Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 52

Morgunblaðið - 22.07.1988, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1988 KNATTSPYRNA / M-EINKUNNAGJÖFIN Guðmundur, Karl og Viðar hafa hlotið flestM Fram með langhæsta einkunn allra liða Guðmundur Steinsson. | Karl Þórðarson. — Viðar Þorkelsson. FRAMARAR hafa hlotið langf- lest M, eða 38, samkvæmt ein- kunnagjöf Morgunblaðsins fyr- ir 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu f sumar og kemur það fáum á óvart. Þeir hafa hlotið 28 stig af 30 mögulegum eftir 10 umferðir og aðeins fengið á sig tvö mörk. Þrir leikmenn hafa fengið 7 M, þeir Guðmundur Steinsson, Fram, Karl Þórðarson, ÍA og Viðar Þorkelsson, Fram. Arn- Ijótur Davfðsson, Fram, hefur hlotið 5 M en þrettán leikmenn hafa hlotið 4 M. Sex af sautján . efstu mönnum eru Framarar. Leikmenn 1. deildar fá M fyrir góðan leik, MM fyrir sérstak- lega góðan leik og MMM fyrir ein- stakan snilldarleik. Alls hafa verið gefin 188 M í þeim 50 leikjum, sem farið hafa fram í 10 fyrstu um- ferðunum. Það gerir að meðaltali 3,76 M á hvern leik. Aðeins Karl Þórðarson hefur náð þeim árangri að fá MMM en þá einkunn fékk hann fyrir frammi- stöðu sína gegn KR. Guðmundur , Steinsson hefur þrisvar fengið MM h~ NÚ, þegar 10 umferðum er lokið í 1. deild, ertími til að líta á hvaða leikmenn hafa staðið sig bezt það sem af er mót- inu. Hérgefurað líta úrvals- í lið 10 fyrstu umferðanna. / Val þess byggir einkum á / því hversu oft menn hafa / veriðvaldiríliðvikunnar / entölurnarísvigunum / / Ormarr Örlygsson Fram (4) gefa þaðtil kynna. 8 af 11 leikmönnum Morgunblaðsliðsins eru Framararog þarf það ekki að koma á óvart eft- > irframmistöðu / þeirra það sem af ermóti. / * . Ólafur Þórðarson ÍA (3) Arnljótur Daviðssson .. Fram (3) Morgunblaiið/. GÓI Guðnl Bergsson " Val (3) X Pétur Arnþórsson Fram (4) wW :1 Viðar Þorkelsson Fram (7) Pétur Ormslev Fram (4) Karl Þórðarson ÍA (3) jf f A. Guðmundur Steinsson Fram (3) ísmmmw zm Fylkisvöllur — ¥ Víðir í kvöld kl. 20.00 Daihatsu HAGKAUP BÓKABÚÐ JÓNASAR Hraunbæ 102 SPORTBÆR Hraunbæ 102 Veitingahúsiö BLÁSTEINfíl Hraunbæ 102 Hjá STELLU Hraunbæ 102, s: 673530 Blómabúðin ÁRÓRA Hraunbæ 102 BARNABÆR Hraunbæ 102 VERSLANAKJARNINN Hraunbæ 102 en átta leikmenn hafa einu sinni fengið þá einkunn. Þeir eru, Ant- hony Karl Gregory, KA, Arnljótur Davíðsson, Fram, Birkir Kristins- son, Fram, Erlingur Kristjánsson, KA, Guðmundur Hreiðarsson, Víkingi, Halldór Áskelsson, Þór, Jón Sveinsson, Fram og Sæbjörn Guðmundsson,' KR. Fjórir efstu einstaklingarnir í ein- kunnagjöfinni hafa staðið sig sér- lega vel í sumar. Guðmundur Steinsson er markahæstur í deild- inni og hefur gert 9 mörk í jafn- mörgum leikjum. Viðar Þorkelsson hefur verið kjölfestan í vörn Fram- liðsins, sem aðeins hefur fengið á sig 2 mörk í keppninni í 1. deild. Karl Þórðarson hefur sýnt gömul tilþrif eftir að hafa verið frá knatt- spymu í tvö ár. Hann er eini leik- maðurinn, sem hlotið hefur ein- kunnina MMM. Arnljótur Davíðsson hefur tekið miklum framfömm í sumar og leikið stórt hlutverk í Framliðinu. Eftirtaldir hafa hlotið flest M: 7 M Guðmundur Steinsson, Fram Karl Þórðarson,IA Viðar Þorkelsson, Fram 5 M Arnljótur Davíðsson, Fram 4M Atli Einarsson, Víkingi Birgir Skúlason, Þór Erlingur Kristjánsson, KA Guðmundur Hreiðarsson, Víkingi Guðni Bergsson, Val Jón Sveinsson, Frarn Ólafur Þórðarson, ÍA Ormarr Örlygsson, Fram Pétur Arnþórsson, Fram Ragnar Margeirsson, ÍBK Þorsteinn Halldórsson, KR Þorvaldur Jónsson, Leiftri Þorvaldur Örlygsson, KA M-fjöldinn í samræmi við stöðu liðanna Framarar hafa hlotið langflest M allra liða og í meginatriðum er M-fjöldinn í samræmi við stöðu lið- anna í 1. deildinni, með nokkmm frávikum þó, einkum er neðar dreg- ur. Hér má sjá hversu mörg M ein- stök lið hafa hlotið: Fram........................38 ÍA..........................25 Valur.......................23 Þór.........................21 KR..........................20 KA..........................15 ÍBK.........................12 Völsungur...................12 Leiftur.....................11 Víkingur....................11 Blrkir Krlstinsson, markvörður Fram, hefur aðeins fengið á sig tvö mörk það sem af er íslandsmóti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.