Morgunblaðið - 20.08.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
Ný reglugerð um fiskeldi gefin út:
Markar þáttaskil
í veiðimálum hér
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Norðurlandamót í golfi sett
Norðurlandamótið í golfi var sett við hátíðlega athöfn á Hólmsvelli í Leiru í gærkvöldi. Konráð R. Bjama-
son, forseti Golfsambands íslands, setti mótið. Hörður Guðmundsson, formaður Golfklúbbs Suðumesja,
og Eiríkur Alexandersson, formaður samtaka sveitarfélaga á Suðumesjum, buðu gestina velkomna. Alls
keppa 54 kylfingar frá Norðurlöndunum fimm á mótinu; 33 karlar og 21 kona.
— segir Árni ísaksson veiðimálastjóri
Landbúnaðarráðuneytið hefur
sett nýja reglugerð um „flutning
og sleppingar laxfiska og varair
gegn smitsjúkdómum og blöndun
laxastofna". Arai tsaksson veiði-
málastjóri segir að þessi reglu-
gerð marki þáttaskil í veiðimálum
hér á landi. í henni sé tekið á
ýmsum vandamálum sem upp
kunna að koma varðandi óæskileg
Vísitala bygg-
ingarkostn-
aðar hækk-
ar um 0,65%
HAGSTOFAN hefur reiknað vísi^
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan ágústmánuð
1988. Reyndist hún vera 124,3 stig,
eða 0,65% hærri en i júlf. Þessi
vfsitala gildir fyrir september
1988.
Sfðastliðna tólf mánuði héfur vísi-
tala byggingarkostnaðar hækkað um
22,7%. Síðustu þijá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 11,1% og sam-
svarar það 52,2% árshækkun.
Vísitala framfærslukostnaðar hef-
ur hækkað um 2,1% frá byijun júlí
fram að byijun ágúst samkvæmt
upplýsingum kauplagsnefndar. Þessi
hækkun samsvarar 29,1% á árs-
grundvelli. Sfðustu 12 mánuði hefur
vfsitalan hækkað um 28,8% en
síðustu 3 mánuði um 9,3% sem svar-
ar til 42,5% verðbólgu.
Seðlabankinn hefur reiknað út
lánskjaravísitöluna fyrir september-
mánuð og er hún 2254. Hækkun
vfsitölunnar frá mánuðinum á undan
er 1,67%. Umreiknað til árshækkun-
ar hefur breytingin verið sem hér
segir: Sfðasta mánuð 22%, sfðustu 3
mánuði 45,9% og sfðustu 12 mánuði
26,8%.
Skákþing íslands:
Hannes Hlíf-
ar í efsta sæti
HANNES Hlífar Stefánsson er
einn í efsta sæti á Skákþingi ís-
lands eftir 5 umferðir með 4
vinninga. Fast á hæia honum
kemur Margeir Pétursson með
3,5 vinninga og biðskák. í 3.-4.
sæti eru þeir Karl Þorsteins og
Jón L. Arnason með 3 vinninga.
Fimmtu _ umferðinni lauk í gær-
kvöldi. Úrslit urðu sem hér segir,
Ágúst Karl vann Benedikt Jónas-
son, Hannes Hlífar vann Jóhannes
Ágústsson, Jón L. og Margeir gerðu
jafntefli, Ásgeir Þór Ámason vann
Þráinn Vigfússon, Karl Þorsteins
vann Davfð ólafsson og Þröstur
Þórhalls vann Róbert Harðarson.
áhrif sfvaxandi fiskeldis á villta
laxastofna í ám landsins
Efnisatriði hinnar nýju reglugerð-
ar hafa verið lengi til umfjöllunar á
Veiðimálastofnun. Þegar drög að
reglugerðinni lágu fyrir voru þau
tekin til umfjöllunar hjá samráðs-
nefnd veiðiréttareigenda, eldisaðila
og stangveiðimanna. Nefndin sam-
þykkti síðan reglugerðina í lok
síðasta mánaðar.
Helstu ákvæði hinnar nýju reglu-
gerðar eru að óheimilt er að flytja
lifandi villtan lax milli vatnakerfa
og landshluta án samþykkis fisksjúk-
dómaneftidar. Við fiskrækt f ám skal
nota laxastofn úr viðkomandi á. í
hafbeit og fiskrækt skal sleppa seið-
um undan villtum klakfiskum frá
viðkomandi landshlutum. Sleppingar
seiða af erlendum uppruna í fiskrækt
og hafbeit eru bannaðar.
Árni ísaksson segir að þessi reglu-
gerð standi framar svipuðum í ná-
grannalöndunum að því leyti að hér
er bæði tekið á vandamálum sem
tengjast sleppingum f ár og vötn og
einnig samskiptum við fiskeldi. •
Erlend lán til endurskipulagningar fyrirtækja:
Getum ætlast tíl að van-
skilin séu borgnð upp
- segir Brynjólfur Helgason aðstoðarbankastjóri Landsbankans
„ÞAÐ ER ekki reiknað með að fyrirtækin ráðstafi þessu fé að vild.
Það er ekki ætlast til þess að menn geti verið með það laust og
geti farið að fjárfesta fyrir það. Þetta er fjárhagsleg endurskipulagn-
ing og f flestum tilvikum felur hún sjálfsagt þetta í sér,“ sagði Brynj-
ólfur Helgason aðstoðarbankastjóri Landsbankans í gær. Hann var
spurður um, hvort rétt væri að sá miljjarður króna, sem tekinn er
að láni til endurskipulagningarinnar, rynni beint til greiðslu banka-
skulda fyrirtækjanna. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði þetta
óviðkomandi ráðuneytinu, það væri fyrst og fremst samskiptamál
fyrirtækjanna og bankanna hvemig fénu væri ráðstafað.
eru óánægðir með lántökukostnað-
inn. Alls er hann 11%, þar af er
fjárfestingarskattur 6%. Forráða-
menn sjávarútvegsfyrirtækja vilja
fá skattinn felldan niður. Morgun-
blaðið leitaði til fjármálaráðuneytis-
ins og spurðist fýrir um hvort skatt-
urinn verði felldur niður. Snorri
Olsen sagðist ekki vita til þess að
erindi þar að lútandi hefði borist
ráðuneytinu. Þó kvað hann hugsan-
legt að ráðherra væri með málið til
athugunar. Snorri sagði að það
væri þó víst, að engin formleg
ákvörðun hefði enn verið tekin um
málið. Ekki náðist í Qármálaráð-
herra í gær.
„Við getum ætlast til þess að
þeir greiði upp vanskilin. Þá er það
í þeim dæmum þar sem það hefur
verið rætt, áður en lánið er tekið,
að Landsbankinn myndi leggja á
það áherslu að lán fáist fyrir þeirri
upphæð sem þarf til að standa við
greiðslu vanskilalána," sagði Brynj-
ólfur. Um Landsbankann fara um
600 milljónir króna af þessum millj-
arði sem tekinn er að láni. Brynjólf-
ur sagði þessi lán létta á lausafjár-
stöðu fyrirtækjanna og koma þeim
út úr vanskilum. Lánin eru af-
borgunarlaus fyrstu tvö árin. „Þetta
verður til þess að gera þeim kleift
að greiða aðrar skuldir líka," sagði
hann.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði það vera viðfangsefni
fyrirtækjanna og viðskiptabanka
þeirra hvemig fénu er ráðstafað.
„Það hlýtur að vera breytilegt frá
einu dæmi til annars hvað skilar
bestum árangri. Því verða fyrirtæk-
in að ráða fram úr í samráði við
þá sem þau eiga lánsviðskipti við.
Lánsheimildimar em fyrirtækjanna
en ekki bankanna, ráðuneytið hefur
engin afskipti af sambandinu þeirra
í milli," sagði Jón.
í frétt Morgunblaðsins í gær um
þetta mál kom fram, að forsvars-
menn fyrirtækjanna sem fá lánsféð
Yfirlýsingar Ólafs
eru ábyrgðarlausar
- segir Gunnar Óskarsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Fj árf estingar félagsins
GUNNAR Óskarsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Fjárfesting-
arfélagsins segir að yfirlýsingar
Ólafs Ragnars Grímssonar um
að einn eða fieiri verðbréfasjóðir
séu að komast í þrot, séu ábyrgð-
arlausar. Með þvi að segja aðeins
hálfa söguna og neita að gefa
upp nöfn skapi hann óþarfa
óvissu og ótta hjá þeim fjölmörgu
sparifjáreigendum sem hafi
bundið fé sitt hjá traustum verð-
bréfasjóðum.
Stoltenberg segir samninga án íslendinga ekki koma til greina:
Staðfesting á kröfum okkar
- segir Eyjólfur Konráð Jónsson
ÞESSI ummæli Stoltenbergs eru nyög ánægjuleg staðfesting á
okkar sjónarmiðum og það sem bæði ég og aðrir hafa verið að
bíða eftir," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanrikis-
málanefndar Alþingis, þegar Morgunblaðið bar undir hann þau
umtnæli Stoltenbergs, utanríkisráðherra Noregs, í fréttatíma
Ríkisútvarpsins í gærkvöldi, að ekki yrði samið um framtið Jan
Mayen-svæðisins án aðildar íslendinga.
Danir og Norðmenn hafa frá
því árið 1980 deiit um lögsögu-
mörk milli Jan Mayen og Græn-
lands. Danir krefjast 200 mflna
lögsögu fyrir hönd Grænlendinga
en Norðmenn og íslendingar vilja
að miðlína gildi. Fyrr í þessari
viku ákváðu Danir að vísa deil-
unni til Alþjóðadómstólsins í Haag
og hefur sú ákvörðun verið gagn-
rýnd af íslenskum stjómvöldum
sem krefjast þess að fá aðild að
viðræðum um framtíð svæðisins.
Eyjólfur Konráð Jónsson sagði
ummæli Stoltenbergs vera mjög
ánægjuleg og í raun nákvæmlega
það sem Islendingar höfðu ætlast
til að væri alveg. á hreinu, nefni-
lega, að Norðmenn og íslendingar
ættu sameiginleg réttindi á svæð-
inu. „Stoltenberg segir umbúða-
laust að um Jan Mayen-svæðið
verði ekki fjallað nema þrír aðil-
ar, íslendingar, Danir og Norð-
menn, eigi aðild að viðræðunum.
Þetta er það sem hefði átt að
liggja fyrir síðan við sömdum við
Norðmenn árið 1980 og 1982 um
sameiginlega nýtingu svæðanna,"
sagði Eyjólfur Konráð Jónsson.
Hann taldi þessi ummæli einnig
vera vísbendingu um ennþá
víðtækari samvinnu þessara ríkja
um sameiginlegt tilkall til alls
hafsvæðis á norðurslóðum sem
nú væri fyrir utan efnahagslög-
sögu þeirra. Slíkt myndi auðvelda
verulega aðgerðir til þess að friða
norðurslóðir og vemda gegn
mengun.
„Þessar yfírlýsingar Ólafs Ragn-
ars koma mér á óvart og ég skil
ekki hvað liggur að baki. Verð-
bréfasjóðimir hafa verið undir eftir-
liti Bankaeftirlitsins frá árinu 1986
og hefur Bankaeftirlitið kannað þá
alla,“ segir Gunnar.
Gunnar segir að þessar yfirlýs-
ingar hafi skapað mikil óþægindi
hjá Fjárfestingarfélaginu vegna
fjölda símtala og fyrirspuma til fé-
lagsins í framhaldi af yfírlýsingum
Ólafs.
Armann Reynisson forstjóri
Ávöxtunar segir einnig, að hann
telji yfirlýsingar Ólafs Ragnars
ábyrgðarlausar. Hann bendir einnig
á, að sjóðimir séu undir eftirliti
Bankaeftirlitisins og kveður það
vera af hinu góða ef Bankaeftirlitið
framkvæmdi rannsókn á borð við
þá sem Ólafur hefur farið fram á.
Slíkt myndi eyða þeirri óvissu og
þeim efa sem Ólafur hafi skapað.