Morgunblaðið - 22.07.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ1988
25
ERLENT
Sovéskir vopnasérfræðingar í Bretlandi:
Báðu gestgjafana
um útsýnisferð
um höfuðborgina
Grccnham Common, Englandi. Reuter.
Sovéskir kjarnorkuvopnasér-
fræðingar báðu gestgjafa sína
um að fara með sig í útsýnisferð
um London, þegar þeir höfðu
lokið af skoðun á bandarískum
stýriflaugum í Bretlandi á mið-
vikudag.
Talsmaður Bandaríkjamanna í
herstöðinni í Greenham Common,
sem er um það bil 100 km vestur
af London, sagði, að sovésku sér-
fræðingunum, tuttugu talsins, hefði
snarlega verið boðið á árlega við-
hafnarsýningu á vegum breska
hersins á Earl’s Court-leikvangin-
um í London.
Sovétmennimir komu til Bret-
lands á þriðjudag. Daginn eftir luku
þeir skoðunarstarfi sínu, sem teng-
ist samningi risaveldanna um út-
rýmingu meðaldrægra eldflauga.
Talsmaður Bandaríkjahers sagði,
að engin ákvæði væri að finna í
fyrrnefndum samningi, sem kvæðu
á um ferðir sérfræðinganna utan
skoðunarsvæðanna, en breska
vamarmálaráðuneytið hefði talið
sjálfsagt að verða við óskum Sovét-
mannanna og vonaði, að ferðin
hefði gert þeim Bretlandsdvölina
ánægjulega.
Hann sagði, að gestirnir hefðu
m.a. orðið sér úti um breska minja-
gripi, eins og myndskreytta skyrtu-
boli með áprentaðri þinghúsklukk-
unni, Big Ben, í versluninni í Green-
ham.
Rómversk „Móna Lísa“ frá
Galíleu fær andlitslyftingu
Zippori í ísrael, Reuter.
Reuter
Hér má sjá andlit konunnar, sem heillar fornleifafræðinga i ísra-
el hvað mest þessa dagana, enda er hún nefnd „Móna Lísa hinn-
ar rómversku Galíleu“.
FEGURÐ hennar er jafnóum-
deilanleg og kinnarnar jafn-
rjóðar og þær voru fyrir 1.700
árum, en eigi að síður gengst
„Móna Lísa hinnar rómversku
Galíleu" undir andlitslyftingu
þessa dagana. Mósaíkmyndinni
hefur verið lýst sem meistara-
verki, undursamlegu portretti
úr marglitum steinum, sem
uppgötvuð var í rústunum af
Sepphoris (Zippori á hebresku),
hinni fornu höfuðborg Galíleu.
Nú í vikunni var mósaíkmynd-
inni lyft af grunni sínum, undin
upp eins og teppi og varðveitt
með nýrri tækni, sem sögð er
marka þáttaskil í varðveislu á
fornminjum. Myndin verður flutt
til ísraelssafnsins í Jerúsalem,
hreinsuð, flött út á ný og höfð
almenningi til sýnis í fyrsta skipti.
Konumyndin er miðhluti stór-
fenglegs mósaíkgólfs, þar sem
raktar eru goðsagnir um Díónýs-
os, hinn gríska guð svalls og
áfengisdrykkju. Á það enda vel
við þar sem gólf þetta var í mat-
sal landstjórahallarinnar í Galíleu.
„Hún er einstök. Hvað sjálfa
myndtæknina varðar er hún fram-
ar öllu því, sem við höfum séð í
ísrael — sérstaklega þessi fallega
kona,“ segir Ehud Netzer, próf-
essor við Hebreska háskólann,
sem stjórnaði uppgreftinum.
Rétt eins og Móna Lísa eftir
Leonardo da Vinci hefur þessi
galíleíska „Móna Lísa“ fjarrænt
en hrífandi augnaráð.
„Hvar sem þú stendur virðast
augu hennar horfa á þig,“ segir
biblíusöguprófessorinn Carol
Meyers frá Duke-háskóla í Norður
Karólínu, en hún stýrði liði stúd-
enta við gröftinn ásamt eigin-
manni sínum, fornleifafræðingn-
um Eric Meyers.
Ekki er vitað af hveijum mynd-
in er. Fyrirmyndin gæti verið ást-
argyðjan Afródíta, þar sem Eros
virðist leika við öxl hennar. Þá
gæti hún eins verið Aríaðna, kona
Díónýsosar.
„Hún gæti líka hafa verið kona
landstjórans, einhver fegurðar-
gyðja þess tíma eða bara falleg-
asta konan, sem listamaðurinn
gat ímyndað sér,“ segir Eric Mey-
ers. „Hvað um það er þetta
óvenjufalleg kona.“ Talið er að
mósaíkgólfið sé frá þriðju öld eft-
ir Krists burð, en þá var Seppor-
is, sem er 6 km fyrir norðan Naz-
aret, höfuðborg Galíleu — svæðis
sem náði frá Tíberías við Galíleu-
vatn : austri til hafnarborgarinnar
Ökkru (Akko) í vestri. I Galíleu
bjuggu bæði gyðingar, kristnir og
heiðingjar, en mósaíkmyndin hef-
ur legið undir rústum síðan 363
e.Kr.b. þegar borgin eyddist að
mestu í jarðskjálfta.
Sem fyrr sagði var konumyndin
ekki sú eina og eru hinar inyndim-
ar 16 lítt síðri.
Ein þeirra er nefnd „Ölvun" og
sýnir hvar hálfguðinn Herakles
tekur þátt í drykkjukeppni.
Drykkjuþol kappans virðist þó
ekki vera í samræmi við víðfrægt
afl hans, því á myndinni er hann
sýndur þar sem hann spýr áður-
dmkknum veigunum í skál.
Bólusettgegn kóleru
Yfir 80 manns hafa látist úr kóleru í Nýju Delhi
á Indlandi það sem af er júlímánaðar, en alls hafa
205 tekið veikina. Segja læknar þar, að heíja þurfí
víðtæka baráttu gegn þessum vágesti, ef koma
eigi í veg fyrir faraldur. Borgaryfírvöld í Nýju
Delhi gangast nú fyrir fjöldabólusetningum í fá-
tækrahverfum borgarinnar, þar sem hættan er
mest, ekki síst vegna skorts á heilnæmu drykkjar-
vatni. Á myndinni, sem tekin var í einu fátækra-
hverfanna á þriðjudag, er læknir að bólusetja ungt
bam. Kólera lýsir sér m.a. í niðurgangi og uppsöl-
um.
Saudi-Arabía:
Frásögnum af óeirðum
pílagríma vísað á bug
Bahrain. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Saudi-Arabíu
vísuðu í gær á bug fullyrðingum
írana þess efnis að múslimskir
pílagrímar í hinni heilögu borg
Mekka hefðu staðið fyrir mót-
mælaaðgerðum í borginni á
miðvikudag. Saudi-arabiska
fréttastofan SPA hafði eftir
þarlendum embættismanni að
fullyrðingar íranskra sljórn-
valda væru ekki á rökum reistar
og reyndar legði enginn lengur
trúnað á það sem úr þeirri átt
kæmi.
íranska sjónvarpið rauf frétt-
atíma sinn til að skýra frá því að
pílagrímar, sem umkringdir hafi
verið saudi-arabískum öryggis-
vörðum, hafi æpt :„Niður með
Bandaríkjamenn, niður með Sov-
étmenn, niður með ísraela."
Saudi-arabíski embættismaðurinn
sagði hins vegar að allt hefði ver-
ið með eðlilegum hætti í Mekku.
Straumur pílagríma nær hám-
arki á laugardag en þá munu
hundruð þúsunda pílagríma safn-
ast saman til bænahalds við fjallið
Arafat rétt hjá Mekku. Á síðasta
ári féllu meira en 400 pílagrímar
í óeirðum sem fyrst og fremst var
stofnað til af írönum. Þess er
vænst að ekki komi aftur til slíkra
atburða þar sem Saudi-Arabar
hafa aukið mjög öryggisgæslu og
auk þess hafa Iranir ákveðið að
hunsa ferðirnar að þessu sinni
vegna takmarkana sem saudi-
arabísk yfirvöld hafa fyrirskipað á
fjölda pílagríma frá hveiju landi.
HítaríKma
Smjörfjallið selt til Rússlands
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttantara Morgunblaðsins.
Innan EB er þessa dagana ver-
ið að ganga frá sölusamningum
á 120 þúsundum tonna af smjöri
til Sovétríkjanna. Líklegt meðal-
verð á kílói er rúmlega tíu krón-
ur íslenskar. Smjörfjall banda-
lagsins er nú nálægt því að vera
300 þúsund tonn í samanburði
við l'/2 milljón tonna fyrir tveim-
ur árum.
Þessi samningur er gerður til að
greiða fyrir sölu á 100 þúsund tonn-
um af nautakjöti til Sovétmanna
en nautakjötsbirgðir bandalagsins
eru um þessar mundir áætlaðar 800
þúsund tonn og vikulega bætast
um 10 þúsund tonn við fjallið. Það
er fyrst og fremst gífurleg slátrun
mjólkurkúa sem veldur þessum
auknu birgðum en slátrunina má
rekja til framleiðslutakmarkana
sem innleiddar hafa verið að und-
anfömu. A síðastliðnum fjórum
árum hafa Sovétmenn keypt rúm-
lega 800 þúsund tonn af smjöri af
Evrópubandalaginu og þar með
kúfínn af smjörfjallinu. Þessi við-
skipti þættu vafalítið lítt arðsöm
undir venjulegum kringumstæðum.
Evrópubandalagið greiðir bændum
sem svarar 162 íslenskum krónum
fyrir kílóið og hefur síðan selt það
m.a. til Sovétríkjanna á 10 til 20
krónur. Salan á smjörinu fer að
langstærstum hluta fram í gegnum
einkafyrirtæki sem una allvel við
þessi viðskipti. Sumir, m.a. þing-
menn á Evrópuþinginu, hafa haldið
því fram að Sovétmenn noti niður-
greidda smjörið til að smyija legur
í skriðdrekum þeim sem eru hvað
mest ógn við öryggi Vestur-Evrópu.
Peking. Reuter.
HITABYLGJA í Kína varð 22
mönnum að fjörtjóni í gær og
er tala látinna af hennar völdum
farin að nálgast 500.
1 borginni Wuhan, inni í miðju
landi, varð hitinn sá hæsti í 17 ár
eða 40° C. Tjaran í malbikinu
bráðnaði og verslanir voru lokaðar.
Víða hafa loftvarnarbyrgi verið
opnuð svo fólk geti leitað skjóls
fyrir hitanum. Að sögn kínverska
sjónvarpsins er ekki búist við að
hitinn minnki fyrr en í næsta mán-