Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 53
morgunblaðeð IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 53 KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD Yfirburðir Þórsara Sigurinn á Leiftri mun öruggari en úrslitin, 2:1, gefa til kynna Magnús Már Þorvaldsson skrifar fráAkureyri EFTIR markalausan fyrri hálf- leik, sem Þór vissulega átti, komu þrjú mörk á 7 mínútna kafla í upphafi þess síðari. Sóknarmönnum Þórs voru þó yfirleitt mislagðar fætur því lið- ið átti fjölda marktækifæra er ekki nýttust. Þórsarar hófu leikinn af miklum krafti og leið ekki á löngu uns marktækifærin fóru að koma. Þeg- ar á 6. mínútu gaf Guðmundur Valur Sigurðsson tóninn með firna- skoti að marki Leift- urs, en Þorvaldur varði með tilþrifum. Næstu mínútur voru heimamenn ákaflega sóknglaðir en uppskeran var rýr þrátt fyrir góðan vilja. Hall- dór Askelsson fór hamförum, var mikið með knöttinn og byggði upp fyrir félaga _sína. Júlíus Tryggva- son, Jónas Robertsson og Valdimar Pálsson fengu allir sín færi, en baráttuglöð vöm Leifturs og mark- vörður þeirra bægðu aðsteðjandi hættu frá hvetju sinni. Sem fyrr greinir voru upphafsmín- útur síðari hálfleiks fjörugar í meira lagi. Á 53. mínútu voru heimamenn á hraðferð við vítateig Leifturs. Valdimar Pálsson kom sem eimreið væri í gegn um vömina og skoraði með föstu skoti í markhomið - glæsilegt mark. Forysta Þórs var verðskulduð en Leiftursmenn vildu þó gjarna vera með og fjórum mínútum síðar jöfnuðu þeir. Hinn ágæti vamarmaður Þórs, Júlíus Tryggvason ætlaði Baldvini mark- verði knöttinn en ekki vildi betur til að Halldór Guðmundsson hirti hann af honum, sendi á Steinar Ingimundarson og eftirleikurinn var auðveldur fyrir hann. Hafi Leifturmenn trúað því að ann- að stigið væri í höfn fengu Þórsar- ar þá skjótt ofan af slíkum hugsun- um. Á 60. mínútu gerði Halldór Áskelson út um leikinn með ágætu marki eftir undirbúning Hlyns Birg- issonar. Það fór vel á því að það var ein- mitt Halldór er gerði sigurmark leiksins, hann var yfírburðarmaður á vellinum. Guðmundur Valur og Hlynur Birgisson í liði Þórs áttu ágætan dag, svo og Júlíus Tryggva- son en Gústaf Ómarsson bar af í liði Leifturs og einnig átti Þorvaldur Jónsson ágætan leik í markinu. Þór- Leiftur 2 : 1 Akureyrarvöllur, íslandsmótið - 1. deild, fimmtudaginn 4. ágúst 1988. Mörk Þórs: Valdimar Pálsson (53. mín.), Halldór Áskelsson (60. mín.). Mark Leifturs: Steinar Ingimundar- son (57. mín.). Gult spjald: Kristján Kristjánsson, Jónas Róbertsson, Þór o g Ámi Stefáns- son, Leiftri. Dómari: Friðjón Eðvarðsson 5 Línuverðir: Sveinn Sveinsson og Bárð- ur Guðmundsson. Áhorfendur: 1040. Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Jú- líus Tryggvason, Birgir Skúlason, Nói Bjömsson, Valdimar Pálsson, Kristján Itóstjánsson, Jónas Róbertsson, Guð- mundur Valur Sigurðsson, Siguróli Krisriánsson, Hlynur Birgisson, Hall- dór Áskelsson (Einar Arason 88. mín.) Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson, Frið- rik Einareson (Helgi Jóhannson 77. mín.), Gústaf ómarsson, Sigurbjöm Jakobsson, Ámi Stefánsson, Halldór Guðmundsson, Hafsteinn Jakobsson, Lúðvík Bervinsson, Hörður Benónýs- son, Steinar Ingimundarson, Róbert Gunnareson (Þoreteinn Geireson 67. mín.) M Gústaf Ómarsson, Leiftri. Halldór Askelsson, Þór. - ■ Morgunblaöið/Rúnar Þór Björnsson Blrgir Skúlason Þórsari sækir að Þorvaldi Jónssyni markverði Leifturs í gærkvöldi. Friðjón Eðvarðsson dómari fylg- ist með. Öruggt hjá KR KR-INGAR áttu góða ferð til Húsavíkur í gærkvöldi er þeir sigruðu Völsunga sannfærandi 3:1. Þar með vænkaðist hagur þeirra í deildinni. Völsungar sitja hins vegar enn einir á botninum og er staða þeirra orðin vægast sagt erfið. Amar Guðlaugsson þjálfari Völsungs var ekki hress eftir leikinn. „Við lékum alveg eins og hálfvitar, eins og byijendur, fyrstu 20 minútumar í Reynir síðari hálfleik og Eiríksson gáfum þeim þar með skrifar sigurinn. Það þarf mikið að breytast í leik minna manna ef þetta á að ganga upp það sem eftir er móts- ins. Annað hef ég ekki að segja,“ sagði Arnar. Fyrri hálfleikur var daufur og fátt um fína drætti. Ula gekk að koma boltanum manna á milli en KR- ingar höfðu þó heldur frumkvæðið. Þeir skoruðu sitt fyrsta mark á 32. mín. Sæbjöm lék laglega á einn Völsung og komst upp að enda- mörkum, gaf fallega fyrir, beint á 'kollinn á Bimi Rafnssyni sem skall- aði ömgglega í netið af stuttu færi. Hættulegasta sókn heimamanna kom undir lok hálfleiksins. Helgi Helgason þmmaði þá að marki úr aukaspymu en Stefán varði í horn. KR-ingar höfðu tögl og hagldir í upphafi síðari hálfleiks og aðeins vom liðnar þrjár mínútur cr Pétur Pétursson hafði aukið forskotið. Mark þetta var mjög áþekkt því fyrra, nema hvað Jón G. Bjamason gaf fyrir og Pétur skallaði í netið. KR-ingar höfðu leikinn algjörlega í hendi sér, léku oft mjög skemmti- lega saman og sköpuðu sér góð færi, sem þó ekki nýttust fyrr en Rúnar Kristinsson kom inn á á 65. mín. Hann skoraði í fyrsta skipti sem hann fékk knöttinn. Bjöm Rafnsson gaf fyrir, Rúnar tók knöttin fallega niður með bijóstinu, lék framhjá vamarmanni og skor- aði laglega framhjá Þorfinni. Jónas Hallgrímsson minnkaði mun- inn á 72. mín. úr víti sem hann fískaði sjálfur. Hann hafði leikið inn í teiginn og verið bmgðið. Björn Rafnsson, Sæbjöm Guðmundsson, Pétur Péturs- Völs. - KR 1 : 3 ísl&ndsmótið 1. deild, Húsavíkurvöllur fimmtudaginn 4. ágúst 1988. Mark Völsungs: Jónas Hallgrímsson (víti) 72. Mörk KR: Björn Rafnsson (32.), Pét- ur Pétursson (48.), Rúnar Kristins- son (65.) Gult spjald: Enginn. Dómari: Haukur Torfason, 8. Linuverðir: Magnús Jónatansson og Árni Arason. Áhorfendur: Ekki gefið upp. Lið Völsungs: Þorfmnur Hjaltason, Helgi Helgason, Bjöm Olgeireson (Skarphéðinn ívarsson vm. á 72.), Sveinn Freysson, Unnar Jónsson (Snævar Hreinsson vm. á 61.), Theód- ór Jóhannsson, Grétar Jónsson, Eiríkur Björgvinsson, Guðmundur Þ. Guð- mundsson, Stefán Viðarsson, Jónas Hallgrímsson. Lið KR: Stefán Jóhannsson, Jón G. Bjamason (Rúnar Kristinsson vm. á 65.), Þoreteinn Halldórsson, Gylfi Dal- mann Aðalsteinsson, Willum Þór Þórs- son, Jósteinn Einareson, Ágúst Már Jónsson, Gunnar Oddsson, Bjöm Rafnsson, Sæbjöm Guðmundsson, Pét- ur Pétureson. HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS Leikir U J T Mörk u J T Mörk Mörk Stig FRAM 11 6 0 0 12:0 4 1 0 11:2 23:2 31 VALUR 12 5 0 1 15:8 2 2 2 4:3 19:11 23 KR 12 4 1 1 12:4 3 0 3 7:9 19:13 22 ÍA 12 5 0 1 12:6 1 3 2 7:9 19:15 21 ÞÓR 12 4 1 1 10:6 0 4 2 5:8 15:14 17 KA 12 4 1 1 10:9 1 1 4 8:12 18:21 17 ÍBK 12 1 4 1 8:8 1 1 4 6:13 14:21 11 VÍKINGUR 11 2 1 2 5:4 0 2 4 4:13 9:17 9 LEIFTUR 12 1 4 1 4:4 0 0 6 4:12 8:16 7 VÖLSUNGUR 12 0 2 4 4:10 1 0 5 3:11 7:21 5 Kenny Dalgllsh er sá lang tekju- hæsti í ensku knattspymunni. FOLK EINS og greint var frá hér í blaðinu í gær hafði Kenny Dalgl- ish, stjóri Liverpool á Englandi, andvirði um 237 milljóna ísl. króna í laun á síðasta FráBob keppnistímabili. Það Hennessy eru ríflega 200.000 i Englandi pund fyrir tímabilið. Blöð á Englandi fjölluðu mikið um þetta mál í gær og upplýstu hvaða átta leikmenn aðrir það voru hjá félaginu sem höfðu meira en 100.000 pund upp úr krafsinu fyrir tímabilið. Það vom Peter Beardsley, John Bames, John Aldridge, Ray Houghton, Alan Hansen, Bruce Grobbelaar, Steve McMahon og Mark Law- renson. ■ ÁHORFENDUR fjölmenntu á heimaleiki Liverpool á síðasta vetri. Þeir vom að meðaltali um 40.000 sem var hæsta meðaltalið á J tímabilinu og er það í fyrsta sinn í rúmlega 20 ár sem Manchester United fær ekki flesta áhorfendur að meðaltali á heimaleiki sína. ■ EITT ensku blaðanna birti í gær lista yfir 20 launahæstu stjór- ana hjá bresku félögunum. Hann lítur þannig út; upphæðir í pundum fyrir keppnistímabilið: 200.000: Kenny Dalglish Li- verpool. 100.000: Terry Venables Tott- enham, Graeme Souness Rang- ers, Bobby Robson, einvaldur enska landsliðsins og Alex Fergu- son Manchester United. 90.000: George Graham Arse- nal. 85.000: Brian Clough Notting- ham Forest. 75.000: John Lyall West Ham og Graham Taylor Aston Villa. 60.000: Colin Harvey Everton. 50.000: Billy McNeill Celtic, Artliur Cox Derby og John Sil- lett Coventry. 45.000: Jim Smith QPR, How- ard Wilkinson Sheffield Wednes- day og Ray Harford Luton. 40.000: Dave Stringer Nor- wich og Steve Harrison Watford. 35.000: WUlie McFaul New- castle og Bobby Campbell Chelsea. ■ FYRST farið er að tala um Liverpool má geta þess að liðið vann Bryne í Noregi í fyrrakvöld í æfíngaleik, 5:0. John Aldridge skoraði tvívegis og Peter Beards- ley, Steve McMahon og John Barnes gerðu allir eitt mark. ■ PETER Reid, gamla kempan hjá Everton missir af fyrstu leikj- um félagsins í deildarkeppninni í haust vegna meiðsla í læri. Hann fer í uppskurð á laugardaginn. ■ EVERTON tekur nú þátt í móti í Sviss og sigraði Crusiare frá Brasilíu, 2:1 í fyrrakvöld. Dave Watson og Graeme Sharp gerðu mörk Everton. ■ JIM McLean, stjóri Dundee United í Skotlandi tók tékkheftið upp í vikunni og eyddi 400.000 pundum. Hann .keypti Raphael Meade frá Sporting Lissabon í Portúgal og einnig júgóslavnesk- an landsliðsmann, Miodraj Kriv- ckapic, sem er vamarmaður. MtC ade lék á sínum tíma með Arsenal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.