Morgunblaðið - 20.08.1988, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988
7
Erlendum ferðamönn-
um fjölgar frá fyrra ári
Ferðamannaiðnaður svipaður og í fyrra
ERLENDUM ferðamönnum hér á landi fjölgaði um iiðlega átta af
hundraði i júlímánuði en um þijá af htmdraði fyrstu sjö mánuði
ársins miðað við sama timabil í fyrra samkvæmt tölum útlendingaeft-
irlitsins. íslendingum sem fóru til útlanda fækkaði hins vegar um
átta hundraðshluta i júli en hefur fjölgað um rúmlega sjö af hundr-
aði það sem af er árinu. Yfirleitt láta þeir sem starfa að þjónustu
við ferðamenn hérlendis nokkuð vel af sumrinu, segja það svipað og
í fyrra, en taka lítt undir óánægjuraddir sem heyrst hafa að undanf-
órnu.
„Ég held við getum vel við unað
ef fjöldi þeirra sem ferðast til lands-
ins eykst um fimm af hundraði
þetta árið frá því í fyrra,“ segir
Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri.
„Síðastliðin þrjú ár hefur erlendum
ferðamönnum hérlendis flölgað um
ríflega fimmtíu af hundraði, sem
er meira en önnur lönd geta státað
af.
Helstu breytingar það sem af
er árinu virðast mér vera 20%
aukning þýskra ferðamanna frá
fyrra ári, 19% aukning íslandsferða
ítala, 16% aukning hjá Hollending-
um og 11% hjá Norðurlandabúum.
Þá hefur svokölluðum „stop-o-
ver“-farþegum frá Bandaríkjunum
fækkað og raunar hefur almennt
dregið úr Evrópuferðum Banda-
ríkjamanna á árinu. Skýringar
gætu verið lágt verð dollara, sem
jafngilti 37 krónum þegar saía ís-
landsferða stóð sem hæst þótt hann
hafi hækkað sfðan. Jafnframt telja
margir að Bandaríkjamenn ferðist
minna á kosningaári en endranær,"
segir Birgir Þorgilsson.
Færri Bandaríkjamenn
til landsins
Jón Karl Ólafsson, forstöðumað-
ur hagdeildar Flugleiða, staðfestir
að „stop-over“-farþegum frá
Bandaríkjunum hafi fækkað en
segir að fjöldi annarra farþega sem
hingað koma á vegum félagsins sé
mjög svipaður og á síðasta ári.
Farþegum í innanlandsflugi fyrri
hluta ársins hafi hins vegar fækkað
um 5% frá því í fyrra.
Magnús Oddsson, markaðsstjóri
Amarflugs, segir að fyrstu sjö
mánuði ársins hafi ferðamönnum
af meginlandi Evrópu á vegum fé-
lagsins flölgað um fjórðung miðað
við 1987. Mest sé aukningin í ís-
landsferðum frá Sviss, tæp 30%.
Ferðamönnum frá Vestur-Þýska-
landi hafi fjölgað um 21%, frá ít-
alíu um 19% og Hollandi um 16%.
Hans Indriðason, hótelstjóri á
Hótel Loftleiðum, segir nýtingu
hótelsins hafa verið þokkalega í
sumar, í júní og júlí afar svipaða
og á síðasta ári, en það sem af er
ágúst ívíð betri. Hins vegar hafi
fyrri hluti ársins verið verri en í
fyrra og hann hafi áhyggjur af
vetrinum. Segir Hans að fleiri Þjóð-
veijar og Norðurlandabúar gisti nú
hótelið en færri Bandaríkjamenn
en áður.
Konráð Guðmundsson, hótel-
stjóri á Hótel Sögu, kveðst ekki
ánægður með nýtingu hótelsins í
sumar og segir hana um 10% lak-
arí en í fyrra. Meginástæður fækk-
unar gesta séu flölgun hótelher-
bergja í höfuðborginni og hátt verð-
lag hérlendis. Yfírgnæfandi hluti
þeirra sem hótelið gista séu útlend-
ingar.
Jónas Hvannberg, hótelstjóri á
Hótel Holiday Inn, segir nýtingu
hótelsins í sumar vera í samræmi
við það sem búist var við. Hún
hafí verið mjög góð, rúmlega 90%,
í júní, liðlega 72% í júlí og stefni
upp undir 90% í þessum mánuði.
Veitingarekstur gangi hins vegar
ekki sérlega vel. Af hótelgestum
séu litlir ráðstefnuhópar og menn
í viðskiptaerindum mest áberandi.
Farfuglaheimili og
tjaldstæði vel nýtt
Hulda Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri ferðaskrifstofu farfugla, seg-
ir að nýting tveggja farfuglaheim-
ila í Reykjavík hafí verið góð í sum-
ar, 90-95%, og þannig hafi hún
einnig verið undanfarin sumur.
Einna mlnnst hafi verið af gestum
á farfuglaheimilunum um helgar
en þessu sé öfugt farið utan höfuð-
borgarinnar. Hulda kveðst ekki
hafa fengið tölur um nýtingu heim-
ilanna úti á landi en vita að hún
sé afar mismunandi. Almennt megi
þó segja að júnímánuður hafi verið
lélegur en júlí þokkalegur.
Umsjónarmenn tjaldstæðisins í
Laugardal eru hinir hressustu peð
aðsóknina i sumar að sögn Áma
Péturssonar og telur hann að hún
verði alls um 10% meiri en í fyrra.
í júní var töluvert færra á tjald-
stæðinu en síðastliðið sumar, í júlí
komu um 10% fleiri en þá og stefnir
í álíka fjölgun frá fyrra sumri þenn-
an mánuðinn. Aðstaða á tjaldstæð-
inu var bætt til muna í júlí og seg-
ir Ámi að eftir það staldri fólk mun
lengur við.
Mývatnssveit hefur að sögn Æsu
Pálsdóttur verið eitthvað ver sótt
á þessu sumri en í fyrra. Segir hún
heldur fáa hafa tjaldað í júní eins
og víðast annars staðar, mun fleiri
í júlí og í byijun ágúst hafi aðsókn
verið mikil. Aðsókn hafi svo dottið
snögglega niður um miðjan mánuð-
inn líkt og gerðist í fyira.
Straumurinn eykst
á hálendið
Skarphéðinn Eyþórsson á Hóp-
ferðamiðstöðinni segir annir hafa
aukist mikið í sumar. „Við keyrum
fyrir ferðaskrifstofumar og mun
fleiri hópar hafa farið á hálendið í
sumar heldur en í fyrra. Á síðasta
ári keyrðum við um 20 þúsund
ferðamenn og sú tala hækkar tölu-
vert í ár. Frakkar og Þjóðveijar
sýnast mér sérstaklega sækja í sig
veðrið."
Gunnar Sveinsson hjá BSÍ segir
helstu einkenni ferðasumarsins
1988 vera fleiri útlendinga sem
ferðast með langferðabifreiðum en
fyrra sumar og færri íslendinga.
Þeir fari sinna ferða um landið í æ
ríkari mæli á einkabílum.
Talsvert færri hafa gist í Hótel
Borgamesi þetta sumar en á því
síðasta að sögn Þórðar Pálmasonar
hótelstjóra. Segir hann að enda
hafi verið metaðsókn í fyrrasumar.
Að miklu leyti megi rekja afþantan-
ir í júní til verkfalls verslunar-
manna og sumarið hafi farið heldur
seint í gang. Flestir hótelgesta í
sumar hafi verið íslenskir en af
útlendingum hafi Þjóðveijar verið
í meirihluta og þá Frakkar. Segir
Þórður að veitingarekstur hafi
gengið ágætlega í sumar.
Sumarið fór vel af stað á Hótel
KEA á Akureyri að sögn Gunnars
Karlssonar hótelstjóra. Gestum
fækkaði síðari hluta júllmánaðar
en aðsókn jókst aftur í ágúst.
Gunnar er bjartsýnn á veturinn
ólíkt mörgum sem Morgunblaðið
hafði samband við. Segir hann að
stórir hópar séu bókaðir í haust,
aðallega I tengslum við ráðstefnur
er haldnar verða nyrðra.
Aðsókn að Hótel Eddu á Eiðum
hefur að sögn Guðmundar Kristins-
Tjaldsvæðið við Reykjahlíð í
Erlendum ferðamönnum hérlendis fjölgaði um 8% i júli miðað við sama mánuð á siðasta ári. Alls
hefur ferðamannastraumur til landsins aukist um 3% á árinu frá þvi í fyrra. Stjórnendur hótela
eru misjafnlega ánægðir með sumarið, farfuglaheimili i Reykjavík hafa verið vel nýtt, sömuleiðis
tjaldstæðið í Laugardal þar sem þessi mynd var tekin.
sonar, hótelstjóra, verið ívið betri
í sumar en fyrir ári. Hann segir
að júnímánuður hafi að visu verið
eilítið verri en seinni sumarmánuð-
imir tveir betri en síðasta ár. Meira
sé um hópa en áður og séu Þjóð-
veijar lang flölmennastir erlendra
gesta, jafn margir íslendingum.
Fleiri koma hingað
á eigin vegum
Ámi Stefánsson, hótelstjóri á
Hótel Höfn, kveðst ánægður með
sumarið þrátt fyrir leiðindaveður.
Fleiri hafi dvalist á hótelinu í júní
en nokkm sinni fyrr, júlí hafi verið
slakari en í fyrra og hið sama virð-
ist eiga við um ágúst. Segir Ámi
að ítölum hafi fjölgað á hótelinu I
sumar. Hópbókanir séu alltaf áber-
andi en útlendingar virðist ferðast
æ meira hingað til lands á eigin
vegum. Yfir sumartímann séu álíka
margir innlendir gestir og útlendir
á hótelinu en á öðmm árstímum
séu íslendingar í meirihlutá.
Jóhann Heiðmundsson, hótel-
stjóri í Vestmannaeyjum, er þokka-
lega ánægður með sumarið. Hann
segir að nýting hótelsins hafi verið
góð framan af júní og I júlí en
héldur skrykkjótt í þessum mán-
uði, detti niður á virkum dögum.
Mest sé um íslenska hópa á hótel-
inu, útlendingar virðist sækjast eft-
ir ódýrari gistingu í Eyjum.
Nánast hefur verið fullbókað á
Hótel Keflavík í sumar að sögn
Steinþórs Jónssonar hótelstjóra.
Segir hann mikið vera um að ís-
lendingar jafnt sem útlendingar
gisti hótelið nóttina fyrir flug utan
en hópar ferðamanna verði sífellt
meira áberandi.
Nýting Edduhótelanna í sumar
virðist svipuð og I fyrra að sögn
Kjartans Lámssonar, forstöðu-
manns Ferðaskrifstofu ríkisins.
Segir hann að slðastliðið sumar
hafi álíka margir innlendir gestir
og erlendir dvalist á hótelunum en
nú séu útlendingar eitthvað fleiri I
heildina. Þetta sé vitaskuld breyti-
legt frá einu hóteli til annars.
„Ferðamönnum hérlendis hefúr
farið fjölgandi síðustu sumur og
fer enn,“ segir Kjartan Lámsson.
„Til að gefa grófa hugmynd um
fjölda þeirra er ljóst að um 60 þús-
und útlendingar vom á ferð um
landið I fyrrasumar og annað eins
af íslendingum. Aukin bílaeign
landsmanna, og um 250 kílómetrar
sem nú hafa bæst við malbikaða
vegi, er meðal þess sem hefur góð
áhrif á ferðamannaiðnað sumars-
ins. Hins vegar hefur kalt veður á
Austurlandi I sumar og á Norður-
landi I upphafi sumars dregið úr
ferðamannastraumi. Þá virðist
vanstilling á gengi krónunnar hafa
stuðlað að minni neyslu erlendra
ferðamanna. í heildina hygg ég að
sumarið hafi verið I meðallagi hvað
varðar ferðamál hérlendis."
Norræna stjórnsýslusambandið:
Ráðstefna um opin-
bera stjórnsýslu
Á HÓTEL Sögu heldur Norræna stjórnsýslusambandið ráðstefnu,
sem lýkur i dag 20. ágúst. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Þróun stjórn-
sýslustofnana á 10. áratugnum1*. Þátttakendur á ráðstefnunni eru
um 300, en Þetta er 22. ráðstefna samtakanna, sem stofnuð voru
árið 1918. Samtökin eru því 70 ára um þessar mundir. íslendingar
hafa verið þátttakendur í þessum samskiptum frá 1920. Dóms- og
kirkjumálaráðherra íslands, Jón Sigurðsson, opnaði ráðstefnuna með
erindi sem nefndist „Útboð ríkisstjórna á tíunda áratugnum".
Jón Sigurðsson dóms- Tom Jacobsgaard frá Heikki Aaltonen frá
og kirkjumálaráð- Danmörku. Finnlandi.
í erindi Danans Tom Jacobsgaard
kom fram sú skoðun hans að ráð-
herrar á Norðurlöndum væru of
margir og ráðuneytin of stór og-
valdamikil. Máli sínu til stuðnings
benti hann á að I Japan, sem er
mesta útflutningsþjóð veraldar,
væru hlutfallslega færri ráðherrar
og svo væri einnig um Bandaríkin.
Þá minntist hann á nauðsyn þess
að viss sveigjanleiki væri á milli
starfsmanna og verkefna á milli
ráðuneyta, það er að segja að
starfsmenn ráðuneyta gætu starfað
við önnur ráðuneyti án mikils undir-
búnings.
Erindi Norðmannsins Vidar O.
Steine fjallaði um Qárveitingar til
opinberrar stjómsýslu og einnig
lýsti hann reynslu Norðmanna af
þeim breytingum sem gerðar hafa
verið I opinberri stjómsýslu á
síðustu ámm.
Finninn Heikki Aaltonen ræddi
um tilraunir finnskra stjómvalda til
að minnka miðstýringu I opinberri
stjómsýslu. Hann sagði að mikil
umræða væri I gangi I Finnlandi
um bætta þjónustu opinberra aðila.
Lykilorðið I þeim breytingum sem
fyrirhugaðar eru I Finnlandi sagði
Heikki vera „þjónustulund". Mark-
herra flutti erindi á
ráðstefnunni.
miðið væri að færa völd og ákvarð-
anir frá borgunum til smærri staða
víðs vegar um landið. Einnig væri
I ráði að opinberir aðilar, eins og
pósthús og löggæsla, taki tölvur I
sína þjónustu og læri að hagnýta
sér þær. Heikki sagði að lítil um-
ræða væri I gangi I Finnlandi, ólíkt
nágrönnum þeirra Svíum, um
einkavæðingu.
Hins vegar var einkavæðing
meginmálið I erindi Svíans Frederik
Sterzel. Erindi hans fjallaði um
einkavæðingu opinberra fyrirtækja
og rekstur ríkisfyrirtækja. Sterzel
lýsti jafnframt yfir ánægju sinni
með slíka ráðstefnu þar sem oft
væri erfiðleikum bundið að komast
I samband við starfsbræður slna á
hinum Norðurlöndunum. Einnig
lýsti hann yfir stuðningi við hug-
myndir um stofnun skóla á háskóla-
stigi fyrir opinbera starfsmenn sem
starfí á norrænum grunni.
Menntun á háskólastigi
Fyrir hönd íslands flutti prófess-
or Þórir Einarsson erindi sem hann
nefndi: „Menntun I opinberri stjóm-
un á háskólastigi á Norðurlöndum".
Þar rakti Þórir þróun starfstétta
sem unnið hafa við æðri stjómsýslu-
störf. Má þar nefna lögfræðinga,
viðskiptafræðinga og stjómmála-
fræðinga og sagði Þórir að þessar
stéttir hafi hver sína greiningar-
tækni og aðferðafræði sem sniðin
er að ákveðinni tegund vandamála.
Sérhvert mál ætti því að geta feng-
ið bestu faglega meðferð. Hins veg-
ar telur Þórir það veikleika að þess-
ar stéttir skorti yfírsýn og þess
vegna þurfi að koma til nám I opin-
berri stjórnsýslu. Ekki sé nóg að
stjómandi hafí yfirsýn einnar
starfsstéttar og fræðigreinar að
leiðarljósi heldur þarf hann að sýna
basði fæmi og þekkingu á stjómun
við hinar sérstöku aðstæður opin-
berrar stjómsýslu.