Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
45
HEILBRIGÐISMÁL
Þannig litu gnttarnir út fyrir
mörgum árum.
uppskurðum lauk á fáeinum árum
og hefur Dominique búið með kær-
asta sínum heima í Frakklandi
síðastliðin fjögur ár og verið mjög
hamingjusöm.
Sá yngri, Yannick, eða sem nú
heitir Alix, er tuttugu og tveggja
ára, og víst má segja að hvorki
fari þar karl né kona, þar eð með-
ferð er ekki lokið enn. Alix á einn-
ig kærasta, sem er fráskilinn með
tvö unglingsbörn.
Foreldrum þeirra varð að vonum
hverft við ákvörðun elsta sonar síns,
Foreldrar með dætrum sínum og Mikael yngsta syninum.
en voru öllu vön þegar sá yngri lét
einnig í ljós óánægju með kyn sitt,
fáum árum síðar, og gerðu þau sér
þá grein fyrir að hvorugur sonurinn
ætlaði í fótboltann. „Þetta var mik-
ið áfall fyrir mig og konu mína. En
í dag sættum við okkur við þessa
staðreynd, þetta er þeirra líf ekki
okkar.“ sagði faðir þeirra.
Hann bætti þvi við að hann hefði
í kjöifarið af umbreytingunum feng-
ið áhyggjur af því að verða gjald-
þrota, því ef dætumar gifta sig
með pompi og pragt er jú siðurinn
sá að faðir brúðarinnar greiði kostn-
að við tilstandið. Þetta hafði'honum
sjálfsagt ekki dottið fyrst í hug
þegar þeir fæddust.
Þau eiga einn son til, sem er
sextán ára gamall. Honum varð
ekki mikið bylt við sjokkið sem for-
eldrarnir fengu þegar ákvörðunin
var tekin í fyrsta sinn fyrir átta
árum, þá barn að aldri. í hans aug-
um breytir það engu hvort þeir séu
bræður eða systur, hann eigi að
minnsta kosti ekki við sömu vanda-
mál að stríða.
Liz Taylor á sjúkrahúsi
Stórstjaman Liz Taylor þarf
að gangast undir áhættusam-
an uppskurð sem gæti leitt til
fötlunar, en leikkonan fræga hef-
ur verið bakveik í mörg ár. í
síðustu viku við töku nýjustu
myndarinnar sem hún leikur í
lagðist hún- inn á sjúkrahús undir
nafninu Beth Warner.
Liz sem er fimmtíu og sex ára
að aldri hefur verið sagt að án
uppskurðar verði hún öryrki. Er
haft eftir vini leikkonunnar að
þetta sé hennar síðasta tækifæri
til þess að losna við þjáningar í
baki og hún sé þess fullmeðvituð.
„Hún hefur verið vöruð við því
að eftir uppskurðinn væm 10%
líkur á því að hún verði bundin
við hjólastól það sem eftir væri.“
Bakverkir byijuðu að hijá hana
strax á unga aldri þegar hún sem
barnastjarna árið 1944 féll af
hestbaki við töku á kvikmynd sem
hún lék í. Eftir það hafa síendur-
tekin veikindi gert vart við sig og
hefur hún gengist undir einn upp-
skurð áður, og oft legið á sjúkra-
húsi vegna þessa. Offita hér áður
setti einnig mark sitt á veikindin.
Einn kvikmyndatökumaðurinn
sagði að hún hefði greinilega
gengið í gegn um miklar þjáning-
ar meðán á töku myndarinnar
stóð, og var hún í hjólastól í upp-
tökuhléum. Leikkonan hélt þján-
ingarnar út í marga daga en á
endanum var hún innskrifuð á
sjúkrahús og var henni flogið í
einkaþotu unnusta síns, milljóna-
mæringsins, Malcolm Forbes, til
Los Angeles þar sem hún liggur
nú.
Frá reiptoginu
milli vinnuhópa.
Um 2.000
pylsur
voru
grillaðar
á loka-
hátíð
Vinnu-
skólans.
REYKJAVlK
hillueininga-
kerfið
Raðaðu upp
eftir eigin
smekk og þú
færð
hillusamstæðu
eða hengi
sem er
stflhreint,
einfalt
og fallegt