Morgunblaðið - 23.07.1988, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1988
53
IÞROTTIR UNGLINGA / TENNIS
Tenms-
fólkiðí
framför
Litið inn á Nike-Dunlopmót ÍK
NIKE-Dunlop unglingamótið í
tennis var haldið á vegum tenn-
isdeildar ÍK nýlega. Mótið fór
fram í Kópavoginum og voru
margir unglingar sem tóku þátt
í því.
Greinilegt er að yngsta tennis-
fólkið okkar er í greinilegri
framför. Margir krakkar eru nú að
uppgötva þessa skemmtilegu íþrótt
■■■■■ °g fer þeim sem æfa
Andrés og keppa sífellt
Pétursson ijolgandi. Ágæt að-
skrifar. staða er komin hjá
Víkingum í Foss-
voginum og einnig er þokkaleg að-
staða til æfinga og keppni.
Á þessu móti urðu úrslitin þannig
að Jónas Bjömsson sigraði Stefán
Pálsson í úrslitum í einliðaleik karla.
Jónas hafði sigraði Eirík Önundar-
son í undanúrslitum en Stefán hafði
sigrað Fjölni bróður sinn í hinum
undanúrslitaleiknum.
í einliðaleik stúlkna sigraði Úlf-
hildur Indriðadóttir, en hún lagði
Elísabetu Sveinsdóttur í úrslita-
leiknum. Þær Anna Pála Stefáns-
Bræðurí
fremstu
röð
Rættvið Stefán og
Fjölni Pálssyni
Bæðurnir Stefán og Fjölnir Páls-
synir eru með efnilegustu tennis-
leikurum landsins. Þeir stóðu sig
með sóma í þessu móti og unnu
m.a. tvíliðaleik pilta.
Þar að auki komst
Stefán í úrslit í ein-
liðaleik en varð þar
að lúta í lægra haldi
fyrir Jónasi Bjömssyni. Umsjónar-
maður unglingasíðunnar ræddi við
þá bræður eftir að þeir höfðu háð
hörku innbyrðisviðureign sem Stef-
án sigraði.
Þeir bræður kváðust hafa kynnst
tennisíþróttinni er þeir bjuggu með
fjölskyldu sinni í Svíþjóð. Þeir hafa
nú leikið í fjögur sumur og eru full-
ir áhuga á að halda því áfram. Á
vetuma æfa þeir borðtennis með
borðtennisdeild Víkings en þeir
keppa undir nafni ÍK í tennis.
Þeir bræður voru sammála um að
aðstaðan hjá Víkingunum í Foss-
voginum væri sú besta á landinu
en það væri þó ágætt að leika við
Vallargerðisvöllinn. Þeir voru dálít-
ið þreyttir eftir leikinn sem blaða-
maðurinn fylgdist með og tjáðu
þeir honum að völlurinn hefði verið
dálítið rakur og það gerði það erfið-
ara að spila.
Það var farið að styttast í úrslita-
leikinn þannig að blaðamaðurinn
sleppti þeim bræðmm úr yfirheyrsl-
unni og óskaði þeim velfarnaðar í
framtíðinni.
Andrés
Pétursson
skrifar
dóttir og Arney Þórarinsdóttir lentu
síðan í þriðja og fjórða sæti.
í tvíliðaleik stúlkna sigruðu síðan
þær stöllur Úlfhildur og Anna Pála
þær Arneyju og Elisabetu í úrslita-
leiknum.
Jónas Björnsson sigraði í einliðaleik pilta. Morgunblaðið/Andrés Pétursson
Morgunblaðið/Andrés Pétursson
Fjölnir Pálsson stóð sig með sóma
í mótinu. Hér sést hann í leik gegn
bróður sínum Stefáni.
Okkur
langaði til
aðprófa
tennis
Berglind Sigurðardótt-
irog Ragnhildur
Sveinsdóttir í viðtali
Tvær ungar blómarósir fylgdust
með tennismótinu og þegar
blaðamaðurinn spurði þær hvort
þær hefðu hefðu áhuga á tennis
svöruðu þær því feimnislega ját-
andi. Þetta voru vinkonurnar Berg-
lind Sigurðardóttir og Ragnhildur
Sveinsdóttir og komst blaðamaður-
inn að því að þær höfðu tekið þátt
í mótinu og staðið sig með sóma
þótt þær hefðu ekki komist í úrslit.
Þær stúlkur kváðust hafa kynnst
tennis í fyrra er systir Berglindar
hefði byrjað að æfa íþróttina. Þá
hefði vaknað áhugi hjá þeim og
hefðu þær mætt á æfingu hjá ÍK.
Þær vinkonurnar eru miklar
íþróttáhugamanneskjur og æfa líka
knattspyrnu með Breiðablik. Ekki
vildu þær gera upp á milli þessara
tveggja íþróttagreina.
Lék «
fyrstá
Olafs-
firði
Rættviðsigur-
vegarann Úlfhildi
Indriðadóttur
ÚLFHILDUR Indriðadóttir
var sigursælasti einstakl-
ingurá þessu Nike-Dunlop-
móti. Hún sigraði bæði í ein-
liðaleik og ítvíliðaleik með
Önnu Pálsdóttur. Við spurð-
um hana hve lengi hún hefði
æft tennis.
„Ég lék fyrst tennis á Ólafs-
firði en þar er ágætur tenni-
svöllur. Hér í Reykjavík hef
ég æft í tæp tvö ár með ÍK
og Víkingi.
Tennis er mjög skemmtileg
íþrótt en það vantar fleiri
mót til að keppa á. Annars er
þetta lílegast nóg fyrir mig því
ég æfi með 3. flnkki Vals í fót-
bolta. Þar er æft 2-3 sinnum í
viku og síðan er tennis einu sinni
í viku.“
Úlfhildur vildi sem minnst úr
sigrum sínum gera og sagði að
heppnin hefði fylgt henni að
þessu sinni. Greinilegt er að
tennisíþróttin er í sókn hér á
landi þótt að veðurlagið að und-
anförnu hér sunnanlands hafi
að sjálfsögðu sett tennisáhuga-
fólki þröngar skorður.
Ulfhlldur Indriðadóttlr, tvö-
faldur sigurvegari.
Hlnir efnllegu tennisbræður: Stefán og Fjölnir Pálssynir
Berglind Slgurðardóttir og Ragnhildur Sveinsdóttlr.