Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
27
Landsfundur bandarískra demókrata:
Mikil eining ríkir um
útnefningu Dukakis
Forsetaefnið heitir endurvakningu „Ameríska draumsins“
Atlanta. Reuter.
SAMEINAÐUR og fullur sjálf-
strausts útnefndi bandaríski
Demókrataflokkurinn Michael
Dukakis, ríkisstjóra í Massa-
chussetts, forsetaefni sitt fyrir
kosningarnar hinn 8. nóvember
i haust. I framhaldi af útnefning-
unni hét Dukakis því í gær að
„koma Bandaríkjunum úr spor-
unum á ný“ og sagði að demó-
kratar myndu komast til valda í
Hvíta húsinu sem „flokkurinn,
sem trúir á ameríska drauminn."
Dukakis hlaut atkvæði 2.876
fulltrúa á landsfundinum í Atlanta
í Georgíufylki en Jesse Jackson
Miklar umræður
um varnarmál
Dukakis telur brýnt að treysta vamir
með hefðbundnum vopnabúnaði
Atlanta, Reuter.
MICHAEL Dukakis, forseta-
frambjóðanda Demókrata-
flokksins, er mjög í mun að
sannfæra kjósendur i Banda-
ríkjunum um að hann sé hlynnt-
ur öflugum vörnum og hefur
hann i ræðum sínum lagt
áherslu á að efla þurfi hefð-
bundinn herafla Bandaríkjanna.
Umræður um framlög ríkja
Vestur-Evrópu til varnarmála
hafa sett mark sitt á flokksþing
Demókrataflokksins í Atlanta
en sú skoðun virðist eiga vax-
andi fylgi að fagna í Banda-
ríkjunum að bandamennirnir í
Vestur-Evrópu leggi ekki nógu
mikið af mörkum til sameigin-
legra varna lýðræðisríkjanna.
Repúblikanar hafa ævinlega
lagt áherslu á mikilvægi öflugra
vama og hefur á stundum verið
haft á orði að munurinn milli flokk-
anna tveggja í Bandaríkjunum sé
einna gleggstur á þessu sviði. Ge-
orge Bush, frambjóðandi Repúblik-
anaflokksins, hefur einkum beint
spjótum sínum að reynsluleysi
Dukakis á sviði utanríkismála og
sagt að hugmyndir Michaels
Dukkais um varnir og samsetningu
heraflans séu barnalegar.
Aukin framlög
Evrópuríkja
Að undanfömu hefur Dukakis
rætt nauðsyn þess að hinn hefð-
bundni herafli Bandaríkjanna verði
efldur á kostnað kjarnorkuher-
aflans. Sökum þessa hafa fulltrúar
á flokksþinginu rætt nauðsyn þess
að ríki Vestur-Evrópu auki fram-
lög sín til varnarmála þar sem
kjarnorkuvarnir eru mun ódýrari
kostur en hefðbundnar varnir. „Ef
bandamenn okkar skuldbinda sig
til að taka aukinn þátt í þeim
kostnaði sem fylgir því að halda
friðinn og tryggja frelsið mun það
treysta öryggi þjóðarinnar," sagði
Dukakis í ræðu á flokksþinginu.
Skoðanakannanir sýna að almenn-
ingur í Bandaríkjunum telur að
ríki Vestur-Evrópu leggi ekki nógu
mikið af mörkum til eigin varna
og í einni könnuninni, sem gerð
var í marsmánuði, kváðust 80 pró-
sent aðspurðra vera fylgjandi
auknum framlögum bandamann-
anna þó svo það kynni að draga
úr áhrifum Bandaríkjamanna í við-
komandi ríkjum.
Nunn ber lof á Dukakis
Sam Nunn, formaður hermála-
nefndar öldungadeildarinnar, hef-
ur fagnað ummælum Dukakis en
Nunn er virtur sérfræðingur á sviði
vígbúnaðarmála og þótti á tímabili
hugsanlegt varaforsetaefni Demó-
krataflokksins í kosningunum í
haust. „Flokksþingið hefur komið
mjög ákveðnum skilaboðum á
framfæri við bandarísku þjóðina.
Það má treysta Demókrataflokkn-
um fyrir öryggishagsmunum þjóð-
arinnar," sagði Nunn. Hann bætti
við að sjónarmið Dukakis varðandi
kjarnorkuvarnir og aukin framlög
aðildarríkja Atlantshafsbandalags-
ins væru í samræmi við sjónarmið
ráðamanna í Vestur-Evrópu.
Dukakis hefur lýst sig andvígan
áætlunum bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins um að koma lang-
drægum kjamorkueldflaugum af
gerðinni MX fyrir á hreyfanlegum
skotpöllum og að halda áfram
smíði Midgetman-eldflauga, sem
einnig eru langdrægar. Hann hefur
lýst yfir því að herafli Bandaríkja-
manna ráði yfír nægilegum fjölda
árásarvopna og segir umbóta-
stefnu Míkhaíls S. Gorbatsjovs
Sovétleiðtoga bæði á stjórnmála-
og efnahagssviðinu kalla á frekari
fækkun kjamorkuvopna. Eðlileg
viðbrögð við þessari þróun segir
Dukakis vera eflingu hins hefð-
bundna herafla. „Ófullnægjandi
hefðbundinn herafli eykur líkurnar
á átökum með hefðbundnum
vopnabúnaði og slík átök geta leitt
til kj arnorkustyrj aldar. “
Mexikó:
Mexíkóborg. Reuter.
STÓR hópur fanga, sem vopnaður
var rifflum og sprengjum, reyndi
á miðvikudag að brjótast út úr
fangelsi í borginni Morelia í mex-
íkóska ríkinu Michoaca. Tíu fang-
ar féllu og a.m.k. 20 manns særð-
ust að auki en talið er að engum
fanganna hafi tekist að sleppa.
Hin opinbera fréttastofa Mexíkó,
Notimex, segir að uppreisnin hafi
byijað með því að tveir fangar hafi
afvopnað verði er verið var að flytja
fanga í réttarsal í fangelsinu. í upp-
náminu slógust aðrir fangar í hóp
uppreisnarmanna og afvopnuðu fleiri
verði. Einn fanganna virðist hafa
naut stuðnings 1.218 fulltrúa. Með
235 atkvæðum frá Kaliforníu
tryggði Dukakis sér meirihluta at-
kvæða og samstundis hóf hljóm-
sveit að leika mars. í tíu mínútur
stigu fulltrúar á þinginu dans áður
en hægt var að halda atkvæða-
greiðslu áfram.
I gær var síðasti dagur lands-
fundarins og lauk honum með fyrr-
nefndri ræðu Dukakis sem talin er
mikilvægasta ræða hans á ferlinum
fram til þessa. Talið er að milljónir
Bandaríkjamanna hafi fylgst með
ræðunni í sjónvarpi.
Dukakis lýsti þessum „ameríska
draumi" sem draumi svo máttugum
„að engin íjarlægð á jörðu, engin
víðátta úthafs, engar takmarkanir
tungumála, enginn munur á kyn-
þætti, trú eða litarhafti, gæti veikt
tökin sem hann hefur á mannsand-
anum,“ en Dukakis er sonur grískra
innflytjenda. „Þetta veit ég af því
að ég er afsprengi þessa draums.“
Eldri kynslóðin á landsfundinum
var ómyrk í máli og spáði Dukakis
öruggum sigri í forsetakosningun-
um. Aðrir voru varfærnari og sögðu
Reuter
Michael Dukakis og kona hans Kitty fagna því að formlega skuli
þau vera orðin forsetahjónaefni bandaríska Demókrataflokksins.
að frambjóðandi demókrata ætti
enn eftir að gera kjósendum ljóst
hvem mann hann geymdi og hver
stefna hans væri.
A bak við bjartsýnina og eining-
una sem ríkt hefur á yfirborðinu á
landsfundinum í Atlanta er tauga-
spenna ogjafnvel óöryggi. Mörgum
demókrötum þykir sem fátt sé heill-
andi við Dukakis og nefna sem
dæmi að eitt sinn tók hann bókina
„Nýting jarðnæðis í Svíþjóð“ með
sér í sumarfríið. Aðrir hugga sig
við að George Bush frambjóðandi
repúblikana hefur heldur ekki yfir
miklum persónutöfrum að búa.
Segja sumir að tími sé til kominn
að forseti Bandaríkjanna hafi annað
og meira fram að færa en heillandi
persónu.
GK og Ólafs Laufdals hf.
verður haldið á Hvaleyrarvelli laugardaginn 23. júlí
18 holu höggleikur með og án forgjafar.
Glæsileg verðlaun eru íboði
Án forgjafar
1. Viku golfferð til Torquay í Englandi sem er sannköll-
uð golfparadís.
2. Gisting og kvöldverðurfyrirtvo á Hótel Borg.
3. Kvöldverður fyrir tvo á skemmtikvöldi á Hótel íslandi.
Meðforgjöf:
1. Helgarferð fyrir tvo til Akureyrar með Ferðaskrifstofu
Reykjavikur ásamt gistingu á Hótel Akureyri og
skemmtun í Sjallanum.
2. Gisting og kvöldverður fyrir tvo á Hótel Borg.
3. Kvöldverðurfyrirtvo á skemmtikvöldi á Hótel íslandi.
Blóðug fangauppreisn
haft yfir skotvopni að ráða áður en
uppreisnin hófst. Fangarnir tóku
gísla úr hópi dómara, lögmanna og
ritara í réttarsalnum en slepptu þeim
síðar ósködduðum.
Saksóknari ríkisins sagði að enn
væri ekki ljóst hvort einhver fang-
anna hefði sloppið en í fangelsinu
eru um 1600 fangar, tvöfalt fleiri
en fangelsið var ætlað fyrir. Að sögn
saksóknarans voru uppreisnarmenn-
irnir sem féllu flestir „stórhættuleg-
ir“ eiturlyfjasalar, bankaræningjar
og morðingjar. Hann svaraði engu
fullyrðiiigum þess efnis að uppreisnin
hefði stafað af óbærilegum þrengsl-
um í fangelsinu.
Glæsileg aukaverðlaun eru í boði:
Fyrir að fara holu í höggi á 17. braut: Peugeot 405 GL,
sem var valinn bíll ársins 1988 í Evrópu, að verðmæti
kr. 750.000, tilbúinn á götuna. Verður til sýnis á
svæðinu frá föstudegi.
Fyrir að vera næstur holu á 6. braut 14. braut 17.
braut verða aukavinningar.
Skráning verður ískáta & föstudag tllkl. 21.00 isíma53360.
Ræstverðurútfrákl.8.00.
liTyrEL mAND Kappleikjanefnd.
JÖFURhf
NYBYLAVEGI2 KÓPAVOGI SÍMH2S00
0
Golfklúbburinn
Keilir.