Morgunblaðið - 22.07.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
35-
„Ríkisframlög“ til land-
búnaðar - verðmynd-
un landbúnaðarafurða
eftir Gunnlaug
Júlíusson
í fyrri grein minni um landbúnað-
armál ræddi ég að gefnu tilefni um
landbúnaðarmál og listir og hvaða
hlut þessar tvær ólíku greinar eiga
að forsendum fyrir sjálfstæði þjóðar-
innar.
Ég mun í eftirfarandi grein fjalla
um á hvem hátt ríkisvaldið aðstoðar
landbúnað heima og erlendis ásamt
fleiru er málinu viðkemur og hvernig
stjórnvaldsaðgerðir fá á sig mismun-
andi blæ eftir því í hvaða formi þær
eru.
f þessum greinum hef ég að hluta
til lagt útaf greinum Þorvalds Gylfa-
sonar prófessors í Morgunblaðinu frá
því í maí sl. Þær eru góður grunnur
rökræðna þar sem málefnaleg um-
fjöllun situr þar í fyrirrúmi, en það
er kærkomin tilbreyting þegar um
landbúnaðarmál er fjallað.
Ríkisaðstoð við landbúnað
Þorvaldur flallar í alllðngu máli
um rikisaðstoð við landbúnað sem
hann kallar svo, og tekur í því sam-
bandi sérstaklega fyrir allar niður-
greiðslur og útflutningsuppbætur og
reiknar út ákveðna upphæð í því sam-
bandi fyrir hveija fjögurra manna
flölskyldu í landinu. Jafnframt reikn-
ar hann út hve mikla fjármuni EB
veitir til landbúnaðarmála á sínum
§árlögum, og lætur þess siðan getið
en tekur ekki með í útreikningana
að þar að auki komi til háir styrkir
einstakra ríkja til landbúnaðar heima
fyrir. Með þessu móti er kominn viss
samanburður sem er afar óhagstæður
okkur hér heima.
Hér er á ferðinni afar gott dæmi
um hvemig hægt er að búa til
ákveðna niðurstöðu með ónákvæmri
meðferð talna.
Heildamiðurgreiðslur á landbún-
aðarafurðum em ætlaðar í ár um 2,6
milljarðir kr. Þar af em 1.290 milljón-
ir, eða 25% af þeim rösklega 5 mill-
jörðum sem Þorvaldur telur að veija
eigi til landbúnaðarmála á árinu,
ætlaðir til endurgreiðslu á söluskatti
(matarskatti).
Þegar það var ákveðið af yfirvöld-
um að til einföldunar skyldi matar-
skatturinn endurgreiddur að hluta i
stað þess að innheimta lægra skatt-
stig af landbúnaðarvömm, settu bæn-
dasamtökin sig mjög á móti þessari
ráðstöfun. Þau sögðu, sem síðan hef-
ur komið á daginn að var rétt mat,
að þetta yrði rangtúlkað og mistúlkað
í þá vem að framlög ríkisins til land-
búnaðarmála hefðu stóraukist. Á
sama tíma var ákveðið að einungis
skyldi innheimta 10 prósentustig í
söluskatt af fiski. Það er í raun 10%
söluskattur lagður á físk í stað þess
að lagður sé á hann 24% skattur og
13—14% endurgreidd eins og fyrir-
komulagið er við landbúnaðarafurðir.
Það minnist ekki nokkur maður á að
fískur sé á ríkisstyrk hvað þetta varð-
ar, heldur segir Þorvaldur að verði
niðurgreiðslur felldar niður af land-
búnaðarafurðum og skattar lækkaðir
sem því nemur geti neytendur dregið
úr matarkostnaði heimilanna með því
m.a. að kaupa sér fisk eins og ríkis-
valdið komi hvergi nærri verðmyndun
hans með álagningu söluskatts.
Jónas nokkur Bjamason íjallar
nokkuð um þessi mál í grein í DV
þann 20.6. og talar m.a. um þvingað
ástand og neyslukúgun þegar innlend
framleiðsla er niðurgreidd. Sam-
kvæmt þessum rökum væri það því
jafnmikil neyslukúgun ef verð á nið-
urgreiddum erlendum komvörum
yrðu ráðandi faktor í verðmyndun
kjöttegunda hérlendis. Munurinn er
aðeins sá að í fyrra tilvikinu (niður-
greiðslur ákveðnar af íslenskum
stjómvöldum) er ákvarðanatökuvald-
ið í höndum erlendra „kúgara“. Málið
snýst einnig um hvort íslendingar
vilji hafa atvinnu við framleiðsluferil-
inn frá upphafi og hafa af honum
skattatekjur eða láta þennan þátt
framleiðslunnar að mestu leyti í hend-
ur útlendingum.
Endurgreiðsla söluskatts á
íslandi / lægra virðisauka-
skattsstig í Evrópu — hver
er munurinn?
Þorvaldur upplýsir að EB hafi var-
ið u.m.þ. 12.000 kr. á hveija fjögurra
manna fjölskyldu í „landbúnaðar-
styrki" sem er hugtak sem ekki er
tilgreint nánar meðan viðlíka upphæð
sé 50.000 kr. á fjölskyldu á Islandi.
Síðan segir hann að „við þessar fjár-
hæðir bætist háir styrkir einstakra
ríkja til eigin landbúnaðar, þótt slíkar
flárveitingar séu reyndar óheimilar".
Þrátt fyrir að fjárveitingar einstakra
ríkja til viðbótar við fjárveitingar EB
séu ekki tilgreindar nánar en svo og
alls ekki í tölum, þá kemst Þorvaldur
að þeirri niðurstöðu að „af þessu
megi ráða að við íslendingar veijum
mun meira fé í landbúnað samkvæmt
fjárlögum en EB“. Hér þykir mér
vera stungin tólg svo um munar.
Ég get ómögulega séð hvemig
prófessorinn getur dregið þessa
ályktun eftir framkomnum forsend-
um. Þessi niðurstaða er annað
tveggja getgáta út í loftið eða fyrir-
fram ákveðin. Jónas Bjamason bætir
síðan um betur í skrifum sínum þann
20.6. Hann kemst að þeim stórasann-
leik út frá fyrrgreindum forsendum
og ákveðinni talnaleikfimi að land-
búnaður á íslandi sé styrktur 9 sinn-
um meir en landbúnaður í EB.
Þá vita menn það.
I þessu sambandi er það t.d. grund-
vallaratriði að í öllum EB-löndum er
innheimt lægra virðisaukaskattsstig
á matvæli en af öðrum vörutegundum
nema í Danmörku. Þó er virðisauka-
skattur af mjólkurvörum endur-
greiddur þar í landií Endurgreiðsla
söluskatts til neytenda er talinn til
„landbúnaðarstyrkja" á íslandi af
þeim Þorvaldi Gylfasyni og Jónasi
Bjamasyni. Ef fyrirkomulaginu yrði
breytt á þann veg að lægra hlutfall
yrði innheimt og allar endurgreiðslur
hyrfu ( eins og það er með fiskinn)
myndi þetta fyrirkomulag hverfa eins
og dögg fyrir sólu. Hvernig er lægra
virðisaukaskattsstig á matvælum en
öðmm vörutegundum innan EB með-
höndlað í fyrrgreindum útreikning-
um? Er það ekki „landbúnaðarstyrk-
ur“ þó svo að fjármunimir séu ekki
endurgreiddir úr ríkissjóði vegna þess
að þeir em aldrei innheimtir.
Hér hefur mismunandi fyrirkomu-
lag á innheimtu söluskatts/virðis-
aukaskatts af matvælum á íslandi
og innan EB afgerandi áhrif á fyrr-
greinda útreikninga.
í framhaldi af þessu ber að minna
á að margvíslegar aðgerðir ríkis-
valdsins í málefnum landbúnaðarins
innan einstakra EB-landa era stað-
reynd, eins og endurgreiðsla á virðis-
aukaskatti af mjólkurvömm ber vitni
um. Því er það út í hött að taka ein-
ungis bein framlög EB til landbúnað-
armála og túlka þær tölur eins og
ekki sé um aðra fyrirgreiðslu eða
n'kisaðgerðir. landbúnaðinum til
handa í viðkomandi löndum.
Utreikningar á styrkjum
til landbúnaðar innan
OECD
Á vegum OECD hefur þróuð upp
aðferð sem kallast PSE (Producer
Subsidy Equivalents) eða .jafngildi
niðurgreiðslna til framleiðenda".
Þessa aðferð eða þennan mælikvarða
átti að nota til að leggja mat á ríkis-
stuðning til landbúnaðar í einstökum
löndum innan bandalagsins í sam-
bandi við GATT-viðræðumar um
fríverslun með landbúnaðarvömr.
Forsenda þessara útreikninga er
að allar millifærslur frá ríki til fram-
leiðenda, hvort sem það er beinn
styrkur, niðurgreiðslur, vemdartollar
og innflutningsbann eða skattaíviln-
anir séu skráðar og metnar til fjár.
Þessi aðferð hefur þegar vakið
miklar deilur milli landa þegar var
farið að túlka niðurstöður þeirra út-
reikninga, sem gerðir hafa verið, í
pólitískum tilgangi í GATT-viðræð-
unum. Hátt PSE-gildi hefur verið
túlkað á þann hátt að í viðkomandi
landi væri landbúnaður ríkisstyrkur
mikið, meir en í þeim löndum sem
kæmu út með lágt PSE-gildi.
Komið hefur í ljós við þessa út-
reikninga að meðferð talna er afar
misjöfn milli landa og alls ekki sam-
bærileg í mörgum tilvikum. Einnig
hefur komið í ljós að það skiptir miklu
máli hvað varðar niðurstöður úr
PSE-útreikningunum með hvaða fyr-
irkomulagi og hvenær á framleiðslu-
ferlinum landbúnaðurinn er styrktur.
Beinar niðurgreiðslur gefa mun hærri
útkomu en jafnháar upphæðir sem
koma fyrr inn í framleiðsluferilinn
s.s. skattafríðindi til fyrirtækja sem
framleiða rekstrarvömr til landbún-
aðarins, lækkun tolla, flutningsstyrk-
ir o.fl. í líkum dúr.
Á Norðurlöndum kemur ríkisað-
stoð til landbúnaðarins yfirleitt seint
inn í framleiðsluferilinn og koma þau
því illa út úr þessum útreikningum.
Lönd innan Efnahagsbandalagsins
styrlqa landbúnaðinn á annan hátt
og í mun meiri mæli á fmmstigi fram-
leiðslunnar.
Notkun þessarar mæliaðferðar
hefur leitt berlega í ljós hve mikið
ósamræmi og mikill munur er á með-
ferð talna milli landa hvað varðar
hagtölur landbúnaðar í hinum ein-
stöku löndum innan OECD. Vegna
þessa er allur beinn samanburður á
tölum milli landa þar sem alls ekki
er tryggt að sami bakgmnnur sé fyr-
ir hendi.
í þessu sambandi er rétt að minna
á að á landbúnaðarráðstefnu Al-
þýðubandalagsins í apríl sl. fjallaði
dr. Gísli Gunnarsson, stjómarmaður
í Neytendasamtökunum, um frjálsa
verslun með landbúnaðarafurðir og
kom þá meðal annars inn á saman-^
burð á matvælaverði milli landa.
Hann fullyrti að slíkur samanburður
án undangenginnar rannsóknar á
verðmyndun landbúnaðarafurða í
hinum einstöku löndum væri mein-
ingarlaus, því að órannsökuðu máli
hefðu menn ekki hugmynd um hver
raunvemlegur framleiðslukostnaður
væri. Þessi staðhæfing Dr. Gísla var
sérstaklega athyglisverð vegna þess
að beinn samanburður á smásölu-
verði landbúnaðarafurða milli landa
hefur mikið verið notaður til að sýna
fram á laklega stöðu íslensks land-
búnaðar, ekki síst af Nevtendasam-^.
tökunum. 1
Að lokum
Þessi umfjöllun sem hér hefur ver-
ið sett á blað var gerð af gefnu til-
efni, þar sem undirrituðum þótti
ályktanir um stöðu íslensks land-
búnaðar samanborið við erlendar við-
miðanir vera dregnar af það hæpnum
forsendum í meðferð talna að ekki
yrði við unað.
Að endingu vil ég taka það fram
að það er deginum ljósara að vanda-
mál landbúnaðarins em bæði mörg
og stór og er það svo sem ekkert
einsdæmi í okkar þjóðfélagi. Vanda-
mál landbúnaðarins em af ýmsum
toga, bæði innri vandamál svo og
vegna utanaðkomandi aðstæðna.'*'—
Umræða um vandamálin og gagnrýni
er landbúnaðinum nauðsynleg jafnt
og öðmm. En til að þessi umræða
beri einhvem jákvæðan árangur og
verði hvati til frambróunar þá er lág-
markskrafa að aðilar njóti sannmælis
og ekki sé á neinn hallað, a.m.k.
ekki það áberandi að í augu stingi.
Greinar Þorvalds Gylfasonar próf-
essors sem birtust í Mbl. síðari hluta
maímánaðar hafa skorið sig nokkuð
úr þeirri umræðu um landbúnaðarmál
sem fram fer í dagblöðum nú á
tímum, hvað varðar málefnalegaP*"“
meðferð á viðfangsefninu. Greinamar
em þakkarverð tilraun til að hífa
umræðuna upp af því plani sem hún
hefur legið á að miklu leyti á undan-
fömum ámm.
Sú niðurrifsumræða sem einkennt
hefur um of alla umræðu um land-
búnaðarmál hlýtur annað tveggja að
vera borin uppi af einhverjum annar-
legum hvötum eða vera sett fram í
ákveðnum tilgangi, og við henni verð-
ur bmgðist eins og hún gefur tilefni
til.
Höfundur er hagfræðingur Stétt-
arsambands bænda.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Gott fyrirtæki
Heildsölu- og smásöluverslun, sem verslar
með vélar og verkfæri, er til sölu ef viðun-
andi kaupendur fást.
Fyrirtækið er vaxandi, búið góðum tækjum,
m.a. tölva og telex, og hefur góð erlend
umboð og viðskiptasambönd. Vörusala 1988
ca. 30. millj. Starfsmenn 4. Góður kúrant
lager. Fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Gott fyrirtæki - 13117“.
( fundir — manrifagnaðir |
Meðalfellsvatn
- veiðikeppni
Hin árlega veiðikeppni Félags sumarbú-
staðaeigenda fer fram laugardaginn 23. júlí
nk. Veiði hefst kl. 07.00 og lýkur kl. 21.00.
Þátttökugjald aðeins kr. 100,-
Allir velkomnir.
Stjórn F.S.M.
húsnæði f boði
Til leigu skrifstofuhúsnæði
200 fm með vönduðum innréttingum í glæsi-
legu húsi í miðbænum. Bílastæði.
íbúð með húsgögnum
150 fm íbúð á efstu hæð í hjarta borgarinn-
ar. Tvö bílastæði í bifreiðageymslu.
Kirkjuhvoll sf.,
Karl J. Steingrímsson,
heimasími 39373
milli kl. 10 og 12.
tilkynningar
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júní mánuð
1988, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 25. júlí þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast
dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan
mánuð, talið frá og með 16. ágúst.
Fjármálaráöuneytið.
Lokað vegna sumarleyfa
Skrifstofa okkar verður lokuð á tímabilinu
25. júlí til 7. ágúst vegna sumarleyfa.
Edda hf.
kennsla
Frá Héraðsskólanum í
Reykjanesi við ísafjarðar-
djúp
Strandamenn, Súðvíkingar og aðrir vestfirðingar!
Nú fer hver að verða síðastur um að hafa
forgang um skólavist skólaárið 1988-1989.
Getum enn bætt við nemendum í 7., 8. og
9. bekk.
Sendið umsókn sem allra fyrst, eða hringið
í síma 94-4840 eða 94-4841.
Skarphéöinn Ólafsson,
skólastjóri.
Metsölublad á hverjum degi!