Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 23
byggist á endumýjun og nýir kaup- endur eru þekkt stærð í hlutfalli við fjölda þeirra sem komast á bílprófsaldur ár hvert. Svipað hefur gerst á öðrum sviðum markað- skerfísins, sumir segja að bíla- markaðurinn hafí verið síðasti neytendamarkaðurinn sem mett- aðist hér á landi. Markaðurinn fyr- ir heimilistæki er mettaður svo dæmi sé tekið, og orðinn dæmi- gerður áfyllingarmarkaður, sama virðist hafa gerst með einmenn- ingstölvur. Vandræði sumra bíla- umboðanna nú stafa einfaldlega af því, að þau sáu ekki fyrir hve- nær færi að hægja á sölunni, jafn- vel gátu ekki séð það fyrir. Erfiðleikarnir Undanfarin ár hafa sum bílaum- boðanna fjárfest mikið í húsnæði, ýmist nýbyggingum eða eldri hús- um. Veltir §árfesti of mikið og réð ekki við þann bita. Margir velta fyrir sér hvort fleiri séu á sömu leið. Það er tilgangslaust að vera með slíkar vangaveltur á meðan engar upplýsingar liggja fyrir um stöðu fyrirtækjanna. Það gefur jafnvel enga áreiðanlega mynd að sjá litla markaðshlutdeild bílaum- boðs, sem hefur nýlega byggt stór- hýsi, þar geta verið margar aðrar stoðir undir rekstrinum svo sem vinnuvélar eða hvaðeina. Fjárfest- ingar einar segja ekki alla söguna. Stöndug fyrirtæki geta byggt án þess að það valdi þeim erfíðleikum, dæmi um það eru Bifreiðar og landbúnaðarvélar, Hekla og Ingvar Helgason. Þó kann að vera að ein- hver bílaumboð hafí ætlað sér um of, eða séu óheppin eins og Veltir var, og þurfí að fjármagna kaupin með innlendum lánum í stað þess að taka lán erlendis, sem hefði verið ódýrara að sögn fyrrverandi forstjóra Veltis, Ásgeirs Gunnars- sonar. Annað, sem veldur erfíðleik- um umboða eru miklar birgðir nýrra og notaðra bíla. Aldrei fyrr hafa verið til jafn margir óseldir, nýir bílar af „gömlu" árgerðinni þegar nýja árgerðin er að koma. Sum umboðin sátu uppi með hundruð bfla, auk tuga, jafnvel hundraða notaðra bíla. Þessar miklu birgðir eru dýrar, ekki síst ef þarf að fjármagna þær með láns- fé, yfírdráttarlán bera um 40% vexti á ári. Gæfumunurinn Einn heimildarmanna okkar orð- aði það svo, að það sem gerði gæfumuninn í rekstri bílaumboð- anna nú væri einfaldlega það hvort rekstur þeirra sé fjármagnaður með lánsfé eða ekki. Þau umboð sem þurfa að knýja rekstur sinn með lánsfé eru í vandræðum, þau þurfa að losa féð og eru þess vegna með útsölur. Ekki sést á þessu hvort vandræðin rista djúpt, hvort þau varða innviði fyrirtækjanna eða hvort þau eru einungis að fírra sig frekara tjóni vegna tregrar sölu.-Eyjólfur Brynjólfsson fram- kvæmdastjóri Jöfurs segir að valið hafí staðið á milli þess, að standa í óvissri og tregri sölu fram á haust með milljónatugi bundna í óseldum bflum, eða að selja á kostnaðar- verði og losa þannig um féð. Jöfur taldi sínum hag betur borgið með því að velja síðari kostinn. Samkeppnin Þegar tollamir lækkuðu sællar minningar jókst salan eins og fyrr segir. Fleira gerðist. Samkeppni umboðanna stóijókst og kom fram í því að þau lækkuðu hlutfallslega álagningu sína. Það er því ekki einhlítt að setja jafnaðarmerki á milli aukinnar sölu og meiri arðs. Fjölga þurfti starfsfólki og í sum- um tilvikum að stækka húsnæðið, einfaldlega til að geta tekið við stærri hópi viðskiptavina. Afleiðing hinnar vaxandi samkeppni er m.a. sú, að hver og einn seldur bíll gef- ur minna af sér en áður. Selja þarf fleiri bfla en áður til þess að ákveðin peningaupphæð sitji eftir í fyrirtækinu. Þessu til viðbótar \ Ofeö'unn f\/esbJVt>cB-.urrvekW \ V\ðt>^u^ftWnooQut , ^0v.\e< ÚZSS&**- sood' 5ÍOÖ'. VÖfOÍ' BfSW'' oö SfOOO' tÍfoQ'P°5 KOOP dóW 7.oton twa'^“naveTs\o u'”Tf óíifööWo' ^OÆ'ö0o^°9^ooo0étö KouP.Vet o»o S\9 séf»oWe9° KAUPSTADUR / MJÓDD „FRÁBÆRT, FALLEGT, GLÆSILEGT-OG ÓDVRr Ánœgðir viðskiptavinir, - okkar styrkur Fólk er mjög ónœgt með útsöluna og viðtökur hafa verið fröbœrar. Enda hafa þúsundirfólks gert reyfarakaup. Fröbœrar vörur, fröbœrt verð. Nýjar vörur komnar fram. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 kemur, að af sömu upphæð verður minna eftir en áður til að leggja til hliðar, vegna aukins tilkostnað- ar. Þetta stendur enn. Að auki kepptust umboðin við að heija á verksmiðjumar til að fá lægra verð, því að íslenski bílamarkaður- inn er afar viðkvæmur að því leyti. Umboðin sem blakta eru þau, sem geta boðið lægst verð, nýtískuleg- ustu bílana og bestu þjónustuna. Er þetta ekki neytendum til góða? Jú, að vissu marki. Verið getur að eitthvert bílaumboðið gangi full nærri sér í samkeppninni með þeim afleiðingum að það geti ekki hald- ið uppi eðlilegri og nauðsynlegri þjónustu. Þá er illa komið fyrir neytandanum, sem keypti hjá þeim bflinn sinn. Útsölurnar Útsölumar nú eru ekkert sem ekki hefur gerst áður. Það sem er sérstakt núna er það, að þær eru fyrr á ferðinni en venjulega, boðinn er meiri afsláttur en tíðkast hefur og fleiri bílar en áður fást á þessum vildarkjörum. Annars eru_ þessar útsölur af tvennum toga. I fyrsta lagi eru þær sem bjóða alla eða nánast alla bíla viðkomandi um- boðs. Þá er fjármagnsbyrðin of mikil, pantað hefur verið of mikið. í sumum tilvikum þurfa umboðin að panta og kaupa bíla sína með állt upp í sex mánaða fyrirvara og er því erfítt að sjá fyrir nákvæm- lega hvenær salan hægði á sér. I öðru lagi eru þær útsölur, þar sem umboðin bjóða fáa bíla af einni eða tveimur gerðum. Þeir bílar eru að þvælast fyrir og þess vegna er reynt að losna sem fyrst við þá. Dæmi um þetta eru Nissan Prairie og Toyota GTi bílar. Athyglisvert er, að þau umboð sem selja mest um þessar mundir, bjóða ekki af- slátt eða sérstök vaxtakjör. Mitsubishi, Toyota, Subaru og Lada til dæmis eru seldir fullu verði og lánakjör eru venjuleg. Framtíðin Ennþá er það sem fyrir tveimur árum hefði verið kallað bullandi bílasala. Notaðir bílar seljast sem aldrei fyrr. Halldór Snorrason bíla- sali segist ekki muna skemmtilegri tíma í bílasölu og er gamall í hett- unni. Aukið framboð hefur haft hvetjandi áhrif á kaupendur. Þótt aldrei hafi verið fleiri bílar til sölu, ganga skiptin liðugt og mikið er um staðgreiðslu. En nú þýðir lítið að bjóða eldri bíla en árgerð 1980. Þessir hektarar á bílasölunum þaktir af freistingum hafa sín áhrif á kaupgleðina. En takmörk eru fyrir öllu. Fólk kaupir ekki bíl til þess að prýða garðinn sinn með honum. Komi ekki til róttækar aðgerðir stjórnvalda sem hafa áhrif á bílverð, má gera ráð fyrir að þetta jafnvægi sem nú virðist hafa náðst muni haldast. Það er, að fluttir verði inn 13 til 15 þúsund nýir bílar á ári og bílafloti lands- manna haldist við þetta 130 til 135 þúsund bíla. Umbrotin á markaðn- um eru þó ekki búin. Innflutningur og sala hafa ef til vill náð jafn- vægi, en umboðin eiga eftir að ná fótfestu í þessu ástandi og þau eiga eftir að endurskipuleggja hemaðaráætlanir sínar, nú verður farið að beijast um sneiðar köku sem stækkar ekki meir. Lokaorð Við munum áfram búa við mikla samkeppni bílaumboða. Þau munu beijast hart og nú þurfa þau held- ur betur að beita stjómvisku í rekstrinum. Ekki dugir lengur að treysta á sívaxandi sölu eða önnur „síldarævintýri". Þau umboð munu fljóta best sem ná besta verðinu í samningum við verksmiðjurnar, hafa nýtískulegustu bílana, bjóða bestu þjónustuna og ná mestri hagkvæmni í rekstri. Að tala um kreppu hljómar dálítið undarlega þegar bílainnflutningur er meiri en hann hefur nokkru sinni verið, ef undan er skilið árið í fyrra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.