Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 55
55
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 22. JÚIÍ 1988
KNATTSPYRNA / BIKARKEPPNI KSÍ
Sigi Held
„njósnar" í
Reykjavík
Sigfried Held, landsliðsþjálfari
Islands í knattspyrnu, er vænt-
anlegur til landsins 3. ágúst, eða
fjórum dögum fyrir vináttulandsleik
Islands og Bulgaríu, sem fer fram
á Laugardalsvellinum 7. ágúst.
Held mun ekki velja landslið sitt
fyrr en hann er búinn að horfa á
tvo leiki í 1. deildarkeppninni.
Víking - Fram 3. ágúst og Val -
Akranes 4. ágúst. Eins og svo oft
áður, þá verður undirbúningur fyrir
landsleik ekki mikill.
Morgunblaöi<VÁmi Sæberg
Mistök markvarðar
Hallór Halidórsson markvörður FH gerði hræðileg mistök er hann fékk á sig síðara markið gegn Víkingum í gær. Hann hreinlega fraus á vítateigslínunni og
hinn snöggi leikmaður Víkings, Atli Einarsson, nýtti sér það og skoraði örugglega.
Víkingar nýttu mark-
tækifærin 100 prósent
FH úr leik í bikarkeppninni þrátt fyrir góð tilþrif
FH-INGAR biðu lægri hlut í við-
ureign sinni við Víkinga í 8-liða
úrslitum bikarkeppninnar í
Hafnarfirði í gærkvöldi. Víking-
ar skorðu eitt mark í hvorum
hálfleik án þess að FH-ingum
tækist að svara fyrir sig.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn
og opinn. Víkingar voru sterk-
ari framan af en FH-ingar komu
síðan meira inn í leikinn. Andri
Marteinsson skoraði
ValurB. fyrrá mark Víkinga
Jónatansson um miðjan fyrri
skritar hálfleik. Boltinn
barst út úr vítateig
FH-Víkingur
0 : 2 (0 : 1)
Mörk Víkings: Andri Mar-
teinsson ( 31. mín.) og Atli
Einarsson ( 72. mín.).
Dómari: Baldur Scheving.
Áhorfendur: Um 1.000.
FH eftir þvögu, Andri tók boltann
á bijóstið og skoraði með viðstöðu-
lausu skoti í gegnum vömina óveij-
andi fyrir Halldór markvörð. Aðeins
þremur mínútum síðar átti Ólafur
Kristjánsson skot í slá Vflrinsmarks-
ins eftir homspymu.
FH-ingar komu ákveðnir til leiks í
síðari hálfleik og pressuðu stíft og
má segja að að boltinn hafi ekki
farið inn á vallarhelming FH-inga
nær allan hálfleikinn. FH-ingar
fengu mörg hættulega færi en þeim
tókst á undraverðan hátt að klúðra
þeim öllum.
Skondið mark
Víkingar bættu við öðru marki,
þvert á gang leiksins, þegar stund-
arfjórðungur var til leiksloka og var
það eitt skrautlegasta mark sem
sést hefur lengi. Andri Marteinsson
sendi háan bolta fram á vallar-
helming FH-inga Halldór mark-
vörður virtist hafa knöttinn og beið
við vítateigslínuna eftir að boltinn
kæmi. Atli Einarsson tók á rás á
eftir boltanum og hreinlga stal hon-
um af Halldóri sem fraus. Atli þakk-
aði fyrir og eftirleikurinn var auð-
veldur í markið.
Eftir þetta fór allur kraftur úr
FH-ingum og Víkingar héldu
fengnum hlut. Það má segja að FH
hafí átt meira í leiknum en það em
mörkin sem telja þegar upp er stað-
ið. FH-ingar hafa á að skipa góðum
einstaklingum, en þeir eru full eig-
ingjamir á stundum. Bestir í liði
þeirra voru ólafur Kristjánsson og
Ólafur Jóhannesson. Hjá Víkingum
voru Atli Einarsson og Andri Mar-
teinsson sprækastir. Eins varði
Guðmundur Hreiðarsson vel.
„Ég er ánægður með sigurinn en
við lékum ekki sérlega vel í kvöld.
FH er með gott lið, en munurinn á
1. og 2. deild kom vel í ljós í þess-
um leik," sagði Youri Sedov, þjálf-
ari Víkings, eftir leikinn.
„Við börðumst vel og það var
svekkjandi að tapa þessu eftir að
hafa átt 70 prósent af leiknúm.
Síðara markið sló okkur alveg út
af laginu," sagði Guðmundur Hilm-
arsson, fyrirliði FH.
Lélegur dómari leiksins, Baldur
Scheving, gaf tveimur leikmönnum
FH gula spjaldið. Þeim Ólafí Kristj-
ánssyni og Pálma Jónssyni.
Þaueru
íhattinum
Félögin fjögur, sem verda i hattin-
um, þegar dregið verður i undan-
úrslit Mjólkurbikarkeppninnar,
eru:
■ Valur, Vikingur, Leiftur og
Keflavik.
■Aðeins Valur lék i undanúrslitun-
um í fyrra, en þá máttu Valsmenn
la tap, 0:1, fyrir Vtði i Garðinum.
Valur, sem varð síðast bikarmeist-
ari 1977, lék siðast til úrslita 1979
gn Fram og tapaði, 0:1.
Leiftur hefur aldrei áður leikið [
undanúrslitum.
■Keflavik, sem hefur einu sinni
orðið bikarmeistari - 1975, lék síðast
til úrslita 1985. Tapaði þá fyrir
Fram, 1:8.
■Vikingur, sem hefur einu sinni
orðið bikarmeistari - 1971, lék þá
sinn siðasta bikarúrslitaleik.
Sigl Held og Atli Eðvaldsson, fyrir-
liði landsliðsins.
3. DEILD
Reynir leikur
að Laugum
Reynir frá Árskógsströnd, sem
var dæmt í eins leiks heima-
leikjabann vegna óspekta áhorf-
enda á leik liðsins gegn Einheija,
mun leika leik sinn gegn Þrótti frá
Neskaupsstað að Laugum í Aðaldal.
Upphafa útskurðaði afanefnd KSÍ
að leikurinn færi fram á Neskaups-
stað, en síðan var því breytt í gær.
Leikurinn fer fram á hlutlausum
velli - að Laugum, kl. 17 á morgun.
V-ÞYSKALAND
Karl Allgöwer
færður aftur
hjá Stuttgart
Arie Haan, þjálfari Stuttgart,
ætlar að láta Karl Allgöwer
leika stöðu aftasta vamarmanns nú
þegar Ásgeir Sigurvinsson kemur
inn í liðið að nýju, eftir meiðsli.
Allgöver hefur lengst af spilað á
miðjunni og oft verið markahæsti
maður Stuttgart. í fyrra var hann
færður aftar á völlinn og gaf það
góða raun. Ásgeir mun stjóma leik
liðsins eins og alltaf þegar hann er
með. Stuttgart mætir Dortmund í
kvöld í Dortmund
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Landsliðið fer í keppnisferð
og æf ingabúðir til Möltu
Leiknirverða landsleikir gegn Alsír, Möítu ogTékkóslóvakíu
Knattspymusamband íslands
hefur þegið boð frá knatt-
spyrnusambandi Möltu um að
A-landslið íslands fari í átta daga
æfingabúðir þar í landi dagana
8. til 12. febrúar á næsta ári.
Landsliðið mún taka þátt í fjög-
urra þjóða móti á Möltu á sama
tíma.
Landsliðin sem taka þátt í mótinu
auk íslendinga eru Tékkóslóvakía,
Alsfr og Malta.
Aðstaða til æfinga á Möltu er hin
ákjósanlegasta. Þetta kemur sér
vel fyrir A-landsliðið sem er þá
að hefja undirbúning sinn fyrir
leiki í undankeppni HM á næsta
ári.
KNATTSPYRNA
Júgóslavneskur
þjálfari vill koma
Milan Duricic, sem þjálfað
hefur 1. deildarliðið Orik í
Júgóslavíu undanfarin ár, hefur
sýnt áhuga á að þjálfa á íslandi
næsta keppnistímabili.
Duricic, sem er 42 ára, er einn
af fjórum bestu knattspymuþjálf-
urum Júgóslavíu. Hann hefur
einnig þjálfað unglingalandslið
Júgósiavíu með góðum árangri.
Hann segist einnig geta komið
með tvo 23 ára leikmenn með sér.
í Júgóslvavíu er þær reglur í gildi
að knattspymumenn mega ekki
fara úr landi til að leika í atvinnu-
mennsku fyrr en þeir verða 28
ára. En þeir ættu að fá leyfí til
að leikið hér á íslandi þar sem
er ekki atvinnumennska.