Morgunblaðið - 05.07.1988, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
68>
Hryssurnarjafnbest-
ar pótt fáar væru
Stóðhestar með afkvæmum
voru tveir talsins sýndir á fjórð-
ungsmótinu, þeir Eiðfaxi 958 frá
Stykkishólmi sem sýndur var sem
einstaklingur á Landsmótinu 1982
þá fimm vetra gamall og Fjölnir
941 frá Sigmundarstöðum sem var
sýndur á Kaldármelum 1980 einn-
ig fimm vetra gamall.
Ekki er laust við að nokkurrar
eftirvæntingar hafi gætt um útkomu
þessara hesta og þá sérstaklega Eið-
faxa sem nú hlaut fyrstu verðlaun
fyrir afkvæmi, 7,94 stig. Um af-
kvæmi hans segir dómnefndin meðal
annars að gangur sé fjölhæfur með
góðum vilja en vanti hinsvegar ljúf-
leika og þjálni þegar mikils er kraf-
ist. Þá er þess getið að byggingu sé
oft ábótavant þó reising sé góð og
fætur þurrir og traustir og hófar
með besta móti. Af þeim afkvæmum
sem þama komu fram mátti sjá að
Eiðfaxi gefur myndarleg hross sem
fara nokkuð vel í reið þó höfuð-
burður sé ekki lýtalaus í sumum til-
vikum. Tveir kunnir 1. verðlauna
stóðhestar eru til undan Eiðfaxa,
þeir Gustur 1003 frá Stykkishólmi
og Pá frá Laugarvatni.
Fjölnir hlaut önnur verðlaun, 7,86,
fyrir afkvæmi og virðist þar síðri
hestur á ferðinni sem kynbótagripur.
Vantar nokkuð á að reising sé góð,
í það minnsta að sjá í reið, á afkvæm-
um hans. í umsögn dómnefndar seg-
ir að afkvæmin séu lundgóð og
tregðulaus og vilji sé þjáll. Þau hafa
allan gang og skeiðið oftast prýði-
legt. Vert er að minnast á einn hest
sem sýndur var með Fjölni en það
er Hlekkur frá Sveinatungu sem fékk
8,13 í einkunn og hífði Fjölni nokkuð
upp einkunnaskalann. í umsögn
kemur fram að Fjölnir sé nothæfur
til undaneldis en ekki til framfara í
hrossarækt, en hestar sem fá slíka
umsögn falla oftast út úr ræktun
áður en langt um líður og er ekki
ósennilegt að slíkt verði hlutskipti
Fjölnis ef haft er í huga mikið úrval
stóðhesta sem í boði eru.
Hryssur með afkvæmum voru sjö
talsins sem nú komu fram og stóð
þar hæst gæðingamóðirin Skjóna
5928 frá Lýsudal. Hún var sýnd fyr-
ir fjórum árum á sama stað og vermdi
þá botnsætið, en með tilkomu gæð-
ingsins Fengs sem sigraði í A-flokki
gæðinga á mótinu í afkvæmahópinn
breyttist dæmið heldur betur auk
þess sem hin afkvæmin tvö hafa
sjálfsagt bætt sig á þessum fjórum
árum. Dómnefnd segir um afkvæmin
að þau séu sterkbyggð, grófgerð og
ekki fríð. Aðal afkvæmanna sé hins-
vegar mikið gangrými og vilji og
hreinleiki gangtegundanna. í öðru
sæti varð Bára frá Ásum sem gefur
stór og myndarleg tölthross sem búa
yfir einhveiju skeiði. í þriðja sæti
varð svo Svala 4533 frá Skáney, en
þessar þijár hryssur hlutu fyrstu
verðlaun fyrir afkvæmi sín. Þess má
geta að fjórar hryssur voru sýndar
frá hrossaræktarbúinu að Skáney og
fer ekki milli mála að þar er ræktun-
in stunduð af miklu kappi.
Einn góður stóðhestur
Af þeim ellefu stóðhestum sem
sýndir voru virtist manni sem leik-
manni að aðeins þrír þeirra væru til
stórra hluta líklegir. Hæst bar
Stjama frá Melum sem er reyndar
skeiðlaus í það minnsta enn sem
komið er og stóð hann efstur af sex
vetra hestum. Er það frekar fátítt
að skeiðlausir hestar standi í efstu
sætum á móti sem þessu og það sem
gerir þetta enn merkilegra er að
Stjami hlaut fyrstuverðlaunaein-
kunn. Fyrir byggingu hlaut hann
8,20 sem er með því hæsta sem ger-
ist. Varðandi hæfileikaeinkunn má
geta þess að einkunn hans fyrir
brokk, 9,0, var síður en svo ofrausn
og vildu ýmsir spakir menn meina
að hann hefði staðið vel undir ein-
kunninni 9,5 og jafnvel 10. Fer ekki
milli mála að hér er á ferðinni hestur
sem vert er að gefa gaum. Tveir
aðrir hestar í þessum aldursflokki
hlutu fyrstu verðlaun, þeir bræður
Fákur 1006 og Hrafn 1007 frá Eski-
holti, og má margt gott um þá segja,
en ekki er þó hægt að horfa framhjá
stómm galla á þeim báðum sem er
lengd fótleggja. Em þeir báðir mjög
stuttfættir sem gerir þá kútslega í
reið. Báðir em þeir góðum hæfileik-
um gæddir sem tæplega dugir þó til
að vega upp þann ágalla sem .hér
er getið.
Þrír hestar vom sýndir í fimm
vetra flokki og virðist lítil framtíð í
þeim eins og Þorkell Bjamason
hrossaræktarráðunautur gat um
þegar hann lýsti dómum á sunnudeg-
inum. Þrasi frá Nýjabæ stóð efstur
og var hann sá eini sem sýndi góð
tilþrif á sýningunni en lág einkunn
fyrir byggingu virðist gera út um
möguleika hans sem stóðhests.
Fjórir hestar vom sýndir í flokki
fjögurra vetra stóðhesta og sýndu
þrír þeirra prýðileg tilþrif eins og
tilefni er til hjá hestum á þessum
aldri. Mars frá Litla-Bergi var þeirra
sprækastur en hinsvegar er hann of
smár og hálsstuttur til að sýna þann
glæsileik og myndarskap sem kyn-
bótahestur þarf til að bera. Þeir
Dagur frá Kjamholtum og Litur frá
Kletti vom öllu myndarlegri á að líta
og em þar á ferðinni hestar sem
vert er að sjá til með á næstu ámm.
Segja má að Litur beri nafn með
Eiðfaxi 985 frá Stykkishólmi hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
Stjarni frá Melum vakti hvað mesta athygli kynbótahrossa á mótinu
og stóð efstur af stóðhestum 6 vetra og eldri.
allar í flokki sex vetra og eldri, hlutu
fyrstu verðlaun en óneitanlega hefði
það puntað upp á sýninguna ef ein
eða tvær fimm vetra hryssur hefðu
hnikað sér yfir hin eftirsóttu mörk
sem fyrstu verðlaunin em. Eigi að
síður var hryssusýningin prýðileg á
að líta. Efst af sex vetra hryssum
varð Iða 6487 frá Brimilsvöllum með
8,09 en næstar komu þær Brá 6339
frá Skarði og Lokkadís 6337 frá
Nýjabæ sem vom óneitanlega af-
kastamestu reiðhryssumar ásamt
Eiðú 6488 frá Skáney sem hafnaði
í fimmta sæti, en hún hlaut 8,3 3r-
fyrir hæfileika, sem er hæsta hæfi-
leikaeinkunn sem gefin var kyn-
bótahrossi á þessu móti. Tvær fyrr-
nefndu hryssumar hlutu hinsvegar
8,26.
Vin frá Sigmundarstöðum -stóð
efst af fimm vetra hryssunum með
7,91 í einkunn en næstar komu þær
Lýsa frá Lýsuhóli og Gjöf frá Skán-
ey, allt hiyssur sem vafalaust eiga
eftir að klífa upp einkunnastigann á
næsta ári. Fjögurra vetra hryssumar
sýndu ágæt tilþrif þótt ungar væiu
og þar stóð efst Fluga frá Vals-
hamri, skarpvökur hryssa, í öðm
sæti Dama frá Gmndarfirði og þriðja
Embla frá Borgamesi.
Þorkell Bjamason flutti þau döpm
tíðindi á mótinu að hið opinbera
væri hætt að greiða eigendum kyn-
bótahrossa Styrk vegna þátttöku í
sýningum sem þessum og sendi hann
yfirvöldum kaldar kveðjur í hátalara-
kerfið sem ekki skulu þó hafðar eft-
ir hér.
Að lokinni sýningu kynbótahrossa
sýndu fimm ræktunarbú afrakstur,
en það vom hópar frá Ólafi Guð-
mundssyni, Litla-Bergi, út af Bliku
5883 frá Vallanesi, Stakhamri, af-
komendur Pílu frá Stakkhamri, Sig-
mundarstöðum, Nýjabæ og frá^*
Skarði hross út af Brúnku 3076,
Krossi.
V.K.
rentu því hann er móvindóttur en
fáir stóðhestar hafa sést með slíkan
lit og gæti Litur því gert góða hluti
í að viðhalda litaíjölbreytni innan
íslenska hrossastofnsins ef hann
reynist vel að öðm leyti sem kyn-
bótahestur. Um stóðhestasýninguna
í heild má segja að að skaðlausu
hefði hún mátt vera betri. Tæplega
er við því að búast að meirihluti
þeirra hesta er þama komu fram
eigi eftir að marka djúp spor í rækt-
unarstarfið og eins líklegt að þeir
eigi eftir að komast í kast við klipp-
umar sem hrossaræktarráðunautn-
um var tíðrætt um í máli sínu.
Óvenju fáar hryssur
Eins og yfírleitt er á fjórðungsmót-
um vom það hryssurnar sem sýndu
bestu tilþrifín á kynbótasýningunni
þótt þær hafi verið óvenju fáar að
þessu sinni. Hafa ber þó í huga þá
alkunnu staðreynd að ekki fer alltaf
saman magn og gæði. Sex hryssur,
Góður árangur hjá vest-
firskum unglingum
Ármann Armannsson í Skipa-
nesi, sem keppti fyrir Hesta-
mannafélagið Dreyra á Glampa
frá Hofsstaðaseli i Skagafirði,
sigraði í eldri flokki unglinga á
Fjórðungsmótinu. Hann fékk
einkunnina 8,43. Næstur honum
var Þorkell Kristinsson frá Bol-
ungarvík á Fálka úr Skutulsfirði
með 8,29. Þorkell keppti fyrir
Hestamannafélagið Storm á
Vestfjörðum, en fjórir Storms-
félagar voru í átta efstu sætun-
um í úrslitakeppninni.
Reynir Aðalsteinsson varð efstur
í yngri flokki unglinga. Hann
keppti fyrir Dreyra á A1 frá Akra-
nesi. Reynir var í þriðja sæti eftir
undanúrslitin, en röðin breyttist
mjög mikið í úrslitakeppninni.
Urslitakeppnin fór fram síðdegis
á sunnudag, næst á eftir úrslitum
í B- flokki gæðinga og áður en
úrslit í A-flokki hófust. Höfðu
nokkrir mótsgestir á orði við blaða-
mann að ef þessu hefði ekki verið
raðað á þennan hátt hefðu þeir
ekki horft á keppnina. Með þessu
móti væri nokkurn veginn tryggt
að flestir mótsgestir horfðu á
keppnina, hvort sem þeir hefðu
áhuga á henni eða ekki.
En unglingamir voru flestir
mjög vel ríðandi, sérstaklega kepp-
endur í eldri flokki, og var reið-
mennska þeirra tii fyrirmyndar.
Úrslitakeppnin dróst nokkuð á
langinn bæði vegna þess að hátal-
arakerfíð fór úr sambandi öðru
hvoru og eins virtist ekki alltaf
vera alveg ljóst hvað unglingamir
áttu að gera.
Armann Armannsson keppti fyrir Dreyra á hestinum Glampa frá
Hofsstaðaseli. Hann sigraði í eldri flokki unglinga.*
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Feðgarnir Aðalsteinn Aðal-
steinsson og Reynir fagna sigri þess síðarnefnda i yngri flokki
unglinga.
<r