Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 3 Flugslysið við Reykjavíkurflugvöll: Kanadískir sér- fræðingar rannsök- uðu flakið í gær Enn er óljóst hvað olli slysinu UNNIÐ var í gær að vettvangs- rannsókn í flaki Casa 212-flug- vélarinnar sem fórst við Reykjavíkurflugvöll á þriðjudag. Þá voru komnir til landsins sér- fræðingar frá framleiðendum vélarinnar, kanadíska loftferða- eftirlitinu og fulltrúar eigenda vélarinnar. Unnið var við erfiðar aðstæður á slysstað, þar sem mikil rigning gerði rannsóknar- mönnum erfitt fyrir. Ekkert hef- ur enn komið í Ijós sem skýrir orsakir slyssins og óvíst er hve- nær rannsókn verður lokið. ið búin flugrita enda þess ekki kraf- ist samkvæmt kanadískum reglum á þessari stærð flugvéla. Niðurstaða rannsóknarinnar er ekki að vænta að sinni." Flak flugvélarinnar var flutt af slysstað að lokinni vettvangsrann- sókn í gær. Ekki er enn ljóst hvort það verður geymt hér á landi, eða hvort framhaldsrannsókn á einstök- um hlutum þess fer fram erlendis, að sögn Guðmundar Matthíassonar aðstoðarflugmálastjóra. Morgunblaðið/Einar Falur Sérfræðingar frá Kanada komu til að aðstoða við að rannsaka flak kanadísku Casa 212-flugvélarinnar í gær. Mikil rigning gerði rannsóknarmönnum erfitt fyrir þegar þeir rannsökuðu slysstaðinn. Á mynd- inni sést þegar verið er að flytja flak vélarinnar á brott frá slysstað að lokinni vettvangsrannsókn. Loftferðaeftirlitið gaf í gær út svohljóðandi fréttatilkynningu um rannsóknina: „Rannsókn flugslyss CGILU, Casa 212, sem fórst við Reykjavíkurflugvöll 2. ágúst síðast- liðinn heldur áfram á vegum Flug- málastjóniar og flugslysanefndar. í morgun komu til landsins til aðstoð- ar við rannsóknina fimm fulltrúar frá flugslysanefnd Kanada. Auk þess komu til þess að vera viðstadd- ir til aðstoðar fjórir fulltrúar Casa- flugvélaverksmiðjanna, væntanleg- ir eru fulltrúi flugslysanefndar Spánar og tveir fulltrúar Garrett- verksmiðjanna, sem framleiða hreyfla flugvélarinnar. Vettvangs- rannsókn er nú hafín að fullu, en ljóst er að flugvélin hefur ekki ver- Nokkrir stórir lífeyrissjóð- ir taka lægri vexti en 9,5% FLESTIR lífeyrissjóðanna eða 46 af 69 tóku 9,5% vexti af lánum til sjóðfélaga í byijun þessa árs eða sömu vexti og bankarnir taka að meðaltali af verðtryggðum lánum, samkvæmt könnun sem Samband almennra lífeyrissjóða gerði. Aðrir tóku lægri vexti og Jafnvægi að komast á bílamarkaðinn ÁRIÐ 1988 stefnir í að verða annað í röðinni með fjölda seldra bíla á einu ári hér á landi, næst á eftir 1987. Markaður fyrir nýja bíla leitar nú jafnvægis þar sem um 13 þúsund fólksbilar seljast árlega. Bílaumboð geta þvi ekki aukið sölu sína sem neinu nemur framvegis, nema það verði á kostnað keppinauta. Bílamarkaðurinn hefur breyst úr vaxandi markaði í mettaðan áfyll- ingarmarkað, samkeppni bílaum- boða hefur aukist og þau sem bjóða viðskiptavinum nýtískulega bfla á góðu verði og góða þjónustu munu standa best að vígi í framtíðinni. Þetta jafnvægi á bflamarkaðnum mun haldast, ef ekki koma til sér- stakar aðgerðir stjómvalda sem breyta getu fólks til að kaupa bfla. Eftir óvenjulega mikla bflasölu í fyrra og fram á þetta ár, dró úr sölunni í vor og þau umboð sem þá áttu marga bfla óselda hafa grip- ið til þess ráðs að bjóða þá á útsölu til að rýma fyrir 1989 — árgerð- inni. Þessar upplýsingar koma fram á innlendum vettvangi Morgun- blaðsins í dag, þar sem varpað er ljósi á umbrot á bílamarkaðnum. í frétt í Morgunblaðinu í gær kom fram að fyrstu sjö mánuði þessa árs hafa verið nýskráðir hér 10.674 bílar. Það eru fleiri nýskráningar en nokkru sinni fyrr á heilu ári, ef árin 1986 og 1987 era undan skil- in. Þessi bílainnflutningur er í sam- ræmi við spá Bílgreinasambandsins síðan fyrr á árinu. Þar var gert ráð fyrir að heildarinnflutningur næmi um 16 þúsund bílum á árinu. Gangi sú spá eftir, verður árið 1988 annað mesta innflutningsárið í sögu bíla- innflutningsins, næst á eftir 1987. Sjá „Umbrot á bílamark- aðnum“ á bls. 22. BÆNDUR á Hvammstanga hafa fundað um stofnun nýs hlutafé- lags um rekstur sláturhússins á staðnum. Sláturhúsið á Hvamm- stanga var rekið af Verslun Sig- urðar Pálmasonar sem lýst var gjaldþrota fyrir skömmu. Bændur settu nefnd á laggirnar til að kanna undirtektir sin á meðal og að sögn eins nefndarmanna, Sig- fúsar Jónssonar bónda, ríkir áhugi á stofnun nýs félags. Málið er enn á umræðustigi en áhugi bændanna helgast einpa helst af því að sláturhúsið sem fyrir var sinnti sérstökum þörfum bændanna um dreifðan sláturtíma. Verið er að sækja um sláturleyfi en að sögn þar af fjórir 3,5%, lífeyrissjóðir Landsbanka og Seðlabanka, Bún- aðarbanka, Útvegsbanka og Verkfræðingafélagsins. Fjórir sjóðir tóku 5% vexti, lífeyr- issjóðir Reykjavíkurborgar, Keflavíkur, Neskaupstaðar og Arki- tektafélagsins, og þrír 7%, lífeyris- sjóðir starfsmanna ríkisins, Akur- eyrarbæjar og hjúkranarkvenna. Lífeyrissjóður bænda tók 8,5% vexti og fjórir sjóðir tóku 8%, lífeyrissjóð- ir verslunarmanna, sjómanna, Slát- urfélags Suðurlands og KEA. Sjö sjóðir hafa hætt allri lánastarfsemi til sjóðfélaga. Þeir era lífeyrissjóðir leikara, vörabílstjóra, Reykjaví- kurapóteks, Gutenbergs, Grindavíkur og Hvammstanga og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda. Við upphaf verðttyggingar lífeyrissjóðslána námu raunvextir 2%, en í ársbyrjun 1987 vora vext- imir almennt komnir í 6,2% og era nú og hafa verið á þessu ári 9,5%. Það era stjómir viðkomandi lífeyris- sjóða sem ákveða lánsreglur og í skuldabréfum era vextir yfírleitt miðaðir við vegna meðalvexti bank- anna af verðtryggðum lánum. Það er hins vegar á valdi sjóðsstjórna að ákveða hvaða vextir era teknir af lánum. Gert er ráð fyrir að viðræður um skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna af Byggingarsjóði ríkisins árin 1989 og 1990 hefjist í byrjun næsta mánaðar. Á þessu ári er áætlað að lífeyrissjóðimir kaupi skuldabréf fyrir rúma sex milljarða, en þeir þurfa að kaupa skuldabréf fyrir 55% af ráðstöfunarfé sínu til þess að sjóðsfélagar hafí fúll lánsréttindi. Ríkið greiðir 7% vexti af þessum skuldabréfum í ár. Þegar samið var um þá vexti í fyrrahaust vora vext- ir til sjóðsfélaga almennt 8,1% í ágúst og 8,4% í september. í þeim samningum var gert ráð fyrir að vextimir lækkuðu í 6,5% árið 1989 og 6,1% 1990, en ákvæði um við- ræður um endurskoðun í samræmi við vaxtaþróun. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður verkamannafélagsins Dagsbrúnar, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki sjá fyrir endann á sífelldum hækkunum vaxta. Hann verði í auknum mæli var við það að fólk geti ekki staðið í skilum með afborganir og vexti, sérstak- lega ef það hefur lent í vanskilum. Hann sagðist telja það vel koma til greina að lífeyrissjóðimir athuguðu sinn gang og riðu á vaðið með lækk- un vaxta og athuguðu hvort aðrir fylgdu ekki í kjölfarið. „Ef þessu heldur svona áfram með hækkun vaxta, fer ástandið frá 1983 og 84 að endurtaka sig þegar allt hækk- aði nema kaupið," sagði Guðmund- ur. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Sambands almennra lífeyrissjóða, sagði aðspurður um þetta atriði að það væri sín skoðun að lífeyrissjóðirnir væra þolendur en ekki gerendur í þessum efnum og það væri annarra að ákvarða það vaxtastig sem við lýði ætti að vera. Það væri ekkert kappsmál lífeyrissjóðanna að halda uppi háu vaxtastigi í landinu, þvert á móti, en það yrði að vera um samræmdar aðgerðir stjómvalda og bankanna að ræða, ef menn ætluðu sér að lækka vextina. Hvammstangi: Bændur áhugasamir um stofnun sláturhúss Sigfiísar skýrast þessi mál í næstu viku. Sá háttur hefur verið hafður undanfarin ár á Hvammstanga að slátra í byijun ágúst og fram undir jól og einnig um páska og seinni hluta vetrar. Þetta hefur gert bænd- um kleift að þjóna þeim markaði sem vill ferskt kjöt og hefur þetta reynst bændum vel. Stærri sláturhús geta hins vegar illa sinnt litlum slátranum þar sem allt er þyngra 1 vöfum hjá þeim og óhagstætt að setja slátran í gang á þessum forsendum. Slátur- hús Verslunar Sigurðar Pálmasonar hafði forastu meðal sláturhúsa að sinna ferskkjötsmarkaði, að sögn Eggerts Pálssonar, bónda á Bjargs- hóli. Morcrunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson ífjörunni viðFIateyri ÞESSIR ungu menn stóðu í miklum vegafram- kvæmdum í fjörunni við Flateyri, þegar blaða- maður Morgunblaðsins átti þar leið hjá á dög- unum. Voru þeir í óðaönn við að lagfæra mik- inn „fjallveg", sem þeir höfðu lagt fyrir jeppa sína og máttu ekki vera að því að líta upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.