Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 5

Morgunblaðið - 20.08.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988 5 Ölafur Ragnar Grímsson: lHlögur Alþýðu- bandalagsins marka þáttaskil Á FUNDI hjá Alþýðubandalaginu í Kópavogi á fimmtudag gagn- rýndi Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, harð- lega vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar og kynnti tillögur Alþýðubanda- lagsins í peningamálum. Taldi hann þessar tillögur marka þáttaskil og væri þessi fundur upphafið að nýrri stefnu. Einnig fluttu framsög- ur á fundinum, sem bar yfirskriftina „skipbrot sljórnarstefnunnar“, þau Svavar Gestsson og Svanfríður Jónasdóttir. Ólafur Ragnar Grímsson sagði á fundinum að munurinn á stefnu stjómarinnar og Alþýðubandalags- ins fælist aðallega í þrennu. Vaxta- stefnunni, afstöðunni til þrenginga Umferðarslys á Suðurgötu UMFERÐARSLYS varð á Suður- götu í gærdag er 16 ára gömul stúlka varð fyrir þungaflutn- ingabU með aftanivagni. Stúlkan hlaut andlitsáverka en mun ekki vera alvarlega slösuð. Slysið átti sér stað rétt hjá íþróttasal Háskólans. Bflnum var ekið eftir götunni. Er hann koma á móts við salinn hljóp stúlkan út á götuna og lenti hún aftast á vagnin- um með fyrrgreindum afleiðingum. Eskifjörður: Eldur í tunnu- verksmiðju Eskifírði. ELDUR kom upp í tunnuverk- smiðju Sæbergs hf. á Eskifirði um klukkan hálf fimm i fyrrinótt. Húsið, sem er stálgrindarskemma, er mikið skemmt af völdum elds- ins, sem og tunnulager og vélar til samsetningar á sildartunnum er í húsinu voru. Að sögn Ásbjörns Guðjónssonar slökkviliðsstjóra var slökkviliðið kallað út kl. 4.35 í nótt og var þeg- ar mikill eldur í trétunnum inni í húsinu sem og í „pólýúreþan“- klæðningu í veggjum. Sagði Ás- bjöm vera ljóst að allur tunnulager fýrirtækisins væri gjörónýtur og vélar til samsetningar á tunnum væru mikið skemmdar. Þá taldi hann að um þriðjungur hússins væri ónýtur vegna ofhitnunar í stál- bitum. Slökkvistarfi var lokið um kl. 11 í gærmorgun. Eldsupptök eru ókunn en eru í rannsókn hjá rann- sóknarlögreglunni á Eskifirði. - Ingólfur í atvinnulífi og hver ætti að borga kostnaðinn. Alþýðubandalagið vildi lækka vexti með handafli. í stað „fjálsrar markaðskreddu" ætti að koma til stýring fólksins á peninga- kerfínu. Hinn fijálsi markaður ætti ekki heldur að ákveða hvaða fyrir- tæki yrðu gjaldþrota heldur þyrfti lýðræðislegar ákvarðanir um það. Loks teldi Alþýðubandalagið að ekki ætti að skerða tekjur launa- fólks vegna þrenginga í atvinnulífi heldur fjármagnstekjur. Ólafur Ragnar sagðist einnig hafa heimildir fyrir því að tvö af þekktari verðbréfafyrirtækjunum væru ekki í stakk búin til þess að standa við skuldbindingar sínar. Hann var mjög harðorður í garð fjármagnsfyrirtækja og krafðist opinberrar rannsóknar á stöðu þeirra. Ólafur Ragnar gagnrýndi mjög á fundinum Framsóknarflokkinn og formann hans. Sagðist hann sjá mikinn svip með Steingrími Her- mannssyni og George Bush varafor- seta Bandaríkjanna. Það væri sama á hvað væri minnst — Framsóknar- flokkurinn bæri aldrei á því sökina. Það væri því hægt að spyija eins og demókratar í Bandaríkjunum um Bush: Hvar var Steingrímur Her- mannsson og Framsóknarflokkur- inn, þegar vextir voru gefnir fíjáls- ir, halli ríkissjóðs nam milljörðum ár eftir ár o.s.frv.? Ólafur Ragnar svaraði spurningu sinni sjálfur og sagði svarið allsstaðar vera það sama. Steingrímur Hermannsson og Framsóknarflokkurinn sátu ávallt í lykilstöðum þegar þessar ákvarðanir voru teknar og bera því mestu ábyrgðina. Líkt og Ólafur Ragnar lögðu þau Svanfríður og Svavar mesta áherslu á vaxtamál í framsögum sínum á fundinum. Svavar sagði fjármagnið hafa haft forgang fram yfír fólkið og nú vildu „reglustikukratamir" samræma vexti af húsnæðislánum og greiða í staðinn niður vexti skattaleiðina. Svavar sagði Al- þýðubandalagið hafa slæma reynslu af slíkum leiðum og minnti á reynsl- una af láglaunabótunum á sínum tíma sem hefðu borist jafnvel for- stjórum fyrirtækja. „Strandganga í landnámi Ingólfs“ AUKAFERÐ verður í dag á vegum Útivistar sem nefnist „Strandganga í landnámi Ing- ólfs“. Brottför er bæði klukkan 10.30 og 13. I strandgöngunni verður gengið frá Krísuvíkurbergi um Háaberg, Seljabót og Alnboga í Herdís- arvik. Þeir sem mæta klukkan 13 hefja gönguna við Háaberg, en sú ganga er léttari. Á sunnudag 21. ágúst verður einnig aukaferð á vegum félags- ins. Þá verður farið um Hrafnt- innusker og Reykjadali. Brottför er klukkan 8 en þá er einnig hald- ið í Þórsmörk. Klukkan 10.30 sama dag verður gengið yfír Esju um Hátind og Skálatind og klukk- an 13 verður gengin ný leið frá Þingvöllum er nefnist Hrafnbjarg- arháls-Tindron. (Úr fréttatilkynningu). Signrður B. Stef- ánsson hjá VIB: Viðskipti með verðbréf aukast stöðugt Sigurður B. Stefánsson hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðarbank- ans segir viðskipti með verðbréf hafa aukist mjög frá áramótum. „Júlí var söluhæsti mánuður í sögu VIB en viðskiptin hafa ver- ið í stöðugum vexti allt þetta ár,“ sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við verð- um einnig varir við mikla aukn- ingu hlutabréfaviðskipta." Sigurður telur ýmsar ástæður liggja að baki góðri sölu. „Sumrin eru ekki síðri tími á verðbréfamark- aðinum. Það tekur tíma að kynna sér þessi mál og fólk virðist nota sér sumarfríin til þess. Almenning- ur er smám saman að uppgötva nýjar leiðir til ávöxtunar fjár.“ Að sögn Sigurðar hefur heildareign verðbréfasjóða aukist um 51,4% frá 4>ví í desember á síðasta ári. Hjá Gunnari Óskarssyni í verð- bréfamarkaði Fjárfestingafélagins fengust þær upplýsingar að við- skiptin væru svipuð og undanfama mánuði. „Viðskiptahættir hafa breyst og sífellt fleiri treysta verð- bréfasjóðum fyrir fjármunum sínum. Það er ljóst að almennt er um viðurkennda spamaðarleið að ræða,“ sagði Gunnar. Sameining Miklagarðs og Kaupstaðar: Jón Sigurðsson hætt- ir framkvæmdastjóm Þröstur Ólafsson hefur yfirumsjón með sameiningunni STJÓRN Kaupfélags Reylgavíkur og nágrennis hefur falið Þresti Ólafs- syni, stjómarformanni KRON, yfirumsjón með starfsemi félagsins meðan unnið er að sameiningu í rekstri Miklagarðs og KRON. Sérstök rekstrarstjórn undir forystu Þrastar tekur við daglegum rekstri félags- ins 1. september næstkomandi. Þröstur Ólafsson segir að hér sé ekki um starf að ræða heldur tíma- bundið verkefni sem hann hafí tekið að sér. Verkefninu á að vera lokið fyrir aðalfund KRON í aprfl á næsta ári. Vegna þessa hefur Þröstur feng- ið sex mánaða leyfí úr starfí sínu í Dagsbrún. Hann segir að hér sé eink- um verið að ná fram betri samnýt- ingu á fjármagni og vinnuafli þess- ara tveggja fyrirtækja. Jón Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Miklagarðs, segir ljóst að hann hætti störfum við fyrirtækið, ekki sé rúm fyrir fleiri en einn skipstjóra á sömu skútunni. Stjóm Miklagarðs komi saman á mánudag og ræði framhaldið, sér hafí ekki verið form- lega sagt upp störfum enn. „Mikligarður er fímm ára fyrir- tæki. Fýrstu tvö árin var tap á rekstr- inum, næstu tvö hagnaður en þetta ár hefur reynst fremur erfítt eins og víðar. Rekstur KRON, sem á 52% í Miklagarði, hefur reynst erfíður und- anfarin ár og lengi hefur verið áhugi á að samhæfa rekstur fyrirtækjanna á einhvem hátt,“ segir Jon Sigurðs- son. „Þegar það var ámálgað við mig í vor að ég tæki við stjóm Mikla- garðs og KRON að lokinni samein- ingu setti ég það skilyrði að hafa fullt vald til ákvarðanatöku um dag- legan rekstur," segir Jón. „Stjóm KRON gerði mér tvö formleg tilboð um rekstrarstjóm í sumar, bæði óað- gengileg. í þeim var gert ráð fyrir að stjómarformaður og stjóm KRON hefðu áhrif á daglegan rekstur og ráðningar starfsmanna, sem ég tel óviðunandi." Óvissa ríkir að sögn Jóns meðal starfsfólks Miklagarðs um fram- haldið. Segir hann að eftir að ákveð- 'ið var um síðustu mánaðamót að sameina rekstur KRON og Mikla- garðs hafí starfsfólk spurt mikið um starfsmannahald, stöðu sína og rekstur fyrirtækisins án þess að hann hafí getað veitt viðunandi svör. Afmælisviku Siglu fjarðar lýkur í dag VIKU löngum hátíðarhöldum vegna 70 ára kaupstaðaraf- mælis og 170 ára verslunaraf- mælis Siglufjarðar lýkur í dag. Að sögn ísaks J. Ólafssonar, bæjarstjóra, þykir hátíðardag- skráin hafa tekist með ágætum. „Fólk hefur streymt hingað alla vikuna og hafa sýningar og aðrar uppákomur verið nyög vel sóttar," sagði ísak í viðtali við Morgunblaðið í gær. Stangveiðifélag Sigluijarðar og Björgunarsveitin Strákar stóðu fyrir tveggja daga löngu sjóstang- veiðimóti á miðvikudag og fímmtudag. Mikill afli barst á land og varð sveit Ragnars Ólafssonar á Siglufirði aflahæst með 1.613,4 kg. Næst kom sveit Ragnheiðar Rögnvaldsdóttur með 1.255,6 kg. Aflahæstur einstaklinga varð Gunnar Júlíusson með 698,1 kg, en til gamans má geta hann veiddi 701 físk á tveimur dögum. í gærkvöldi var slegið upp sfldarballi á Hótel Höfn og kom- ust færri að en vildu. Mikil biðröð myndaðist við forsölu aðgöngu- miða og varð að grípa til þess ráðs að selja hveijum kaupanda ekki fleiri en 4 miða á dansleikinn. í dag klukkan 14 keppir Knatt- spymufélag Siglufjarðar við Breiðablik í 2. deild íslandsmeist- aramótsins í knattspymu. Háríð- arhöldunum lýkur síðan með grill- veislu að Hóli sem íþróttabanda- lag Sigluflarðar sér um, en þang- að er boðið öllum bæjarbúum og öðrum gestum. Morgunblaðið/Matthías Jóhannsson í tilefni afmælis Siglufjarðar gaf Lionsklúbbur Siglufjarðar bæn- um skilti sem sett hefur verið upp við bæjarmörkin norðan Siglu- fjarðar. Á skiltinu er uppdráttur af Siglufirði og ýmsar haguýtar upplýsingar. Á myndinni eru sr. Vigfús Þór Arnason, Isak J. Ólafsson, bæjarstjóri, og Steinar Ingi Eiríksson, formaður Lions- klúbbs Siglufjarðar. Dúkkukerran á ferð um Vestfirði NÝTT brúðuleikhús er tekið til starfa og hefur það hlotið nafnið Dúkkukerran. Eigendur leikhúss- ins eru Lilja S. Jónsdóttir og Ásta Þórisdóttir, aðstoðarmaður þeirra er Einar Haukur Þórisson. Dúkkukerran hefur leikferð um Vestfírði í dag, laugardaginn 20. ágúst og verður þann dag í Súðavík kl. 13.00 og í Hnífsdal kl. 17. Sunnudaginn 21. ágúst verður Dúkkukerran stödd á ísafirði og þann daginn verða tvær sýningar. Sú fyrri kl. 13 og sú seinni kl. 17. Mánudaginn 22. ágúst verður ein sýning á ísafirði kl. 13 og í Bolung- arvík kl. 17. Þriðjudaginn 23. ágúst verður sýning á Suðureyri kl. 13 og á Flateyri kl. 17. Miðvikudaginn 24. ágúst verður sýning á Þingeyri kl. 13. Fimmtudaginn 25. ágúst verður sýning á Bíldudal kl. 13 og á Tálknaf- irði kl. 17. Loks verða tvær sýningar á Patreksfírði kl. 13 og 17. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.