Morgunblaðið - 05.07.1988, Side 72
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Hæsta gengi
dollarans
KAUPGENGI Bandaríkjadals
hefur aldrei verið skráð hærra
í íslenskum nýkrónum en í gær,
__eða 45,89 krónur, sem er 6,3%
hækkun frá síðustu gengisfell-
ingu krónunnar, að sögn Ingvars
Sigfússonar hjá gjaldeyrisdeild
Seðlabankans.
Kaupgengi vestur-þýsks marks
hafði hins vegar lækkað í gær í
íslenskum krónum um 1,7% frá
gengisfellingunni, sterlingspunds
um 5%, danskrar krónu ,um 0,8%
og japansks yens um 1,6%, að sögn
Ingvars.
Gott veð-
ur áfram
GÓÐA veðrið mun leika við
landsmenn áfram að sögn Veð-
urstofunnar. Haég breytileg átt
og bjartviðri ættu að verða
ríkjandi frameftir vikunni um
allt land.
Að sögn Veðurstofunnar er
hæðarhryggur yfir __ landinu sem
stýrir góðviðrinu. Á miðvikudag
i _>>g fímmtudag gætu borist skýja-
slæður yfír vestanvert landið, en
annars verður bjart og milt veður
um allt land, hlýtt að deginum til
inn til landsins, en svalara við sjó-
inn.
Blíða var um allt land í gær og
mældist hitinn 19 gráður um há-
degið á nokkrum stöðum á Suður-
landsundirlendinu.
Kt
Samamagn
af fíkmefn-
um og allt
síðasta ár
Fíkniefnalögreglan hefur
lagt hald á sama magn fíkni-
efna það sem af er þessu ári
og hún náði allt árið í fyrra.
í ár hefur lögreglan náð 15,5
kílóum af hassi, 450 grömm-
um af amfetamíni, um 10
grömmum af kókaíni og
nokkuð af hassolíu.
Amar Jensson, yfirmaður
fíkniefnalögreglunnar, segir að
á þessu ári hafí þeir kært um
. 180 manns sem er svipuð tala
og á sama tíma í fyrra en und-
anfarin þijú ár hafa kærumar
verið um 400 á ári. Stærsta
málið í ár var þegar tæp 11
kíló af hassi fundust í pósti til
fyrirtækis í Reykjavík.
Amar segir að fíkniefnalög-
reglan verði æ oftar vör við
kókaín í fómm þess fólks sem
hún hefur afskipti af. „Ef þró-
unin hér verður sú sama og í
nágrannalöndum okkar má bú-
ast við auknu magni kókaíns í
umferð hér,“ sagði Amar.
Magn kókaíns sem fíkniefna-
lögreglan hefur lagt hald á
hefur ekki verið mikið undan-
farin 3—4 ár, um 20-30 grömm
á ári. Undantekningin var í
fyrra er hald var lagt á um 450
grömm af þessu fíkniefni hjá
brasilísku pari í Hveragerði.
Kveðjustund á flugvellinum í Stornoway. Lengst til vinstri er Gigja Reynisdóttir, þá sigmaðurinn sem seig niður í skútuna úr þyrlunni,
og Unnur Steingrímsdóttir að kveðja þyrluflugstjórann. Á milli þeirra er Ian Stephen, sem stjórnaði björgunaraðgerðum úr landi.
Myndina tók Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, í Stornoway í gær.
Fjögurra manna fjölskyldu bjargað í breska þyrlu:
„Sjórinn reis eins og þverhnípt-
ur hamraveg-giir yfir okkur“
Líklegt samkvæmt radarmælingum að skútan Úa sé enn á reki
„SJÓLAGIÐ var orðið hrikalegt þegar fyrsti brotsjórinn reið yfir
skútuna og hvolfdi henni, sjórinn reis hreinlega eins og hamravegg-
ur yfir okkur, enda var ölduhæðin um 10 metrar og þegar fransk-
ur togari og kanadískt flutningaskip komu á vettvang nokkru síðar
sáum við hvorugt skipið fyrr en það var alveg komið upp að skú-
tunni, slíkur suðupottur var hafið,“ sögðu þau Unnur Steingríms-
dóttir, lífefnafræðingur, og maður hennar, Reynir Hugason, verk-
fræðingur, í samtali við Morgunblaðið, en þau voru í Stornoway á
Skotlandi i gær. Þeim var bjargað úr stjórnlausri skútu sinni ásamt
tveimur börnum þeirra, 14 ára stúlku og 16 ára pilti, síðdegis á
laugardag um 130 sjómílur norðvestur af Skotlandi og um 440
sjómílur frá Vestmannaeyjum.
„Togarinn kom mjög nálægt
okkur og var skemmst um 50 metra
frá Úu, en darraðardansinn í hafinu,
var slíkur að einu sinni sáum við
lofta undir miðjan kjölinn á togar-
anum,“ sögðu þau Unnur og Reyn-
ir. Skútuna, sem þau eiga með
öðrum hjónum og var á leiðinni til
landsins í fyrsta sinn, hafði rekið
stjómlaust vegna veðurofsans í um
það bil sex klukkustundir þegar
björgunarþyrla kom á vettvang, en
ekki reyndist unnt að stjóma skút-
unni vegna fárviðris. Skútan rétti
sig fljótlega við eftir að henni hvolf-
di og kölluðu skipveijar þá^ að-
stoð, enda misstu þau björgunar-
bátinn í þeirri holskeflu. Þyrla frá
bresku strandgæslunni bjargaði
fjölskyldunni frá borði við erfiðar
aðstæður og meiddist björgunar-
maður sem seig niður í skútuna
lítillega.
Leitarþyrla svipaðist um eftir
Úu á sunnudag án árangurs enda
óbreytt veður og skilyrði erfíð til
leitar. í gær var enn stórsjór,
hvassviðri og lélegt skyggni norð-
austur af Skotlandi, en líkur bentu
til að radarstöð hersins á Sankti
Kildu hefði náð Úu á mælingu á
reki um 27 sjómflur undan eynni.
Ekki reyndist unnt að staðfesta í
gær hvaða rek mældist á þessum
stað, en talsmenn strandgæslunnar
í Stomoway töldu að staðsetningin
og rekhraðinn gæti átt við Úu.
Fiskibátur frá Stomoway er tilbú-
inn að fara til leitar þegar gefur
og mun Reynir Hugason fara með
til að freista þess að ná skútunni
aftur, en Unnur og böm þeirra,
Gigja og Mtmir, komu heim til ís-
lands í gærkvöldi. Fjölskyldan
komst frá þessum hiidarleik án
teljandi meiðsla.
Sjá frásögn og myndir á
miðopnu.
Hagkvæmniskönnun samþykkt vegna byggingar nýs álvers í Straumsvík:
Raforkuverðið verði
svipað og er hjá ÍSAL
- segir Per Olof Aronson forsljóri Grángers í Stokkhólmi
„VIÐ væntum þess að raforkuverðið verði sanngjarnt og byggist á
svipuðum forsendum og hjá ISAL, það er að það fylgi markaðs-
verði áls hveiju sinni,“ sagði Per Olof Aronson, forstjóri Grángers
Aluminium í Stokkhólmi, í samtali við Morgunblaðið. í gær var undir-
ritaður samningur milli iðnaðarráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og
fjögurra álfyrirtækja um að gerð verði hagkvæmniskönnun á bygg-
ingu nýs álvers í Straumsvik.
Friðrik Sophusson íðnaðarráð-
herra sagðist ánægður með að þessi
áfangi hafí náðst því segja megi
að hann marki upphaf alvöruvið-
ræðna milli þessara aðila sem eru
auk Grangers, Alumined Beheer í
Hollandi, Austria Metall í Aust-
urríki og Alusuisse í Sviss.
Dr. Jóhannes Nordal, sem veitir
íslensku viðræðunefndinni forystu,
segir að þessi fyrirtæki hefðu ekki
lagt út í þann kostnað sem er af
hagkvæmniskönnuninni nema þau
hefðu verulegan áhuga á málinu.
Morgunblaðið ræddi við forráða-
menn álfyrirtækjanna fjögurra og
kom fram í máli þeirra að þeir
væntu þess að samstarf þeirra yrði
árangursríkt og bæri þann ávöxt
sem stefnt er að.
„Þetta verkefni á jafnmikla eða
meiri möguleika á að ná fram að
ganga og nokkurt annað á sama
vettvangi í heiminum í dag.“ segir
Edward Notter, forstjóri Alusuisse.
Búið er að skipuleggja starf und-
imefnda sem munu hittast á nokkr-
um fundum í náinni framtíð en
þeir sem undirrituðu samkomulagið
í gær munu hittast aftur í septem-
ber á þessu ári. Stefnt er að því
að hagkvæmniskönnunni verði lokið
fyrri hluta næsta árs þannig að
unnt verði að taka endanlega
ákvörðun um byggingu nýs álvers
næsta vor. Verði sú ákvörðun já-
kvæð tekur álverið til starfa á árinu
1992.
Sjá ennfremur blaðsíðu 30.