Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 19 Skrúðreitur í stað ráðhúss myndum, í grein Hallgríms Helga- sonar „Að lokinni listahátíð", sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins og vitnað var til í upphafí. Nú þarf ekkert að vera því til fyrirstöðu að mikil næmni og frjó hugsun gæti skákað þekkingu og siðprýði einum saman, einkum þegar við listir er að fást, en þegar þessari innstillíngu er ekki heldur fyrir að fara er les- endum vissulega vandi á höndum. Því í þessari grein verður Hallgrím- ur uppvís að svo lítilli almennri list- þekkingu, t.d. hvað varðar list Jó- hanns Eyfells, að það að hann skuli taka sér fyrir hendur að dæma um málefni sem listir varða verður að telja mikinn skort á sjálfsgagnrýni, eða jafnvel hreint siðleysi. Og af- bökunin í smekkdómunum er slík að þeir geta ekki lengur verið vitnis- burður upphafinnar næmni heldur niðurlægjandi ranghugmynda eða truflunar. Eitt er það í ummælum Hallgríms sem ekki er með öllu hægt að ,af- saka með fávísi, monti eða ófyrir- leitni, en liggur beinna við að líta á sem róg og lýðskrum. En það er að hann talar um að Listasafn Is- lands hafi látið blekkjast til kaupa á drullukökum. Þeir sem eitthvað hafa fylgst með framrás íslenskrar myndlistar undanfarna áratugi gætu ekkert haft við þessi kaup Listasafnsins að athuga annað en það að ekki skuli hafa verið keypt miklu fleiri verk eftir verk eftir Jóhann Eyfells og miklu fýrr en orðið hefur. Hallgrímur Helgason býr yfir einum góðum kosti sem hann ætti að leggja meiri rækt við, en það er dugnaður. (Hallgrímur hefur opinberað að hann er afar afkasta- mikill bæði sem listmálari og rithöf- undur.) En enn meiri dugnaður myndi jafnframt auka á þá kosti sem hann hefur sjálfur bent á sem eftirsóknarverða, þ.e. „sérmennt- un“ og „víðsýni" og ég vildi bæta við að samfara ræktun þeirra kosta myndi af sjálfu sér fýlgja aukin háttvísi. í viðskiptum sínum við Valtý Pétursson hefði Hallgrímur einmitt getað lært ýmislegt um háttvísi og hógværð, því Valtýr sparaði jafnan stóru orðm í skrifum sínum um myndlist. í umfjöllun sinni um sýn- ingu Hallgríms, sem Valtýr uppskar áðumefndar skammir fýrir, skrifaði hann í Morgunblaðið 10. sept. 1986: „En hér er sýnilega á ferð ómótað- ur ungur maður, sem fer hratt yfir og fitjar upp á mörgu. Hallgrímur á greinilega nokkuð langt í land með að finna sinn persónulega stíl, en hver veit nema hann verði til fyrr en varir. Það er auðsjáanlega margt í deiglunni hjá þessum unga manni og nú er að sjá hvert fram- haldið verður.“ Það er mikil dyggð hjá ungum drengjum að kunna að bíða átekta og sjá hvað setur, einkum þegar þeir em ekki ungir lengur. Oft er það ekkert annað en nýju fötin keisarans sem blasa við þegar fólk þykist sjá framsækna og nýja hugs- un í þeim sem unglegast láta. Að endingu hvet ég því ritstjóra Les- bókar Morgunblaðsins til þess að koma, frekar fýrr en seinna, ein- hveijum böndum á ungæðið sem nú sækir fram, að því er virðist, óheft því annar hlýst ekki annað af en enn meiri „vanvirðing og and- legur dónaskapur". Og íslenski menningarblóminn verður ekki lengi í blóma ef stærsta blað lands- ins hefur það á stefnuskrá sinni að úthella úr eiturskálum á kostnað áburðar þess sem gleggri menn við sama blað hafa reyndar í gegnum árin ausið á hinn andlega akur í hæfilegum skömmtum. Höfundur er myndlisUrmaður. eftirBaldur Pálmason Sem gamall Tjarnargötubúi tek ég allshugar undir með þeim sem nú búa þar og eru andvígir ráðhús- byggingu í Tjörninni. Eg átti eitt sinn heima í Tjarnargötu lOa, einu þeirra húsa sem harðast verða úti ef ráðhúsið rís þarna í norðvestur- krikanum, því að þar með verður byrgt fyrir útsýni til Tjarnarinnar. Og þetta yrði þá til viðbótar þeirri hremmingu að fyrir skömmu var byggt háhýsi við 'Suðurgötu, svo nærri að það rænir meira að segja verulegu dagsljósi frá Tjarnar- götubúum ofan á útsýnið. Þegar þannig.er búið að troða fyrir glugga til vesturs á nú að gera austur- hliðinni svipuð skil. Sagt er að ráðhúsið nýja muni rísa heldur hærra en Tjarnargötu- húsin á bak við svo að þetta „netta“ hús, sem fyrst var talað um verður meiriháttar bákn, þegar til kast- anna kemur sem leggur undir sig allvænan geira af Tjörninni og byrgir sýn til austurs fyrir íbúum nr. 10-húsanna við Tjamargötu. Auk þess verður vegfarendum um Vonarstræti og Tjarnargötu skammtað þrengra sjónarhom til suðurs og austurs. Ekki tel ég neinum vafa bundið, að miklu fegurra og eðlilegra hefði verið að gera hinni gömlu Báruhús- lóð og samliggjandi lóð hússins Tjarnargötu 11 margt til góða með skipulagi að hætti landslagsarki- tekta, þar sem tijágróður og myndastyttur skipuðu verulegan sess. Í vetur létu samtökin „Tjörnin lifi“ -gera póstkort, þar sem sett er fram lausleg tillaga að slíkum reit í þessum krika Tjarnarinnar, og bið ég Morgunblaðið að birta þá teikn- ingu með þessum línum. Eg trúi að á þennan veg hefði átt að prýða þennan reit og Tjörnina alla þar með, í stað þess að tildra upp „súlu- verki“, sem er stílbijótur við allt umhverfis. Sambyggðu íbúðarhúsin nr. 10—lOd við Tjarnargötu fara alls ekki illa að baki fallegum skrúð- reit, ekki sízt eftir að búið væri að mála þau í hæfilega fjölbreyttum litum. Til viðbótar framantöldum ann- mörkum er svo umferðarvandinn, sem fylgja hlyti ráðhúsi á þessum stað, þar sem götur eru þegar yfir- hlaðnar bifreiðum. Þetta eitt er óleysanlegt dæmi nema með ein- hveijum örþrifaráðum. Ekki er nóg að ætla hundruðum bifreiða stað niðri á Tjarnarbotni eða í slökkvi- stöð og Tjarnarbíói. Það þarf að vera hægt að aka þeim til og frá „Þótt byrjað sé að grafa fyrir ráðhúsi í Tjarnarkrikanum er enn ekki úrhættis að söðla um og breyta Báruhús-lóðinni í fall- legan og notalegan skrúðreit.“ eftir greiðfærum vegum. Hefur nokkur verkfræðingur sýnt fram á það hvemig hann leysir það dæmi? Verður kannski enn og aftur skorið af Tjöminni undir bílabrautir? Svari nú sá, sem sér betur en aðrir. Fyrir alllöngu voru uppi ráða- gerðir um ráðhús á Tjarnarbökkum, ekki þó ofan í henni að neinu marki. Þessi hugmynd hlaut fylgi í borgarstjórn, en borgarbúar vom almennt á öndverðum meiði og glöddust þegar látið var dankast að byija á byggingunni. Hugmynd- in um Tjamarráðhús virtist því hafa sofnað svefninum langa flestum til hugarléttis og þeim mun örðugra á óbreyttur borgari að skilja, að aftur skuli koma upp þetta tiltæki nú og hljóta stuðning hjá meirihluta borg- arstjómar. En andmæli hafa heldur ekki látið á sér standa. Þótt byijað sé að grafa fyrir ráð- húsi í Tjamarkrikanum, er enn ekki úrhættis að söðla um og breyta Báruhús-lóðinni í fallegan og nota- legan skrúðreit. Það er vafalítið sterkasti leikurinn í stöðunni. Borg- arbúar mundu fagna upp til hópa. Höfundur er fyrrverandi dag- skrárstjóri /ya Ríkisútvarpinu. Tónleikar í Kristskirkju HLJÓMSVEITIN Camerata Nova heldur tónleika í Krists- kirkju, á morgun, laugardaginn 23. júlí kl. 16.00. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Gunnsteinn Ólafsson. Einsöngvari er Signý Sæmundsdóttir og einleikari á kontrabassa er Hávar Tryggva- son. Á efnisskrá tónleikanna em verk eftir Lars Erik Larsson, Igor Stra- vinskí, Ludwig van Beethoven og Wolfgang Amadeus Mozart. Hljóðfæraleikar í Camerata Nova em þijátíu og hafa þeir ýmist nýlok- ið námi eða em enn að. Þetta eru fyrstu hljómleikar sveitarinnar. SUBSIRAL BIÓMAÁBURDUR SPRENðÍÞAtíUR ÍDAtí! í Skífunni Borgartúni 24. Skífan kynnir sprengidaginn. í dag seljum við allar vörur í verslun okkar í BORGARTÚNI 24 með 10% afslætti. Auk þess bjóðum viðfjöldan allan af plötum með 25% afslætti og 12tomm- ur á hálfvirði. STÓRKOSTLEG VERÐSPRENGING! Framvegis verður sprengidagur í Skífunni Borgartúni 24 mánaðarlega. Merktu við þessa daga í dagatalinu þínu: SKODAÐU ÍSKÍFUNA! KRINGLUNNI • BORGARTÚNI • LAUGAVEGI KÁTAMASKlNAN/SEK

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.