Morgunblaðið - 05.08.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1988
KORFUKNATTLEIKUR
Haukar og UMFN
sitja bæði hjá
- í fyrstu umferð úrvalsdeildar
KEPPNIN í úrvalsdeild ís-
landsmótsins í körf uknattleik
hefst sunnudaginn 2. októ-
ber. Keppt verður í tveimur
riðlum samkvæmt nýju skipu-
lagi, sem samþykkt var á
þingi KKÍ í vor.
Jr
Iöðrum riðlinum verða Haukar,
ÍBK, KR, ÍR og Tindastóll en
í hinum verða Njarðvík, Valur,
Grindavík, Þór og IS. Leikin verð-
ur fjórföld umferð innan hvors
riðils og auk þess leikur hvert lið
tvívegis við öll liðin í hinum riðlin-
um. Að því loknu heyja tvö efstu
lið í hvorum riðli úrslitakeppni um
íslandsmeistaratitilinn svipaða og
verið hefur.
Gert er ráð fyrir, að eingöngu
verði leikið í úrvalsdeildinni á
sunnudögum, þriðjudögum og
fimmtudögum og að flestir leikir
verði á sunnudögum. Fyrstu leikir
mótsins verða sunnudaginn 2.
október kl. 20:00. Þá eiga
Grindavíkingar heimaleik gegn
Þór, KR mætir ÍR í Hagaskóla,
Valur fær í ÍS í heimsókn á Hlíða-
renda og ÍBK tekur á móti Tinda-
stól í Keflavík. Toppliðin frá þvi
í fyrra, Haukar og Njarðvík sitja
yfir þennan fyrsta leikdag.
Þriðjudagskvöldið 4. október leik-
Pálmar Sigurðsson og félagar
f íslandsmeistaraliði Hauka sitja hjá
í fyrstu umferð ásamt Njarðvíking-
um.
ur síðan Njarðvík gegn Val og
Tindastóll gegn KR en á fímmtu-
dag 6. október fá Haukar Keflvík-
inga í heimsókn og ÍS tekur á
móti Grindvíkingum.
Körfúknattleiksvertíðinni lýkur
óvenju snemma og er stefnt að
því að lokahóf leikmanna verði
31. marz.
KAPPAKSTUR / FORMULA 1
Vonir vakna fyrir ung-
verska kappaksturinn
Brasllíuma&urlnn Nelson Plquat hefur tvfvegis unnið ungverska kapp-
aksturinn, en hann hefur aðeins verið haldinn tvisvar. Piquet hefur hinsvegar
ekki enn unnið keppni í ár á Lotus Honda bílnum sínum.
V-ÞÝZKALAND
Morgunblaðiö/Bjarni
Andreas Dörhöfer.
Dörhöfer
í bann?
Mikil reiði er nú í herbúðum
v-þýzka handknattleiks-
félagsins Gummersbach. Félag-
ið keypti nýverið leikmennina
Dörhöfer og
FráJóni Zlettinger frá
Halldóri Schwabing og
Garðarsáyni vill Schwabing
i V-Þýzka andi . .
nu fa 100 þus
þýzk mörk fyrir leikmennina.
Gummersbach neitar að greiða
svo háa fjárhæð, segist ekki
hafa getu til að borga svo mikið.
Sökum þess að Gummersbach
hefur ekki innt greiðslur af
hendi fyrir leikmennina tvo, get-
ur Schwabing sett þá í bann frá
keppni, sennilega átta vikna
bann. Ef af banninu verður,
munu þeir missa af fjölmörgum
leikjum liðsins og er því mikill
urgur meðal forráðamanna og
áhangenda liðsins.
Andreas Dörhöfer er v-þýzkur
landsliðsmaður og lék meðal
annars gegn íslenzka landsliðinu
hér á landi á dögunum. Honum
var ætiað það hlutverk að taka
stöðu Kristjáns Arasonar í
Gummersbach-liðinu.
KNATTSPYRNA
Víkingur-Fram
Einn leikur er á dagskrá i 1.
deild karla í knattspymu í
kvöld. Víkingur og Fram eigast við
á VíkingsVellinum við Stjömugróf.
í 2. deild eru tveir leikir: KS-FH
og Víðir-Tindastóll. Þá verða tveir
í 1. deild kvenna: Valur-ÍA og
Stjaman-Fram. Allir leikimir hefj-
ast kl. 20.
Minnkarforskot
McLaren liðsins?
„ÉG á góðar minningar frá ung-
versku kappakstursbrautinni
og vona að hún breyti gengi
okkar. Keppnistímabilið hefur
verið dæmalaust lélegt hjá okk-
urtil þessa,“ sagði heims-
meistarinn Nelson Piquet í
samtali við Morgunblaðið um
ungverska kappaksturinn sem
fram fer á sunnudaginn.
Keppnistímabil Formula 1 öku-
manna er liðlega hálfnað og
Frakkinn Alain Prost og Ayrton
Senna frá Brasilíu leiða stigakeppn-
ina örugglega á
Gunnlaugur meðan menn eins og
Rögnvaldsson Piquet reyna að
skrifar krafsa í bakkann.
„í síðustu keppni
missti ég stjórn á bílnum í byijun
vegna þess að við höfðum röng
dekk undir honum í hellirigningu.
Afturendinn leitaði út og bíllinn
endasentist eftir brautinni og skall
á grindverki. Eftir það varð ég að
hætta, í þriðja skipti á árinu,“ sagði
Piquet. Hann tryggði sér heims-
meistaratitilinn í fyrra, en besti
árangur hans í keppni í ár er þriðja
sætið í tvígang.
Möguleikar
Piquet vann ungverska kappakstur-
inn í fyrra, eftir að Bretinn Nigel
Mansell hafði leitt keppnina þar til
að felga losnaði undan bílnum og
stöðvaði frekari framför hans.
„Þetta er ein af fáum brautum sem
gefa bílum án túrbóvéla einhveija
möguleika, hún er hlykkjótt og erf-
ið fyrir ökumanninn. Ég er bjart-
sýnn á góð úrslit, en síðasta keppni
fór ílla hjá mér. Gírskipting hrekkti
mig illilega - festist og ég lenti
útaf. Fram að því hafði bíllinn látið
illa að stjórn. Ég einsetti mér því
að ljúka keppni en það hafðist
ekki,“ sagði Bretinn Nigel Mansell
í spjalli við Morgunblaðið.
Flelrl róslr?
Prost og Senna gætu hæglega
bætt enn einni rós í hnappagatið
hjá McLaren liðinu í Ungveijalandi.
Liðið hefur unnið öll mót á árinu
og náð fyrstu tveimur sætunum í
fímm mótum. En Piquet á Lotus,
Mansell á Williams og Gerhard
Berger og Michele Alboreto á Ferr-
ari gæla allir við þá von að hlykkir
ungversku brautarinnar reynist
McLaren bílunum erfiðari en aðrar
brautir.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / BIKARKEPPNI FRÍ
Verða
ÚTLIT erfyrir tvísýna keppni í
1. deild Bikarkeppni Frjálsí-
þróttasambandsins, sem fram
fer í Reykjavík á morgun og
sunnudag, ef marka má spár
nokkurra talnafróðra frjáls-
(þróttamanna. Af því má ráða
að bikarvörnin verður ÍR-ingum
erfið, en þeir hafa unnið Bikar-
keppni FRÍ16 ár í röð. Einnig
að ekkert má útaf bera hjá lið-
unum í þeim 36 greinum, sem
keppt er í.
Bikarkeppni FRI er jafnan há-
punkturinn á keppnistímabili
frjálsíþróttamanna hér á landi.
iíeppnin hefur farið fram árlega frá
1966, og fer því nú fram í 23. sinn.
KR-ingar unnu hana fyrstu fimm
árin, síðan vann lið UMSK árið
1971, en ÍR-ingar unnu árið 1972
og hafa verið ósigrandi síðan. í
fyrra náðu þeir þó ekki forystu fyrr
en í síðustu grein, svo spennandi
og tvísýn var keppni þeirra og HSK.
nú stefnir í enn tvísýnni keppni.
FH. ÍR oq HSK jöfn?
Sérfræðingar spá því jafnvel að tvö
til þrjú lið verði jöfn að stigum,
þ.e. IR, HSK og FH. Þegar staða
af því tagi kemur upp dæmist sigur
því liði sem fær flesta sigurvegara.
Séu lið þá enn jöfn verður að telja
hvert þeirra hafi oftar átt mann í
öðru sæti og svo koll af kolli.
Þráinn Hafsteinsson, þjálfari HSK,
spáir FH-ingum öruggum sigri að
þessu sinni, en félagið hefur fengið
góðan liðsauka á árinu og hefur
stórum hópi afreksmanna á að
skipa. Hann er varkár hvað sína
menn snertir _og spáir þeim þriðja
sæti, á eftir ÍR. Spá hans er svo-
hljóðandi:
FH....................165
ÍR....................151
HSK.................. 143
UÍA...................122
UMSB...................73
KR.....................63
Kristján Harðarson, FH-ingur, hef-
ur trú á sínum mönnum og spáir
þeim tveggja stiga sigri á ÍR og
fímm stiga sigri á HSK. Úrslitin
munu m.a. ráðast af frammistöðu
Kristjáns, sem keppir nú f lang-
stökki fyrsta sinn í tvö ár, en hann
á íslandsmetið í greininni. Spá
Kristjáns:
FH....................153
ÍR....................151
HSK...................148
UÍA...................126
UMSB...................47
KR.....................43
Stefán Jóhannsson, þjálfari Ár-
manns, spáir FH og HSK jafn
mörgum stigum, eða 155, en að
sigurinn falli HSK í skaut þar sem
liðsmenn sambandsins verði 10
sinnum í öðru sæti í einstaklings-
greinum en FH-ingar 8 sinnum.
Hann gerir ráð fyrir því að hvort
félag muni eiga jafn marga sigur-
vegara í einstaklingsgreinum, eða
10 hvort. Spá Stefáns er svohljóð-
andi:
HSK.........................155
FH..........................155
ÍR...................146
UÍA..................123
UMSB..................81
KR....................49
Loks spá ÍR-ingamir Gunnar Páll
Jóakimsson og Þorsteinn Þórsson
að ÍR, FH og HSK verði öll jöfn
að stigum, en að ÍR haldi bikarnum.
Gera þeir ráð fyrir að sínir menn
vinni 10 greinar, FH-ingar 9 og
HSK 7. Miðað við þá útreiknjnga
geta frávik í einni grein ráðið úrslit-
um, þ.e. hver einasta keppnisgrein
hefur úrslitaþýðingu. Spá Gunnars
Páls og Þorsteins er svohljóðandi:
ÍR....................153
FH....................153
HSK...................153
UÍA................. 127
UMSB...................72
KR.....................56
Eins og sjá má ber spánum saman
um að UMSB og KR falli í aðra
deild. KR-ingar tefla t.a.m. ekki
fram nema hálfu liði og keppa í
innan við helming keppnisgreina.
toóm
.FOLK
I ALIUSKA Lopez frá Kúbu
var aðeins rúmlega 13 sekúndur
að hlaupa 100 m grindahlaup á
heimsmeistaramóti unglinga • í
fijálsum íþróttum í Kanada um
helgina. Hins vegar tók það hana
tvo daga að fá gullverðlaun sín af-
hent. Ástaðan var sú, að ein stúlkn-
anna datt í úrslitahlaupinu og felldi
í leiðinni bandarísku stúlkuna
Terry Robinson þannig að hún
átti ekki möguleika eftir það.
Bandaríkjamenn fóru fyrst fram
á að hlaupið yrði endurtekið og var
það samþykkt. Síðan kom í ljós að
Robinson var enn meidd á ökla og
hálsi eftir byltuna og gat ekki
keppt. Þess vegna var ákveðið að
láta fyrri úrslit gilda. Lopez hljóp
á 13,23 sek í sigurhlaupinu en ungl-
ingaheimsmet hennar er 12,84 sek.
II DARREN Éradley, vamar-
maður hjá enska knattspymufélag-
inu WBA, á það á hættu að vera
sektaður eða dæmdur í bann fyrir
að hafa leikið með s-afrísku liði.
Alþjóðaknattspymusambandið,
FIFA, hefur skipað enska knatt-
spymusambandinu að rannsaka
málið. Bradley segist aðeins hafa
séð um þjálfun meðan hann var í
S-Afríku. Framkvæmdastjóri
WBA, Ron Atkinson, sem gaf
Bradley leyfí til fararinar hefur
ekkert viljað segja um málið.
I SEVERLANO Ballesteros,
frá Spáni gerir það ekki enda-
sleppt. Hann vann opna brezka
meistaramótið í golfi á dögunum
og nú um helgina vann hann opna
skandinavíska meistaramótið í
Svíþjóð með yfírburðum. Balleste-
ros lék á 270 höggum en næsti
maður Gerry Taylor, Ástralíu, lék
á 275 höggum.
■ STEFFI Graf vann léttan sig-
ur á opna v-þýzka kvennamótinu í
tennis i Hamborg um helgina. Hún
vann búlgörsku stúlkuna Katerinu
Maleevu, 6-4, 6-2 í úrslitum. Samt
sem áður voru þýzku áhorfendumir
ekki ánægðir og bauluðu ákaft.
Mörgum þeirra finnst Graf taka
sér of stuttan tíma til að vinna
andstæðinga sína en jafnframt gera
of mörg mistök. Éftir keppnina
missti hún þolinmæðina og æpti að
áhorfendum með tárin í augunum:
„Hvers væntið þið eiginlega af
mér?“ - Já - það er ekki tekið út
með sældinni að vera of góður í
einhverri íþrótt.
■ MIKE Tyson, heimsmeistari í
hnefaleikum, heitir réttu nafni
Mike Kirpatrick. „Ég hef ekki séð
föður minn síðan í jarðarför mömmu
þegar ég var 16 ára“ segir Tyson,
sem er aðeins 22 ára en samt sem
áður algerlega ósigrandi í hnefa-
leikum. Tyson lýsir föður sínum
sem stuttum digrum náunga, sem
hann hefði haft lítil samskipti við.
„Ég hélt, að hann myndi hafa sam-
band við mig eftir að ég fór að
þéna svona mikið en raunin varð
önnur", sagði Tyson. Fregnimar
um hinn raunverulega föður Ty-
sons komu þjálfara hans á óvart.
Hann hafði einungis vitneskju um
að hinn frægi þjálfari Cus DA-
moto, sem nú er látinn, hefði tekið
hann að sér í sonarstað á sínum
tíma.
■ IVAN Lendl er enn efstur á
heimslistanum í tennis. Hann hefur
verið í efsta sæti listans í 151 viku
samfleytt en metið á Jimmy Con-
nors, sem sat 159 vikur samfleytt
í efsta sætinu á sínum tíma. Búizt
hafði verið við, að Lendl myndi
hrapa niður í annað sætið eftir
fremur slakt gengi undanfarið en
sú varð ekki raunin. Á hæla hans
kemur Stefan Edberg og síðan
Mats Wilander. Andre Agassi er
fjórði á listanum en Boris Becker
fimmti.
■ STEFFI Graf hefur örugga
forystu á heimslista kvenna í tenn-
is. Næst kemur Martina Navrat-
ilova, þriðja er Chris Evert, fjórða
Pam Schriver og fímmta Gabriela
Sabatini.