Morgunblaðið - 05.07.1988, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
k* 35
Óska eftir áskrift. Áskriftarverö 1988 kr. 750.-
(Þrjú tölublöð)
Nafn
Heimilisfang
Sendist: Heilsuvernd, Náttúrulækningafélag íslands,
Laugavegi 20b, 121 Reykjavík.
--------------------------------------------------------------x
Áskriftarsími 16371 Auglýsingasími 35740
* A * *
«• *
*• * ■*
* *
* *
Henry Kissinger
Hér er þó um óyfírstíganlega mót-
sögn að ræða því að flokkurinn er
hluti vandans, ekki hluti lausnarinn-
ar.
Bandaríkin:
Slagsmál brutust út í austurhluta Jerúsalem á sunnudaginn er verkamenn í fylgd hermanna hófu að grafa
í gamalli vatnsleiðslu undir al-Aksa-moskunni sem er eitt af helgustu mannvirkjum íslams. Leiðslan liggur
frá Grátmúmum að Via Dolorosa, götunni þar sem JKristur var látinn bera krossinn. Hundruð múslíma
söfnuðust saman á götunni, söngluðu slagorð gegn ísraelum og köstuðu gijóti í þá vegna þess sem þeir
kölluðu vanhelgun á moskunni. Hermenn svöruðu með táragasi og gúmmikúlum og hlutu 26 manns meiðsl.
ísraelsk yfirvöld segja að um fomleifauppgröft hafí verið að ræða og aðeins hafi átt að grafa lítið gat á
leiðsluna sem síðan yrði lokað aftur. Borgarstjórinn í Jerúsalem, Teddy Kollek, sagði að greinilega hefði
ekki verið tekið nægilegt tillit til Palestínuaraba. Gyðingar væru sjálfír viðkvæmir eftir margar aldir í
útlegð og ættu því manna best að geta skilið viðkvæmar tilfinningar Palestínuaraba. Á myndinni sjást
arabískar skólastúlkur halda fyrir vitin vegna táragasskota hermannanna á sunnudaginn.
ELLEN
BETRIX
HENRY MARIA BETRIX GMBH & CO
BODYCARE
Baðlínan vinsæla komin aftur.
BODY CONTOUR
Gegn cellulitis.
BUSTSERUM
Styrkir brjóstvöðva.
ANTIAGE
SYSTEMSET
Dregur úr hrukkumyndun.
Varað við geisla-
virkni frá tölvu- og
sjónvarpsskjáum
Andóf í Jerúsalem
Heilsuvernd
Gott tímarit fyrir alla
Fæst í næstu bókabúð
ÞAÐ lítur svo sannarlega út fyrir að ráðamönnum í Suffolkhéraði
á Long Island í New York-ríki í Bandaríkjunum líki vel að vinna
brautryðjendastarf. Þeir hafa t.a.m. leitt baráttu fyrir lögum um
takmarkanir reykinga, endurvinnslu á gosdrykkjaflöskum og plast-
umbúðum utan um mat, svo eitthvað sé nefnt. Nú einbeita þeir sér
að því að benda fólki á þá hættu sem þeir telja að stafi af geislum
frá tölvu- og sjónvarpsskjám. Tíminn mun svo skera úr um hvort
aðrir feta i fótspor þeirra eða hvort aðgerðir ráðamannanna verða
einungis til að fækka störfum í héraðinu.
Samkvæmt nýjum lögum ber
fyrirtækjum.sem hafa innan sinna
vébanda 20 útstöðvar eða fleiri, að
borga 80% af kostnaði við augn-
skoðun, gleraugu eða linsur sem
starfsmenn fyrirtækisins þurfa á
að halda vegna vinnu í 26 tíma á
viku eða lengur við tölvuskjái fyrir-
tækisins. Atvinnurekendum er
einnig gert skylt að sjá til þess að
starfsmenn þeirra fái þægilega
stóla til að sitja í. Þá er talið nauð-
synlegt að starfsmenn fái 15
mínútna hvíld eftir hverja þijá tíma
við skjái og samrýmist sú regla
niðurstöðum kannana sem sýnt
hafa að daglöng seta við tölvuskjái
skaði augu og valdi vöðvabólgu.
Ekki hefur verið sannað að sam-
band sé milli útgeislunar frá skjám
og líkamlegrar vanlíðanar. Líklegra
er talið að það sé sjálf setan og
það hvemig menn bera sig að við
tölvuvinnu sem sé heilsuspillandi.
Upphaflega studdi forystumaður
héraðsnefndarinnar í Suffolk,
Patrick Halpin, lögin en seinna
sannfærðist hann um skaðleysi
slíkrar geislunar og beitti neitunar-
valdi sínu til þess að þau yrðu ekki
samþykkt. Eflaust hefði ákvörðun
Halpins riðið baggamuninn ef ekki
hefði komið til skýrsla frá nefnd
lækna í Norður-Kalifomíu. Hún
varð til þess að vekja að nýju gmn-
semdir um að geislun frá skjáum
geti valdið fósturlátum, þar sem
þau em sögð tvisvar sinnum tíðari
hjá konum, sem minntust þess að
hafa eytt löngum tíma fyrir framan
skjái á meðgöngutímanum. Hvort
þetta er geislun frá skjánum að
kenna, kyrrsetunni eða misminni
er aftur á móti ekki vitað. Skýrslan
varð til þess að einn nefndarmann-
anna breytti afstöðu sinni sem
dugði til að hnekkja neitunarvaldi
Halpins.
Niðurstöður atkvæðagreiðslunn-
ar höfðu strax áhrif meðal iðnrek-
enda sem höfðu barist hart gegn
lögunum. Flugfélagið Northwest
Airlines sem hugðist ráða 650
manns vegna stækkunar á skrif-
stofu sinni i Suffolk-héraði féll frá
þeim áformum. Halpin lét þau orð
falla eftir lagasetninguna að fram-
vegis væri hægt að tala um hérað-
ið sem „Efnahagseylandið" því arð-
bærum viðskiptum yrði úthýst með
lögum þessum. Eina von héraðsins
væri að önnur héruð og ríki færu
að dæmi þess og settu viðlíka lög.
Slík lagasetning er til umræðu í
sex öðrum ríkjum. Verkalýðssam-
tök eru staðráðin í að nýta sér
þetta mál til hins ýtrasta og þrýsta
nú mjög á ráðamenn í þremur hér-
uðum í New York-ríki, þar sem
þeir telja málstað sinn helst eiga
hljómgrunn.
HeimildtTAe Economist.
Kissinger um flokksráðstefnu sovéskra kominiinista:
Kissinger sagði engan vafa leika
á, að Gorbatsjov hefði töglin og
hagldimar í Sovétríkjunum en ekki
væri eins víst, að honum tækist að
koma á þeim breytingum, sem hann
berðist fyrir.
„Gorbatsjov vill áreiðanlega
stokka upp kerfið og gera það
nýtískulegra en jafnframt, að flokk-
urinn hafi allt vald í sínum höndum.
Ókyrrð og óvissir tíni'
ar í Austur-Evrópu
New York. Reuter.
HENRY Kissinger, fyrrum ut-
anríkisráðherra Bandarikjanna,
Danmörk:
Stórfé veitt
til bænda
Kaupmannahöfn. Reuter.
DANSKA stjórnin samþykkti á
föstudag fjárhagslegan stuðning
við bændur i landinu sem eiga í
erfiðleikum vegna fallandi af-
urðaverðs og lítils útflutnings.
Stjomin samþykkti að veita
bændum 6,6 milljarði ísl. króna í
stuðning. Fénu, sem veitt verður í
formi hagstæðra lána, er ætlað að
auðvelda 16.000 bændum, sem
skulda alls um 150 milljarði
íslenskra króna, að greiða skuldir
sínar.
sagði á laugardag, að þau merki
aukins frjálslyndis, sem komið
hefðu fram á flokksráðstefnu
sovéskra kommúnista í Moskvu,
gætu verið fyrirboði ókyrrðar
og óvissra tíma í Sovétríkjunum
og Austur-Evrópu.
„Ég tel, að tíðindin frá Moskvu
séu upphaf erfiðra og ókyrra tíma
í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu
og er viss um, að þetta ástand verð-
ur vandasamasta verkefni næstu
ríkisstjómar í utanríkismálum,"
sagði Kissinger 5 viðtalsþætti í sjón-
varpi.
Kissinger kvaðst ekki viss um,
að rökræðumar á flokksráðstefn-
unni boðuðu gerbreytta tíma fyrir
sovéska alþýðu. „Spyija má hvort
þama hafi verið um að ræða æfingu
í lýðræðislegum stjómarháttum eða
herferð á hendur andstæðingum
Gorbatsjovs og ég held, að um
hvorttveggja hafi verið að ræða,“
sagði hann.