Morgunblaðið - 05.07.1988, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
39
ÚA prufukeyrir nýja tölvustýrða
flakaskurðarvél:
Hárfín vatnsbuna
sker flökin eftir
útreikningi tölvu
Útgerðarfélag Akureyringa er þessa dagana að prufukeyra
nýja flakaskurðarvél, sem er einstök á sínu sviði. Henni er ætlað
að skera fiskflök á sem hagkvæmastan máta, en hingað til hafa
fiskverkunarkonurnar sjálfar séð um skurðinn að aflokinni orma-
hreinsun.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tillaga Guðmundar Jónssonar arkitekts bar sigur úr býtum í samkeppni um stækkun Amtsbókasafns.
Guðmundur kom til landsins frá Noregi ásamt nánasta samstarfsfólki sínu. Frá vinstri: Eilert Gabriel-
son, Beate Bruun, Amund Gulden sem sá um líkan og myndir, Torunn Lein og Guðmundur er sjálfur
lengpt til hægri. A myndina vantar Jenny Turesson og Viel Bjerkosot Andersen.
Samkeppni um stækkun Amtsbókasafns:
Guðmundur Jónsson arki-
tekt hlaut fyrstu verðlaun
TILLAGA Guðmundar Jónssonar arkitekts hlaut fyrstu verðlaun í sam-
keppni um stækkun Amtsbókasafns sem efnt var til fyrir skömmu.
Alls bárust 25 tillögur f keppnina. Þrjár þeirra voru verðlaunaðar.
Guðmundur hlaut 725.900 krónur. Tillaga arkitektanna Amfríðar Sig-
urðardóttur, Bergljótar S. Einarsdóttur og Geirharðs Þorsteinssonar
lilaut önnur verðlauin, 311.100 krónur, og f þriðja sæti hafnaði tillaga
arkitektanna Ágústu Sveinbjörnsdóttur og Ragnheiðar Ragnarsdóttur
og hlutu þær einnig 311.100 króna verðlaunafé.
Unnið hefur verið að uppsetn-
ingu vélarinnar síðustu dagana í
vinnslusal ÚA og gera má ráð
fyrir reynslutíma vélarinnar alla
þessa viku. Gísli Konráðsson fram-
kvæmdastjóri ÚA sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið búast við
kaupum á vélinni ef hún reyndist
vel, en ætla má að kaupverð nemi
að minnsta kosti um tíu milljónum
króna. Vélin er framleidd í Banda-
ríkjunum og er nú í eigu Cold-
water Seafood Corporation, en
Útgerðarfélag Akureyringa var
fengið til að reyna vélina. ÚA og
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
standa sameiginlega að kostnaði
við uppsetningu og prufukeyrslu
vélarinnar. Vélin sker flökin í
stykki, sem fara eiga í söluhæstu
pakkningamar á hveijum tíma.
„Vélin sker niður fiskflökin eftir
að þau hafa verið ormahreinsuð
þannig að sem mest og best nýting
náist úr hveiju flaki fyrir sig.
Vélin er öll tölvustýrð. Hárfín
vatnsbuna, sem er aðeins 0,4 milli-
FÉLAG siglingamanna á Akur-
eyri, Nökkvi, stendur fyrir ár-
legu Pepsi-Fiðlaramóti á Akur-
eyrarpolli dagana 9. og 10. júli
nk.
Keppni hefst þann 9. júlí kl.
metrar að sverleika, sér um að
skera flökin. Vélin er öll tölvu-
stýrð. Hún tekur í fyrstu mynd
af flakinu til að reikna út hvernig
skera megi flakið þannig að hvert
stykki nái sem mestri nýtingu,“
sagði Gísli.
Hann sagðist ekki geta sagt um
hversu mikil bylting vélin yrði í
vinnslunni þar sem enn væri verið
að prófa sig áfram með hana. Ljóst
væri að aðferðirnar væru aðrar,
en hvort þær bæru þann árangur
sem ætlast er til vildi Gísli ekkert
fullyrða um. Hann sagði að vélin
þyrfti að skila verulegum árangri
til þess að af kaupum verði. „Hin-
ir ýmsu hlutar flaksins eru mis-
jafnlega verðmætir og það er um
að gera að ná sem mestu af flak-
inu í sem dýrastar pakkningar og
það er það sem vélinni er ætlað
að gera — mynda flakið og reikna
út hvemig hagstæðast er að skera
það og síðan skera það samkvæmt
útreikningunum."
10.00 og verður keppt í Optimist-
og Topper-flokki. Keppnisgjald er
1.500 krónur. Styrktaraðilar
mótsins erú veitingastaðurinn
Fiðlarinn og Sanitas,
í umsögn dómnefndar um sigur-
tillöguna segir: „Megineinkenni þess-
arar tillögu er snilldarleg aðlögun
að núverandi húsi í hlutföllum, með-
ferð einstakra flata og efnisvali.
Markmið höfundar, að túlka á
stílfærðan hátt meginhugsun að baki
núverandi húsi, skilar sér á sannfær-
andi hátt í nýbyggingunni. Glæsileiki
einkennir útlit byggingarinnar ! fullu
samræmi við núverandi hús. Útsýni
frá núverandi húsi og nýbyggingu
er eins og best verður á kosið. Form
sala er mjög gott, bæði f grunnmynd
og sniði, hvort sem þeir eru aðgreind-
ir eða sameinaðir. Innra samhengi
er gott og sveigjanleiki í notkun sal-
arkynna í nýbyggingu mikill. Vinnu-
aðstöðu starfsfólks er vel fyrir kom-
ið. Galli á fyrirkomulagi er að salir
í núverandi húsi skuli ekki tengjast
nýbyggingu nema um starfsaðstöðu.
Engin tengsl eru því fyrir almenning
milli núverandi húss og nýbygging-
ar. Lyfta þjónar almenningi ekki
fyllilega til að komast á aðra hæð,
hvorki í nýbyggingu og núverandi
húsi. Lóð austan við hús er vel skipu-
lögð og býður upp á lfflega notkun.
Lesgarður undir próf er athyglisverð-
ur, en sá ljóður er á að fyrir almenn-
ing er hann einungis aðgengilegur í
gegnum kaffístofu starfsfólks á ann-
arri hæð. Stærð hússins er óhóflega
mikil bæði hvað varðar flatarmál og
rúmmál. Tillagan er mjög vel unnin
og framsetning frábær." Dómnefnd
verðlaunar sigurtillöguna fyrir frá-
bæra byggingarlist og mælir með
að höfundi verði falin fullnaðar-
hönnun byggingarinnar.
Fýrir utan verðlaunatillögumar
voru þijár tillögur keyptar, hver fyr-
ir 103.700 krónur. Fyrstu innkaup
hlaut Baldur Ó. Svavarsson arkitekt.
Tillaga Gylfa Guðjónssonar hlaut
önnur innkaup og tillaga Áma Kjart-
anssonar, Hans Olav Andersen og
Sigurbjarnar Kjartanssonar hlaut
þriðju innkaup. Fjórar tillögur fengu
viðurkenninguna „athyglisverð til-
laga“. Gunnar S. Óskarsson var höf-
undar fyrstu tillögunnar, Þorgeir
Jónsson átti aðra, Guðmundur Gunn-
arsson, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir,
Pálmi Guðmundsson og Sveinn f vars-
son áttu þriðju tillöguna og Þorsteinn
Helgason þá fjórðu.
„Sigur í samkeppninni hefur mikla
þýðingu fyrir mig núna, sérstaklega
vegna þess að framkvæmdir við tón-
listarhúsið, sem ég hef einnig teiknað
og hannað, hafa verið stöðvaðar
vegna fjárskorts í einhvem tíma.
Þetta hefur orðið til þess að ég hef
þurft að leigja út alla mína starfs-
menn vegna verkefnaskorts," sagði
Guðmundur í samtali við Morgun-
blaðið, en hann rekur eigin arkitekta-
stofu í Osló í Noregi. Guðmundur
hefur fengið hátt í 20 verðlaun og
viðurkenningar á síðustu árum. Hann
stundaði nám við Arkitektaskólann
í Osló á árunum 1975 til 1981 og
er hann eins og fram kom, höfundur
tónlistarhússins og hlaut 2. verðlaun
í samkeppninni um ráðhús í
Reykjavík svo eitthvað sé nefnt.
Næst á dagskránni sagði Guðmundur
að væri hönnun nýbyggingar yfír
málverk Kjarvals eingöngu. Auk þess
vonaðist hann til að skriður kæmist
á tónlistarhúsið innan skamms, en
nú stæði vilji borgar- og stjómvalda
I vegi fyrir framkvæmdunum. „Það
kostar gífurlega fjármuni að taka
þátt i slíkum keppnum og er verð-
launaféð aðeins dropi í hafíð til að
standa straum af kostnaði. Mér
fínnst mjög áþekkt að taka þátt I
samkeppni hér heima og úti í Nor-
egi. Gæðin em yfírleitt mikil í keppn-
uni þó yfirleitt séu heldur fleiri þátt-
takendur í Noregi," sagði Guðmund-
ur.
Amtsbókasafnið á Akureyri er
rösklega 160 ára og hefur ætíð verið
ein af virtari menningarstofnunum
héraðsins, enda þótt það hafí löngum
búið við takmarkað og ófullnægjandi
húsnæði. Á 100 ára kaupstaðaraf-
mæli Akureyrar, árið 1962, var tekin
sú ákvörðun að reisa veglegt hús
yfir Amtsbókasafnið og var sú bygg-
ing tekin í notkun árið 1968. Þar
sannaðist sem oft áður að starfsemin
jókst með bættum búnaði, og nú,
aðeins tveimur áratugum seinna,
hefur hún aukist svo að stækkun
safnsins er orðin nauðsynleg. Bæjar-
stjórn Akureyrar ákvað einróma á
125 ára kaupstaðarafmæli bæjarins
sl. haust að minnast enn slíkra tíma-
móta með því að reisa nýbyggingu
við safnhúsið. Nýbyggingunni er
ætlað að bæta úr húsnæðisþörfum
Amtsbókasafnsins og héraðsskjala-
safnsins, en eignast auk þess hús-
næði þar sem aðstaða verði til list-
sýninga og margvíslegrar annarrar
menningarstarfsemi. Þetta kom
meðal annars fram í máli Gunnar
Ragnars, forseta bæjarstjómar og
formanns dómnefndar, er úrslitin í
samkeppninni voru kunngjörð sl.
föstudag. Auk Gunnars sátu í dóm-
nefnd Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
fulltrúi og Ágúst G. Berg húsameist-
ari Akureyrarbæjar. Tilneftidir af
Arkitektafélagi Islands voru arki-
tektamir Bjöm S. Hallsson og Ormar
Þór Guðmundsson. Ritari og fagleg-
ur ráðgjafí dómnefndar var Láms
Zophaníasson amtsbókavörður og
trúnaðarmaður dómnefndar var Ól-
afur Jensson framkvæmdastjóri.
í keppnislýsingu var gert ráð fyrir
nýbyggingu á lóð safnsins sem rúma
skyldi tvo sali, myndlistarsal og fjöl-
nýtissal, ásamt rúmgóðum forsal og
æskilegt talið að sameina þá alla í
einn ef þörf krefði. f tengslum við
salina skyldu vera málverka- og
munageymslur, fundaherbergi,
vinnuaðstaða og skrifstofa umsjón-
armanns svo og kaffistofa gesta.
Fyrir Amtsbókasafnið skyldi gera
ráð fyrir vinnuaðstöðu starfsliðs og
rúmgóðum geymslum. Fyrir héraðs-
skjalasafnið skyldi gera ráð fyrir
skrifstofu héraðsskjalavarðar, vinnu-
aðstöðu fyrir starfslið og notendur
safnsins og geymslum. Nettóflatar-
mál byggingarinnar var áætlað
1.225 fermetrar.
Sýning stendur nú yfir S Síðuskóla
á 'tillögunum 25 sem bárust. Sýning-
in er opin á virkum dögum milli 16.00
og 21.00 og um helgar á milli 13.00
og 18.00 til 10. júlí.
STEFAHIA
96-26366 AKUREYRI 96-26366
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Félagar í Nökkva, félagi siglingamanna á Akureyri.
Síglingamót á PoUinum