Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 11 Kcflavík. MEÐAL þeirra Vestur-íslend- inga sem hér eru staddir er söng- flokkur sem kallar sig „The Fine Country Kids“ og er flokkurinn nú á hringferð um landið. Börnin eru nú stödd i Borgarfirði eystri, en á leið sinni þangað sungu þau meðal annars í Galtalækjarskógi. í Borgarfirði ætla Vestur-íslend- ingarnir að hitta ættingja og í kvöld ætla þeir að halda tónleik- ar fyrir heimamenn. Söngflokkurinn er skipaður tveimur stúlkum, Jenny Johnson 14 ára, Kendru Pálsson 13 ára og Derek, bróður Jenny, sem er 12 ára. Foreldrar bamanna eru með í ferðinni, einnig afi og amma Kendru, Steingrímur Pálsson bóndi í Riverton og kona hans Ingibjörg Jónína Pálsson (Valdimarsdóttir). Tónlist hefur verið eitt helsta áhugamál innan fjölskyldnanna en þessi þáttur í menningararfi Vest- ur-íslendinga á nú mjög í vök að veijast í mannhafi þjóðanna í Kanada. I litlu húsi í Riverton sem þá var aðeins naust í óbyggðum Kanada hófst ævintýrið. Þá flutti Laugi Jóhannsson ásamt sonum sínum, Johnny og Kris sem vom 9 og 12 ára, gamalt íslenskt lag — „Um draumsins huldu heim“— fyrir hóp Vestur-íslendinga sem þar vom Lj ósmy ndasýmng á Kjarvalsstöðum Ljósmyndasýning á myndum eftir sænska ljósmyndarann Bengt S. Eriksson verður opnuð í vesturforsal Kjarvalsstaða laugardaginn 6. ágúst kl. 14.00. Bengt S. Eriksson er einn þekkt- asti ljósmyndari Svía og hefur hlot- ið sérstakt lof fyrir landslagsmynd- ir sínar. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga á ljósmyndum sínum, bæði í Svíþjóð og annars staðar, auk þátttöku í samsýningum. Myndir hans hafa birst í þekktum blöðum og tímaritum eins og Zoom, Foto og Modem Photography og einnig í bókum og sjónvarpsþáttum. Hann hefúr fengið ýmis verðlaun fyrir ljósmyndir sínar, s.s. Agfa- chrome-styrkinn og Hasselblad Masters-verðlaunin. Bengt S. Eriksson dvaldi hér á íslandi við myndatökur í apríl 1986 og þótti mjög skemmtilegt að ljós- mynda hér. Á sýningunni em um 50 litmyndir af norðlægum slóðum, m.a. frá Skandinavíu og íslandi. Sýningin stendur frá 6.—21. ágúst. í austursal Kjarvalsstaða stendur yfir sumarsýning á landslagsmynd- um eftir Jóhannes S. Kjarval. Á sýningunni er að finna verk er spanna alla starfsævi Kjarvals og Fróóleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! jafnframt eru á sýningunni skissur og smærri myndir, sem hafa lítið komið fyrir almenningssjónir. Sýn- ingar á verkum Kjarvals eru ávallt vinsælar og hefur aðsókn verið góð fram að þessu. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22 til 21. ágúst. (Fréttatilkynning) samankomnir. En þetta lag var síðar þekkt undir naftiinu Gimlivals- inn. Síðar bættust systur þeirra, Stella 10 ára og Dorothy 13 ára, í hópinn og oft lék hljómsveitin sem kölluð var „Johnny og musikvinir hans“ allt að 5 kvöldum í viku í vatnabyggðunum, Riverton, Gimli, Árborg, Geysisbyggð og víðar. Síðan bættist enn ein systirin í hóp- inn, Kristín, sem lék á harmonikku og Haraldur Bjömsson góðvinur þeirra sem lék á gítar. Nokkuð hef- ur dregið úr starfsemi hljómsveitar- innar síðustu 10 árin, en hún kem- ur þó enn fram við sérstök tækifæri. Arið 1985 var svo stofnuð önnur hljómsveit, „The Fine Country Folk“ og voru meðlimir hennar Laugi Jóhannsson, Dick Johnson, Roy Guðmundsson og Cliff Lynds- tröm, allir búsettir í Riverton, Man- itoba. Þeir eiga sitt eigið hljóðver og hafa leikið inná allmargar plötur. Böm Dicks Johnsons sýndu fljót- lega mikinn áhuga á tónlist og eft- ir hvatningu frá eldri ættmennum sem mörg hver léku í áðumefndum hljómsveitum, stofnuðu þau hljóm- sveitina The Fine Country Kids. Krakkamir em öll í tónlistamámi, þau hafa víða komið fram í Man- itoba-fylki og sögðust vera ákaflega stolt af því að halda við fjölskyldu- hefðinni og merki íslenskrar tónlist- ar í Vesturheimi. — BB Sýning Hakes á Kjarvalsstöðum: Af misskilningi Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Fremst á myndinni eru krakkarnir í The Fine Country Kids, Jenny Johnson, Kendra Pálsson í miðjunni og Derek Johnson til hægri. Fyrir aftan þau frá vinstri til hægri eru: Richard Johnson, Maurene Jo- hnson, Steingrímur Pálsson, Ingibjörg Jónína Pálsson, Ryan Pálsson og kona hans, Sigrid Pálsson. Söngeykið The Fine Country Kids frá Kanada: Vestur-íslenskur söngflokk- ur á hringferð um landið eftirHávar Sigwjónsson Eiríkur Þorláksson safnvörð- ur á Kjarvalsstöðum vill leiðrétta misskilning i Morgunblaðinu í gær og það gerir hann skilmerki- lega. Það liggur Ijóst fyrir að Claes Hake kom með sýningu sína til íslands á eigin vegum en ekki í boði Kjarvalsstaða. Starfsfólk Kjarvalsstaða munu því hafa gert það sem þeim bar samkvæmt samningi hússins við listamanninn. Athugasemdir undir- ritaðs í garð starfsfólksins og fram- lag þess til sýningar Hakes eru því á misskilningi byggðar og á þeim biðst undirritaður fúslega afsökun- ar. Af þeim upplýsingum sem feng- ist hafa í kjölfar birtingar viðtalsins við listamanninn er þó ljóst að mis- skilningurinn milli Kjarvalsstaða og Claes Hake á sér langa sögu og orð þau er listamaðurinn lét falla i viðtalinu við undirritaðan eru sönn- un þess að þeim misskilningi hafi ekki tekist að eyða, þrátt fyrir við- leitni af hálfu Kjarvalsstaða sam- kvæmt grein Eiríks Þorlákssonar í Mbl í gær. Um margt af því sem þar er deilt um stendur fullyrðing gegn fullyrðingu og hirðir undirrit- aður ekki frekar um að rekja smáat- riði þeirra mála. Undirritaður ætlar sér ekki að verja orð Claes Hake né heldur geta sér til um ástæður þessa lífseiga misskilnings. Claes Hake færir væntanlega rök fyrir máli sínu sjálfur telji hann ástæðu til og á þeim vettvangi sem hann kýs sér. Höfundur er blaðamaður á Morg- unblaðinu. . Morgunblaðið/Ejrjólfur M. Guðmundsson Ágúst Guðmundsson eftir breytingarnar. Ný brú og yfirbygging á Agúst Guðmundsson GK Vogum. LOKIÐ er hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur yfirbygfgingu á vél- bátinn Ágúst Guðmundsson GK 95 frá Vogum, auk smíði nýrrar brúar og fleiri breytinga fyrir um 30 milljónir króna. Að sögn Magnúsar Ágústssonar útgerðarmanns fór í desember 1987 fram útboð vegna verksins og i jan- úar á þessu ári hófst vinna í Skipa- smíðastöð Njarðvíkur og þann 20. maí hófst vinna í skipinu, sem stóð í tvo mánuði. Sagði Magnús Skipa- smíðastöð Njarðvíkur hafa staðið mjög vel að þessu verki og hefðu verklok staðist upp á dag. Skipið hefur næstum allt verið endumýjað, nema skrokkurinn, á undanfömum ámm en á síðasta ári var sett ný vél í skipið og lestin endumýjuð. Ágúst Guðmundsson GK er þeg- ar farinn til djúprækjuveiða og leggur upp frá ísafírði. - EG ■Abu Garcia Með einu handtaki erhcegt að skipta um spólu, en hún er rennd úr áli sem tryggir styrk og léttleika. Ambassadeur 800 Med Ambassadeur800 línunni sannarAbu Garcia að þeir standa öðrum framar í hönnun og smíði kasthjóla. Ambassadeur 800 hjóiin eru ótrúlega létt og sterk ensamt gædd einstökum eiginleikum. Tœknileg hönnun Abu Garcia kasthjólanna eykur þægindi og öryggi við veiðarnar. Hjá okkur fást Abu Garcia veiðihjól við allra hœfi. luMW— HAFNARSTRÆTI5 SÍMAR 16760 og 14800 -------------------------------------------:--------------------
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.