Morgunblaðið - 23.07.1988, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988
17
Viljum draga úr kostn-
aði en niðurskurður ráð-
herra er óraunhæfur
- segir Böðvar Bragason
„Markmiðið er að fara eftir fjárlögum en mörgum hefur orðið hált
á þeirri braut. Það er alveg \jóst að við erum ein þeirra stofnana sem
ekki hefur tekist að halda eyðslu innan þeirra marka sem fjárlög setja
okkur,“ sagði Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík en fjármála-
ráðherra segir embætti hans hafa farið 170 milljónir yfir á fjárlögum.
Ráðherra nefndi einnig fjölda bæjarfógetaembætta, þar á meðal á
Akranesi, Selfossi, Keflavík og Hafnarfirði.
Böðvar sagði íjárveitingavaldið
hafa tekið ákvörðun um að skera
fjárveitingu til embættis síns niður
um einn þriðja frá því sem verið
hefði undanfarin ár. „Við höfum full-
an vilja á að draga úr kostnaði en
það er alltaf matsatriði hvemig á að
gera það. Ég tel ekki að hægt sé
að skera svo mikið niður á einu ári
án þess að starfsemi raskist um of.
Þetta þýðir niðurskurð á yfirvinn-
utímum, úr 280.000 tímum á ári, í
195.000 tíma og það er meira en við
höfum ráðið við. Ég hefði talið raun-
hæft að lækka sig niður í 230 til
240.000 tíma. Við höfum gert dóms-
málaráðuneytinu grein fyrir þessu á
hverjum tíma og það hefur sýnt okk-
ur skilning.“
„Mig furðar á þessari yfírlýsingu
fjármálaráðherra þar sem við höfum
ekki einu sinni fengið þá fjárveitingu
sem okkur ber. Ég hef ekki fengið
nein svör við fyrirspum minni um
þær til ráðuneytisins. Allar ákvarð-
anir um kaup á borð við nýtt hús-
næði og bíla, hafa verið teknar af
fjármálaráðuneytinu sjálfu," sagði
Sigurður Gizurarson, bæjarfógeti á
Akranesi.
Már Pétursson, bæjarfógeti í
Hafnarfírði sagði stærstan hluta
fjárhæðarinnar vera verkefnaráðn-
ingu 4 lögreglumanna vorið 1987
umfram heimildir ijárlaga. Þeir hafí
verið ráðnir til að annast aukna lög-
gæslu í Mosfellsbæ vegna krafna
íbúa þar. „Þessi löggæsluaukning,
sem dómsmálaráðuneytið samþykkti
og stóð að, var auðvitað gerð í trausti
þess að fjármálaráðuneytið væri með
í ráðum og aukafjárveiting fengist.
Þá er nokkur hluti upphæðarinnar
vegna þess að við hófum að tölvu-
væða embættið á síðasta ári í trausti
þess að við fengjum fé af sameigin-
legri fjárveitingu til dómsmálaráðu-
neytis vegna tölvukaupa. Við fengum
aðeins 500.000 kr. en keyptum 24
tölvur. Hafnarfjörður er næststærsta
tollhöfn landsins. Innflutningur hér
hefur aukist um 50% milli ára undan-
farið og er þá miðað við fjölda af-
greiðsla. I fyrravor neyddumst við
til að ráða 2 starfsmenn án fjárlaga-
heimildar, til þess að geta veitt sóma-
samlega þjónustu og innheimt mikil-
vægustu gjöld," sagði Már.
Sérblað
á miðvikudögum
Myndasögur, þrautir og efni
frá börnum.
Auglýsingar í barnablaðið
þurfa að hafa borist
auglýsingadeild fyrir
kl. 17.00. áföstudögum.
JWtvgmiMfifetfr
- blaé allra landsmanna
Rafn Sverrisson í versluninni Seljakaupum. Morgunbiaðið/Þorkeii
Tók viðrekstri Seljakaupa
RAFN Sverrisson hefur tekið við rekstri verslunarinnar Selja-
kaupa í Breiðholti. Auk matvöruverslunar tilheyra Seljakaupum
söluturn og myndbandaleiga.
(Fréttatilkynning)
TÖLUVERT URVAL
húsgögn
ÁRMÚLA 44. SÍMI 32035