Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 GARÐASTAL Afgreitt eftir máli. Allir fylgihlutir. Bretland: Dregið úr starfsemi í Dounreay-verinu = HÉÐINN = STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000 St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. CECIL Parkinson orkumálaráðherra lýsti því yfir í fyrradag í Neðri deild breska þingsins, að dregið yrði úr opinberum framlögum til rannsókna á kjarnakljúfum, sem nýta hraðar nifteindir. Sagði hann, að fljótlega yrði dregið nokkuð úr starfseminni í Dounreay og eftir fimm ár myndi hún að mestu leggjast af. Óánægja er með þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar í kjarnorkuiðnaðinum. Ráðherrann sagði, að dregið yrði úr framlögum til rannsókna á eldis- kjamakljúfum, sem svo eru nefndir vegna þess, að þeir ala eigið elds- neyti, en framlögin nema nú 105 milljónum sterlingspunda árlega, um átta milljörðum ísl. kr. Á næstu tveimur árum mun störfum fækka um 1.500 við þessa áætlun annars staðar en í Dounreay en eftir 1994 mun þeim fækka þar um 2.100 í um 500. Verður starfsemin þar þá aðallega fólgin í viðhaldi og eftir- liti. Rekstur Dounreay kostar um 50 milljónir punda á ári eða tæpa fjóra milljarða ísl. kr. en endur- vinnslustöðin þar verður starfrækt fram til ársins 1997. Rök ráðherrans voru þau, að engin þörf yrði fyrir þessa tegund kjamakljúfa fyrr en eftir 30-40 ár í fyrsta lagi. Hann hafnaði því að leggja 800 milljónir punda í nýja áætlun um rannsóknir á eldis- kjamakljúfum með öðrum Evrópu- ríkjum eins og breska kjamorkuráð- ið hafði farið fram á. Robert Maclennan, þingmaður Kataness og annar af leiðtogum Frjálslynda lýðræðisflokksins, sagði, að 10 milljón punda framlag Breta til samvinnu Evrópuríkja um þróun og byggingu eldiskjama- kljúfs, eins og fyrirhugað væri, stefndi samvinnunni í hættu. Ráð- herrann svaraði því til, að sambæri- Prufu-hitamælar - 50 til + 1000 C í einu tæki meö elektrón- ísku verki og Digital sýn- ingu. gfiMoísiaígjM0 cJiSxniæssom) VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 - 21480 legar áætlanir Vestur-Þjóðverja og Frakka væru nú í molum. Starfsmenn í Dounreay og tals- menn kjamorkuiðnaðarins tóku þessari yfirlýsingu ráðherrans illa. Stöðin hefur verið mjög mikilvæg efnahagslífi Kataness og samdrátt- urinn er því meiriháttaráfall fyrir það. Campbell Christie, ritari skoska alþýðusambandsins, sagði, að þessi ákvörðun ráðherrans þýddi, að at- vinnuleysi á Katanesi gæti orðið allt að 40% og væri samfélaginu þar mikið áfall. Að hætta við þessa áætlun ylli því, að Bretar yrðu að flytja inn kunnáttu frá Frakklandi, Japan eða jafnvel Sovétríkjunum á næstu öld. Einnig væri tveimur milljörðum punda, sem rannsókn- aráætlunin hefði þegar kostað, kastað á glæ. Talsmaður kjamorku- ráðs ríkisins hefur sagt, að allra ráða verði leitað til að halda Doun- reay gangandi lengur en til 1994. Kjamakljúfurinn í Dounreay, sem nú starfar, var tekinn í notkun árið 1974. Þá voru aðstæður í orku- Herlög í Burma Bangkok. Reuter. HERLÖG voru sett í borginni Prome í Burma í gær en þá höfðu verið þar og óeirðir í sex daga. Voru herlögin sett í sama mund og helstu frammámanna sósíalistaflokksins, eina sljórn- málaflokksins í landinu, komu saman til skyndifundar. í búrmíska útvarpinu sagði, að átökin í Prome hefðu verið af trú- arlegum rótum runnin, milli búddatrúarmanna, sem em í meirihluta í landinu, og múha- meðstrúarmanna en þeir em flest- ir af indverskum uppmna og at- kvæðamiklir í verslun og viðskipt- um. í mótmælunum að undanf- ömu hafa þó námsmenn farið fremstir í flokki og í lahdinu ríkir mikil óánægja með dýrtíð, vöm- skort og harðneskju lögreglunnar. Fyrr á ámm var eftiahagur þjóðar- innar tiltölulega góður en nú hafa Sameinuðu þjóðimar skipað Burma á bekk með þeim ríkjum, sem verst em sett. ísrael: Bandarísk- Friðsamt í Jerúsalem eftir róstusama viku Reutcr Norodom Sihanouk prins og Michel Rocard, forsætisráðherra Frakk- lands. Þeir ræddust í gær við um Kambódíumálið og lofaði Rocard mjög baráttu Sihanouks fyrir friði í landi sínu. Sihanouk prins hættur sjálfskipaðrí „útlegð“ Sonur hans tekur þátt í Kambódíuviðræðum París, Peking, Honolulu. Reuter. NORODOM Sihanouk prins og fyrrum þjóðarleiðtogi Kambódíu hélt í gær til Jakarta í Indónesíu en þar eru nú að hefjast óform- legar viðræður um frið í Kambódiu og brottflutning víet- namsks herliðs. Ætlar sonur hans að taka þátt í þeim fyrir hans hönd. I næsta mánuði hyggjast Sovétmenn ræða við Kínveija um Kambódíumálið. Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklands, fór í gær fögmm orð- um um framlag Sihanouks og til- raunir hans til að koma á friði í Kambódíu en prinsinn hefur verið í sjálfskipaðri „útlegð“ í Frakklandi síðustu tíu daga. Hafði hann áður sagt af sér formennsku í bandalagi þriggja skæruliðahreyfinga í Kambódíu og hélt því þá fram, að Rauðir khmerar berðust ekki síður við hans eigin menn en erkióvininn, Víetnama. Kvaðst Sihanouk ekki ætla að taka þátt í viðræðunum í Jakarta, heldur sonur hans, Ran- arridh prins. í næsta mánuði ætla Sovétmenn að senda nefnd háttsettra manna til Peking til viðræðna við kínversk stjómvöld um átökin í Kambódíu • og er það í fyrsta sinn, sem ríkis- stjómimar ræðast við um það mál. Herseta Víetnama í Kambódíu hef- ur einna helst staðið í vegi fyrir bættum samskiptum ríkjanna. ir hermenn tilísræl Haífa. Reuter. FJÖGUR þúsund landgöngulið- ar úr bandaríska sjóhernum komu til hafnarborgarinnar Haífa í ísrael í gær til þess að taka þátt í fyrstu heræfingum Bandarikjamanna í ísrael. Hermennirnir komu til ísrael á fimm skipum. Þau fluttu einnig þyrlur, flugvélar og skriðdreka sem nota á við æfingamar. Þijú skipanna eru svokallaðir vatna- drekar sem komast ferða sinna jafnt á láði sem legi. Gert verður við íjögur bandarísku skipanna í ísrael. Heræfingar Bandaríkjamanna í ísrael em liður í samkomulagi ísraela og Bandaríkjmanna um nána samvinnu á sviði hemaðar. Samkomulagið var undimtað árið 1982. Ifyrst var greint frá fyrirhuguðum, sameiginlegum heræfingum ríkjanna í apríl i vor. málum allar aðrar en nú. Olíuverð hafði hækkað mjög ört og talið var, að verð á úrani færi hækk- andi. Nóg er nú af olíu á heims- markaði og verð á úrani hefur lækk- að. Vatns- og gaskældir kjama- kljúfar hafa því orðið hagkvæmari og fyrirsjáanlegt er, að þeir verða notaðir áfram. Ólíklegt er talið, að af byggingu evrópsku endurvinnslustöðvarinnar í Dounreay verði. Israel: Reuter Israelskir landamæralögregluþjónar standa vörð fyrir utan A1 Aqsa- moskuna í þann mund sem moskugestir koma frá bænahaldi. Jerúsalem, Reuter. FYRIRHUGUÐ mótmæli Pa- lestínuaraba í Jerúsalem fyrir hátiðisdag múslima fóru að mestu út um þúfur í gær, enda voru öryggisráðstafanir lög- reglu í borginni helgu gífurleg- ar. Var meðal annars komið í veg fyrir að benzínsprengjum væri smyglað inn í helgistað múslima. Lögregla stóð hvarvetna vörð í austurhluta Jerúsalem, en þar búa nær einvörðungu arabar. Óttast ísraelar að arabar kunni að grípa til frekari óeirða eða ofbeldisverka um helgina, en á sunnudag er íslamski hátíðisdagurinn Id al-Adha og um leið lýkur róstusömustu viku í Israel í nokkra mánuði. ísraelskir hermenn skutu níu araba til bana í vikunni og tveir til viðbótar létust af völdum skotsára, sem þeir höfðu áður hlotið á meðan Intifada hefur staðið, en svo er uppreisn Palestínuaraba á Vestur- bakkanum og Gaza-svæðinu nefnd. Hún hefur nú staðið í rúma sjö mánuði og hafa að minnsta kosti 242 Pajestínuarabar látið lífið í henni. í gær upplýsti talsmaður hersins að einn hinna þriggja Pelstínuaraba, sem skotinn var á þriðjudag, hefði verið ísraelskur ríkisborgari, en hann er fyrsti ísra- elski arabinn, sem fellur í uppreisn- inni. í A1 Aqsa-moskunni í elsta hluta Jerúsalem í gær flutti bænastjóri harðorða prédikun gegn hemámi ísraela. „Við minnum hemámsliðið á að við munum aldrei gleyma at- höfnum ykkar," sagði hann meðal annars. „Bræður, verið þolinmóðir endalokin eru i nánd.“ Að sögn lögregluyfirvalda kom öryggiseftirlitið í gær svo sannar- lega að gagni, því að þegar leitað var í hafurtaski konu nokkurrar við eitt hliðanna að gömlu borginni á Musterishæð, fannst kassi, sem innihélt tíu benzínsprengjur. Talið er að átt hafi að beita sprengjunum á ísraelska landamæralögreglu við mótmæli, sem eiga sér vanalega stað eftir bænir. Konan og maður hennar, sem bæði em með ísraelskan ríkisborg- ararétt, vom dæmd í gæsluvarð- hald.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.