Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.07.1988, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 félk í fréttum 20 ára og 700 kr. Græpum Græoum ÁTAK í LANDGRÆÐSLU LAUGAVB31120,105 REYKiAVlK SlMI: (91)29711 Hlauparelknlngur 251200 Búnaftarbanklnn Hellu !.*= co «o jo S E® =J ^3 « -i k. C/5 O — VIK í MÝRDAL Forsætis- ráðherra í bátsferð Hluti hóps sjálfstæðismanna á Suðurlandi sem fundaði fyrir skömmu í Vík í Mýrdal brá sér á sjó með öðru hjólaskipi þeirra Mýr- dælinga að loknum kvöldfundi og var forsætisráðherrra í broddi fylk- ingar. Siglt var í kring um Reynis- dranga og dólað um miðin fyrir utan Vík ,en slíkar ferðir eru á boðstólum fyrir ferðamenn í Vík í Mýrdal. Hópurinn sem brá sér í miðnæt- ursiglingu hjá Vík í Mýrdal ,en það er ævintýralegt að keyra á hjólaskipinu á fullri ferð niður fjöruna og til hafs. BANDARÍKIN Nöfnur og* nafn- ar frægs fólks Sumt fólk er skírt frægum nöfnum í bernsku og hefur bæði óþægindi og gleði af því seinna í lífinu. Það væri sjálfsagt ekki þægilegt fyrir ófríðan kven- mann að heita Marylin Monroe. Aftur á móti gæti verið ágætt að heita Paul Newman og fá stúku- sæti í leikhúsinu fyrir vikið. Þrátt fyrir ýmis óþægindi og neyðarleg atvik, þá eru alnafnar frægra Hollywood-stjarna ánægð- ir með nöfnin sín. Að sjálfsögðu er oft gert grín að þeim en nafnið getur einnig haft ýmislegt jákvætt í för með sér. Þetta fólk hlýtur meiri eftirtekt en aðrir sem hafa venjuleg nöfn og annað fólk man frekar eftir því. Það er ekki undarlegt að fólk verði forvitið þegar einhver kynnir sig sem Paul Newman án þess að blikna og slík atvik leiða oft til skemmtilegra athugasemda, fólk brosir og tekur ósjálfrátt meira eftir viðkomandi manneskju. Joan Crawford frá Maryland í Bandaríkjunum segir að móðir sín hafí verið mikill aðdáandi leikkon- unnar Joan Crawford og hafi þess vegna skírt sig í höfuðið á henni. Joan segir: „Það var oft sagt við mig að ég hefði betur orðið eins rík og hún. Seinna skrifaði dóttir Joan Crawford bók um móður sína sem var ófögur lýsing á einkalífi leikkonunnar. Eftir það var sagt við mig að vonandi væri ég ekki lík Joan Crawford í eðli mínu.“ Paul Newman frá Virginia í Bandaríkjunum segir að nafn sitt hafi opnað margar dyr fýrir sér. „Ég fékk m.a. tækifæri til að hitta Elisabeth Taylor og John Warner eingöngu vegna þess hvað ég heiti," segir Paul. „Þetta getur einnig haft ýmislegt skondið í för með sér. Einu sinni var hringt í mig um miðja nótt og kona nokk- ur tjáði mér að ég hefði verið stór- kostlegur í kvikmyndinni „The Towering Inferno". Ég þakkaði henni kærlega fyrir hrósið en þá vaknaði konan mín og vildi vita hvaða kvenmaður væri að hringja í mig um miðja nótt. Sammy Davis frá Maryland er leiðbeinandi í flughernum. í æsku var hann oft spurður hvort hann væri með glerauga eins og dansar- inn frægi. Hann segir: „Seinna varð ég var við að nafnið fékk fólk til að muna eftir mér og það gat oft komið sér vel. Þegar ég kynni mig er ég vanur að segja að éggeti ekki dansað steppdans.“ Elisabeth Taylor frá Washing- ton segist margsinnis hafa lent í furðulegum uppákomum vegna nafns síns. Þegar hún hringir í fólk vegna atvinnu sinnar er oft fussað þegar hún kynnir sig og fólk heldur að hún sé að gabba. John Wayne er verslunareigandi í Maryland. Hann segir: „í hernum var ég undir eins gerður að liðs- foringja. Þannig slapp ég við að hreinsa klósett og þessháttar." John finnst að fólk ætlist stundum til að hann hafi eitthvað af hæfi- leikum leikarans John Wayne. Hann er þó fyllilega ánægður með nafnið sitt og segir að hann hafi hlotið heilmikla kvenhylli út á það. Sumar stúlkur halda þó að hann sé að grínast þegar hann segir til nafns. Hollywoodleikarinn frægi, Gary Cooper, keyrði alltaf um á glæsibílum. Hann fékk ávallt besta borðið á veitingahúsum, bestu þjónustuna og önnur forréttindi þegar hann brá sér í bæjarferð. Gary á sér marga alnafna, þ.á m. Gary Cooper sem hannar og selur auglýsingaskilti, Gary Cooper fatahönnuð, Gary Cooper bílasala og Gary Cooper sem er búningahönnuður fyrir kvikmynd- ir. Alnafnarnir segjast sjaldan fá sérstaka fyrirgreiðslu vegna nafnsins en þeir eru hæstánægðir °g segja að það hafi síður en svo spillt fyrir þeim. Gary Cooper skiltagerðarmaður segir að oft þegar hann kynni sig sé hann spurður hvar hann geymi kúrekahattinn sinn. Freyðandi sjór og fiskirúllur og forsætisráðherra á spjalli við nokkra ferðafélaga sína.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.