Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 Svíþjóð: Júgóslavía: Tilkynnt um frekari efna- hagsaðgerðir stjómarinnar Belgrað, Reuter. JÚGÓSLAVNESK sljórnvöld hrundu af stað öðrum þætti efna- hagsráðstafana sinna í gær, þrátt fyrir að fyrirsjánlegt sé að órói meðal launþega aukist enn við þessar aðgerðir. í þeim felst að matvæla- og orkuverð hækkar Tengsl milli drykkju og bijóstkrabba Chicago. Reuter. VÍSINDAMENN í Bandaríkjun- um hafa fundið fylgni milli áfengisneyslu og btjóstkrabba, segir í skýrslu sem .byggir á 16 læknisf ræðilegum rannsóknum og birtist í tímariti bandaríska læknafélagsins í gær. í skýrslunni segir að rök hnígi að því að því meira áfengi sem kona innbyrðir því meiri sé hættan á krabbameini í brjósti. Þessi álykt- un er þó einungis byggð á tölfræði- legum athugunum. Rannsóknir sýna að konum sem drekka að meðaltali tvo sjússa eða fleiri á dag er 70% hættara við brjóstkrabba en konum sem drekka einn sjúss eða minna á dag. Það er tekið fram í skýrslunni að drykkja í hófi geti dregið úr streitu og hættunni á hjartaáfalli. gífurlega og sömuleiðis verð á þjónustu. í maí síðastliðnum voru launahækkanir, neysla og fjár- festingar heftar að ósk vest- rænna lánadrottna Júgóslava, en þær ráðstafanir voru kveikjan að miklum mótmælum launþega í landinu, sem kenndu lélegri stjórnun og spillingu um ófarir júgóslavnesks efnahags. Ráðstafanimar í gær fólust í því að verðlag var gefið fijálst. Raf- magnsverð hækkaði þegar um 40%, jámbrautarfargjöld um 70% og matarolía um 66%. Talið er að verð á gasi og símþjónustu muni einnig hækka verulega. Verðhækkanir þessar munu hafa áhrif á nær allt vömverð annað, en þegar berjast fjölmargar fjöl- skyldur í bökkum. Meðaltekjur jafn- gilda um 4.500 íslenskum krónum á mánuði, sem er töluvert minna en fjögurra manna fjölskylda kemst af með samkvæmt opinberum tölum. Drög að efnahagsráðstöfunum þessum vom gerð í samráði við Alþjóðagjaldeyrirssjóðinn, en gegn þeim féllst sjóðurinn á að veita Júgóslavíu 430 milljón dala láns- ábyrgð, ný lán og skuldbreytingu á erlendum skuldum, en þær nema um 21 milljarði Bandaríkjadala á Vesturlöndum einum. Ráðstafanimar miða að því að endurreisa júgóslavneskan efna- hag. Innflutningshömlum verður t.a.m. aflétt og er vonast til þess að erlendar vömr muni veita inn- lendum þá samkeppni, að júgóslav- neskir framleiðendur verði að bæta rekstur sinn. Verðbólga í Júgóslavíu nemur um 189%, en verðhækkanir á mat- vöm undanfarið ár hafa numið 206%. Áætlun stjómvalda er að í árslok verði hún aðeins um 95%, en efnahagssérfræðingar stjórnar- innar segja slíkt nær vonlaust úr þessu. í ár hafa um 600 verkföll blossað upp í Júgóslavíu vegna efnahagsað- gerða stjómarinnar. Meðal annars gengu verkamenn fylktu liði í Belgrað gegn kommúnistastjóm- inni í fyrsta skipti og einu sinni mddust þeir meira að segja inn í þingsali. Reuter Á myndinni sjást frá vinstri Dimitri Jazov, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, Frahk Carlucci, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og Andrej Gromyko, forseti Sovétríkjanna. Valdsmennirnir þrír áttu viðræður í sumarleyfisborginni Jalta á Svartahafsströnd Sovétríkj- anna á miðvikudag. Heimsókn Carluccis tíl Sovétrfldanna lokið Sevastopol, Sovétrikjunum. Heuter. FRANK Carlucci, landvarna- málaráðherra Bandaríkjanna, lauk í gser opinberri heimsókn sinni til Sovétríkjanna. Heim- sóknin var liður í nýlegu sam- komulagi risaveldanna um gagn- kvæm samskipti yfirmanna á sviði varnarmála til að auka skilning þeirra í milli. Carlucci hélt í gær til Tyrklands þar sem hann mun dveljast í fjóra daga. Á miðvikudagsmorgun flaug Carlucci til borgarinnar Simferopol á Krím-skaganum og hélt þaðan á fund Dimitris Jazovs, landvama- málaráðherra Sovétríkjanna, og Andrejs Gromykos forseta til við- ræðna um samskipti Sovétmanna og Bandaríkjamanna en forsetinn er nú í sumarleyfi skammt frá borg- inni Jalta við Svartahafíð. Carlucci sagði Gromyko að Bandaríkjamenn væru staðráðnir í að vinna ötullega að því með Sovétmönnum að ná samkomulagi um 50% fækkun lang- drægra kjamavopna. Samkvæmt fregnum TASS-fréttastofunnar sovésku sagði Gromyko að Sovét- menn vildu frið bæði vegna þess að það væri undirstaða utanríkis- stefnu þeirra og jafnframt vegna þess að þeir vildu einbeita sér að áformum Gorbatsjovs Sovétleiðtoga um innanlandsumbætur. Síðar skoðaði Carluci flotastöð Sovétmanna í borginni Sevastopol og hefur það ekki gerst að vest- rænn valdamaður hafi fengið að skoða stöðina síðan Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti var þar árið 1945 í boði Stalíns. Ráðherrann fór m.a. um borð í beitiskipið Slava sem er 10.500 tonn að stærð og getur borið 16 kjamaflaugar. Spurði hann margs og og voru svör- in oft löng og ítarleg. Áður hafa Sovétmenn sýnt ráðherranum nýtísku herflugvélar þ.á m. „Blackjack" sprengjuþotuna. Stofnaður sjóður í nafni Wallenbergs Stokkhólmi. Rcuter. FJÖLSKYLDA Raouls Wallen- bergs minntist 76 ára afmælis hans í gær með því að gera opin- bert að stofnaður hefði verið sjóður í nafni hans. Tilgangurinn er sá að skrásetja störf Wallen- bergs á árum síðari heimsstyrj- aldarinnar er hann bjargaði þús- undum gyðinga frá útrýmingar- búðum nasista. í tilkynningu ættmenna Wallen- bergs sagði að ákveðið hefði verið að veita háskólanum í Uppsölum og ótilteknum bandarískum háskóla 500.000 Bandaríkjadali (um 23 milljónir ísl. kr.) í þessu skyni. Wallenberg starfaði sem fyrsti sendiráðsritari í sænska sendiráð- inu í Búdapest er hann tók, einn og óstuddur, að bjarga gyðingum undan ógnunum nasismans m.a. með því að láta þeim í té sænsk vegabréf. Talið er að hann hafi bjargað lífi þúsunda manna með þessum hætti. Wallenberg hvarf í janúar árið 1945 er sovéskar hersveitir tóku Búdapest. í orðsendingu frá Sovét- stjóminni til yfírvalda í Svíþjóð árið 1957 sagði að Wallenberg hefði látist í Lubyanka-fangelsi í Moskvu árið 1947. Hins vegar hafa fyrrum fangar sagt að þeir hafi séð Wallen- berg og því hefur verið haldið fram að hann hafí verið á lífí allt fram á þennan áratug. Þessu hafa sov- éskir embættismenn þráfaldlega neitað. Fjölskylda Wallenbergs tel- ur hugsanlegt að hann sé enn á lífi. „Glasnost-stefnan, sem nú hefur •-'verið innleidd í Sovétríkjunum, vek- ur hjá okkur vonir um að fjallað verði um mál Raouls í anda henn- ar,“ sagði Nína Lagergren, hálf- systir hans í gær. Bretland: Votviðrasam- ur júlímánuður St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. MIKIL vætutíð var í júlf í Eng- landi, Skotlandi og Wales. í Skotl- andi var síðasti júlimánuður sá versti frá því að mælingar hófust árið 1869. í Fort William, bæ á vesturströnd Skotlands, féll mest rigning, um 36 sentimetrar. í Englandi og Wales var mánuður- inn sá versti frá 1936. í Manchester féllu um 16 sentimetrar af regni, í Lundúnum um sjö sentimetrar. í Lundúnum féll einhver rigning hvem dag júlímánaðar, sem hefur aðeins einu sinni gerst frá því að skráning hófst fyrir 340 árum, en það var árið 1970. Mörg þúsund manns gengu um götur Teherans, höfuðborgar írans, á þriðjudag til að lýsa yfir stuðn- ingi við Khomeini erkiklerk. Persaflóastríðið: - De Cuellar fær skýrsiu um vopnahlésmöguleika SÞ. Reuter. AÐALRITARI Sameinuðu þjóð- anna, Perez de Cuellar, fékk í gær skýrslu frá nefnd sem samtökin sendu til írans og íraks til að kynna sér möguleika á vopnahléi S stríði rikjanna. Áhyggjur fóru vaxandi i gær vegna ásakana ír- ana um að Irakar hafi aftur notað efnavopn gegn óbreyttum borg- urum. Einnig bárust fréttir af árás írana á norskt olíuskip. Formaður nefndar SÞ, Norðmað- urinn Martin Vadset, sagði frétta- mönnum þó í gær að báðir stríðsaðilar hefðu reynst honum samvinnufúsir. De Cuellar mun notfæra sér niður- stöður skýrslunnar er hann skipu- leggur störf 250 manna eftirlits- herliðs, sem SÞ hyggst senda til landamæra ríkjanna strax og vopna- hléi hefur verið komið á. Aðalritarinn hugðist ræða við utanríkisráðheira írana, Ali Akbar Velayati, í gærdag. Síðast ræddi de Cuellar við íraska utanríkisráðherrann, Tareq Aziz, á föstudag en ríkin tvö deila nú um skilyrðin fyrir því að hefja formlegar vopnahlésviðræður. Irakar heimta að þær verði beinar og milliliða- lausar en íranir vilja að fulltrúar Sameinuðu þjóðanna taki þátt í þeim. íranskar þotur létu í gær vél- byssukúlum rigna yfír norskt risa- olíuskip á Persaflóa en skemmdir urðu litlar og engan sakaði. Velay- ati utanríkisráðherra sagði í gær að írakar hefðu notað sinnepsgas í árás á íranskt landsvæði og hefðu um eitt þúsund manns skaddast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.