Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988 51 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS (lí iiKrrriin ifflí'i Háir vext- ir streitu- valdandi Of lítið rokk í útvarpi Til Velvakanda. Ég heyrði talað um það í útvarp- inu, að streita hefði aukist meðal fólks undanfarið. Ég veit núna al- veg hvers vegna, þótt ég hafi aldr- ei trúað að streita væri til. Eftir að ég fór að skulda og hætti að ráða við lánin, sem ég þarf að borga af, því að þau hækka bara þótt ég borgi af þeim, þá hef ég fundið til allskonar óþæginda svo sem þrýst- ings á gagnaugun og fleira, sem ég veit að stafar aðeins út af skuld- unum. Ég þekki mörg svipuð dæmi um fólk sem á varla ofan í sig vegna vaxtapíningarinnar. Verður ekkert gert til að hjálpa okkur, sem erum svona illa stödd íjárhagslega? Þarf alltaf að vera að hugsa um þá ríku, sem eiga nóga peninga í bönkunum og græða á vöxtum, meðan við hin verðum meiri köreigar með hverjum degin- um sem líður? Ég vona innilega að einhver þingmaður eða aðrir sem völd og vilja hafa komi okkur til hjálpar. En eftir að Steingrímur talaði um að lækka vexti um daginn þá hækkuðu þeir. Bestu kveðjur, Ein uppgefin. Til Velvakanda. Mig langar að beina þeim tilmæl- um til hinnar svokölluðu rokksíðu blaðsins, að hún fjalli meira um góða rokktónlist en verði ekki sam- dauna hinu eilífa vinsældalista- blaðri. Er ekki nóg að æska þessa lands sé endalaust mötuð á lélegri popptónlist á útvarpsstöðvum, sem eru hreinlega orðnar geldar og ger- ilsneyddar. Það er svona 1% af þeirri tónlist sem fjallað er um góð tónlist. Hér geri ég greinarmun á því hvað fólki þykir skemmtilegt og hvað er gott. íslenskar hljóm- sveitir spila svoleiðis blöðrupopp að manni verður illt af að heyra í þeim. Staðreyndin er sú, að margir hlusta bara á útvarp og eiga kannski ekki hljómflutningstæki. Þetta fólk fær ekki að heyra góða tónlist svo nokkru nemi. Góð tónlist er þroskandi og gefur mikið. Þegar hinir ýmsu útvarpsmenn eru spurð- ir að þvf hvers vegna þeir spili ekki gott rokk eða þungarokk svara flestir því til að það sé ekki hægt, því þessi tónlist sé ekki vinsæl. Þessir menn eiga að gjöra svo vel að verða sér úti um aðra vinnu. Mér er fullkomin alvara. Getið þið útvarpsmenn sagt mér og öllum hinum þúsundunum, sem hlusta á þessa tónlist, hvers vegna 5 af hveijum 10 hljómsveitum á topp tíu listanum í Bandaríkjunum eru venjulega þungarokks- eða rokk- hljómsveitir? Ef þið getið svarað því og gerið ykkur grein fyrir því, að þetta er tónlist, sem er eldri og lífseigari en poppið og diskóið og nýtur mikilla vinsælda í dag, þá skuluð þið sitja sem fastast í stöðu ykkar. Vinsælasta tónlist Banda- ríkjanna er rokktónlist. Hún nýtur einnig gífurlegra vinsælda um alla Evrópu og einnig hér á íslandi. Málið hér er bara það að rokkunn- endur fá ekki að heyra það sem þeir sækjast eftir í útvarpi. Hvað gera þeir þá? Jú, þeir kaupa sér plötur. Það væri þó ánægjulegra að geta kveikt á útvarpinu og heyrt vandaða og góða rokktónlist í stað- in fyrir niðursoðið og vel innpakkað „tyggjókúluglimmer", sem tónlistin á flestum útvarpsstöðvunum er, sérstaklega á Stjömunni og Bylgj- unni. Ég hvet unnendur góðrar rokk- tónlistar að láta heyra meira í sér; úr felum með ykkur. P.s. Ég vil þakka forráðamönn- um hins nýja skemmtistaðar „Zepp- elin" fyrir framtak þeirra. Loksins getur maður farið á ball og unað glaður við sitt. Hin gífurlega aðsókn segir sitt um fjölda rokkunnenda. Sæl að sinni, Rokkunnandi. Þakkir til forstjóra Grundar f vor barst boð til félags aldr- aðra á Akureyri um tfu daga dvöl að Áái í Hveragerði fyrir átta manns. Við sem vorum svo heppin að hreppa þetta hnoss getum vart með orðum lýst þakk- læti okkar fyrir þetta höfðing- lega boð sem stóð frá 1. til 10. júlí. Verðurguðimir voru okkur svo velviljaðir að alla dagana var sól- skin og blíða. Að auki var okkur svo boðið í bílferð til Skálholts og í kaffi að Aratungu, þar sem allir skemmtu sér við söng með gítar- spili fararstjórans. Allt þetta þökkum við af alhug og óskum þér Gísli Sigurbjömsson og þínu fólki alls hins besta. Guð blessi starf þitt í þágu aldraðra á íslandi. Dvalargestimir frá Akureyri. Þessir hríngdu . . . Slök þjónusta á Hveravöllum 3289-0725 hringdi: „Ég hef spumingu til þeirra sem sjá um tjaldsvæðið á Hvera- völlum. Ég gisti þar í tjaldi um Verslunarmannahelgina og þá uppgötvaði ég mér til furðu, að ekkert er búið að gera á svæðinu frá því ég kom þar síðast fyrir átta ámm. Aðeins tveir illa lykt- andi útikamrar em á svæðinu og einn krani með köldu vatni. Tjald- gestir þurfa að borga 150 krónur á manninn fyrir að fá að gista þama eina nótt. Fyrir hvað er verið að borga? Við komum til Hveravalla frá Vörmuhlíð, þar sem aðstaða fyrir tjaldgesti er til fyrirmyndar. Þar em sturtur, vatnssalemi, vaskar og fleira. Og þar borguðum við 120 krónur fyr- ir manninn.“ Forsetinn á að blessa land ogþjóð Jóhanna Jónsdóttir hringdi: „Ég var að hlusta á forsetann, þegar hún var sett í embætti 1. ágúst. Ég er ánægð með hana en þó óánægð með að hún biðji aldr- ei Guð að blessa land ’og þjóð þegar hún ávarpar þjóðina. Samt er hún vemdari kirkjunnar.“ Kvæðið er eftir Jón Þorleifsson Jóna Jónasdóttir hringdi: „í dálki þínum laugardaginn 30. júlí er leitað eftir einhveijum sem þekkir höfund kvæðis, sem hefst svona: „Þama er ógnu lítill ungi ó að ég mætti honum ná.“ Þetta kvæði er að finna í kvæðakveri, sem Halldóra Bjama- dóttir safnaði í og gefíð var út árið 1919. Það er í tíu erindum og höfundur er Jón Þorleifsson." Ferðataska tapaðist Stór svört ferðataska tapaðist á BSÍ eða Laugarvatni um Versl- unarmannahelgina. Taskan er ómerkt en það er lítil gyllt plata framan á henni og á henni stend- ur SCOT. Taskan er með leður- höldur. í henni er m.a. svefnpoki, fatnaður og snyrtivömr. Finnandi er vinsamlegast beðinn um áð hringja í síma 76059. Fundarlaun- um er heitið. • Barnahjól í óskilum Svart BMX-barnareiðhjól með gulum brettum og dekkjum fannst í Gmndargerðisgarðinum fímmtu- daginn 28. júlí og hafði þá legið þar í nokkra daga. Upplýsingar í síma 36308. Á sama stað er í óskilum skírteini frá barnfóstmn- ámskeiði Rauða krossins. Það fannst í Tívolíinu í Hveragerði 2. ágúst og er á nafni Sonju Magnús- dóttur. Indónesískur mánuður stendur yfir. Við bjóðum nýjan indónesískan matseðil á viku hverri. Spennandi krœsingar þessa viku eru m.a.: Krydduð tómatsúpa Grillað svínakjöt að indónesískum hœtti Rœkjur, kryddaðar á indónesíska vísu Kjúklingur með ananas og kókos sósu Djúpsteiktur fískur með indónesískri kryddsósu Mangó með hunangi eða kaffi Verð 1.285.- kr. Að öðru leyti er matseðillinn okkar í fullu gildi. Við seljum út og sendum heim. Kínverska veitingahúsið, Laugavegi 28 Sími16513 SÉRBLAÐ á fimmtudögum Auglýsingar í viðskiptablaðið þurfa að hafa borist auglýsinga- deild fyrir kl. 12.00. á mánudögum. 3Wi01?jpmMáíÍ>ÍííSi - blaÓ allra landsmanna anan DRÁTTARVÉLAR Mest seldar í V-Evrópu ii.......... Gjobusi LÁGMÚLA 5. S. 681BBS. C
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.