gunnars þó að þeir sem að kerf-
inu standi hafí verið óduglegir að
kynna sínar lausnir á umferðarvand-
anum.
Með haustinu mun umferðardeildin
síðan gera ýtarlegri tillögur um úr-
bætur, sem lagðar verða fyrir Borgar-
ráð.
•• /
*
OEFASÆTI
LAUS
I
Komd i með i sóllna Ul Benldorm i eina, tvær eða þijár vikur. Benidorm er
skemmiilegur staður og við bjóðum þér aðeins bestu fáanlegu glstingu. Þú
velur þér styttri eða lengri feið á verði allt fra kl. 24.900,- pr. mann. - Gef-
umbamaafslátt.
Knikkaklúbburinn sívinsæli í fullum gangi.
Paníaðu strax, því við dgum aðeins örfá sæti laus í þessar ferðir.
|ji=i FERÐA.. Cthitcd
BmIÐSTOOIIM Teaud
e
5
Z
D
CO
>