Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988
St)örnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur. Mig
langar til að forvitnast meira
um sjálfan mig. Óheppnin hef-
ur elt mig á röndum svo til
allt mitt líf og nú sig ég á
Litla-Hrauni, en það er fang-
elsi. Ég verð að fá að vita hvað
ég á að forðast í lífinu og hvað
ég verð að varast. P.s. er ég
fæddur undir einhverri ógæfu?
Ég er fæddur. . . 1965, kl. 18
siðdegis í Reykjavík."
Svar:
Þú hefur Sól, Merkúr og Venus
í Steingeit, Tungl og Rísandi
merki í Ljóni, Mars í Meyju og
Hrút á Miðhimni. Auk þess er
athyglisvert að Satúmus er
ótengdur í Fiskum og Tungl-
Neptúnus og Júpíter mynda
spennuþríhyming.
Lœra á orkuna
Ég myndi segja að þú sért
fæddur með erfiða orku sem
þú hefur ekki ennþá lært að
ráða við, frekar en að þú sért
fæddur undir ógæfustjömu. Ef
þú lærir að skilja persónuleika
þinn og orku og vilt breyta lífi
þínu fæ ég ekki séð annað en
að þér ætti að takast það. Þú
átt því að geta lifað jafn ham-
ingjusömu lífi og aðrir. Þú hef-
ur margar góðar afstöður í
korti þínu og ágæta hæfileika
sem geta nýst þér á uppbyggi-
legan hátt.
Vilt athygli
Nú veit ég ekki hveijar fyrri
aðstæður þínar era. Tungl og
Rísandi í Ljóni bendir til þess
að þú viljir vera sérstakur og
fá athygli. Ef bemska þín hef-
ur verið erfið og þú vanræktur
gætir þú hafa gerst óstilltur til
að vekja athygli, þvf neikvæð
athygli getur verið • betri en
engin athygli.
Ert metn- aÖar-
gjarn
Kort þitt í heild bendir einnig
til þess að þú sért metnaðar-
gjam og viljir ná áþreifanleg-
um árangri. Ef þér hefur geng-
ið illa í bemsku og ekki fengið
viðurkenningu er hætt við að
metnaðurinn hafi snúist upp í
andstöðu sfna, afneitun á
metnaði, leitt til vonbrigða og
að lokum reiði. Þú hefur sagt
við sjálfan þig að þér sé alveg
sama, „ég gef skít f þetta allt“,
og farið að láta reka á reiðan-
Vilt lífog
skemmtun
Það sem kannski skiptir mestu
máli er orkan sem liggur í
Tungl-Neptúnus-Júpíter. Hún
táknar að þú átt til að vera
stórtækur, t.d. eyða of miklu,
leiðist hið gráa og venjulega,
vilt skemmta þér og búa til
drauma. Jafnframt því hefur
þú tilhneigingu til að blekkja
sjálfan þig. Ég tel að þú þurfir
að varast vímugjafa, en þurflr
á hinn bóginn að vinna við lif-
andi og skemmtilegt starf. Ef
þú t.d. færir í Iðnskólann og
lærðir til smiðs eða rafvirkja
og færir síðan að vinna í leik-
húsi eða fjölmiðlun gætir þú
fengið jákvæða útrás fyrir
þessa prku.
Nýttlif
Ég veit að það er erfitt að snúa
við blaðinu og byija nýtt líf,
og þá sérstaklega vegna fé-
lagslegra aðstæðna og þess að
sjálfsvirðing þín er lítil f dag.
Þess vegna er mikilvægt að fá
stuðning hjá góðu fólki, vera í
styrktarhópi, og byija síðan
hægt og hægt að taka eitt þrep
fyrir í einu. Þegar þú hefur náð
einum áfanga muntu sjá að
sjálfstraustið og krafturinn
kemur ótrúlega fljótt aftur,.
Það sem vinnur með þér er að
Plútó en að fara að mynda af-
stöðu við Tungl, Júpíter, Nept-
únus, á þessu og næsta ári, sem
táknar að þér verður hjálpað
að hreinsa til í lífl þínu, ef þú
sjálfur tekur fyrsta skreflð og
gerir átak.
GARPUR
/ EFÉG þEKKl KLE/H/y\A QÉTT ER s
( HANN þESSA STUND/NA i ÆF/NGASALNr
1 UAAy
o'íí /yr/NAfí se/h snej/te/ se/k
ty/K/ST iASRA U'FVtSR.BUS....
- E&UNÓAB BERA AVO/CT, SVO
ER.HNAPPNU/H FVQli? AO
þAKXAj /CLE/W/V, pú FE/3Ð AB>
ÖSFA pESS fiÐÞÓHEFÐIIZ ALDR.&
F/EÐS.T!
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
'VEKTU \ZARKÁR !, X pETTA V/)/?
KE7T/R ERU fl}JOÐfy£K'AuDi_e6A
/fi sbm Mprr/N.//\ y/tf/ei/r
EN TOMAA/
EEOFKLUmA
LEGURT/L .
' FAEA HL7ÓÐ-
Até/EEfZM/S-
BOD/Ð ME&
^ö'hfuHj
vz j — vn: ’ * t’-
SKOÐA SlG HER UM
PAU ?
. ii • ^ FERDINAND . 6 /0 . . NJ
SMAFOLK
Ekkert sem gerist í heim-
inum er mér að kenna!
Ég skála fyrir því!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Láttu spilið sem vitað er að
þú átt“ er gamalt og gott heil-
ræði. Oft þarf ekki annað til að
hnekkja „óhnekkjandi" samn-
ingum.
Suður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ 108762
¥ 1054
♦ 109
♦ D106
Norður
♦ D5
VÁD8
♦ 87542
♦ ÁG5
Austur
♦ KGF4
¥7632
♦ KG6
♦ 843
Suður
♦ Á93
¥ KG9
♦ ÁD3
♦ K972
Suður opnaði á 16—18 punkta
grandi og norður lyfti í þrjú.
Útspil vesturs: Spaðasexa.
Lítum á spilið frá sjónarhóli
sagnhafa. Hann stingur upp
spaðadrottningu og verður fyrir
vonbrigðum þegar austur á
kónginn. Hann dúkkar svo spað-
ann fram í þriðja slag og reynir
að telja upp í níu. Hann á sjö
beina tökuslagi og svíninga-
möguleika bæði í laufl og tígli.
Vestur má alls ekki komast inn,
svo auðvitað byijar sagnhafí á
því að spila laufi á gosann. Þar
kemur áttundi slagurinn. Hann
tekur næst laufás og vestur læt-
ur drottninguna. Hvað nú?
Sé vestur reyndur spilari veit
sagnhafí mæta vel að drottning-
in gæti verið blekkispil frá D1 Ox.
En hún gæti líka hafa verið
önnur. Alltént hefur hann nú
valkost, sem leiðir til taps í spili
þar sem allt liggur. Bara vegna
þess að vestur lét spil sem sagn-
hafi vissi að hann átti.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á hinu árlega opna móti í Bela
Crkva í Júgóslavíu í sumar kom
þessi staða upp í skák Júgóslavans
Ferecs, sem hafði hvítt og átti
leik, og gríska alþjóðameistarans
Kotronias, sem varð i öðra sæti á
Reykjavíkurmótinu í febrúar. í
Bela Crkva gekk honum ekki eins
vel:
26. Rf5! - Hgh7 (26. - exf5 er
svarað með 27. d6+ — Bd6 28.
Bxd6+ — Dxd6 29. De8+ — Ka7
30. e7 — Rg6 31. Dxh8! og síðan
vekur hvítur upp nýja drottningu)
27. Rd6 - Dd7 28. Hc8+ -
Dxc8 29. Rxc8 — Kxc8 30. a4
og hvítur vann auðveldlega.