Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
< mg$r
EnguUkt
Chocolate
MINT
Öticks \
í ii
i í <
I V
f i
SPECTRUM HF
SlMI 29166
XJöföar til
i i fólks í öllum
starfsgreinum!
Pennavinir
Frá íslendingaslóðum í Kanada
skrifar maður, sem getur ekki um
aldur eða áhugamál en segist vilja
eignast pennavini hér á landi:
C. Erikson,
Dickens Post Office,
Winnipeg,
Manitoba,
R35 ÍTO Canada.
Fjórtán ára finnsk stúlka með
áhuga á bréfaskriftum, tónlist og
íþróttum:
Marika Sepp nen,
Tuhkalantie 5,
SF-04330 Lahela,
Finland.
Sextán ára japönsk stúlka með
áhuga á íþróttum og stjömufræði:
Michihide Maeda,
507 Raiba,
Noboribetsu,
Hokkaido,
059 Japan.
Ungur Vestur-Þjóðvetji vill kom-
ast í samband við frímerkjasafnara:
Florian Neumann,
Henningsdorfer Str. 86a,
1000 Berlin 27,
West-Germany.
Fjórtán ára finnsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Katja Pelto-Lampola,
Ahmatie 19,
31400 Somero,
Finland.
Frá Bandaríkjunum skrifar 35
ára karlmaður með margvísleg
áhugamál:
Larry Gregor,
230 North 6th Street,
Lindenhurst,
New York 11757,
U.S.A.
Frá Japan skrifar 22 ára stúlka
með áhuga á íþróttum, einkum bad-
minton og tennis:
Hiroko Maeda,
507 Raiba,
Noboribetsu,
Hokkaido,
059 Japan.
■\^0ÍL&CU)
reykjavík
Teigur
Glæsilegur
veitingasalur
Borðapantanir í síma
689000
Heppni og góður undir-
búningur réðu úrslitum
-segir Hákon Ásgrímsson, sem
kenningu á Ólympíuleikunum 1
hlaut heiðursviður-
eðlisfræði
TVÍTUGUR Akureyringur,
Hákon Asgrímsson, var meðal
þeirra sem hlutu heiðursviður-
kenningu á Ólympíuleikunum
í eðlisfræði sem fram fóru í
borginni Bad Ischl í Aust-
urríki, dagana 24.júní til 1.
júli s.l.
Hákon er stúdent af eðlis-
fræðibraut Menntaskólans á
Akureyri frá því í vor. Aðspurður
um framtíðaráform kvaðst hann
vera skráður í verkfræði við
Háskóla íslands í haust, en í
sumar vinnur hann við mælingar
hjá Vegagerð ríkisins.
„Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á eðlisfræði. Tildrög þess
að ég fór í Ólympíukeppnina
Hákon Asgrímsson
voru að ég tók þátt í forkeppni
sem haldin var hér í skólanum.
Reyndar tók allur bekkurinn
minn þátt í henni. Þannig komst
ég áfram í lokakeppnina í
Reykjavík og síðan í aðalkeppn-
ina í Austurríki.
Það voru fimm krakkar sem
' fóru héðan, fjórir úr MR og einnn
úr MA. Raungreinakennslan í
MA er mjög góð, en árangurinní
keppninni byggist alveg eins
mikið á heppni eins og góðri
kennslu.
Helstu áhugmál mín eru
ferðalög og útivist allskonar, en
ég myndi alls ekki telja eðlis-
fræðina meðal áhugamála" sagði
Hákon.
Áhuginn skiptir mestu máli
-segir puðbjörn Freyr Jónsson sem hlaut bronsverð-
laun á Ólympíuleikunum í stærðfræði
GUÐBJÖRN Freyr Jonsson
var einn þeirr fjögurra ung-
menna sem kepptu fyrir Is-
lands hönd á Olympíuleikun-
um í stærðfræðij sem fram
fóru í Canberra í Astralíu dag-
ana 18.- 19. júlí s.I. Morgun-
blaðið hitti hann að máli til
að fræðast nánar um áhuga-
mál hans, framtíðaráform og
frammistöðu í keppninni.
Guðbjöm er nítjanára gamall
Borgfirðingur, nemandi við
stærðfræðideild Menntaskólans
á Akureyri. Hann á nú einn vet-
ur eftir í stúdentsprófið og
kvaðst ekki vera alveg viss hvað
við tæki að því loknu, en að öllum
líkindum háskólanám af ein-
hverju tagi. „Það er þá helst
stærðfræðin eða einhverjar raun-
greinar sem koma til greina.
Ég hef alltaf haft áhuga á
stærðfræði og hún hefur legið
vel fyrir mér. Hvað góðan árang-
ur snertir þá þurfa að fara sam-
an góð kennsla og áhugi. Ef
áhugann skortir kemur kennslan
ekki að neinu gagni, sama hversu
góð hún er.“
Helstu áhugamál Guðbjamar
Guðbjörn Freyr Jónsson
em tölvur, íþróttir og brids, og
sjálfur á hann tölvu, sem hann
þó sagðist ekki hafa notað í
tengslum við stærðfræðina.
Til þess að komast í Ólympíu-
keppnina þurfti Guðbjörn fyrst
að keppa við skólafélaga sína í
MA en síðan var haldin úrslita-
keppni í Reykjavík í mars. „Nem-
endur úr menntaskólunum stóðu
sig mun betur en þeir sem komu
úr fjölbrautaskólum, enda finnst
mér stúdentspróf úr mennta-
skóla hafa allt annað gildi en
próf úr fjölbrautaskóla. Eg held
að í menntaskólunum, þ.e. MA
og MR, þurfi nemendur að leggja
meira á sig við námið og hafi
því betri undirbúning.
Ég átti ekki_ von á því að ná
svona langt í Ólympíukeppninni
en ég hafði mjög gaman af þessu
og er ánægður með árangurinn.
Ég bjóst ekki við að eiga neitt
í þá sem eru bestir, en það eru
helst A-Evrópuþjóðirnar, Bandr-
íkjamenn og V-Þjóðverjar.
Þeirra árangur byggir líklega á
því að þau fá sérhæfðari kennslu
og meiri æfingu.
Ég á einn vetur eftir í MA og
býst við að ég reyni að vera aft-
ur með í kepninni á næsta ári.“
Guðbjöm ætlar að eyða sumr-
inu í Reykjavík þar sem hann
vinnur í Búnaðarbankanum.
NorHmark
Æ;„' MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
VEIÐIHNÍFAR
Fást f nœstu sportvöruverslun.
Glæsilegar íbúðir
í Grafarvogi til sölu
Hver íbúð er 118 fm og að auki er sameign á jarðhæð.
Bílskúr 21 fm fylgir hverri íbúð og stórar suðursvalir.
íbúðirnar seljast fullbúnar að öllu leyti.
Örn ísebarn, byggingameistari,
sími 31104.