Morgunblaðið - 23.07.1988, Page 2

Morgunblaðið - 23.07.1988, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 Brimborg kaupir Velti hf. BRIMBORG hf., Daihatsu- umboðið á íslandi, keypti i gær Velti hf., Volvo-umboðið. Samn- ingaviðræður hafa staðið undan- farnar vikur eins og sagt var frá í frétt Morgunblaðsins þann 14. þ.m. í gær náðu aðilar endanlegu samkomulagi um kaupin. Brim- borg hf. á þá 99,82% hlut í Velti og Volvo ab í Svíþjóð þau 0,18% sem eftir eru. Fyrst um sinn verða fyrirtækin bæði rekin sem sjálfstæðar einingar, hvort með sínu nafni. Brimborg hf. tekur við allri starf- semi Veltis hf. hér á landi, það er sölu fólksbíla, vörubíla og annarra véla af Volvo-gerð. Ennfremur mun Brimborg annast viðgerða- og vara- hlutaþjónustu. Við yfirtöku Veltis eignast Brimborg hf. verkstæðis- húsnæði við Bfldshöfða í Reykjavík og aðstöðu í sýningarskála Volvo við Skeifuna. Gunnar Ásgeirsson hf. heldur eftir fasteignum við Suð- urlandsbraut og Vegmúla. Miklar breytingar verða á starf- semi Brimborgar við yfírtöku Veit- is. Öll viðgerðár- og varahlutaþjón- usta fyrir Daihatsu- og Volvo-bif- reiðir verður strax flutt að Bfldshöfða, en söiu- og sýningarað- staða fyrir bflana verður við Ár- múla 23, þar sem Brimborg hf. er til húsa nú. Ráðgert er að flytja sfðar alla starfsemina á einn stað við Bíldshöfðann. Sýningarskáli Volvo við Skeifuna verður lagður niður. Hluti starfsmanna Veltis mun áfram verða í starfi hjá nýjum eig- endum. Ekki hefur fengist upp gef- ið hvert kaupverðið var, en að nokkru leyti fólust kaupin í yfirtöku skulda. Ásgeir Gunnarsson fyrrverandi forstjóri Veltis hf. sagði í samtali við Morgunblaðið þann 14 þ.m., að ástæður sölunnar væru miklir rekstrarerfíðleikar Veltis hf., vegna ofQárfestinga og vaxtabyrði af þeim. Vextir hækka Dráttarvextir hækka um næstu mánaðamót úr 4,4% fyrir hvern byrjaðan mánuð í 4,7%. Þá hækka einnig vextir á almennum útlánum á skuldabréfum. Seðlabankinn tilkynnti þessa vaxtabreytingu í gær. Samkvæmt þessu verða ársvextir af peninga- kröfum, þ.e. dráttarvextir, 56,4%. Vextir af almennum útlánum hækka einnig. Meðalvextir fyrir almenn óverðtryggð skuldabréf verða frá næstu mánaðamótum 41%, en eru nú 38,2%. Þjálfararí tíma hjá Ivanescu Morgunblaðið/Ámi Sæberg ÞRJÁTÍU íslenzkir þjálfarar voru í gær á námskeiði hjá einum höll og þá fá þjálfararnir íslenzku að sjá hvemig æfingarnar kunnasta handknattsleiksþjálfara heims, Petre Ivanescu. Hann skila sér þegar út í leikinn kemur. þjálfar vestur-þýzka landsliðið og fengu íslenzku þjálfararair að Á myndinni má sjá íslenzku þjálfarana fylgjast með æfingunni fylgjast með liðinu á æfingu. Á morgun kl. 18 og mánudag kl. hjá Ivanescu, sem er lengst til hægri. Jóhann Ingi Gunnarsson 20 leikur ísland landsleiki gegn Vestur-Þjóðveijum i Laugardals- túlkaði. Skýrsla landlæknisembættis: Vinnudagurinn lengist og streita vex hér á landi í SKÝRSLU sem landlæknisembættið kynntí í gær um mannvernd í velferðarþjóðfélagi, kemur fram að vinnutími hér á landi er mismun- andi eftir kynjum og stéttum. Konur vinna lengri vinnuviku en karlar og ófaglærðir og vinnuveitendur meira en háskólamenntaðir. Einnig kemur þar fram að streita hefur aukist nýög í íslensku þjóðfélagi á síðustu tíu árum. Skýrslan byggir að miklu leyti á rannsóknum Hjartavemdar á konum og körlum á aldrinum 34-44 ára, í Reykjavík á árunum 1968-69 og 1983-85. Þegar tölumar eru bomar saman sést að meðalvinnutími á viku hefur aukist allnokkuð, sérstaklega hjá konum. Meðalvinnutími karia, og er þá talin vinna bæði utan og innan heimilis, er 55 stundir á viku, en konur vinna 65 stundir, og em þetta mun hærri tölur en í nágrannalönd- um okkar. Ein ástæðan fyrir lengri vinnutíma kvenna er sú að þær hafa Kjarnorkuverið í Dounreay lagt niður: Þakka ber bresku ríkisstjórninni þessa ákvörðun — segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra sótt í miklu meira mæli út á vinnu- markaðinn á síðustu áram, en þátt- taka karla í heimilisstörfunum hefur lftið aukist í samræmi við það. Kon- umar sinna heimilisstörfunum, og gegna því frekar hlutastörfum, en karlamir vinna auka- og yfirvinnu. Þær stéttir sem vinna lengsta vinnu- viku era ófaglærðir og vinnuveitend- ur, en háskólamenntaðir era með skemmstan vinnutíma. Síðari hópur- inn nýtur einnig betri lífeyrisréttinda og heldur því síður áfram störfum, þegar komið er á eftirlaunaaldurinn. Skýrslan tekur einnig til rann- sókna Hjartavemdar á streitu, sem hefur aukist veralega í íslensku þjóð- félagi á síðustu 10-15 áram, samfara auknum kröfum og meira vinnuá- lagi. Þættir eins og þensla og aukin verðbólga hafa einnig sín áhrif þar á. Streitan bitnar svo á fjölskyld- unni, vinnunni og heilsunni, en hjóna- skilnuðum og ýmsum sjúkdómum fjölgaði á sama tímbili, segir í skýrsl- unni. Samfara aukinni streitu hefur tíðni sjúkdóma eins og maga- og gigtarsjúkdóma, hjarta- og æðasjúk- dóma aukist og flarvistir frá vinnu vegna veikinda era tíðari. Fjárhæðir sem þjóðfélagið ver til meðferðar við streitu á ári hveiju era því veraleg- ar, að sögn Ólafs Ólafssonar, iand- læknis. Hann telur nauðsynlegt að farið verði að beita aðgerðum til að minnka streituna í stað þess að eyða sífellt meiri Qármunum til dvalar á sjúkrastofnunum af hennar völdum. Hann tók það þó fram að hann hefði enga tiltæka lausn á vandamálinu. Landlæknir kynnti um leið aðra skýrslu er flallar um niðurstöður hóprannsókna um aðbúnað, starfs- réttindi og heilsufar ellilífeyrisþega á Reykjavíkursvæðinu á áranum 1979-1984. Þar kemur m.a. fram að helmingur karla og kvenna á aldrin- um 67-74 ára vinnur 40 stundir eða lengur á viku. í skýrslunni segir af vinnugeta eldra fólks haldist lengui en áður, þar sem dregið hefur úi þungum og erfiðum störfum, en I staðinn hafi komið störf er krefjast langrar reynslu, verk- og fagmennt- unar. Þetta fólk sé einnig oft fúst til þess að halda áfram störfum eftii að það er komið á ellilífeyrisaldurinn, en reglur dragi úr möguleikum at- vinnulífsins á að notfæra sér hæfn: þessa fólks. Heilsufar þess hafi líka farið batnandi, meðferð við öldrar felist ekki í algerri hvítd, heldur and- legri og líkamlegri örvun. Það sé þv ekki læknisfræðilega réttlætanlegt að setja lög um vinnulok við 67 árí aldur. í skýrslunni segir jafiiframt að þetta fólk ætti að halda áunnuir eftiriaunaréttindum, en eftiriauna- aldurinn mætti vera sveigjanlegri. Fjárhagsleg endurskipulagning: SÍS fékk heimild fyrir 200 miiljónum CECIL Parkinson orkumálaráð- herra Bretlands lýstí þvi yfir i fyrradag, að dregið verði úr starfsemi kjamorkuversins í Dounreay í Skotlandi og hún lögð. niður að fimm árum liðnum. Af þvi tilefni leitaði Morgunblaðið álits Halldórs Ásgrímssonar sjáv- arútvegsráðherra á þessum tíðindum, en hann hefur marg- sinnis, fyrir íslands hönd, mót- mælt fyrirhugaðri stækkun orkuversins. „Þetta eru með betri tíðindum sem ég hef heyrt lengi," sagði Hall- dór Ásgrímsson. „Við höfum mót- mælt þessu tiltæki að stækka orku- verið, bæði í samráði við hin Norð- urlöndin og jafnframt höfum við borið fram mótmæli beint gagnvart Bretum. Það er því mikið ánægjuefni að ekki verði úr stækkuninni og ber að þakka bresku ríkisstjóminni þessa ákvörðun," sagði Halldór Ásgrímsson. Sjá nánar á bls. 26. Forsetinn heimsækir Húnvetninga FORSETI íslands, frú Vigdfs Finnbogadóttir, mun heim- sækja Húnvetninga i ágústmán- uði næstkomandi. För forseta hefst fimmtudaginn 25. ágúst og heimsækir hún 17 hreppa í Húnavatnssýslum. Ferð- inni lýkur sunnudaginn 28. ágúst. Á skrifstofu forseta fengust þær upplýsingar í gær, að verið væri að leggja sfðustu hönd á skipu- lagningu ferðarinnar og er upp- lýsinga um dagskrá heimsóknar- innar að vænta eftir helgina. SAMBAND íslenskra samvinnu- félaga hefur fengið heimild tíl erlendrar lántöku að upphæð 200 milljónir fslenskra króna en farið var fram á 300 miHjónir króna, að sögn Guðjóns B. Olafssonar, forstjóra Sambandsins. Að sögn jóns Sigurðssonar viðskiptaráð- herra, fengu átta fyrirtæki heim- ild tíl lántöku erlendis í vikunni. Guðjón sagði að þeim 200 millj- ónum, sem Sambandið hefur fengið lánsheimild fyrir, yrði varið til fjár- hagslegrar endurskipulagningar. „Þetta er náttúrulega tengt því, að Sambandið er búið að veita marg- víslega fyrirgreiðslu til endurskipu- lagningar í fiskvinnslu- og land- búnaðarfyrirtækjum," sagði Guð- jón. Jón Sigurðsson sagðist hafa veitt nokkram fyrirtækjum heimild til lántöku erlendis, sem era með fíöl- þætta starfsemi á sínum vegum, meðal annars útflutning en teljast þo ekki til utflutnmgs- og sam- keppnisfynrtækj anna. Hann sagð- ist ekki vilja gefa upp hvaða fyrir- tæki ættu í hlut, né lánsupphæðir. „Þetta er ekki á sama hátt fram- kvæmd á ákveðnum áformum um lánveitingar innan tiltekinna marka sem ríkisstjómin kom sér saman um f lok maí. Þetta eru eðlisskyld mál og ekki eingöngu samvinnufé- lög, sambandsfyrirtæki eða kaup- félög, sem eiga hlut að máli,“ sagði Jón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.