Morgunblaðið - 20.08.1988, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
Mannbjörg er trilla sökk
í gærmorgun sökk Villi AK,
sem er 6 tonna trilla, um 15
sjómílur norðvestur af Akra-
nesi. Einn maður var um borð,
Símon Símonarson, og var hon-
um bjargað um borð í Enok AK,
sem sendur var til aðstoðar frá
Akranesi. Þetta er þriðja trillan
sem sekkur nú á skömmum
tíma.
Hjálparbeiðni barst Slysavama-
félaginu kl. 6.05 í gærmorgun, en
þá var kominn mikill leki að bátn-
um. Vélbáturinn Enok AK lagði
strax af stað til hjálpar frá Akra-
nesi, og einnig fóru slysavarnabát-
amir Jón E. Bergsveinsson frá
Reykjavík, Ásgeir M. frá Seltjam-
Frá slysstað í gær.
amesi og Sæbjörg úr Sandgerði á
staðinn. Enok AK.kom að trillunni
um leið og Jón E. Bergsveinsson,
Morgunblaðið/Kristján Jónsson
en maðurinn sem var um borð í
Villa var þá kominn í gúmbjörgun-
arbát og fór hann um borð í Enok.
Rannsóknanefnd sjóslysa lagði
mikla áherslu á að reyna að ná
bátnum, en það sá á stefnið á
honum þegar að var komið. Svan-
ur RE 45, sem er stór loðnubátur,
átti leið um og var hann fenginn
til aðstoðar. Tókst að koma taug
úr honum í trilluna áður en hún
sökk skömmu fyrir kl. 8 í gær-
morgun, og var reynt að lyfta
bátnum upp. Kafari var sendur frá
Reykjavík til að koma betri taug-
um á bátinn, en það tókst ekki
og klukkan 11.55 slitnaði taugin
og þáturinn sökk.
Ágætt veður var á þessum slóð-
um í gærmorgun og skýring á
óhappinu er ekki ljós.
e>
INNLENT
VEÐUR
Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað:
3.300 krónur fyrir tonnið af loðnu
SÍLDARVINN SLAN hf. á Nes-
kaupstað hefur ákveðið að
greiða 3.300 krónur fyrir tonnið
af loðnu til að byrja með, að
sögn Finnboga Jónssonar fram-
kvæmdastjóra Síldarvinnslunn-
I DAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gœr)
VEÐURHORFURIDA G, 20. AGUST1988
YFIRLIT í GÆR: Um 300 km austur af Færeyjum er 988 mb lægð,
sem þokast vestur og síðar suðvestur, en 993ja mb hæð yfir Skot-
landi hreyfist norðaustur. Á Grælandshafi er nærri kyrrstæður
1016 mb hæðarhryggur. Hiti breytist lítiö.
SPÁ: Norðan gola eða kaldi um allt land. Léttskýjað á Suöur- og
Vesturlandi, en skýjað á Noröur- og Norðausturlandi. Þokuloft við
norður og norðausturströndina. Hiti 9—16 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG:Hæg breytileg átt eða vestangola og létt-
skýjað viða um land. Hiti 9—15 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Suðvestlæg átt, skýjað og dálítil súld á
Suður- og Vesturlandi, en víðast léttskýjað á Norður- og Austur-
landi. Fremur hlýtt, einkum á Norður- og Austurlandi.
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
f * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir i
*
V E1
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
j~<^ Þrumuveður
W VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 14 skýjað Reykjavík 14 léttskýjað
Bergan 15 rigning
Helsinki 16 skýjað
Kaupmanrtah. 19 skýjað
Narssarssuaq 7 léttskýjað
Nuuk 9 rignlng
Ósló 14 rigningogsúld
Stokkhólmur 15 rigning
Þórshöfn 13 alskýjað
Algarve 29 heiðskirt
Amsterdam 20 rigning
Barcelona 28 skýjað
Chicago 21 alskýjað
Fenoyjar 28 þokumóða
Frankfurt 27 skýjað
Glasgow 14 rigning
Hamborg 19 skýjað
Las Palmas 24 lóttskýjað
London 20 skýjað
Los Angeles 17 mistur
Lúxemborg 21 rigning
Madríd 33 léttskýjað
Malaga 28 mistur
Mallorca 30 þokumóða
Montreal 13 léttskýjað
New York 17 skýjað
Parfs 23 hálfskýjað
Róm 30 þokumóða
San Diego 18 alskýjað
Winnipeg 14 skýjað
ar. Eitt af skipum hennar, Börk-
ur NK, fór á loðnuveiðar síðast-
liðið fimmtudagskvöld.
„Hólmaborg SU, skip Hrað-
frystihúss Eskifjarðar hf., fékk
enga loðnu í fyrrinótt, að sögn
Magnúsar Bjamasonar fram-
kvæmdastjóra frystihússins.
„Loðnan stendur djúpt og dreifir
sér þegar hún kemur upp,“ sagði
Magnús. „Við greiddum 3.100
krónur fyrir tonnið af fyrsta loðnu-
afla Hólmaborgar. Loðnan var
15% feit og tæp 14% þurrefni.
Hins vegar hefur loðnan oft verið
20% feit á þessum tíma,“ sagði
Magnús. Jón Kjartansson SU, skip
Hraðfrystihúss Eskifjarðar, fer að
öllum líkindum á loðnuveiðar
næstkomandi þriðjudag, að sögn
Magnúsar Bjamasonar.
Rannveig Guðmundsdóttir.
Nýr aðstoðar-
maður félags-
málaráðherra
RANNVEIG Guðmundsdótt-
ir, bæjarfulltrúi í Kópavogi
tók við af Láru V. Júlíus-
dóttur sem aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra í gær,
föstudaginn 19. ágúst, að því
er segir í fréttatilkynningu
frá félagsmálaráðuneytinu.
Rannveig er fædd á ísafirði
15. september 1940. Hún var
kjörin í bæjarstjóm Kópavogs
1978 og hefur átt þar sæti
síðan . Á vegum Kópavogs-
kaupstaðar hefur Rannveig
gegnt fjölmörgum trúnaðar-
störfum. Meðal annars hefur
hún verið formaður félagsmál-
arsð, í stjóm launanefndar
sveitarfélaga, í stjórn Spari-
sjóðs Kópavogs, forseti bæjar-
stjómar Kópavogs og formaður
bæjarráðs.
Rannveig hefur verið form-
aður Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins frá því í desember 1987.
Hún er gift Sverri Jónssyni
tæknifærðingi og eiga þau þijú
böm.
Morgunblaðið/KGA
Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður Borgarskipulags, afhendir
borgarstjóra fyrsta eintak aðalskipulagsins. A bakvið sjást Ástríður
Thorarensen, borgarstjórafrú og Magnús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjórnar.
Aðalskípulag Reykjavík-
ur 1984-2004 komið út
Á AFMÆLISDEGI höfuðborgarinnar 18. ágúst kom út Aðalskipulag
Reykjavíkur 1984-2004. Unnið hefur verið að skipulaginu síðastliðin
fjögur ár hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur. Skipulagið var staðfest
af félagsmálaráðherra 27. júlí síðastliðinn. Þorvaldur S. Þorvalds-
son, forstöðumaður Borgarskipulags afhenti borgarstjóra fyrsta ein-
tak aðalskipulagsins í Höfða.
Aðalskipulagið kemur í stað fyrra
skipulags sem gilti fyrir árin 1962-
1983. Davíð Oddsson sagði í ræðu
sinni að aðalskipulagið yrði endur-
skoðað að loknum hveijum sveitar-
stjómarkosningum með tilliti til
breyttra aðstæðna og skoðana á
hveijum tíma.
Borgarstjóri sagði einnig að mik-
il vinna lægi að baki skipulaginu
sem bæri að þakka Þorvaldi og
samstarfsmönnum hans hjá Borg-
arskipulagi og embætti Borgar-
verkfræðings. Við undirbúnings-
vinnu aðalskipulagsins hefði verið
komið inn á flesta þætti mannlegs
lífs.