Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
7
SteingTÍmur St. Th. Sigurðsson listmálari við eina af myndum sínum. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Eg er kontra-skæruliði í listínni
- segir Steingrímur St.Th. Sigurðsson list-
málari, en sýningu hans lýkur á sunnudag
Seifossi.
„HÉR ER alþjóðlegur sölustaður í Eden, eins konar Istanbul og hér
er skemmtilegt að sýna. Það er líka gott að vera hér undir stjórn
Braga kapteins, sem ég virði mikils,“ sagði Steingrímur St. Th.
Sigurðsson listmálari, sem heldur þessa dagana sína 64. málverka-
sýningu í Eden í Hveragerði. Á sýningunni eru 50 myndir og allar
nýjar af nálinni nema tvær. Sýningin er opin til 7. ágúst og er sú
tólfta sem Steingrímur heldur í Eden síðan 1974, en hann var fyrst-
ur til að halda þar málverkasýningu.
Sýning Steingríms er tileinkuð
Vestmannaeyjum og Snæfellsnesi,
þessum tveimur orkustöðvum eins
og segir í sýningarskrá. Ennfremur
er sýningin haldin til þess að heiðra
minningu Péturs Torfasonar
Sívertsens ( Höfn.
„Ég tek sýningamar eins og
hnefaleikakeppni. Maður er í sam-
keppni við sjálfan sig og sitthvað
annað sem verður á vegi manns.
Ég mála myndimar eftir að hafa
fengið hugljómun. Ég er heillaður
af sjónum og legg til atlögu við
mótívið þegar ég er kominn með
100 prósent áhuga á því,“ sagði
Steingrímur ( kaffíspjalli í Eden.
Hann málaði flestar myndanna á
þessu ári, ýmist undir berum himni
ellegar S vinnustofu sinni í Stakk-
hamri ( Miklaholtshreppi. „Þar
finnur maður ferskleika og end-
umýjunarkraft," sagði Steingrím-
ur.
„Núna í seinni tíð safna ég
krafti S meiri heilsu og sjálfsvirð-
ingu. Einnig bjartsýni svo myndim-
ar njóti góðs a!f,“ sagði Steingrímur
og hló við.
Hann kvaðst stefna að því að
sýningin gengi það vel að hann
gæti einn og óstuddur sest að úti
á landi þar sem væri gott andrúms-
loft, til þess að ljúka við tvær bæk-
ur sem hann ynni að. Að hans sögn
er önnur „hasarderuð" bók þar sem
ýmislegt verður sagt sem fáir hafa
þorað að segja áður. Hin er unnin
úr eldri ritverkum en Steingrímur
hefur áður skrifað 5 bækur.
„Ég ér kontra-skæruliði (listinni
og vil að listamenn séu í óskipu-
lögðum félagsskap. Það er barátta
að halda sýningar, lífið er barátta
og ég er óhræddur við lífið. Það
er ekkert að óttast í þessu lífi nema
mann sjálfan. Þetta em ormstur
og ég vil deyja í ormstu eins og
fommenn," sagði Steingrímur
kankvís og lét þess getið að hann
hefði þá um daginn nýlokið við að
tryggja sýninguna hjá tryggingafé-
lagi bindindismanna. Það væri í
takt við heilsusamlegt og kraftmik-
ið lífemi. — Sig. Jóns.
Skotveiðifélagið:
Hyggjast kæra dráp
á gæsum í sárum
Skotveiðifélag íslands hefur
sent frá sér bréf, þar sem bent
er á að sá tími fari nú í hönd er
gæsir séu í sárum eða fari í felli,
eins og það er einnig nefnt. Fugl-
inn getur þá ekki flogið og á
engan griðastað annan en ár,
vötn og sjó. Að sögn skotveiði-
manna hafa þeim borist af því
fréttir undanfarin ár að menn
drepi gæsir í sárum í verulegum
mæli og noti til þess m.a. létta
hraðbáta og ífærur.
„Skotveiðifélag íslands vill benda
hlutaðeigendum á að gæsaveiðar á
þessum tíma em bannaðar með lög-
um,“ segir í bréfi SKOTVÍS. „Auk
þess fordæmir stjórn félagsins
þessa aðferð við fugladráp og skor-
ar á menn að vera vel á verði gegn
slíku athæfi. Verslanir, kaupmenn
og veitingahúsaeigendur em hér
með varaðir við að kaupa þessa
ólöglega fengnu bráð, enda er hér
um allt annan gæðaflokk villibráðar
að ræða en haustskotinn fuglinn.
Félagar í SKOTVÍS munu umsvifa-
laust kæra alla þá, sem staðnir
verða að drápi gæsa í felli, enda
er hér um að ræða lögbrot og gróft
siðabrot. Stjóm félagsins mun
áminna og hvetja lögreglu, sýslu-
menn og önnur yfirvöld úti á landi
til að vera vel á verði við þessum
verknaði," segir í bréfinu.
Þá segjast skotveiðimenn munu
upplýsa bændasamtökin um málið
og hvetja landeigendur til að veita
mönnum ekki aðgang að svæðum,
þar sem hætta er á að lögbrot verði
framin. Stjóm SKOTVÍS skorar á
alla sem gmna menn um ólöglegt
athæfí af þessu tagi að koma upp-
lýsingum um það til stjómar félags-
ins eða löggæsluyfírvalda.
Stórmót
á Hellu
Syðra-Langholti.
ÁRLEG Stórmót sunnlensku
hestamannafélaganna fer fram á
Hellu næstu helgi, 6.-7. ágúst.
Mótið hefst kl. 9 á laugardags-
morgun með dómum á *kynbóta-
hryssum en nær 70 hryssur verða
sýndar á kynbótasýningunni. Á
laugardaginn fer einnig fram undan-
keppni í gæðinga- og unglingaflokk-
um. Em 16 í hveijum flokki, keppa
tveir frá hveiju félagi, þeir sem efst-
ir hafa orðíð á hestaþingum félag-
anna í vor og sumar. Þá fara einnig
fram undanrásir kappreiða og fyrri
sprettir í skeiði síðdegis á laugardag.
Á sunnudaginn verður hópreið um
hádegisbil, síðan úrslit kappreiða,
kynbótahross í efstu sætum kynnt
og síðan úrslit í unglinga- og gæð-
ingakeppnum. Er reiknað með
líflegu og skemmtilegu móti.
- Sig.Sigm.
Slitsterkt lakk með sérstakri ryðvörn
Handpumpa
Lokaður keðjukassi
Niðsterkt stell og
* framgaffallmeð12áraábyrgð
Spitalastig 8
við Óðinstorg
Símar: 14661 og 26888
Það fer ekki á milli mála að v-þýsku Montana- og Kalk-
hoff- hjólin, sem hlotið hafa sérstaka viðurkenningu í V-
Þýskalandi, eru hjól ársins vegna einstaklega fallegs útlits
og sérstakra gæða.
Við getum nú boðið nokkur hjól á einstöku tilboðsverði
vegna hagstæðra samninga.
Öryggishandfang meðfingragripi
Vandaður
3-girabúnaður
Auka handbremsa
Sterkur bögglaberi
Afturljós
Allur Ijósabunaður
DOMU:
Stærð Aldur Verð
20“ án gira fyrir 6-9 ára kr. 8.650,-
24“ ángíra fyrir9-12ára kr. 8.970,-
24"3gírar fyrir 9-12 ára kr. 11.430.-
26“ án gíra fyrir 12 ára og eldri kr. 9.320.-
26“3gírar fyrir 12 ára og ekdri kr. 11.960,-
28“ 3 gírar fyrirfullorðna kr. 11.970.-
HERRA:
Stærð Aldur Verð
26“ 3 girar 12áraog eldri kr. 11.960,-
28“3gírar fyrir fullorðna kr. 11.970.-
28“ 10 girar fyrirfullorðna kr. 12.210.-
Sérverslun /». Reiðhjólaverslunin---
iswr ORNINNl
Breiðari dekk
Teinaglit
Örugg fótbremsa