Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 51

Morgunblaðið - 23.07.1988, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988 51 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Erlendir ferðamenn o g matarverð Svar frá fjár- málaráðuneytinu Ágæti Velvakandi. Það er sjaldan ástæða til að gera athugasemdir við þann samfélags- púls sem dálkur þinn er, að minnsta kosti ekki fyrr en hann fer að verða vettvangur fyrir trúboð sem byggist á grundvallarmisskilningi. Svo er um bréf Kristins Sigurðs- sonar á sunnudaginn var. Þar er tekið undir fullyrðingar, sem sést hafa á prenti að undanförnu, um að erlendir ferðamenn séu að snið- ganga landið vegna sérstaks skatts, sem lagður hafi verið á matvæli. Reyndar er mér tjáð að þessi mis- skilningur sé orðinn það landlægur, að hann hafi náð sjálvirkri út- breiðslu. Dæmi um slíkt er þegar leiðsögumenn tjá ferðafólki það um hátalarakerfi í rútum, að ástæðan fyrir háu matarverði hér á landi sé sérstakur skattur, sem hér sé lagður á matvæli. Kristinn Sigurðsson, bréfritari, orðar þetta svo: „Núverandi ráða- menn, sem flestir eru vel menntað- ir, settu á 24% eða 25% söluskatt á matvörur og bættu svo hinum ill- ræmda matarskatti ofan á.“ Til þess að þessi nýja skattlagning bréfritara leggi ekki leið sína inn í hátalarakerfi langferðabifreiða er nauðsynlegt að leiðrétta það sem þarna er rangt með farið, og svara að öðru leyti spurningum, sem fram eni settar í bréfinu. í fyrsta lagi eru 25% söluskattur og „hinn illræmdi matarskattur" einn og sami skatturinn. Hér á landi er ekki til nein sérstök skattlagning á matvæli. í öðru lagi fól skattkerfisbreyt- ing núverandi stjórnar það í sér, að matvæli hækkuðau aðeinc um 7% - fyrst og fremst vegna mður- fellinga tolla á innfluttum mat, auk þess sem söluskatti af landbúnaðar- afurðum er að fullu skilað til baka í niðurgreiðslum. f þriðja lagi hafði þessi 7% hækkun í för með sér óverulega útgjaldaaukningu fyrir heimilin, því á móti komu áhrif verulegra tolla- lækkana á öðrum algengum neyslu- vörum, auk þess sem matarkaup nema einungis einum fimmta af útgjöldum meðalíjölskyldu. I fjórða lagi var hagur tekju- lágra heimila og bammargra bætt- ur um leið með hækkuðum lífeyris- greiðslum og verulega hækkuðum barnabótum. Það er að vísu rétt, að erlendir ferðamenn fá ekki greiddar barnabætur hér á landi, en þeir njóta að fullu niðurgreiðslna á matvörum. Trallalallala Til Velvakanda. Ég sá í Velvakanda 12. júlí síðastliðinn að verið var að leita eftir vísum og minntist ég þá þess, að ég átti í fórum mínum svipaðar vísur. Þær eru svona: „Gekk ég út á götu seint á degi glæsilegt varð fljóð á mínum vegi. Leit hún við mér litfríð eins og sólin lifna tók þá hugurinn og trallalallala lifna tók þá löngun hjartans blíð. Henni bauð ég hendi mína að rétta henni leist nú ofur vel á þetta. Fús ég gekk með freyjugullið banda farið var mér dálítið að trallalallala dálítið að detta gott í hug. Henni ei ég þorði að bjóða í hlöðu þar ég var að reyta niður töðu því ég veit að hún er veik á svelli og þekkti ei nema danskra dáta trallalallala þekkti ei nema danskan dátadans. M.H. í fimmta lagi má geta þess að söluskattur var á mat hér á landi til skamms tíma. Með því að setja hann á að nýju var stefnt að því að komast fyrir söluskattsundan- drátt í matvöruverslun, og styrkja þannig hag ríkisins og hæfni ríkis- sjóðs til að fjármagna velferðar- verkefni. En víkjum þá að þætti erlendu ferðamannanna og fullyrðingum bréfritara. Er þar þá fyrst að nefna, að komum útlendinga hingað hefur ekki fækkað. í fyrra var algert metár hvað varðar fjölda erlendra ferðamanna ti landsins. Tölur um fyrri helming þessa árs bendir til þess að sú saga kunni að endurtaka sig, þrátt fyrir einhvern samdrátt í júní. Ef sú fullyrðing stenst hins veg- ar, að útlendingar seu að verða afhuga ferðalögum til íslands vegna verðlags, þá er full ástæða til að kanna hvað veldur. Ég tek undir með bréfritara að þjóðin geti haft allgóðar tekjur af móttöku ferða- fólks. Og þar eru ferðir íslendinga sjálfra um eigið land ekki síður mikilvægar. Ef matarverð er að spilla fyrir ferðaþjónustu, þá verða menn að huga nánar að verðlagningu á veit- ingastöðum. Söluskattur á mat, einn og út af fyrir sig, ætti ekki að hafa valdið nema broti af þeirri hækkun, sem menn telja sig verða vara við í verðlagningu veitinga- húsa. Launahækkanir velta að sjálf- sögðu alltaf út í verðlagið, en auk þess telja ýmsir sig verða vara við nýja hneigð til verðhækkana, eink- um á skyndibitastöðum. Full ástæða væri til að kanna hver áhrif fjárfestingabruðl og tækjagleði, fjármögnuð á okurvöxtum, hefur á kostnaðarþætti ýmissa þessara veitingahúsa. Ég vil að lokum taka undir áhyggjur bréfritara af þróun íslenskrar ferðaþjónustu. Eigi hún að veita vinnu og gefa þjóðinni tekj- ur verða þeir sem þar starfa að hugsa til langs tíma. Ríkisstjórnin hefur fyrir sitt leyti gert ýmsar ráðstafanir til þess og mun halda því áfram. Eitt af því er tilboð um söluskattfijálsa verslun fyrir út- lendinga. Það sem á ensku nefnist „Tax-free Shopping". í fjármála- ráðuneytinu er nú verið að vinna að framkvæmd slíkrar endur- greiðslu. Stefnt er að því að hún geti hafist þegar á þessu ári. Með bestu kveðjum, Bjarni Sigtryggsson, upplýsinga- fulltrúi fjármálaráðuneytisins. Þessir hrlngdu . . . Föðurnöfnin aflögð? Andréssonhringdi: „Ég hef séð að eitthvað sem heitir kenninafn er á nýju vega- bréfunum í stað föðurnafns. Eg hafði upp á þeim sem ber ábyrgð á þessari nafngift í dómsmála- ráðuneytinu og hann bar því við að föðurnafn næði ekki yfir ættar- nöfn, þss vegna hefði þessi breyt- ing verið gerð Mér þykir kenni- nafn vera mikið orðskrípi og það er fáránlegt að búa til íslenskt orð svona út í loftið." Týndur köttur Gulur köttur, kallaður Bangsi, tapaðist fyrir um tveimur vikum frá Brú við Suðurgötu í Reykjavík. Bangsi, sem er tæplega tveggja ára, er eyrnamerktur með númer- inu R-7602. Þeir sem hafa orðið ferða hans varir eru beðnir að hafa sarriband við Dýraspítalann eða í síma 23886. Barnaúlpur töpuðust Tvær rauðar barnaúlpur með grænu fóðri týndust vjð Vaðnes- land við Hvítá í Árnessýslu. Finnandi er beðinn að hringja í síma 31255 eða 79858. Fressköttur týndur Þessi fressköttur týndist frá Hraunbæ síðastliðinn sunnudag, 17. júlí. Hann er grábröndóttur, eyrnamerktur og með bláa hálsól. Þeir sem hugsanlega vita um ferðir hans eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 73977 eða láta Dýra- spítalann vita. Hjartans þakkir til barna minna, tengdabarna, barnabarna, langömmubarna og allra vina, er sóttu mig heim á 70 ára afmœlinu meÖ gjöfum og heillaóskum. íý GuÖ blessi ykkur öll. Jóna Vilhjálmsdóttir, Lundi, Skagaströnd. V ar adekksf estingar og varadekk á Camp-let tjaldvagna VÍKURVAGNAR ht Vík í Mýrdal VÍKURVAGNAR HF s. 98-71134 Söluumboð í Reykjavik: Gisli Jónsson og Co hf., Sundaborg 11, s. 91-486444. JÁRNSAGIR Idh fyrir prófíla, rör, vinkla, flatjárn og massíft stál. Einfasa 220V 10A. Þvermál skurðarskífu 355 mm. Snúningshraði 3500 sn/mín. Skurðarþvermál 110 mm. Þyngd 17,2kg. G. J. FOSSBERG VÉLAVERZLUN HF. Skúlagötu 63 - Reykjavík Slmi 18560 EIGUM TIL Á GAMLA VERÐINU: 190 E árgerð ’88. Sjálfskiptur, vökvastýri, rafdrifn- ar rúður, litað gler, álfelgur, rafdrifnir útispeglar auk fjölda annarra aukahluta. 200 D árgerð ’88. Sjálfskiptur, vökvastýri, rafdrifn- ar rúður, jafnvægisbúnaður auk fjölda annarra aukahluta. Upplýsingar gefur Stefán ísíma 619550. RÆSIR HF Einkaumboð Daimler-Benz AG á íslandi. Skúlagötu 59.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.