Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988
35
Eiga Reykvíkingar bara
borgarstjóra bifreiðæigenda?
eftir Magnús H.
Skarphéðinsson
Ég hélt að ég væri að heyra mis-
skilning í útvarpinu um daginn þegar
sagt var frá nýrri ákvörðun borgar-
ráðs um að leyfa bifreiðaeigendum
bæjarins að leggja bifreiðum sínum
átölulítið upp á afganginn af gang-
stéttum okkar gangandi og hjólandi
vegfarenda. Af litlu var að taka nú
upp á síðkastið.
Hinn valdamikli borgarstjóri
Reykvíkinga brást skjótt við erindi
kaupmanna gamla bæjarins um dag-
inn að lækka og afnema sektir á
bifreiðir viðskiptalífsins sem standa
mjög oft ólöglega uppi á gangstétt-
um í borginni. Það tók innan við viku
að lemja þessa þjóðþrifaákvörðun
gegnum borgarkerfið. Öðruvísi okk
ur áður brá í öðrum og minna nauð
synlegum málum, s.s. hinum land
læga skorti á elliheimilum fyrir gaml-
ingjana. Það eru ekki nema 1.800
aldraðir Reykvíkingar búnir að bíða
á biðlistum hjá borginni eftir elli-
heimilisplássi í tæpan áratug. Já,
eitt þúsund og átta hundruð á bið-
listum hjá Davið borgarstjóra.
Fólk, sem fæst ef nokkuð, eygir
nokkra úrlausn húsnæðismála sinna
í þessu lífi hér.
Nei, hér er það forgangsröð verk-
efna sem blívur. Par exéllence! segir
borgarstjórinn og smellir fíngrum og
borgarstjórafrúin hlær í betri bíl
borgarbúa.
Það gladdi okkur íbúa gamla bæj-
arins ekki lítið þegar gatnamálastjóri
tók á sig rögg og skipulagði herferð
til bjargar okkur gangandi fólkinu
hér í bænum. Innrás bifreiðanna upp
á flestallar gangstéttir bæjarins líkist
helst orðið meindýraplágu fyrir þá
sem reyna að komast leiðar sinnar
eftir gangstéttunum. (Þó skömm sé
að nota orðið meindýr um nokkur
dýr önnur en okkur eiginlega, og enn
meiri skömm að nota orðið plágu.
Frekjan í okkur homo sapiens er
orðin svo yfirgengileg að ef eitthvert
annað dýr plánetunnar fjölgar sér
agnarögn, þá köllum við það plágu.
Hvað ætli hin dýrin kalli þessa fjölg-
un okkar?)
Það verður að draga úr
hinum hörðu umferðar-
valkostum sem mest
Mér finnst að kjömir fulltrúar
borgarinnar ættu að fara að hugsa
sinn gang í heilbrigðari ferðamáta
bæjarbúa. Það er að verða ólíft vegna
mengunar í henni gömlu Reykjavík.
Ekki bætir hávaðinn úr þessum trylli-
tækjum andrúmsloftið. Að ógleymd-
um slysunum sem allur þessi hryll-
ingur og tryllingur kostar. Ég ætla
varla að bjóða lesendum upp á tölur
í þessum dálki. Þær eru stjamfræði-
legar. Þó hefi ég heyrt eftir ábyggi-
legum embættismanni innan heil-
brigðiskerfisins að einungis umferð-
arslysakostnaður á fólki hér á landi
sé ekki undir 1.000 milljónum á ári.
Þar sem ég bý í gamla bænum á
Grettisgötunni er nábýlið við Lauga-
veginn hreinlega að drepa okkur.
Ég hef aldrei séð gangstéttina við
Grettisgötuna lausa við bifreiðir
sem lagt hefur verið ofan á þeim
langsum eða þversum á verslun-
artíma a.m.k. undanfarin 6-7 ár.
Það er hending að haígt sé að fara
með reiðhjól eða bamavagn torfæru-
laust um þær á daginn.
Það er ekki hægt að bjóða fólki
upp á þetta lengur. Og nú þegar
gatnamálastjóri hóf varnarstríð fyrir
okkur verst settu íbúana var eitt stórt
strik dregið yfir og fýrir flestar þess-
ar aðgerðir af hinum valdamikla
borgarstjóra Reykvíkinga.
Nýjustu dagskipanir frá borgar-
ráði eru því nú: „Draga skal verulega
úr sektum og þær lækkaðar. Stöðu-
mælagjöld skulu lækkuð og tími
blikkbeljanna á básunum lengdur.
Stöðumæla- og umferðarverðir borg-
arinnar skulu skammaðir og þeim
skipað að halda sig á mottunni þegar
bifreiðir em annars vegar. Og drátt-.-
arbílamir sem notaðir em til að fjar-
lægja verstu bifreiðimar uppi á
gang-
stéttunum skulu sparaðar sem mest
má, o.s.frv. Þetta tilkynnist hér með
„Hvað sem gert verður
þá nær ekki nokkurri
átt að leiða í lög innrás
blikkbeljunnar upp á
þessar fáu og litlu
gangstéttaskákir sem
okkur hinum voru ætl-
aðar.“
í nafni hins valdamikla borgar-
stjóra."
Og borgarstjórafrúin hlær í stóra
fína borgarstjórabílnum í stóra fína
frátekna bílastæði borgarstjórabíls-
ins við Austurvöllinn. Því þetta skilj-
anlega og óþolandi streð við um-
ferðarlagaverðina er nú svona og
svona. Það skilja það allir eða er það
ekki?
Eiga hinir mjúku veg-
farendur enga samúð
borgarráðs?
En hvers eigum við að gjalda, íbú-
amir við þessar götur? Og hvers eiga
þeir bæjarbúar að gjalda sem ferðast
um borgina án þess að menga um-
hverfið, æra alla með hávaða eða
slasa eða drepa fólk með þessum
banvænu tækjum liggur mér við að
segja?
Eigum við gangandi íbúar virki-
Magnús H. Skarphéðinsson
lega enga samúð í borgarráði í
líkingu við kaupmennina og bifreiða-
eigenduma? Eigum við bara borgar-
stjóra sem hugsar um hag bifreiða-
eigenda? Ég og sumir nágrannar
mínir höfum verið að velta þessari
spumingu fýrir okkur undanfama
daga. Það leita á okkur íbúa gömlu
Reykjavíkur ýmsar áleitnar hugsanir
á svona tímum.
Eitthvað verður að gerast í þessum
málum annað en svona ósmekkleg
afgreiðsla vandamálsins. Því hvað
sem gert verður þá nær ekki nokk-
urri átt að leiða í lög innrás blikk-
beljunnar upp á þessar fáu og litlu
gangstéttaskákir sem okkur hinum
vom ætlaðar. Enda em okkar skákir
margfalt færri og minni en risaskák-
ir blikkbeljanna em fyrir í borginni
okkar.
Eða er hægt að ganga svona enda-
laust á rétt okkar líka? Ég vona
a.m.k. að fleiri en ég séu hneykslað-
ir. En hvað við getum gert andspæn-
is valdinu er aftur annað og erfiðara
mál, eins og nýleg dæmi sanna þvp
miður.
Höfundur er íbúi ígamla bænum'.
Það er stutt
101
Sjóbúöin, Grandagarði 7
Sölutuminn Vestrið, Garðastræti 2
Sðlutuminn Sólvellir, Sólvallagötu 27
Sölutuminn-Vldeóleigan,
Tryggvagötu 14
Sölutuminn, Vesturgötu 53
Valsheimilið, Hllðarenda v/Laufósveg
Sðlutuminn Barón, Laugavegi 86
Söluturninn, Hafnarstræti 20
Egyptinn, Skólavörðustfg 42
Söluturninn, Leifsgötu 4
103
Happahúsið, Kringlunni
104
Kaffiterlan, Iþróttamiðstöðinni
I Laugardal
SS Glæsibæ, Álfheimum 74
Söluturninn Norðurbrún 2
Mikligaröur v/Holtaveg
Sölutuminn Vldeógæði,
Kleppsvegi 150
Lukku Láki, Langholtsvegi 126
Sðluturninn Sunnutorg hf.,
Langholtsvegi 68
105
Sölutuminn Allrabest, Stigahlfð 45
Sölutuminn Pólls, Skipholti 50
Kútter Haraldur v/Hlemmtorg
Sölutuminn, Barmahilð 8
Matró, matvöruverslun, Hátúni 10b
Sðluturninn ömólfur, Snorrabraut 48
Sðlutuminn Donald, Hrfsateigi 19
107
ESS0, Ægisstðu 102
Vldeóleigan, Ægisslðu 123
Söluturninn, Hagamel 67
Isbúöin hf., Hjarðarhaga 47
KR heimilið, Sörlaskjóli
108
Sölutuminn Ofanleiti, Ofanleiti 14
Nýja Kúlan, Réttarholtsvegi 1
Myndver hf„ Háaleitisbraut 58-60
Söluturninn Toppurinn, Slðumúla 8
SS Austurveri, Háaleitisbraut 68
Söluturninn Grlmsbær, Efstalandi 26
Hagkaup, Skeifunni 15
Tommaborgarar, Grensásvegi 7
Framheimilið, Safamýri 28
Söluturninn, Sogavegi 3
109
Söluturninn, Seljabraut 54
Sölutuminn, Hólmaseli 2
Sölutuminn Sel, Leirubakka 36
ESS0, Skógarseli 10
Kaupstaður, Pönglabakka 1
Sölutuminn Arnarbakka 4-6
110
Skalli, Hraunbæ 102
Verslunin Nóatún, Rofabæ 39
Fylkisheimilið, Fylkisvegi
Söluturn/Matvöruverslun,
Selásbraut 112
111
Sölutuminn Hraunberg, Hraunbergi 4
Sölutuminn, Iðufelii 14
Söluturninn Candls, Eddufelli 6
Söluturninn Hólagarður, Lóuhólum 2
Sölutuminn Straumnes, Vesturbergi 76
SELTJARNARNES
ESSO v/Borgarbraut
REYKHOLT
Verslunin Bitinn
STYKKISHOLMUR
Ábær, Ártorgi
VARMAHLID
MŒEmEEMl
Kaupfélag Stöðfirðinga
BREfÐDALSVIK
K.S. Varmahllð
Hótel Bláfell
SIGLUFJORDUR
DJUPIVOGUR
Bensln- og veitingasalan, Aðalgötu 25 Ftafbær sf., Aðaigötú 34
Nesval, Melabraut 57
Nýibær, Eiðistorgi
KOPAVOGUR
Kvöldsalan, Þverbrekku 8
Bræöraborg, Hamraborg 20A
Verslunin Sækjör, Kársnesbraut 93
Söluturninn Snæland, Furugrund 3
\ferslunin Vörðufell, Pverbrekku 8
ESSO, Stórahjalla 2
Kaupgarður v/Engihjalla
GARDABŒR
Sælgætis-ogVldeóhöllin.Garðatorgi 1
Söluturninn, Garðaflöt 16-18
Sölutuminn Speslan, Iðnbúð 4
HAFNARFJÖRÐUR
GRUNDARFJORDUR
Benslnstöðin, Grundargötu 38
Blllinn, Ennisbraut 1
HELLISSANDUR
Söluskálinn Tröð, Útnesvegi
BUÐARDALUR
Kaupféiag Hvammsfj., Vesturbraut 8
wMmzímman
Söluskálinn Bær
Vitinn, Aðalstræti 20
Hamraborg hf„ Hafnarstræti 7
■EW9r
Einar Guðfinnss. hf„ Aðalstræti 21-23
AKUREYRI
KEA, Hrlsalundi 5
KEA, Byggðavegi 98
Nætursalan, Strandgötu 5
Shell-nesti, Hörgárbraut
ESS0 söluskálinn, Túngötu 3
Söluskálinn Skútan
HÓFN, HORNAFIRDI
Verslun Sig. Sigfússonar,
Hafnarbraut 38
SELFOSS
Fossnesti, Austurvegi 46
Homið, Tryggvagötu 40
BISKUPSTUNGUR
Sæluhúsið, Hafnarbraut 14
OLAFSFJORDUR
Vídeó Skann, Ægisgötu
Verslunin Grund
Eden v/Austurmörk
Sel sf„ Strandgötu 11
Sölutuminn, Hringbraut 14
Skalli, Reykjavlkurvegi 72
Verslunin Noröurbær, Norðurbraut 39
Sölutuminn, Miðvangi 41
Söluturninn, Álfaskeiði 115
Ný-Ung, Hafnargötu 6
ÞORLAKSHOFN
Skálinn, Óseyrarbraut 15
ESS0 söluskálinn
SUDUREYRI
Söluskáli ESS0, Rómarstlg 10
Sölutuminn, Garðarsbraut 66
K.Þ. ESS0 söluskálinn
ESS0 skálinn
GRINDAVIK
Verslunin Bára, Hafnargötu 6
ESS0, Heiðargerði 5
SANDGERDI
Verslunin Aldan, Tjamargðtu 6
GARÐUR
ESS0, Heiðartúni 1
Fitjanesti, Fitjum
NtOSFELLSSVEIT
Verslunin Þverholt, Langatanga 1
Homið sf„ Þverholti
AKRANES
Skaganesti, Skagabraut 45
Markið, Suðurgötu 10
Barbro, Skólabraut 37
PATREKSFJÖRÐUR l ! RAUFARHÓFN
Rafbúð Jónasar Þórs, Aðalstræti 73 ESSO K-N-Þingeyinga, Aðalbraut 24
TALKNAFJORDUR m ÞÓRSHÓFN
ESSOnesti v/Strandveg ESSO K-Langnesinga, Fjaröarvegi 2
VOPNAFJORDUR
Veitingahúsiö Vegamót, Tjamarbraut 1 es$q K-Vopntiröinga, Hafnarbyggð
Kaupfélag Dýrfirðinga, Hafnarstræti 7
HRÚTAFJÓRDUR
Staðarskáli
Söluskáli K.S.H., v/Höfðatún
HVAMMSTANGI
Versiun Sig. Pálmasonar, Höf ðabraut 6
Kaupfélag V-Húnvetn„ Strandgötu 1
BLONDUOS
Blönduskálinn, Hnjúkabyggð 34
SKAGASTRÖND
Söluskálinn Skagaströnd
EGILSSTAÐIR
Shellskálirm, Fagradalsbraut 13
ESS0 sðluskálinn, Kaupvangi 5
Shellskálinn sf„ Ránargötu 1
REYÐARFJORÐUR
Verslunin Fis, Ártúni
EYRARBAKKI
Strönd sf„ Eyrargötu 49
Kaupfélagið Þór
HVOLSVOLLUR
Söluskálinn Björk, Austurvegi
mmm
Vlkurskálinn, Austurvegi
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR
Skaftárskáli
VESTMANNAEYJAR
Turninn, Bárustlg 1
Vsitingaskálinn, Friðarhöfn
Sðluskálinn, Goðahrauni 1
Shellskálinn, Strandgötu 13
—í
Shellskálinn, Hafnarbraut 19
FASKRÚÐSFJÖRÐUR
Fjarðamesti, Skölavegi 32
-Milljónirá hverjum laugardegi