Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 15 NÚsiUr 'ihanij íiwi) 1R0SA5IAOIR' IASTAOI MOPK MINS FRIOHELOA IANOS' SAMKV. tOOUH M« 59. 7-5 í»íl Hr V«*»» I 'hltnpaln i ■ M' i'HEIÖAR^*!] * <«5$& * "'PiMtöt3J3-ApINN OO -tÍNljtiv&plpl _Mpjóhol.r'ön og áh/ffbiand / jplUJNCAVAIN Horft meðfram sumarbústöðum við Hallinn í átt að Þingvöllum. Samningar um sumarbústaði í þjóðgarðinum renna út á næstu árum og verða þeir ekki framlengdir nema þá til tíu ára í senn. þar eru þeir komnir inn í friðland þjóðgarðsins. Mikil umferð í þinghelginni Þingstaðurinn forni og næsta nágrenni hans, þinghelgin, er sögu- frægastur helgidóma þjóðarinnar. Þangað sækja flestir ferðamenn en gróðurfar þar er einkar viðkvæmt. Troðningar myndast skipulagslaust og gróður hverfur þar sem um- ferðin er hvað mest. Þingvallanefnd telur að við þessu verði að bregðast tafarlaust með því að gera ná- kvæmt deiliskipulag og leggja göngustíga samkvæmt því. Stíg- amir eiga að beina umferð fólks um helstu sögustaði og lega þeirra að taka mið af fornminjum á svæð- inu. Deiliskipulag sé forsenda allra athafna og það verði að innifela allt svæðið frá Kárastaðastíg við brún Almannagjár, norður fyrir Furulundinn og austur fyrir Flosa- gjá, að vegi og suður að Þingvalla- vatni. í deiliskipulagi verði gerð athug- un á gömlu þjóðleiðinni niður Al- mannagjá, vegurinn lagfærður þannig að hann fari betur í landi og reynist heppilegri sem göngustígur. Endurbætur þarf að gera á l)rú yfir Öxará og athuga hvar jarðrask hefur átt sér stað og meta hvar þörf sé á aðgerðum. Er hér til dæmis átt við Drekkingarhyl. Meðal helstu nýmæla sem er að finna í stefnumörkun Þingvalla- nefndar er bygging menningarmið- stöðvar sem lagt er til að verði byggð við Kárastaðastíg vestur af hringsjánni. I þessari menningar- miðstöð er gert ráð fyrir að beita fullkominni kynningar- og fræðslu- tækni og verður þar leitast við að fræða ferðafólk almennt um sögu og náttúra svæðisins. Salarkynnin verða einnig notuð til sérlegra skipulagðra sýninga og fyrirlestra um sögu íslands, náttúra og menn- ingu. Menningarmiðstöðin verður því íjölnota hús svipað og Norræna húsið í Reykjavík. Að sögn Einars Sæmundsen þyrfti að móta ákveðinn ramma um hvemig menningarmiðstöðin ætti að vera en nánari útfærsla yrði síðan tilvalið samkeppnisverkefni fyrir arkitekta. Rætt hefur verið um tengibyggingu eða gang frá vestan Hvannagjár og tengist Þing- vallavegi skammt norðan við Öx- ará. Þaðan liggi hann eftir flóð- garði yfir Hrútagilslæk að Skógar- hólum. Við þessa breytingu mun umferð til norðurs ekki íþyngja Þingvallakvosinni meira en nauð- synlegt er og útivistarsvæði austan við Hvannagjá verður friðsælla. Einnig er lagt til að Sogsvegur verði sveigður til norðurs austan Arnar- fells og sameinist fjallveginum að Laugarvatni til þess að forðast óþarfa akstur að Þingvallavatni. Eins og vegurinn liggur í dag bein- ir hann umferð niður að Vatnsviki. í stefnumörkuninni er lagt til að nýtt tjaldsvæði verði gert við Leira- læk til þess að unnt verði að létta á Leirunum. Á þessum stað er unnt að gera alla sameiginlega aðstöðu svo vel úr garði að fólk myndi frem- ur kjósa að tjalda þar en annars staðar. Það gæti stuðlað að verndun svæðisins í Þingvallakvosinni við Bolabás og norður með Ármansfelli. í Þingvallahrauni er lagt til að gera bílastæði á hentugum stöðum og koma þar fyrir borðum og bekkj- um. Enn fremur er gert ráð fyrir nýrri gönguleið norður með Hrafna- gjá þannig að hraunið þar verði aðgengilegra til útivistar. Þaðan væri hægt að vísa á fleiri gönguleið- ir, t.d. að Hrauntúni og á Hrafna- björg. Við norðurenda Arnarfells er einnig lagt til að gera bílastæði. Mikil ásókn er í veiði í Þingvalla- vatni og telur Þingvallanefnd að gera verði sérstakt deiliskipulag af þessu landi öllu og vernda ákveðin og afmörkuð svæði fyrir átroðningi eins og kostur er. I staðinn verði önnur svæði gerð hæfari til að taka við meira álagi. Telur nefndin að deiliskipulag sé forsenda allra að- gerða. Aðaltjaldsvæði við vatnið verður í Vatnskoti og þar verður komið f í 'J£M V:\XA P' \ . \ . I ; —’T" • “7—. , \ / w' - ýi ’" 1 • >•’ ■■ \ I j?- '■ ' . ...... \ 'V /\ SCú lirrll.br..II //. \ \ .... /7 - \ • V'ý’PlNG.VALLA VA ~ v' YtrÆMmMM" ~ !:/ ■ Á" V/ J/ '"■••fW-v::.. I. Y X G D’A L SHí Tjaldstæðið við Vatnskot. Þar á að bæta snyrtiaðstöðu. byggingunni þannig að hægt væri að fara með hópa að skoða Al- mannagjá í misjöfnu veðri. Þá hefur komið til tals að reisa á Þingvöllum hús á vegum Alþingis og Þjóðkirkju og að tengja þær byggingar menningarmiðstöðinni. A Valhallarsvæðinu er ekki svigrúm fyrir frekari byggingar en Valhöll verður að óbreyttu rekin sem veitingahús. Framtíðarþróun veitinga og gistiþjónustu verður metin síðar í ljósi þróunar mála á öllu Þingvallasvæðinu. Á Gjábakka verður byggð lítil miðstöð þar sem tekið skal á móti gestum er koma að sunnan og aust- an. Þjónusta þar verður jafnframt vegna landsins frá Arnarfelli og að Lambhaga og höfð umsjón með tjaldstæðum og veiði á þessu svæði. Þar sem búast má við auknum umsvifum á Þingvallasvæðinu hlýt- ur það að leiða til fastrar búsetu allmargra starfsmanna. Því er gert ráð fyrir að lítið íbúðarsvæði geti risið við Stórhöfða eða annars stað- ar utan þjóðgarðsmarkanna ef hentugt land fæst. Ekki er áformað að gera neinar stórvægilegar breytingar á vega- stæðum á Þingvöllum. Þó er lagt til að vegur að Skógarhólum verði Á þessu korti sjást mörk þjóð- garðsins á Þingvöllum og áhrifalands hans frá 1928 og hvernig áætlað er að færa út þjóðgarðsgirðinguna. fyrir snyrtingum. Talið er nauðsyn- legt að takmarka fjölda tjaldgesta. í Vatnsviki hefur komið til tals að útbúa aðstöðu fýrir gamalt fólk og fatlað til að komast að vatninu með veiðistöng. Samningar um sumarbústaði í þjóðgarðinum renna út á næstu áram. Þessir samningar verða ekki framlengdir, nema þá til tíu ára í senn. Lagt er til að ákvæði verði sett í samninga, m.a. um hámarks- stærð húsa, frjálsa og hindranar- lausa umferð, forkaupsrétt og kauprétt, þannig að þjóðgarðurinn geti smám saman eignast þau mannvirki sem þörf er talin á vegna skipulagsins. Girðingar verða ekki leyfðar umhverfis hvern sumarbú- stað enda verði allir bústaðir innan einnar girðingar. Þá er ráðgert að gera deiliskipulag af sumarbústaða- svæðinu. Ólafur G. Einarsson sagði fráfar- andi Þingvallanefnd hafa unnið mikið og merkilegt starf en í hlut núverandi Þingvallanefndar kæmi að móta endanlegar tillögur um framtíðarskipan mála á Þingvöllum. Ólafur lagði áherslu á að ekki væra uppi áætlanir um að torvelda gest- um umferð um Þingvelli. Þvert á móti vildi nefndin auðvelda öllum almenningi að njóta þessa helgi- staðar. Það væri hinsvegar einnig skylda nefndarinnar að aðhafast ekkert það sem valdið gæti spjöllum í þinghelginni. Eðlileg verndun Þingvalla væri höfuðatriði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.