Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 56
Kröfur í þrotabú Stokkfisks 120 millj. Húsavik. LÝSTAR kröfur í þrotabú fyrir- tækisins Stokkfisks á Laugnm í Þingeyjarsýslu nema samtals um 120 milljónum. Stærstu kröfuhaf- ar eru Búnaðarbanki íslands og Byggðasjóður, samtals með 47,3 milljónir króna. Skiptafundur í skiptarétti Þing- eyjarsýslu vegna gjaldþrots Stokk- fisks var haldinn á Húsavík í gær af fulltrúa sýslumanns, Sigurði Bri- em Jónssyni, að_ viðstöddum bráða- birgðabústjóra, Ásmundi S. Jóhann- essyni héraðsdómslögmanni og lög- mönnum, umboðsmönnum kröfu- hafa. Lýstar kröfur í búið frá um 80 kröfuhöfum nema samtals um 120 milljónum. Sem fyrr sagði eru stærstu kröfuhafar Búnaðarbanki Islands, 33,1 milljón, og Byggðasjóð- ur, 14,2 milljónir. Skrá um eignir búsins og mat þeirra lá ekki fyrir. Á fundinum voru flestar lýstar kröfur samþykkt- ar en frambomar voru nokkrar at- hugasemdir sem fresta varð ákvörð- un um til næsta skiptafundar. Bústjóri var kosinn Ásmundur S. Jóhannesson. - Fréttaritari Aldraðir: Mjaðmar- brotin kosta 250 milljónir í VIÐTALI við Brynjólf Mogen- sen, sérfræðing í bæklunarlækn- ingum, í Morgunblaðinu í dag, kemur m.a. fram að mjaðmarbrot kosta þjóðfélagið um 250 milljón- ir króna á ári. Langflest mjaðm- arbrot má rekja til beinþynning- ar, en Brynjólfur segir beinþynn- ingu sennilega einn af dýrustu sjúkdómum þjóðfélags þar sem meðalaldur fólks er hár, eins og raunin er hér á landi. Að sögn Brynjólfs kostar hvert mjaðmarbrot nú um 800 þúsund krónur. Þeir sem mjaðmarbrotna þurfa yfirleitt að liggja í um mánuð á sjúkrahúsi, en þar kostar hver. dagur um 15 þúsund krónur. Þar bætist svo við kostnaður við heima- hjúkrun og heimilishjálp. Hér á landi eru nú gerðar um 300 aðgerðir ár- lega vegna mjaðmarbrota. Beinþynning þjakar einkum konur sem komnar eru yfir miðjan aldur og þarf þá oft lítinn áverka til að brotna um úlnlið eða mjöðm. Karl- menn geta einnig fengið beinþynn- ingu en samskonar beinbrot fara ekki að láta á sér kræla hjá þeim fyrr en tíu árum síðar. Til þess að hægja á eða koma í veg fyrir beinþynningu er helsta ráðið að neyta kalks og lýsis sem bindur kalkið í líkamanum, fjöl- breytt mataræði, stunda heilbrigt lífemi og hreyfa sig mátulega. Þess- ir þættir stuðla að því að byggja upp góðan beinmassa sem minnkar líkur á beinþynningu og beinbrotum tengdum henni, segir Brynjólfur. Sjá bls. 2 og 3c. FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR. Morgunblaðið/BAR Skrúðganga í SUMAR hefur íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur staðið fyrir sumarnámskeiðum fyr- ir börn í tengslum við tíu hverfamiðstöðvar borg- arinnar og hafa um tvö hundruð börn sótt þau. Námskeiðunum lauk í gær með skrúðgöngu. Börnin gengu niður Laugaveg frá Hlemmi að í rigningunni Hljómskálagarðinum og siðan fór hver hópur í sina hverfamiðstöð, þar sem boðið var upp á veitingar og farið í leiki. Börnin voru máluð í andliti en úrhellisrigning sá um að þvo málning- una af flestum. Rigningin gat hins vegar ekki eyðilagt góða skapið. Greenpeace: Hvalveiðum mótmælt í 50 borgum Beinist gegn fiskkaup- um 3 veitingahúsakeðja GREENPEACE-náttúruverndar- samtökin hyggjast efna til mót- mæla gegn hvalveiðum íslend- inga í fimmtíu af stærstu borgum Bandaríkjanna 16. ágúst næst- komandi til þess að reyna að hafa áhrif á eigendur veitinga- húsa að kaupa ekki islenskan fisk. Mótmælin beinast gegn þremur stórum veitingahúsa- keðjum; Burger King, Wendy’s og Long John Silver. Að sögn Deans Wilkinson tals- manns grænfriðunga í Banda- ríkjunum, munu 10-100 manna hópar safnast saman við veitinga- hús í eigu stórfyrirtækjanna þriggja, halda á lofti spjöldum og hrópa slagorð gegn hvalveiðum ís- lendinga. Að sögn Magnúsar Gústafssonar hjá Coldwater Seafood, dótturfyrir- tæki SH í Bandaríkjunum, hafa við- skiptamenn fyrirtækisins látið í ljósi áhyggjur vegna fyrirhugaðra að- gerða grænfriðunga, en ekki hefur dregið úr sölu né samningum verið rift eða frestað þeirra vegna. Pétur Másson, upplýsingafulltrúi Coldwater, sagði að málaferli Grænfriðunga á hendur viðskipta- ráðherra Bandaríkjanna til þess að knýja fram staðfestingarkæru um viðskiptabann á íslendinga, hefðu ekki haft áhrif á sölu fyrirtækisins. Málaferlin hófust á miðvikudag. Dean Wilkinson sagðist ekki búast við neinni niðurstöðu í því máli strax, þar sem ríkisstjórnin hefði 60 daga til þess að bregðast við kærunni. Hann sagðist heldur ekki gera sér vonir um mikinn árangur af aðgerðum grænfriðunga í þessu máli fyrir árslok, þar sem svo virt- ist sem Bandaríkjastjóm ætlaði að halda fast við samkomulag sitt við Islendinga. „Við teljum hins vegar góðar líkur á að vinna mál okkar fyrir dómstólum og að niðurstaða verði fengin fyrir næstu hval- vertíð," sagði Wilkinson. Sljórn Landakots segir að ríkið verði að greiða halla spítalans: Telur sérstaka eftirlitsstjóm yfir Landakotsspítala óþarfa Eftirlitsstjórnin grundvöllur heildarsamkomulags segir heilbrigðisráðherra STJÓRNENDUR Landakots telja að ríkissjóður verði að greiða halla á rekstri spítalans skilyrðis- laust þar sem Landakot hafi að- eins verið að halda uppi þeirri þjónustu sem heilbrigðisyfirvöld hafi krafist en framlög á fjárlög- um hafi verið vanáætluð. Þeir telja að eftirlitsstjórn sú, sem fjármálaráðherra og heilbrigðis- ráðherra vilji setja yfir fjármál Landakots, sé óþörf, þar sem að- eins sé um að velja fyrir rikissjóð að aðlaga fjárlög að kröfum til spítalans eða minnka kröfurnar. Guðmundur Bjarnason heilbrigð- isráðherra segir hins vegar að eftirlitsstjómin geti orðið grund- völlur að samkomulagi allra aðila um hvaða þjónustu spítalinn eigi að veita og hvað hún eigi að kosta og slíkt samstarf geti ekki síður orðið hagstætt fyrir spítalann en stjórnvöld. Yfirstjórn Landakotsspítala gerði í gær opinberlega grein fyrir sínum sjónarmiðum varðandi fjárhags- vanda spítalans. Telur hún að staðið hafi verið að rekstri spítalans í sam- ræmi við skipulagsskrá sjálfseignar- stofnunarinnar, sem rekur spítalann, og lög um slíkar stofnanir. Hins vegar hafi raunhæfar áætlanir spítalans, miðað við fullan rekstur, verið skornar niður við gerð fjár- laga, þannig að jafnan hafi verið fyrirsjáanlegur halli um 10% á hverju ári. Spítalinn hafi ítrekað bent yfirvöldum á þá staðreynd að ekki væri samræmi milli þeirra krafna sem til hans væru gerðar og niðurstöðu á fjárlögum. Fulltrúaráð Landakots óskaði í gær eftir viðræðum við ráðherra fjármála og heilbrigðismála, þar sem ráðið telur að í samkomulagi ráð- herranna frá því í síðustu viku, um aðgerðir til lausnar rekstrarvanda spítalans, séu ákvæði sem ekki standist og séu í ósamræmi við stofnsamning spítalans. Guðmundur Bjamason heilbrigðisráðherra segist fús til að ræða við stjórn spítalans en Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra sagði við Morgun- blaðið að hann teldi ekki sérstaka ástæðu fyrir sameiginlegum viðræð- um. Stjóm Landakots myndi þó gera heilbrigðisráðherra grein fyrir sínum sjónarmiðum og ef þar kæmi t.d. fram að eitthvað af tillögum ráð- herranna reyndust bijóta í bága við stofnsamninginn, yrðu þau atriði athuguð nánar en að öðru leyti stæði samkomulagið óhaggað. Guðmundur Bjarnason sagði við Morgunblaðið að hann teldi þriggja manna eftirlitsstjórn sem ráðherr- amir gerðu tillögu um, skipaða ein- um frá hvoru ráðuneyti og einum frá spítalanum, ekki brjóta gegn stofnsamningnum, þar sem ekki sé verið að setja neina stjórn spítalans af heldur koma á samstarfshópi ráðuneytanna tveggja og spítalans. Sjá nánar fréttir á miðopnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.