Morgunblaðið - 22.07.1988, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚU 1988
29
tvinnu-
töng
flugbraut. Það væri auðvitað gleði-
efni ef Flugráð og stjómvöld sæju
hag í að lengja flugbrautina um 400
metra vegna véla í millilandaflugi.
Forráðamenn stórrar svissneskrar
ferðaskrifstofu, „Saga Reisen",
hefðu síðastliðið vor lýst áhuga á
að taka upp beint leiguflug frá
Evrópu til Egilsstaða og af þessu
gæti orðið ef samþykkt Flugráðs
hlyti náð fyrir augum stjómvalda.
*ði í sam-
nþykktir
93% upphæðarinnar færi til sjávar-
útvegsfyrirtækja, 7% til iðnfyrir-
tækja í samkeppnisgreinum en ekk-
ert til útflutningsiðnaðar.
Á ríkisstjómarfundi si. þriðjudag
lagði iðnaðarráðherra fram tillögu
um að viðskiptaráðherra yrði falið
að ganga frá erlendum lánsheimild-
um til fyrirtækja, í samræmi við
upphaflega samþykkt ríkisstjórnar-
innar. Friðrik sagði við Morgun-
blaðið að viðbrögð viðskiptaráð-
herra hefðu verið jákvæð og sagð-
ist hann telja að það væri vilji hjá
honum að finna lausn á þessum
málum fyrir iðnfyrirtækin með sam-
bærilegum hætti og sjávarútvegs-
fyrirtækin.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að sér þætti ekki hyggilegt
að settur yrði ákveðinn lánakvóti á
iðnaðinn, eins og sér fyndist vaka
í máli sumra talsmanna iðnaðarins,
og hann hefði því færst undan slíku.
Sér þætti miklu eðlilegra að leyst
væri úr málum hvers fyrirtækis
fyrir sig. Hann sagðist þó hafa leit-
að eftir upplýsingum hjá helstu
lánastofnunum iðnaðar, Iðnaðar-
banka, Landsbanka og Búnaðar-
banka, um það hvemig þær litu á
fjárhagsmálefni iðnfyrirtækja sem
væm í viðskiptum hjáþeim og hvað
þær setji þar fremst.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
ax og veg-alagningu er lokið.
;eptember
veginn. Tilboð í þann verkþátt verða
opnuð á mánudag.
Ekkert bendir til annars en að
sú ákvörðun standist að brúin verði
opnuð fyrir umferð og vígð 1. sept-
ember.
-Sig. Jóns.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PETER MONTAGNON
Innri markaður EB 1992:
Reisir bandalagið versl-
unar- og tollamúra?
Þjoðir utan Evrópu hafa iengi haft miklar áhyggjur af því hvaða
áhrif sameiginlegur, innri markaður Evrópubandalagsins (EB), sem
stefnt er að árið 1992, muni hafa á viðskipti bandalagsins við ríki
utan þess. Hart er nú lagt að forráðamönnum bandalagsins að
útskýra með hvaða hætti verði komið í veg fyrir að sameiginlegur
tolla- og verslunarmúr gagnvart umheiminum verði reistur utan
um bandalagið samtímis því að sams konar múrar milli einstakra
ríkja þess hrynji. í síðustu viku var Willy de Clercq, sem annast
samskipti bandalagsins við ríki utan bandalagsins, í London og á
fundi með athafnamönnum, stjórnarerindrekum og fréttamönnum
lýsti hann þeim hugmyndum sem nú væru helst til umræðu varð-
andi stefnuna í utanríkisviðskiptum eftir 1992.
Istuttu máli þá sagði de Clercq
að ekki væri lagt til að byggðir
yrðu viðskiptamúrar utan um
bandalagið en afl bandalagsins
yrði þvert á móti notað sem lyfti-
stöng til hefja til vegs og virðingar
frelsi í heimsviðskiptum. Meginstef
þeirrar viðleitni yrði það sem „ég
nefni almenna reglu um gagn-
kvæm skipti."
Þrátt fyrir þessa afdráttarlausu
yfirlýsingu fer því í reynd fjarri
að Evrópubandalagið sé búið að
ákveða hvemig eigi að framfylgja
þessari stefnu. Alkunnugt er að
Framkvæmdanefnd bandalagsins
er margklofin og stjómir einstakra
þátttökuríkja eiga langt í land með
að ná samkomulagi um nánari út-
færstu stefnunnar. Það hefur kom-
ið greinilega í ljós í deilum um
gagnkvæmnireglur sem er að flnna
í tillögum að nýjum reglum banda-
lagsins um bankaviðskipti.
Áhyggjiir utan Evrópu
Sé yfirlýsing de Clercqs skilin
bókstaflega verður hún ekki til
þess að viðskiptaþjóðir utan Evr-
ópubandalagsins geti andað léttar
hvað sem líður sefandi og jafnvel
heiliandi orðalagi hennar. Megin-
þættimir í stefnumörkun banda-
lagsins eftir 1992, eins og henni
var lýst í London, em þrír.
I fyrsta lagi ítrekaði de Clercq
að sameiginlegi markaðurinn
myndi ekki leiða til aðgerða af
hálfu EB sem rækjust á skuld-
bindingar þess í Gatt-viðræðunum
(alþjóðlegum viðræðum um við-
skipta- og tollamál).
I öðm lagi sagði hann ekki
koma til mála að ríki utan banda-
lagsins fengju að njóta efnahags-
legs ávinnings af stofnun sameig-
inlega markaðarins án þess að
láta eitthvað í staðinn.
I þriðja lagi yrði eftir sem áður
um að ræða vissar innflutnings-
hömlur á vömm eins og bílum og
vefnaðarvöm ásamt vömm frá
Austur-Evrópu og þróunarlönd-
unum. Fjallað yrði um þessi mál
á sameiginlegum vettvangi
bandalagsins eftir 1992; þá gæti
hvert einstakt ríki ekki lengur
komið á sínum eigin innflutnings-
hömlum gagnvart umheiminum.
De Clercq var spurður hvers
vegna EB væri svo ósveigjanlegt
í kröfum sínum um gagnkvæm
skipti á hveiju einstöku viðskipta-
sviði t.d. í bankaviðskiptum þótt
bandalagið hefði áður kvartað
sáran undan slíkum ákvæðum í
bandarískum drögum að reglum
um utanríkisviðskipti með þeim
afleiðingum að þau hefðu nú að
mestu verið íjarlægð eða bitinn
úr þeim bakfiskurinn. Svar hans
var að unnið væri að víðtækum
reglum um stóraukið frelsi í
bankaviðskiptum í bandalaginu
en þær myndu gera bandalagið
mun opnara fyrir erlendum við-
skiptaaðilum ■ en Bandaríkin þar
sem mismunandi reglur einstakra
ríkja takrriorkuðu slíkt. Þess
vegna væri sanngjarnt að krefjast
gagnkvæmra skipta.
„Við verðum reiðubúnir að
ræða gagnkvæmar tilslakanir við
ríki utan EB, fyrst og fremst i
alþjóðlegu sambandi en einnig í
tvíhliða viðræðum. Við viljum ekki
hefta viðskipti við ríki utan banda-
lagsins en grundvöllur viðskip-
tanna hlýtur að verða gagnkvæm
skipti á fríðindum í Gatt-viðræð-
unum,“ sagði de Clercq.
Hvernig verður
framkvæmdin?
í raun var de Clercq að gefa
viðskiptaþjóðum utan bandalags-
ins til kynna að EB myndi fara
fram á viðskiptafn'ðindi í staðinn
fyrir aðgang að sameiginlega
markaðnum. Viðskiptaþjóðimar
eru hins vegar enn í vafa um
hvernig þessi gagnkvæmu skipti
muni verða í reynd.
Þær óttast að vegna þrýstings
frá ríkisstjórnum og iðnfyrirtækj-
um, sem vilja vernd gagnvart
samkeppni, muni EB nota regluna
um gagnkvæm skipti sem verk-
færi til að ná fram ósanngjörnum
kröfum er séu a.m.k. andstæðar
þeim anda sem Gatt-viðræðurnar
byggist á, ef ekki bókstaflegum
gegn reglum viðræðnanna. De
Clercq sagði að bandalagið myndi
hegða sér í samræmi við reglur
Gatt en þær sömu reglur eru ein-
mitt alræmdar fyrir að vera ein-
staklega óljósar og teygjanlegar.
De Clercq var ávallt mjög vark-
ár er hann fjallaði um hvers kon-
ar gagnkvæmni EB myndi kreíj-
ast. „I mörgum tilvikum verður
að reyna að ná samkomulagi um
gagnkvæmar og raunhæfar, efna-
hagslegar ívilnanir fremur en
gagnkvæmar aðgerðir til að sam-
ræma viðskiptalög og reglugerð-
ir.“ Hann minnti á að enn væru
ekki til neinar viðurkenndar regl-
ur um alþjóðleg viðskipti méð
þjónustu. EB hefur tilkynnt þátt-
tökuríkjum Gatt-viðræðnanna að
líta beri á þá ákvörðun bandalags-
ins að opna sameiginlega, innri
markaðinn fyrir ríkjum utan EB
sem jákvætt skref er svara beri
með jafn mikilvægum ívilnunum.
í síðustu viku olli de Clercq
miklu írafári er hann sagði að
útibú banka með höfuðstöðvar í
ríki utan bandalagsins myndi ekki
fá að njóta sameiginlega markað-
arins fyrr en búið væri að tryggja
fyrirtækjum og stofnunum innan
EB aðgang að markaði heima-
lands bankans. Hann skýrði einn-
ig frá því að aðgerðir til að fram-
lengja vissar innflutningshömlur
yrðu „hugsanlega" ræddar við
þau ríki utan EB sem í hlut ættu.
Japönsku bílarnir
Evrópubandalagið hefur enn
ekki ákveðið hvað beri að gera
varðandi innflutning á japönskum
bílum en ýmis ríki bandalagsins
hafa sett hömlur á þann innflutn-
ing. De Clercq sagði að hver sem
niðurstaðan yrði þá hlytu menn
að hafa í huga að Japanar flyttu
tíu sinnum fleiri bíla til EB-ríkja
en bandalagsríkin seldu til Jap-
ans. Hann sagði að til að byrja
með vildi hann að gerður yrði
heildarsamningur við Japana um
bílainnflutning þeirra til banda-
lagsins er gilti til 1992 í staðinn
fyrir marga samninga sem end-
urnýjaðir væru árlega eins og nú
væri reyndin. Embættismenn í
Brussel hafa jafnvel viðrað hug-
myndir um alþjóðlega samninga
um skilyrði fyrir bílaviðskiptum
og myndu þau koma í veg fyrir
að japanskir bílar, framleiddir í
Bandaríkjunum , rötuðu á EB-
markaðinn.
De Clercq sagði að megin-
markmið Evrópubandalagsins
væri að „tryggja að endurómur
hinnar glæstu sóknar til aukins
viðskiptafrelsis, sem blásið verður
til fram til ársins 1992, muni ber-
ast um allan heim.“
Það er ekki Ijóst hvort áhersla
hans á gagnkvæm skipti muni
sigra þegar lokið verður við að
móta grundvallarstefnu EB í
milliríkjaviðskiptum í Brussel.
Endurómurinn verður ef til vill
ekki jafn hljómfagur og de Clercq
væntir nú.
Peter Montagnon erblaðamadur
hjá breska blaðinu Financial Ti-
mes.
Aðalstöðvar Evrópubandalags-
ins í Brussel. Enda þótt Willy
de Clercq (innfellda myndin) í
Framkvæmdanefnd bandalags-
ins itreki að væntanlegur sam-
eiginlegur, innri markaður EB,
sem koma á til framkvæmda
árið 1992, muni ekki verða var-
inn tolla- og verslunarmúrum
gætir enn tortryggni hjá ýms-
um þjóðum utan bandalagsins.