Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 31

Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 31 Sérálit Magnúsar Jónssonar í Verðtryggingarnefnd: Grundvallaratriði að mælir- inn sé óháður því sem mælt er J; r-- ■ .-Í'- ÁLITI nefndar, sem Jón Signrðs- son viðskiptaráðherra skipaði til að fjalla um fyrirkomulag verð- tryggingar fjárskuldbindinga, fylgdi eftirfarandi sérálit eins nefndarmanna, Magnúsar Jóns- sonar veðurfræðings. Undirritaður getur ekki tekið undir þau sjónarmið að ekki sé ástæða til að breyta grundvelli eða samsetningu lánskjaravísitölu. Þvert á móti telur undirritaður að á því sé nauðsyn og eru fyrir því m.a. eftirtaldar ástæður: 1. Þar sem lánskjaravísitala á að vera verðmælir er það grundvall- aratriði að mælirinn sé óháður því sem mæla á. Slíku er ekki til að dreifa og ætti hin óbeina tenging fjármagnskostnaðar við verðlag að vera hveijum manni augljós. Verra er þó að verð á þjónustu ýmissa fyrirtækja sem áhrif hefur á láns- kjaravísitöluna er með sjálfvirkum hætti ákvarðað af vísitölum. Dæmi um þetta er verð á heitu vatni í Reykjavík, sem hækkar sjálfkrafa í takt við byggingarvísitölu óháð því hver talin er þörf fyrirtækisins, hvetju sinni. Sýnu verst er þó sú staðreynd að í nýjum framfærslu- grunni sem tók gildi 1. júlí sl. er fjármagnskostnaður, þ.e. vextir og verðbætur af lánum til íbúðar- húsnæðis, orðinn hluti af fram- færsluvísitölunni. Þannig veldur breyting á fjármagnskostnaði breytingu á lánskjaravísitölu, sem aftur breytir íjármagnskostnaði. Það er því farið að styttast í að gera lánskjaravísitöluna einungis háða lánskjaravísitölunni. 2. Það er álit þess sem hér ritar að grunnur vísitalna byggingar- og framfærslukostnaðar, sé ávallt rangur vegna þess að hann er orð- inn úreltur um leið og hann er tek- inn upp. Breytingar á gæðum vöru og þjónustu sem leiðir til breytts verðs er af sama toga. T.d. hefði orðið að taka upp nýjan vísitölu- grunn þegar greiðslukort ruddu sér til rúms hér, því talið er að þau hafi hækkað vöruverð um 2-3%. Sú reikningslist að nota stæ/ðir sem hver um sig er breytileg um tugi eða jafnvel hundruð prósenta frá meðaltali og reikna út frá því stærð með nákvæmni upp á hundruðustu hluta úr prósenti, þykir undirrituð- um lítt sannfærandi. Að láta pen- ingakerfi heillar þjóðar vera háð slíkri stærð hlýtur að teljast skop í hæsta gæðaflokki. 3. Óþolandi er fyrir stjórnvöld, spariíjáreigendur og skuldara að skattheimta og niðurgreiðslur séu inni í vísitölum. Skapar það veru- lega erfiðleika í efnahagsstjóm og óvissu í ijármagnsviðskiptum. Hér hefur aðeins verið drepið á nokkur atriði sem undirritaður telur styðja að ekki sé hægt að búa við óbreytt ástand verðtryggingarmála. Jafnframt verður að teljast að að- stæður í þjóðfélaginu séu þannig að afnám vísitölubindingar sé ekki fært að sinni. Hins vegar er breytt viðmiðun t.d. gengisviðmiðun, auk tillits til viðskiptakjara þjóðarinnar fyllilega tímabær að gefnum forsendum um meira jafnvægi í verðlags- og pen- ingamálum hér á landi, og með til- liti til þeirra breytinga sem fyrirsjá- anlegar eru á peningamarkaði í nágrannalöndum okkar. Magnús Jónsson Morgunblaðið/Ól.K.M. Landakotsspítali - innra eftirlit er lítið og aðhaldsleysi er i fjármál-‘ um, segir i skýrslu rikisendurskoðunar. Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Landakotsspítala: Veruleg þensla í rekstri og launum og skortur á aðhaldi Fjárf estingaráf orm langt umfram framlög fjárlaga I SKÝRSLU Ríkisendurskoðunar, um rekstur Landakotsspítala á siðasta ári, kemur fram að þensla i rekstrarliðum og launum hafi verið veruleg á siðustu árum og skort hafi á aðhald. Einnig hafi verið farið fram úr heimildum fjárlaga á flestum sviðum og kemur fram að þótt tillögur stjórnenda spítalans hefðu farið óbreyttar inn á fjárlög hefði rekstur Landakots samt farið verulega umfram fjár- lagaheimildir. Framlög til framkvæmda á fjárlögum síðasta árs námu 10 milljónum en fjárfestingaráform voru yfir 100 milljónir. Kannað var hvort óeðlilega hefði verið staðið að gerð fjárlaga og komist að þeirri niðurstöðu að svo hefði ekki verið. St. Jósefsspítali, Landakoti, er sjálfseignarstofnun sem er sjálf- stæður aðili án ríkisábyrgðar. Stofnuninni stjómar fulltrúaráð, skipað 21 fulltrúa sem tilnefndir eru af heilbrigðisráðherra og er valin 7 manna yfírstjórn úr hópi fulltrúaráðsins. Stofnunin hefur spítalann á leigu til ársloka 1996. Spítalinn fékk daggjaldagreiðslur til 1983 en hefur síðan fengið bein- ar greiðslur úr ríkissjóði í samræmi við lög. í skýrslu ríkisendurskoðunar kemur fram, samkvæmt uppýsing- um Morgunblaðsins, að verulegur rekstrarhalli sé á spítalanum, þar af um 166 milljóna króna uppsafn- aður halli frá fyrri ámm. Gjald- fallnar lausaskuldir nemi um 200 Skálholtshátíð: Tónverk eftir Þor- kel Sigurbjörnsson verður frumflutt Skálholtshátíðin verður hald- in 24. júlí næstkomandi. Á hát- íðinni verður frumflutt tónverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson og nefnist það Koma. Verkið er byggt á köflum úr ritningunni. Hátíðin hefst klukkan 13.30 með klukknahringingu og klukk- an 13.40 hefst organleikur í kirkj- unni. Klukkan 14 ganga prestar og biskupar í skrúðfylkingu að kirkju og fram fer lúðraþytur úr Þorlákstíðum. Séra Ólafur Skúlason, vígslu- biskup prédikar og séra Sigurður Guðmundsson, vígslubiskup, séra Guðmundur Óli Olafsson og séra Sigurður Sigurðarson þjóna fyrir altari. Sveinbjörn Finnsson setur sam- komuna í kirkjunni klukkan 16.30 og flutt verður nýtt tónverk eftir Þorkel Sigurbjömsson sem nefn- ist Koma og er byggt á ýmsum köflum úr Heilagri Ritningu. Tón- skáldið lýsir verkinu sjálfur þann- ig: „Það má vel lýsa þessum stuttu kórþáttum sem inngangi að Hvítasunnuóratoríu.“ Sönghópur- inn Hljómeyki flytur verkið undir stjóm höfundar. Kirkjumálaráð- herra, Jón Sigurðsson, flytur ræðu og Ingibjörg Marteinsdóttir syng- ur einsöng. Þá fer séra Sigurður Guðmundsson með ritningalestur og bæn og samkomunni lýkur með almennum söng. Sunginn verður sálmur númer 56. Ferðir á hátíðina verða frá Umferðarmiðstöð klukkan 12 þann 24. júlí og frá Skálholti klukkan 18. milljónum og rekstrarhalli sé um 10 milljónir á mánuði. I skýrslunni kemur fram að Landakotsspítali hafí keypt fast- eignir án heimilda á fjárlögum, aðallega í kringum spítalann. Þess- ar fasteignir hafí þurft miklar breytingar og séu þær illa nýttar. Nefnt er að mikill stofnkostnaður hafí fylgt rekstri nýs þvottahúss. Kaupleigusamningar hafi verið gerðir til að fjármagna.ýmsar fram- kvæmdir sem ekki var heimild fyr- ir á íjárlögum og einnig hafí leigu- húsnæði þurft mikilla endurbóta við. Sérstakur styrktarsjóður St. Jós- efsspítala hefur frá stofnun sinnt fasteignakaupum og leigu. Sjóður- inn er eign spítalans sjálfs en í skýrslunni er talið að sjóðurinn hafí hagnast um tæpar 12 milljón- ir á því að leigja Sjálfseignarstofn- un St. Jósefsspítala húsnæði. Leigukjörin hafí verið óhagstæð og leigunni fylgt kostnaðarsamar end- urbætur á húsnæði. Þá hafí sjóður- inn tekist á hendur skuldbindingar umfram getu sem komið hafí í hlut sjúkrahússins að greiða. Talið er að jafnvel hefði verið hagkvæmara fyrir spítalann að kaupa húsnæði frekar en leigja það á þeim kjörum sem sjóðurinn bauð. Ymis dæmi eru rakin þar sem styrktarsjóðurinn er talinn hafa hagnast á viðskiptum við spítalann. Landakotsspítali leigir læknum sjúkrahússins eignina Marargötu 2 með einskonar kaupleiguréttindum fyrir læknastofu. í skýrslunni mun vera bent á að samanlagt kaupverð og endurbætur á húsinu séu rúm- lega 50% hærri en eðlilegt mark- aðsverð og samanlagt tap sjúkra- hússins á kaupum og leigu eignar- innar nemi rúmum 12 milljónum króna auk þess sem eignin standi ekki undir upphaflegum lánum. í skýrslunni er gagnrýnt að sam- skipti lyfjabúrs spítalans við lækna- stöðina á Marargötu 2 sé með þeim hætti að lyf séu lánuð þangað án þess að bókfærast, en séu talin sem birgðir. Einnig séu lyf seld á inn- kaupsverði til stöðvarinnar en salan ekki bókfærð fyrr en við uppgjör í lok hvers árs. Rekstur rannsóknarstofu spital- ans er sérstaklega tekinn fyrir í skýrslunni. Þar eru reikningar fyrir allar rannsóknir á sjúklingum utan sjúkrahússins sendir út í nafni yfír- læknis stofunnar á sérfræðinga- taxta en ekki sjúkrahúsataxta og greiddir af Tryggingarstofnun og sjúkrasamlögum. I skýrslunni segir að innheimtir reikningar nemi sam- tals um 56 milljónum króna. Af því fái yfírlæknirinn 30% eða tæpar 16,8 milljónir og fái að auki 1,36 milljónir i föst laun frá spítalanum. Afgangurinn rennur til spítalans. Yfírlæknirinn hefur einnig einkarannsóknir á Marargötu 2 og Álfheimum 74 sem hann sameinar rannsóknum spítalans. í skýrslunni er gagnrýnt að þessu sé blandað saman og talið nauðsynlegt að taka reikningagerð til endurskoðunar, sérstaklega hvort kostnaðarskipt- ing og uppgjör sé með eðlilegum hætti. Starfsmenn rannsóknarstof- unnar voru alls 65 á síðasta ári og námu heildarlaunagreiðslur til þeirra um 28 milljónum. í skýrslunni er bent á að innra eftirlit sé lítið og aðhaldsleysi sé með fjármálum. Læknar spítalans vinna sem verktakar og leggja inn mánaðarlega reikninga sem byggj- ast á færslum í sjúkradagbók. Bent er á að eftirlit með reikningum Iækna er í höndum þriggja manna eftirlitsnefndar. Þar af séu tveir nefndarmannanna læknar og er eftirlit með reikningum þeirra einn- . ig í nefndinni. Þá starfí þessi nefnd óreglulega og skrái ekki fundar- gerðir. Skýrsla ríkisendurskoðunar var gerð að ósk fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra eftir að stjóm Landakotsspítala fór fram á auka- fjárveitingar í mars vegna fjár-^ hagsvanda. Ofangreindar upplýs- ingar hafa ekki fengist staðfestar hjá ráðuneytunum en ráðherramir héldu sérstakan fund um málið á miðvikudag. Jón Baldvin Hanni- balsson íjármálaráðherra segir að þar hafí þeir Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra náð samstöðu um tillögur um aðgerðir vegna fjár- hagsvanda spítalans og ráðuneyt- unum falið að útfæra þær tillögur nánar. Ráðherrann vildi ekki tjá sig um hvaða aðgerðir væm i bígerð fyrr en stjómendur Landakotsspitala hafa gert sínar athugasemdir við skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hann viðurkenndi þó aðspurður að eðli- legt væri að ríkissjóður gerði kröfu um að spítalinn yrði hluti af ríkisspítalakerfinu ef rekstur hans hefði farið úr böndunum eins og skýrslan benti til, en af henni væri ljóst að stjórnendur spítalans fengju falleinkunn fyrir fjármála- stjórnun. Landakot: Heilbrigðisráðherra fundar með fulltrúum spítalans eftir helgi „VIÐ höfum haft þessa skýrslu til umfjöllunar í nokkra daga, í heilbrigðisráðuneytinu annars vegar og fjármálaráðuneytinu hins vegar. Við höfum haldið einn sameiginlegan fund um málið og erum að móta samstöðu um aðgerðir, sem við teljum að séu nauðsynlegar,“ sagði Guð- mundur Bjarnason heilbrigðis- ráðherra, er hann var inntur álits á skýrslu Ríkisendurskoðunar um rekstur Landakotsspítala. Guðmundur sagði að hann og fjármálaráðherra hefðu orðið ásáttir um að fela embættis- mönnum frá báðum ráðuneytum að fara ofan í skýrsluna „Við eigum eftir að ræða við forráðamenn spítalans og fá þeirra viðbrögð við skýrslunni, og fyrr vil ég sem minnst tjá mig um þetta mál,“ sagði heilbrigðisráðherra. Hann sagði að stefnt yrði að sam- eiginlegum fundi fulltrúa ráðuneyt- anna og spítalans strax eftir helgi og stæðu vonir til að málið yrði afgreitt um miðja næstu viku. Logi Guðbrandsson, fram- kvæmdastjóri Landakotsspítala, ► sagði við Morgunblaðið að stjóm spítalans yrði kölluð saman til fund- ar um helginá og á þeim fundi myndi hann leggja fram athuga- semdir sínar við skýrslu Ríkisendur- skoðunar. Þær yrðu síðan sendar til ráðuneytanna og kvaðst Logi ekki vilja tjá sig frekar um málið . fyrr en viðkomandi ráðherrar hefðu' fengið þær athugasemdir í hendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.